febrúar 28, 2005lágskýjað en sól í grenndmagnaður skíðadagur hér hjá okkur. ekki var nú samt mikið skyggni neðst í brekkunum en þá hélt maður sig bara skýjum ofar í sólinni. það eru nett þreyttir þrímenningar sem eru að fara út að borða á "au fin gourumet" núna með henni svanhildi.
-mundi | 17:32
| Comments (1)
Kominn tími til að blogga smáJá það er ansi langt liðið frá því ég skrifaði síðast en það hefur bæði verið mikið að gera og frá litlu að segja. En nú hef ég frá nógu að segja og því best að hefjast handa.
-Svanhildur | 13:00
| Comments (0)
febrúar 24, 2005daglegt amsturþegar fátt er að frétta er talað um veðrið.
-mundi | 09:25
| Comments (2)
febrúar 22, 2005farir ekki sléttar....uss uss uss hvað er nú eiginlega að gerast hérna í frans??? hér er allt í kalda koli í dag. eiginlega byrjaði þetta í gær í búðinni með því að bíllinn var að stríða okkur. svo inn í búðinni þá tókst mig að skera mig á pappírnum sem nýji fondúpotturinn okkar var og er pakkaður í.
-mundi | 14:42
| Comments (6)
febrúar 17, 2005Hvað haldiði að ég sé gömul?Ég hef nákvæmlega ekki frá neinu að segja en er farin að hafa áhyggjur af því að ég sé að bregðast dyggum lesendum, þoli nefnilega ekki sjálf þegar ég hleyp í gegnum síður allra vina minna (og allra hinna) í von um að alla vega einhver sé búinn að blogga frá því ég gáði síðast (einum til tveimur klukkutímum áður) en enginn er kominn með nýja færslu. Ákvað því að taka þetta skemmtilega próf sem ég fann á síðunni hennar Bjarkar og svo ákvað ég að stela hugmyndinni hennar. En allavega, ef þið voruð í vafa um hvað ég væri gömul þá vitið þið það núna og getið jafnvel komist að ykkar egin aldri.
-mundi | 23:52
| Comments (4)
febrúar 15, 2005enn um snjóenn kyngir niður snjó hér í grenoble eins og sjá má ef bornar eru saman myndir frá gær og í dag. sem áður finnst mér það hið besta mál en þó er sá galli á gjöf njarðar að ég ætla til fjalla í dag og ég veit bara ekki hvað honum volfgang mínum finnst um það því hann er jú bara á sumarskónum. ætli ég bíði ekki átekta og hafi samband við gonna á eftir, hann er hérna núna en er að fara heim á eftir. hann er á vetrardekkjum og með keðjur!!!
-mundi | 09:59
| Comments (5)
febrúar 14, 2005mánudagur í frans
-mundi | 10:39
| Comments (3)
febrúar 12, 2005heyrðu þetta er að virkaheyrðu þetta er að virka !!! þá er bara að halda áfram að koma þeim upplýsingum inn á harða drifið sem eiga að vera þar. Víííííí........
-mundi | 15:56
| Comments (2)
nýr harður diskurþá ætlar kallinn að fara að vaða í það að endurnýja örlítið tölvugarminn. hún er eiginlega alveg að koxa aumingja vélin okkar en ég vona að nýr harður diskur gleðji hana og endurnæri. ef ekki verður komin færsla hérna innan 3 daga þá hefur eitthvað mistekist!!! bless á meðan.
-mundi | 14:30
| Comments (0)
febrúar 11, 2005smá fjallasaga
-mundi | 17:06
| Comments (1)
febrúar 10, 2005VetrarfríNú er ég komin í vetrarfrí sem er nú reyndar ekki frí að öðru leyti en því að það er ekki kennt í næstu viku. En það gefur mér tíma til að vinna í verkefninu mínu og kannski til að skreppa einu sinni eða tvisvar á skíði. Fór allavega í dag og keypti mér skíðapassa til vonar og vara. Hér er búin að vera glampandi sól og 10 stiga hita í tvær vikur og snjórinn farinn að hverfa úr fjöllunum. En sem betur fer á að snjóa í fjöllin (rigna hér) frá og með morgundeginum og eins langt og spáin nær. Það verður því sennilega ekkert farið á skíði um helgina en væri ekki amalegt að skella sér þegar sólin kemur aftur og nóg af nýföllnum snjó!
