Fimmtudagur 27. janúar

Miðrarvikudjamm

Við Hagen, Daniel og Kelit fórum á Couche Tard í gærkvöldi og það var mikið stuð. Vorum mætt á staðinn um hálfellefuleytið og þá var byrjað á að panta bjór á barnum og svo farið út á dansgólfið og við settumst aldrei niður heldur bara dönsuðum og dönsuðum og sungum fram til klukkan hálftvö. Ég á eftir að sakna þess þegar ég flyt aftur til Íslands að það sé ekki hægt að fara út að dansa alla daga nema sunnudaga. Hér skiptir engu máli hvaða dagur er (sunnudagar eru ekki taldir með), það er alltaf stuð í bænum. Það var sem sagt mikið stuð á Couche Tard og þar hittum við líka Róbert sem býr á neðri hæðinni og Róbert sem er að fara að flytja hingað, einmitt í herbergið hans Hagens. Þannig að þið sjáið að það eru bara allir á djamminu á miðvikudagskvöldum. Að vana ákvað Hagen að halda skemmtuninni áfram á Vertigo (diskótek) og þrátt fyrir að ég væri í miklu stuði, búin með nokkra bjóra og búin að syngja og dansa eins og brjálæðingur, þá ákvað ég að vera skynsöm og fara heim með Daniel og Kelit þar sem ég þurfti að mæta í skólann í morgun klukkan 8:30. Og það gekk svona líka vel, bara þambað vatn og tekin ein verkjapilla fyrir svefninn og frekar lítill hausverkur í morgun. Þá var það bara aftur fullt af vatni og ein verkjapilla og klár í skólann. Verð samt að viðurkenna að ég er ansi þreytt núna og ætla að leggja mig aðeins. A plus.

- Svanhildur | 11:58
Umræður

Hildur Guðný:

Ohh Couche tard er náttla bara snilld.. Þegar þú kemur heim þá djömmum við bara eitthvert miðvikudagskvöldið í bænum- úti á túni til dæmis með gítar í annarri og rauðvín í hinni!

(28.01.05 16:37)

Svanhildur:

Hahahahahha, já gerum það endilega!

(28.01.05 17:02)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni