Miðvikudagur 26. janúar

mistök

stundum mistekst manni. foreldrar mínir tjáðu mér í gær að hér í bænum billund væri eðal sólstofa. mér datt í hug að notfæra mér sæluna og baða mig sólu í norrænu skammdegi.


ekki vildi betur til en svo að eitthvað misskildi ég leiðbeiningar foreldranna. þetta eru víst eitthvað tjúnnaðir bekkir hérna í baunalandi og ég fór óvart í tvöfaldann tíma sem var þó ekki nema 12 mínútur.


nú er maður eins og rassskelltur karfi á allann skrokkinn og makar sig í feiti til að lina þjáningarnar!! hahaha.... já það er ekki tekið út með sældinni að vera súkkulaðisætur sólstrandargæi eins og ég.

- mundi | 21:07
Umræður

Torfi:

... ekki frekar en að vera síldartunna - það er víst ekki tekið út með sældinni heldur.

af tvennu illu er líklega skárra að vera rassskelltur karfi :-|

(27.01.05 08:18)

jons:

Hahahaha jeeeeeeeeeeeeee

(27.01.05 08:25)

Ziggy Flotti:

Ljósabekkir, hvað varð um að rífa sig úr að ofna og fara bara út og bíða eftir sumrinu???

(27.01.05 09:42)

Hildur:

Haha, þá hefði verið betra að drífa sig með hildi sinni í Bjarg meðan tækifærið gafst.. þar fer brúnkan á mann eins og flís í rass!

(28.01.05 16:31)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni