Sunnudagur 30. janúar

Danmörk kvödd að sinni

þá er síðasti heili dagur danmerkurdvalar að kvöldi kominn. á morgun ætla ég svo að ferðast 1500km til suðurs áleiðis til svanhildar.


á hádegi í dag fórum við í frokost hjá margit nágrannakonu. að því loknu fórum við í smá bíltúr hérna um jóska hálendið. niður til kolding, upp til vejle og um sveitirnar umhverfis. þar mátti víða sjá ummerki óveðursins sem hér fór yfir ekki alls fyrir löngu. þeir eiga nógan eldivið núna jósku bændurnir. sumir eiga hins vegar eitthvað minna af húsþökum.


næsta færsla verður svo frá frakkandi - lifið heil

- mundi | 19:59
Umræður

Ziggy Flotti:

Húsþök eru stórkostlega ofmetinn!!

(31.01.05 07:50)

Torfi:

... tja - ofmetin eða ekki þá eru þau í það minnsta of sjaldan metin... maður er ekkert uppá þaki hægri vinstri að meta þök... mitt mat er að mats sé þörf - hugsanlega ofmats!

(31.01.05 08:04)

Kolla:

Þak yfir höfðuð, tja, ekki vildi ég án þess vera og tel það alls ekki ofmetið sá lúxus. Ekki vildi ég búa í húsi úr ramma með engu nema veggjum. En ef IKEA væri að selja hús, væri eflaust hægt að kaupa þannig. (með tilvísun í blogg Torfa og Evu!)

(31.01.05 10:30)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni