Mánudagur 17. janúarHelgin og afmælisdagurinnHelgin var hreint út sagt frábær. Jón og Guðrún komu hingað á föstudagskvöldið og það var spilað og drukkið rauðvín áður en við fórum í háttinn. Svo var skíðað á laugardaginn í glampandi sól, skroppið á veitngastað í fjallinu í hádeginu og snædd kálfasteik og áð sjálfsögðu rauðvín með og svo skíðað til lokunar. Þá var halðið heim á leið og fírað upp í raclette græjunni, drukkið meira rauðvín og spilað fram á nótt. Svo var farið aftur á skíði á sunnudaginn og enn var sama sólin og sami góði hádegispásupakkinn tekinn. Og svo að sjálfsögðu spilað fram á nótt. Í morgun (það var nú reyndar farið að nálgast hádegi þegar farið var á fætur) fórum við í bæinn og borðuðum afmælis-morgun/hádegisverð á kebabstað. Þau skötuhjúin lögðu svo af stað aftur til Parísar upp úr hádegi og ég tók þá eftir því að ég var ansi þreytt eftir lítinn svefn undanfarnar 6 nætur og steinsofnaði. Hafði samt ekkert fundið fyrir því að ég væri eitthvað þreytt um helgina því það var allt of mikið skemmtilegt um að vera til að maður týmdi eitthvað að vera að eyða tíma í að sofa. Þegar ég vaknaði aftur seinnipartinn var ég hálf löt og ákvað að eyða kvöldinu bara ein í rólegheitum yfir sjónvarpinu. En þá komu Daniel og Kelit mér skemmtilega á óvart og bönkuðu upp á hjá mér með risa afmælispakka. Hann reyndist innihalda voða flott freyðivínsglös og að sjálfsögðu fylgdi freyðivínsflaska með. Svo kom Hagen heim úr skólanum og söng fyrir mig afmælissönginn. Þar sem ég átti nóg af raclette-osti í afgang frá laugardagskvöldinu bauð ég þeim að borða raclette með mér og bragða á freyðivíninu í nýju glösunum. Þau voru að fara rétt í þessu og kvöldið er sem sagt búið að vera mjög skemmtilegt.
- Svanhildur | 22:08
Umræður
Hildur: GAman að spjalla við þig í gær þótt stutt væri, og gott að þú áttir góðan dag. Við hugsuðum mikið til þín hér á Akureyri! Takk fyrir 25 ára vináttu :) (18.01.05 11:16)
Svanhildur: Já ég vona að það hafi verið gaman hjá ykkur í gærkvöldi í tilefni dagsins og takk sömuleiðis fyrir ómetanlega, ævilanga vináttu. (18.01.05 17:50)
jons: Já og takk fyrir helgina, þvílíka snilldin sem þetta var! (19.01.05 10:41)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|