Mánudagur 10. janúar

Misheppnuð bókasafns- og verslunarferð

Í dag fór ég á bókasafnið til að fá lánaða bók sem ég tel að geti nýst mér við að vinna annað þessara verkefna sem ég á að skila núna á fimmtudaginn en því miður var hún ekki inni og þetta því tilgangslaus ferð á bókasafnið. Þvínæst fór ég í stórmarkaðinn til að kaupa prenthylki í prentarann til að geta prentað þessi verkefni mín út en þá voru prenthylkin sem mig vantaði ekki til. Þarna fór því hálfur annar klukkutími fyrir lítið og ég verð víst að skreppa í aðra búð á morgun og reyna að fá prenthylki. Frekar fúlt.


En dagurinn var þó ekki alslæmur. Mér er búið að ganga ágætlega að læra í dag og svo fékk ég fyrirspurn frá París varðandi hvort það væri möguleiki á að fá kannski gistingu hjá mér um helgina og draga mig með á skíði. Ég hoppaði og söng af gleði, er búið að langa svo mikið á skíði í góða veðrinu hérna og var búin að ákveða að skella mér um helgina en var að hafa áhyggjur af því að hafa engan til að fara með nema kannski Þjóðverjana hérna en þau eru öll byrjendur og ég var ekki alveg að nenna að fara að eyða skíðadeginum í barnabrekkunum. Ég má samt víst ekki fara að hlakka til alveg strax því málið er enn í skoðun í París og ekki búið að taka neina ákvörðun enn. En mikið yrði ég ánægð að fá Jón og Guðrúnu í heimsókn.

- Svanhildur | 19:00
Umræður

Beta:

Bastardos. Verst að geta ekki hoppað til ykkar og farið með......

(10.01.05 22:13)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni