rólegheit í baunalandi
hér í höfuðborg legókubbanna gengur á með éljum í dag. í augnablikinu er uppstytta og smáfuglarnir hakka í sig brauðið sem við keyptum á miðvikudaginn hérna hjá hérastubbi og bakaradrengnum.
í morgun fór ég og náði mér í flugmiðann minn til parísar, hann þurfti ég að nálgast á flugvellinum og til að forðast það að lenda í röð á ögurstundu þá renndum við feðgarnir í þetta verkefni í morgun. annars erum við bara að bíða núna eftir því að danska sjónvarpið sýni leik íslenska liðsins á HM í túnis. mér skilst að það byrji leikur eftir um klukkustund.
ég ætla að fá mér saltstangir með honum.
sara:
ísland vann!!!!
(29.01.05 16:57)
Ziggy Flotti:
Saltstangir er það gælunafn yfir bjór???
(30.01.05 11:33)