-Svanhildur | 19:09
| Comments (5)
febrúar 9, 2005GallupMaður er rétt búinn að tengja síma í herbergið og Gallup strax byrjaður að hringja. Sat hér í rólegheitum við tölvuna og var að skrifa ritgerð þegar síminn hringdi. Þetta var reyndar í annað skiptið sem síminn hringir í dag og í bæði skiptin veðraðist ég upp, handviss um að þetta væri mamma. En það var ekki svo gott; í fyrra skiptið var þetta vitlaust númer og nú áðan var það Gallup að gera könnun fyrir bankann minn hér í Frakklandi. Mér fannst þetta nú ekki sérlega spennandi könnun en samþykkti engu að síður að svara spurningunum. Hefði betur sleppt því þar sem á eftir fylgdu ábyggilega hundrað spurningar um eitthvað sem ég hafði enga skoðun á. Datt ekki í hug að það væri hægt að búa til svona langan spurningalista um þjónustu banka. Við öllum þessum spurningum gat ég valið um eftirfarandi svör: mjög sátt, frekar sátt, frekar ósátt, mjög ósátt. Held ég hafi alltaf sagst vera frekar sátt svo að eftir þetta símtal get ég sennilega dregið þá ályktun að ég sé frekar sátt við bankann minn! Hins vegar er ég ekki sátt við það hvað hraðbankarnir eru oft tómir (sem er slæmt þar sem hér eru engir gjaldkerar heldur bara hraðbankar) og var alltaf að bíða eftir spurningu um það til að geta sagst vera mjög ósátt en að sjálfsögðu var ekkert spurt um það.
-Svanhildur | 13:44
| Comments (3)
febrúar 8, 2005aftur orðin ein í kotinuJá Mundi bara rétt kominn og farinn aftur. Það þýðir að planið næstu daga hjá mér er lærdómur og meiri lærdómur enda veitir víst ekki af. Maður má ekkert slaka á ef maður ætlar að ná að verða einn af 25 hæstu og ég er orðin nett stressuð yfir að vera ekki komin lengra af stað með rannsóknarverkefnið mitt. Stefni því að því að vera mjög dugleg næstu 3 daga allavega, svo kannski einn dag í pásu þegar Mundi kemur aftur en svo bara aftur að læra. Reyndar var verið að bjóða mér í partý á fimmtudagskvöldið og auðvitað mun ég fara í það, ekki það oft sem mér er boðið í partý hjá öðrum en hér á hæðinni, en þetta er hjá stelpu í skólanum.
-Svanhildur | 18:43
| Comments (4)
febrúar 7, 2005uppgjör helgarinnarhelgin hér í grenoblehreppi var öll hin ágætasta. það var verslað, snæddur góður matur og við hérna á hæðinni fórum saman að skemmta okkur á laugardaginn. allt gott.
-mundi | 12:30
| Comments (4)
febrúar 4, 2005á skíðum skemmt ég mérFrábær skíðadagur að baki hér hjá okkur í grenoble. Glampandi sól og ekki ský á himni í allan dag. skíðafæri einnig eins og best verður á kosið. Ég ætla svosem ekki að segja meira um þetta en spánýjar myndir má nálgast í myndaalbúminu hér til hliðar.
-mundi | 16:42
| Comments (3)
farinskömmu eftir að færsla gærdagsins datt inn fór ég að laga skíðin, bræða í rispur og bera undir. fína gufustraujárnið mitt er þá loksins komið með hlutverk!! svo var tekin fram þjöl og kantarnir skerptir. nú er allt klárt, kakóið að komast á brúsann og volfgang fékk skíðabogana í gær.
-mundi | 06:16
| Comments (3)
febrúar 3, 2005um daginn og veginnþað var mikið málað í gær. dagurinn í dag hefur hins vegar liðið áfram átakalítið en með talsverðum framkvæmdum. það er nefnilega ekki svo auðvelt að búa á 15 fm með allt þetta dót sem manni fylgir. maður er sennilega ekki sá nægjusamasti, mér finnst alveg ómögulegt að hafa ekki allt til alls og ég held að ég hafi nú umþaðbil næstumþví flest hér í þessum klefa. því þarf allt að vera skipulega upp sett.
-mundi | 15:06
| Comments (2)
febrúar 1, 2005Fönn fönn fönn fönn frönsk fönnjá þá hefur tæknin hafið innreið sína í frakkland. já góðir gestir, er'ekk allir sestir!VIÐ ERUM KOMIN MEÐ SÍMA!!!! við tengdum monstersímann sem við fengum gefinn á íslandi og okkur til furðu þá virkaði allt strax, án allra adsl filtera og vesenis. þannig að nýtt símanúmer hjá okkur er því 0033-476-42-30-94. nú er semsagt hægt að hringja beint hingað í klefann okkar, það þarf ekki lengur að hringja í sameiginlega símann frammi á gangi.
-mundi | 12:09
| Comments (4)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
lágskýjað en sól í grennd
Kominn tími til að blogga smá nývaknaður daglegt amstur farir ekki sléttar.... Hvað haldiði að ég sé gömul? enn um snjó mánudagur í frans heyrðu þetta er að virka nýr harður diskur Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|