Miðvikudagur 12. janúar

Þetta er allt að koma

Þá er ég búin að klára eitt verkefni og eins gott ég verði dugleg í dag því er bara hálfnuð með hitt verkefnið og það á að skila í fyrramálið. Líka eins gott að ljúka þessu af til að geta byrjað að læra fyrir prófið sem er á föstudagsmorguninn.


Mikið verð ég ánægð á hádegi á föstudag þegar þessu verður lokið og ég fer í sundlaugina og kaupi mér ódýra skíðapassa fyrir helgina. Já það verður sko skíðað báða dagana og ég var að kíkja á veðurspána og veðrið á að vera frábært: glapandi sól og alles. Jón og Guðrún koma á föstudagskvöldið og verða fram á mánudag og í gær var farið í búðina og ísskápurinn fylltur af góðum mat og bjór og nóg af víni í vínhilluna og gott ef maður laumar ekki á swiss-miss og stroh til að ylja sér við skíðaiðkunina. Hvað er betra en góður félagsskapur, gott veður, skíði, góður matur og vín? Svo er ég meira að segja með nýtt spil, Sequence, sem Mundi fékk í möndlugjöf og við höfum aldrei spilað en höfum heyrt að sé mjög skemmtilegt. Ég sé því fyrir mér algjöra snilldarhelgi: snemma á fætur á morgnanna, skíðað í góðu veðri, farið heim seinnipartinn, borðaður góður matur og vín með og svo spilað þangað til farið verður í háttinn og sama plan endurtekið næsta dag.


Svo er ekki verra að ég verð ekki alveg ein á afmælisdaginn minn og aldrei að vita nema reglan um ekkert nema ávexti fyrir hádegi verði brotin og haldið upp á afmælið með kaffi og croissant, eða jafnvel eggi og beikoni á mánudagsmorguninn áður en gestirnir bruna aftur af stað til Parísar.

- Svanhildur | 11:20
Umræður

Bjössi:

...engin megrun um helgina...;)

(12.01.05 12:39)

Svanhildur:

Neibb, ætla alveg að láta hana eiga sig um helgina, enda myndi hún draga alvarlega úr skemmtanagildi helgarinnar.

(12.01.05 12:44)

sara:

jesús, hvað ég öfunda þig, þetta hljómar of gott til að vera satt

(12.01.05 13:09)

Bjørk:

spiladi thetta spil mikid um jolin. Mjøg skemmtilegt spil. Annars er thetta frabært helgarplan, bara med theim betri sem eg hef heyrt um:)

(12.01.05 13:42)

hanna mágkona:

úff má ég vera með? Þetta hljómar ekkert smá vel!!

(12.01.05 14:47)

Beta:

Úfffff, ég er dottin í þvílíkt nostalgíukast. Skemmtið ykkur ógeðslega vel..........

(12.01.05 18:05)

jons:

Já þetta verður snilld! Það styttist hratt, við tókum allt til í gær og settum í bílinn svo það verður farið beint eftir vinnu! Yeeah, það eru ekki nema svona 5tímar í að við leggjum af stað!

Er rétt, það er fátt betra en góður félagsskapur, gott veður, skíði, góður matur og gott vín. Verst að vantar góðan Munda, en hann verður með næst!

(14.01.05 09:34)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni