Föstudagur 14. janúar

Törnin búin

Já síðustu tveir sólarhringar eru búinir að vera mikil kvöl og pína en nú tekur skemmtun, hamingja og gleði öll völd. Mér tókst að klára seinna verkefnið rétt fyrir hádegi í gær með því að vinna í því næstum alla nóttina. Þegar ég var búin að skila tók svo próflestur við fyrir prófið sem ég var í í morgun. Mér fannst mér bara hafa gengið nokkuð vel þangað til ég fór að tala við krakkana eftir prófið og komst að því að ég hafði gert villu, hafði gert rétt fyrst en breytti því svo og er því ansi svekkt yfir því. En það þýðir víst ekki mikið að vera að svekkja sig yfir því núna, enda ekki hægt að breyta því sem orðið er. Vona bara að ég nái prófinu svo að ég þurfi ekki að fara í endurtektarpróf í júní þar sem planið er að eyða byrjun júní í ferðalag en ekki prófalestur.


En nú er þetta sem sagt allt búið og ég komin með skíðapassa fyrir helgina í hendurnar. Var rétt í þessu að tékka á spánni og hún hefur ekkert breyst: glampandi sól alla helgina. Það á því ekkert að geta komið í veg fyrir að helgin verði með besta móti. Veit að Mundi er ansi svekktur að missa af fjörinu hér og hans verður sárt saknað (ég sakna hans nú reyndar á hverjum degi en gladdist fyrir hans hönd að þurfa ekki að vera hérna með mér þegar ég var í þvílíku stresskasti út af þessu blessaða verkefni og var að fríka út. Hann hringdi í mig á miðvikudagskvöldið og það var varla hægt að eiga við mig samræður því ég var gjörsamlega úti á þekju, þreytt og stressuð.) En Mundi þarf ekki að örvænta því það er morgunljóst að það verða fleiri svona helgar, já eða jafnvel vikur, í vetur og hafa ýmsir nú þegar boðað komu sína til að taka þátt í því.

- Svanhildur | 13:15
Umræður

sara:

góða skemmtun!
knús

(14.01.05 17:29)

Svanhildur:

Takk takk

(14.01.05 17:46)

Beta:

Bið að heilsa brekkunum! (og raclette ostinum....)

(14.01.05 19:28)

Svanhildur:

Hahahha ég var einmitt búin að kaupa raclette ost fyrir helgina :)

(14.01.05 19:46)

Birta:

Já, njóttu þess út í æsar að vera búin í prófum og verkefnavinnu og slakaðu á á skíðum (ef það er þá hægt sökum adrenalínsflæðis...hihi). Góða skemmtun, kossar og knús, Birta.

(15.01.05 22:43)

sara:

til hamingju með afmælið í dag!!!
vona þú eigir góðan dag :)

kossar og knús

(17.01.05 12:57)

Magga Mús:

Til hamingju með afmælið elsku Svanhildur...vonandi var skíðahelgin æðisleg..ekki laust við að maður sé öfundsjúkur útí þann lúxus ..en allavega eigðu góðan afmælisdag:)
Gros bisous
Magga

(17.01.05 13:51)

gauti bróðir:

Til hamingju með afmælið elsku systir. Við hér heima á fróni vonum að þú eigir góðan afmælisdag án Munda en hann sagði að þið væruð vanalega á ferðinni um afmælin ykkar. Kossar og knús (K)(L). Gauti

(17.01.05 16:05)

Svanhildur:

Takk takk.
Helgin er búin að vera alveg æðisleg og dagurinn í dag hefur að mestu farið í að sofa og jafna sig eftir helgina og safna þreki fyrir skólann sem byrjar á morgun.

(17.01.05 16:11)

Beta:

Bon anniv'. Njóttu þess í botn!!!!

(17.01.05 16:39)

Birta:

Til hamingju með daginn elsku Svanhildur mín. Hafðu það gott. Kossar og knús, Birta (ennþá bumba :/ )

(17.01.05 21:35)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni