Miðvikudagur 26. janúar

Fermingargjöf

Ég vaknaði fyrir allar aldir í morgun við fulla þvagblöðru og tókst engan veginn að festa svefn aftur eftir tæmingu. Dreif mig því snemma á lappir en nennti samt ekki að byrja að læra strax. Hékk því aðeins á netinu þangað til að klukkan fór að nálgast níu en þá opna búðir hér. Ég hef ekkert kíkt á útsölurnar hérna og hef svo sem ekki hug á að gera það þar sem mig vantar ekki neitt, nema jú, fann eitt sem ég gæti kannski keypt á útsölu: fermingargjöf handa bróður mínum. Fann mér því afsökun fyrir að fara í búð, jafnvel þótt enn séu nokkrir mánuðir í að Gauti fermist. Maður á nú kannski ekki að vera segja frá því að maður kaupi gjafir á útsölu en ég ætla samt að segja ykkur frá því að ég fann þessa frábæru gjöf handa bróður mínum á góðum afslætti. Annars skammast ég mín svo sem ekkert fyrir að hafa keypt gjöfina á útsölu, ef það sem ég keypti hefði ekki verið á útsölu þá hefði það verið of dýrt og Gauti hefði fengið minni gjöf fyrir vikið. Mér sýnist því allir græða, þ.e. við Mundi og Gauti. Verst að þetta er svo rosalega stór pakki (ég er að reyna að gera Gauta spenntan) að það mun ábyggilega kosta jafn mikið að senda hann heim og ég borgaði fyrir hann í búðinni og ég get varla farið að troða gjöfinni á tilvonandi gesti þar sem gjöfin er ansi plássfrek. En það er allt í lagi, litli bróðir manns fermist nú ekki nema einu sinni og verður maður ekki að gefa flotta gjöf þegar maður getur ekki verið viðstaddur? Það held ég nú.


Annars er nákvæmlega ekkert að frétta. Búið að snjóa pínu og vera kalt en það er bara fínt því þá verður gott skíðafæri. Svo hlustaði ég auðvitað á leikinn í gærkvöldi og er jafn svekkt og aðrir Íslendingar en svona er þetta nú bara.


Það stefnir þó allt í djamm hjá mér í kvöld. Hagen er að flytja til Parísar næstu helgi og kvöldið í kvöld er síðasta kvöldið sem hann hefur til að djamma í Grenoble sökum prófa og heimsóknar móður. Held því að hæðin ætli saman á Couche Tard í kvöld.


Jamm og jæja, ætla að fara að læra.

- Svanhildur | 09:24
Umræður

mundi:

jeeeeeeee couche tard .... og gauti heppinn mar..

(26.01.05 10:10)

Svanhildur:

Já hann er heppinn, og ég líka heppin að vera að fara á Couche Tard! Við förum þangað saman í næstu viku kannski.

(26.01.05 11:36)

mundi:

já - það er málið held ég bara..

(26.01.05 15:20)

sara:

já núna eru íslendingar ekki að gera sig á móti kúveitum. hvað er að gerast??

(26.01.05 20:20)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni