Sunnudagur 23. janúar

Áfram Ísland

Að sjálfsögðu hlustaði ég á Adolf Inga lýsa leiknum áðan á Rás 2. Eins og öðrum Íslendingum leist mér ekkert á þetta framan af og átti svo sem aldrei von á því að "strákarnir okkar" gerðu einhverjar gloríur á þessu móti og var farin að spurja sjálfa mig af hverju ég væri samt alltaf að halda í trúna á að við gætum eitthvað í handbolta. En vááá hvað ég var að deyja úr spenningi síðustu 5 mínúturnar, var farin að öskra þegar þeir skoruðu og líka þegar það var varið og líka þegar Tékkarnir skoruðu. Var sem sagt síöskrandi hérna inni í herbergi og það endaði með því að Daníel kom til að athuga hvort það væri ekki allt í lagi hahahha. En þetta jafntefli gerði sem sagt alveg daginn fyrir mig og nú bíð ég bara spennt eftir þriðjudagskvöldinu og hef að sjálfsögðu fulla trú á að við vinnum þann leik :) Auðvitað ætti maður nú bara að skella sér til Túnis, kostar bara 30.000 kall flug og hótel í viku. En nei annars, tel mér frekar trú um að ef ég myndi mæta á svæðið þá myndu þeir örugglega tapa og ferðin verða hundleiðinleg. Ég held því bara áfram að hlusta á hann Adolf minn og öskra: Áfram Ísland!!!

- Svanhildur | 18:33
Umræður




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni