sendu karlinn í leikfimi
Blómaval er búið að vera að auglýsa í útvarpinu í allan dag að konur eigi endilega að koma mönnunum sínum skemmtilega á óvart í tilefni dagsins og gefa honum blóm og frímiða í World Class. Ég veit nú ekki hvort ég yrði mjög ánægð með svona gjöf á konudaginn því ég myndi taka því sem ég væri orðin of feit og þyrfti nú að fara að gera eitthvað í mínum málum og þætti ekki viðeigandi að fá þessa sneið á deginum sem maðurinn á að vera góður við konuna sína og láta henni líða vel. Er það kannski bara af því að ég er kona? Hvað segiði strákar? Mynduð þið verða glaðir með að fá frímiða í World Class frá elskunni ykkar? Fékk kannski einhver svona pakka í dag?