janúar 30, 2005Danmörk kvödd að sinniþá er síðasti heili dagur danmerkurdvalar að kvöldi kominn. á morgun ætla ég svo að ferðast 1500km til suðurs áleiðis til svanhildar.
-mundi | 19:59
| Comments (3)
skemmtilegt djammVar að koma heim af svona líka fínu djammi. Langaði bara að láta ykkur vita af því og prufa að blogga pínu full. Verð nú að viðurkenna að það er pínu erfitt að finna réttu takkana á lyklaborðinu. En það var sem sagt mjög gaman í kvöld. Annars lítið annað að frétta eftir daginn.
-Svanhildur | 00:57
| Comments (3)
janúar 29, 2005rólegheit í baunalandihér í höfuðborg legókubbanna gengur á með éljum í dag. í augnablikinu er uppstytta og smáfuglarnir hakka í sig brauðið sem við keyptum á miðvikudaginn hérna hjá hérastubbi og bakaradrengnum. í morgun fór ég og náði mér í flugmiðann minn til parísar, hann þurfti ég að nálgast á flugvellinum og til að forðast það að lenda í röð á ögurstundu þá renndum við feðgarnir í þetta verkefni í morgun. annars erum við bara að bíða núna eftir því að danska sjónvarpið sýni leik íslenska liðsins á HM í túnis. mér skilst að það byrji leikur eftir um klukkustund. ég ætla að fá mér saltstangir með honum.
-mundi | 14:21
| Comments (2)
janúar 28, 2005VonbrigðiÞað hefur nákvæmlega ekkert gerst hjá mér í dag. Er bara búin að vera að læra og hlustaði á leikinn og það sem dró helst til tíðinda í dag er að Daníel bauð mér yfir til sín að drekka kaffi og við spjölluðum um orkumál. Mér fannst því nauðsynlegt að gera eitthvað í kvöld en enginn hér á hæðinni ætlaði að gera neitt svo að ég hringdi í stelpu sem er með mér í skólanum og spurði hana ekki hvort hún væri til í að kíkja aðeins út í kvöld. Hún var sko til í það og ég varð voða ánægð, setti tónlist á fóninn, opnaði bjór og fór að rembast við að renna stígvélunum mínum upp mína feitu kálfa. Er rétt búin að klæða mig í gallan og á leiðinni að fara að mála mig þegar hún hringir og kemst ekki út í kvöld. Stefnir því í rólegt kvöld yfir afleitu sjónvarpsefni. Það er samt bót í máli að við ætlum í bæinn annað kvöld í staðinn en ég er samt pínu svekkt að þurfa að láta mér leiðast í kvöld. Veit ég fór að djamma í fyrradag en mér er farið að leiðast óendanlega mikið að vera hérna ein og þrái að gera eitthvað skemmtilegt með öðru fólki á kvöldin. Ég hlakka voða mikið til að fá hann Munda minn til mín á mánudaginn.
-Svanhildur | 20:47
| Comments (4)
nord-jyllandföstudagur og túr um norðurjótland. enn var sá gamli að útrétta fyrir íslendingafélagið. þetta var hin ágætasta ferð með léttum snúning og fjallgöngu við ringköbing fjörðinn. ágæt upphitun fyrir alpana. að vísu smá hæðarmunur á fjöllum, en ekki svo mikill er það? það var allavega fallegt útsýnið af þessum hól, haf og strönd og stöku sólargeislar inn á milli.
-mundi | 18:30
| Comments (0)
janúar 27, 2005rauðmagarþá flokkast maður ekki lengur með mönnum. sennilega er ég kominn inn í kvótakerfið og flokkast með rauðmögum. jesús hvað maginn á mér er rauður. ég huxa að það lýsi af mér í myrkri.
-mundi | 17:19
| Comments (3)
MiðrarvikudjammVið Hagen, Daniel og Kelit fórum á Couche Tard í gærkvöldi og það var mikið stuð. Vorum mætt á staðinn um hálfellefuleytið og þá var byrjað á að panta bjór á barnum og svo farið út á dansgólfið og við settumst aldrei niður heldur bara dönsuðum og dönsuðum og sungum fram til klukkan hálftvö. Ég á eftir að sakna þess þegar ég flyt aftur til Íslands að það sé ekki hægt að fara út að dansa alla daga nema sunnudaga. Hér skiptir engu máli hvaða dagur er (sunnudagar eru ekki taldir með), það er alltaf stuð í bænum. Það var sem sagt mikið stuð á Couche Tard og þar hittum við líka Róbert sem býr á neðri hæðinni og Róbert sem er að fara að flytja hingað, einmitt í herbergið hans Hagens. Þannig að þið sjáið að það eru bara allir á djamminu á miðvikudagskvöldum. Að vana ákvað Hagen að halda skemmtuninni áfram á Vertigo (diskótek) og þrátt fyrir að ég væri í miklu stuði, búin með nokkra bjóra og búin að syngja og dansa eins og brjálæðingur, þá ákvað ég að vera skynsöm og fara heim með Daniel og Kelit þar sem ég þurfti að mæta í skólann í morgun klukkan 8:30. Og það gekk svona líka vel, bara þambað vatn og tekin ein verkjapilla fyrir svefninn og frekar lítill hausverkur í morgun. Þá var það bara aftur fullt af vatni og ein verkjapilla og klár í skólann. Verð samt að viðurkenna að ég er ansi þreytt núna og ætla að leggja mig aðeins. A plus.
-Svanhildur | 11:58
| Comments (2)
janúar 26, 2005mistökstundum mistekst manni. foreldrar mínir tjáðu mér í gær að hér í bænum billund væri eðal sólstofa. mér datt í hug að notfæra mér sæluna og baða mig sólu í norrænu skammdegi.
-mundi | 21:07
| Comments (4)
FermingargjöfÉg vaknaði fyrir allar aldir í morgun við fulla þvagblöðru og tókst engan veginn að festa svefn aftur eftir tæmingu. Dreif mig því snemma á lappir en nennti samt ekki að byrja að læra strax. Hékk því aðeins á netinu þangað til að klukkan fór að nálgast níu en þá opna búðir hér. Ég hef ekkert kíkt á útsölurnar hérna og hef svo sem ekki hug á að gera það þar sem mig vantar ekki neitt, nema jú, fann eitt sem ég gæti kannski keypt á útsölu: fermingargjöf handa bróður mínum. Fann mér því afsökun fyrir að fara í búð, jafnvel þótt enn séu nokkrir mánuðir í að Gauti fermist. Maður á nú kannski ekki að vera segja frá því að maður kaupi gjafir á útsölu en ég ætla samt að segja ykkur frá því að ég fann þessa frábæru gjöf handa bróður mínum á góðum afslætti. Annars skammast ég mín svo sem ekkert fyrir að hafa keypt gjöfina á útsölu, ef það sem ég keypti hefði ekki verið á útsölu þá hefði það verið of dýrt og Gauti hefði fengið minni gjöf fyrir vikið. Mér sýnist því allir græða, þ.e. við Mundi og Gauti. Verst að þetta er svo rosalega stór pakki (ég er að reyna að gera Gauta spenntan) að það mun ábyggilega kosta jafn mikið að senda hann heim og ég borgaði fyrir hann í búðinni og ég get varla farið að troða gjöfinni á tilvonandi gesti þar sem gjöfin er ansi plássfrek. En það er allt í lagi, litli bróðir manns fermist nú ekki nema einu sinni og verður maður ekki að gefa flotta gjöf þegar maður getur ekki verið viðstaddur? Það held ég nú.
-Svanhildur | 09:24
| Comments (4)
janúar 25, 2005flugdónarþá er kallinn kominn í hús í mörkinni. eftir ansi skrautlega flugferð. fyrst var smá ókyrrð í lofti og svo var nefnilega kolvitlaus flugdóni um borð í vélinni líka. sú var að gera allt vitlaust, ælandi og öskrandi um alla vél. neitaði svo að setjast þegar lent var og var með almenn mótmæli. hennar biðu nokkrir lögregluþjónar þegar vélin var opnuð.
-mundi | 16:00
| Comments (7)
janúar 23, 2005Áfram ÍslandAð sjálfsögðu hlustaði ég á Adolf Inga lýsa leiknum áðan á Rás 2. Eins og öðrum Íslendingum leist mér ekkert á þetta framan af og átti svo sem aldrei von á því að "strákarnir okkar" gerðu einhverjar gloríur á þessu móti og var farin að spurja sjálfa mig af hverju ég væri samt alltaf að halda í trúna á að við gætum eitthvað í handbolta. En vááá hvað ég var að deyja úr spenningi síðustu 5 mínúturnar, var farin að öskra þegar þeir skoruðu og líka þegar það var varið og líka þegar Tékkarnir skoruðu. Var sem sagt síöskrandi hérna inni í herbergi og það endaði með því að Daníel kom til að athuga hvort það væri ekki allt í lagi hahahha. En þetta jafntefli gerði sem sagt alveg daginn fyrir mig og nú bíð ég bara spennt eftir þriðjudagskvöldinu og hef að sjálfsögðu fulla trú á að við vinnum þann leik :) Auðvitað ætti maður nú bara að skella sér til Túnis, kostar bara 30.000 kall flug og hótel í viku. En nei annars, tel mér frekar trú um að ef ég myndi mæta á svæðið þá myndu þeir örugglega tapa og ferðin verða hundleiðinleg. Ég held því bara áfram að hlusta á hann Adolf minn og öskra: Áfram Ísland!!!
-Svanhildur | 18:33
| Comments (0)
janúar 21, 2005Enga flensu hér takkJæja þá er komið að þriðja bloggi dagsins. Þið verðið bara að þola ruglið í mér. Málið er að þegar ég er svona alein í Frakklandi þá hef ég ekkert marga að tala við, bara tala svona aðeins við krakkana sem búa hérna og svo bara krakkana í skólanum þegar það er skóli. En nú hef ég ekki farið í skólann frá því á þriðjudag (kennsla féll niður í gær sökum verkfalls, sem ætti nú ekki að koma fólki á óvart þar sem ég bý í Frakklandi) svo að ég verð bara að fá að rausa hérna og endilega verið dugleg að kommenta því þá er næstum því eins og ég sé að eiga samræður við fólk en ekki bara að tala út í tómið.
-Svanhildur | 21:12
| Comments (7)
sendu karlinn í leikfimiBlómaval er búið að vera að auglýsa í útvarpinu í allan dag að konur eigi endilega að koma mönnunum sínum skemmtilega á óvart í tilefni dagsins og gefa honum blóm og frímiða í World Class. Ég veit nú ekki hvort ég yrði mjög ánægð með svona gjöf á konudaginn því ég myndi taka því sem ég væri orðin of feit og þyrfti nú að fara að gera eitthvað í mínum málum og þætti ekki viðeigandi að fá þessa sneið á deginum sem maðurinn á að vera góður við konuna sína og láta henni líða vel. Er það kannski bara af því að ég er kona? Hvað segiði strákar? Mynduð þið verða glaðir með að fá frímiða í World Class frá elskunni ykkar? Fékk kannski einhver svona pakka í dag?
-Svanhildur | 17:30
| Comments (0)
BóndadagurTil hamingju með daginn elsku Mundi minn sem og aðrir góðir húsbændur. Greyið Mundi er aðeins of langt í burtu til að fá dekur í dag en á það bara inni.
-Svanhildur | 08:24
| Comments (2)
janúar 20, 2005Mæli með því......að þið kíkið á myndir frá helginni á síðunni hjá Jóni og Guðrúnu (sjá link hér til hliðar).
-Svanhildur | 12:35
| Comments (3)
Framtíðarplönin í uppnámiFyrsti skóladagurinn á nýrri önn síðastliðinn þriðjudag settu framtíðarplön okkar Munda í mikið uppnám og engin leið er lengur að vita hvað mun taka við næsta skólaár. Málið er að það var búið að tilkynna okkur frá byrjun að það yrði niðurskurður á milli ára og að af okkur 80 sem erum á fyrsta ári í master myndu aðeins 45 komast áfram á annað ár. Þetta setti auðvitað á mann pressu en ég taldi mig nú eiga góða möguleika á að komast áfram þar sem ég hlyti að geta náð því að verða ein af 45 hæstu. En á þriðjudaginn var tilkynnt að sennilega kæmust ekki nema um 25 áfram og ljóst er að það verður mun erfiðara að vera á meðal 25 efstu. En það er sennilega ekkert við þessu að gera annað en að spýta í lófana og vera duglegur að læra og kannski fara að þróa eitthvað varaplan fyrir næsta vetur. Annars fékk ég eina einkunn á þriðjudaginn og get ekki annað en verið sátt við hana og er sennilega meðal 25 efstu í því fagi. Á hins vegar enn eftir að fá einkunnir fyrir hin 6 fögin sem ég tók á síðustu önn og tel næsta ómögulegt að ég fái eins góðar einkunnir í öllum þeim fögum. En þetta verður víst bara að fá að koma í ljós. