Föstudagur 28. janúar

Vonbrigði

Það hefur nákvæmlega ekkert gerst hjá mér í dag. Er bara búin að vera að læra og hlustaði á leikinn og það sem dró helst til tíðinda í dag er að Daníel bauð mér yfir til sín að drekka kaffi og við spjölluðum um orkumál. Mér fannst því nauðsynlegt að gera eitthvað í kvöld en enginn hér á hæðinni ætlaði að gera neitt svo að ég hringdi í stelpu sem er með mér í skólanum og spurði hana ekki hvort hún væri til í að kíkja aðeins út í kvöld. Hún var sko til í það og ég varð voða ánægð, setti tónlist á fóninn, opnaði bjór og fór að rembast við að renna stígvélunum mínum upp mína feitu kálfa. Er rétt búin að klæða mig í gallan og á leiðinni að fara að mála mig þegar hún hringir og kemst ekki út í kvöld. Stefnir því í rólegt kvöld yfir afleitu sjónvarpsefni. Það er samt bót í máli að við ætlum í bæinn annað kvöld í staðinn en ég er samt pínu svekkt að þurfa að láta mér leiðast í kvöld. Veit ég fór að djamma í fyrradag en mér er farið að leiðast óendanlega mikið að vera hérna ein og þrái að gera eitthvað skemmtilegt með öðru fólki á kvöldin. Ég hlakka voða mikið til að fá hann Munda minn til mín á mánudaginn.

- Svanhildur | 20:47
Umræður

Hildur Guðný:

Hahahaha ..renna stígvélunum mínum upp mína feitu kálfa!! ó hvað ég kannast við þetta vandamál- og við erum örugglega ekki einu íslensku konurnar sem gera það..

(28.01.05 23:30)

Svanhildur:

Nei þetta er alveg hræðilegt með þessi stígvél. Af hverju eru ekki framleidd stígvél fyrir feitfóta konur? Þessi stígvél mín eru meira að segja extra víð, man hvað ég var glöð þegar ég keypti þau því ég var búin að leita lengi að stígvélum en fann engin sem ég gat rennt upp. Þangað til að loksins ég fann þessi.

(28.01.05 23:38)

mundi:

ég á nú ekki einu sinni nokia... en ég á fínar vöðlur !

(29.01.05 13:05)

Svanhildur:

Já þetta var nú ekki til vandræða á gömlu Viking stígvélunum mínum. Ég ætti kannski bara að kaupa mér þannig til að fara í á djammið?!

(29.01.05 14:46)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni