Föstudagur 21. janúarEnga flensu hér takkJæja þá er komið að þriðja bloggi dagsins. Þið verðið bara að þola ruglið í mér. Málið er að þegar ég er svona alein í Frakklandi þá hef ég ekkert marga að tala við, bara tala svona aðeins við krakkana sem búa hérna og svo bara krakkana í skólanum þegar það er skóli. En nú hef ég ekki farið í skólann frá því á þriðjudag (kennsla féll niður í gær sökum verkfalls, sem ætti nú ekki að koma fólki á óvart þar sem ég bý í Frakklandi) svo að ég verð bara að fá að rausa hérna og endilega verið dugleg að kommenta því þá er næstum því eins og ég sé að eiga samræður við fólk en ekki bara að tala út í tómið.
- Svanhildur | 21:12
Umræður
batgirl: já stundum líður mér illa yfir því hvað maður er dekraður hér en svo finnur maður eitthvað annað sem manni langar í og gleymir líðanum..... en ég á samt ekki fulla kassa af kjólum....keypti mér pils um jólin og held ég svei mér þá að ég hafi ekki keypt mér pils, hvað þá kjól í mööööööörg ár!!! já það borgar sig að taka vítamínin og ég veit að fólinsýra kemur í veg fyrir að barn fæðist með klofinn hrygg (ekki gott) og því gott fyrir konur fyrir og meðan á meðgöngu stendur......ekki það að þið séuð að fara að koma með kríli eða hvað....kannski bara óskhyggja hjá mömmu þinni?!?!!!! (22.01.05 01:33)
Svanhildur: Já mamma sagði mér einmitt að skortur á fólínsýru á meðgöngu gæti valdið klofnum hrygg. Hef samt aldrei fundið fyrir því að hún sé eitthvað farin að bíða eftir því að verða amma, þvert á móti held ég að hún vilji að ég klári að læra áður en ég fer að unga út. Og nei það er ekki á planinu að koma með kríli strax en sakar sennilega ekki að taka þessar pillur og vera við öllu viðbúin. (22.01.05 09:20)
Heiða í Sviss: hahahah þú ert yndisleg:) vona að þú hafir náð flensuskítnum úr þér með öllum þessum brögðum þínum:) (22.01.05 12:37)
Heiða í Sviss: Ps: endilega haltu samt áfram að blogga, mér finnst frábært að fylgjast með þér þarna:) Langaði t.d. ekkert smá á skíði (þó svo að ég kunni ekkert á skíði) þegar ég las bloggið þitt eftir síðustu helgi:) (22.01.05 12:37)
Svanhildur: Takk fyrir það Heiða mín. Mér finnst líka alltaf æðislegt að fylgjast með hvað er að gerast hjá þér, jafnvel þessa daga sem þú hefur ekkert að tala um og færir mér fréttir af Rick og Brooke :) (22.01.05 15:54)
jons: Guðrún er einmitt að lenda í þessarri flensu, hrikalegt alveg! Bara halda áfram að massa vítamínið og lýsið! (25.01.05 12:22)
Svanhildur: Æææ, vona að Guðrún hressist fljótt. Það er rétt að þessar flensur eru meira draslið. Ég virðist hafa náð að drepa bakteríurnar í mér, ekki nema þetta hafi bara verið ímyndunarveiki í mér, var nefnilega að frétta í skólanum að flesnan væri bara að koma til Rhône-Alpes (héraðið mitt) fyrst núna og fólk er að byrja að veikjast í skólanum. Þannig að ég held áfram á fullu í vítamínunum og lýsinu til að vera örugg, hata ekkert meira en að vera veik. (26.01.05 06:31)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|