Laugardagur 8. janúar

Fríið búið

Ég kom heim til mín klukkan 18:30 í gærkvöldi eða nákvæmlega 12 tímum eftir að ég lagði af stað út á flugvöll. Mikið er nú leiðinlegt að ferðast einn. Ég var ansi þreytt þegar ég kom heim, fékk mér harðfisk og skyr í kvöldmat og fór svo bara eldsnemma í háttinn og vaknaði ekki aftur fyrr en 12 tímum seinna núna í morgun. Þegar ég leit út um gluggann sá ég að það er fullkomið skíðaveður; heiðskírt og 10 stiga hiti. En það verður víst enginn tími til að fara á skíði þessa vikuna þar sem nú er prófa- og verkefnaskilavika. Ég dreif mig í búðina að kaupa í matinn enda ísskápurinn galtómur. Ákvað í síðasta saumaklúbb að byrja nýjan lífstíl þegar ég kæmi aftur út þar sem allar stelpurnar virtust vera að byrja í megrun eftir ofát undanfarna daga. Nú er sem sagt planið að borða bara ávexti fram til hádegis og á milli mála, keypti hálfa kerru af ávöxtum og grænmeti í búðinni áðan svo nú er bara eins gott að ég borði þetta og láti þetta ekki skemmast eins og svo oft vill verða þegar ég kaupi ávexti. Svo var ein í saumaklúbbnum að mæla svo mikið með Spirulinu, sem eru einhverjar þörungapillur, svo að ég dreif mig í apótekið og keypti einhvern risadunk af þessu. Þá er bara að fylgja prógramminu og sjá hvort maður verði ekki orðin ný manneskja eftir svona mánuð; full af orku og kannski aðeins grennri.

- Svanhildur | 13:59
Umræður

mundi:

vonandi verður samt kjöt á borðum þegar ég kem :)

(08.01.05 21:13)

Hildur Guðný:

Gangi þér vel að læra svo þú komist á skíði sem fyrst!

(08.01.05 23:29)

Svanhildur:

Já Mundi það verður alveg kjöt þegar þú kemur og svo bara þegar við viljum kjöt. Ég er nú ekki að fara í neina öfga megrun og ætla ekki að hætta að borða neitt, bara reyna að hugsa aðeins betur um hvað ég set ofan í mig. En þessar tvær máltíðir á dag, þ.e. hádegis- og kvöldmatur, mega innihalda hvað sem er.


Takk fyrir það Hildur mín.

(09.01.05 09:13)

jons:

Nákvæmlega, allt er gott í Partýi!

(10.01.05 09:22)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni