Fimmtudagur 20. janúar

Framtíðarplönin í uppnámi

Fyrsti skóladagurinn á nýrri önn síðastliðinn þriðjudag settu framtíðarplön okkar Munda í mikið uppnám og engin leið er lengur að vita hvað mun taka við næsta skólaár. Málið er að það var búið að tilkynna okkur frá byrjun að það yrði niðurskurður á milli ára og að af okkur 80 sem erum á fyrsta ári í master myndu aðeins 45 komast áfram á annað ár. Þetta setti auðvitað á mann pressu en ég taldi mig nú eiga góða möguleika á að komast áfram þar sem ég hlyti að geta náð því að verða ein af 45 hæstu. En á þriðjudaginn var tilkynnt að sennilega kæmust ekki nema um 25 áfram og ljóst er að það verður mun erfiðara að vera á meðal 25 efstu. En það er sennilega ekkert við þessu að gera annað en að spýta í lófana og vera duglegur að læra og kannski fara að þróa eitthvað varaplan fyrir næsta vetur. Annars fékk ég eina einkunn á þriðjudaginn og get ekki annað en verið sátt við hana og er sennilega meðal 25 efstu í því fagi. Á hins vegar enn eftir að fá einkunnir fyrir hin 6 fögin sem ég tók á síðustu önn og tel næsta ómögulegt að ég fái eins góðar einkunnir í öllum þeim fögum. En þetta verður víst bara að fá að koma í ljós. Það eina sem ég get gert núna er að stefna á að vera há þessa önn. Ætla því að fara að læra núna.

- Svanhildur | 09:40
Umræður

jons:

Þetta er nú meiri skitan, gangi þér vel að læra!

(20.01.05 11:43)

Svanhildur:

Takk takk

(20.01.05 12:23)

baldur:

you go girl, ég hef fulla trú á þér.

(21.01.05 06:06)

Torfi:

Hverskonar bull er þetta nú....

... það ættu frekar að vera hraustlegri inntökuskilyrði inn í masterinn heldur en þessi vitleysa - tala nú ekki um að vera svo að breyta leikreglum í hálfleik !!

(21.01.05 08:08)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni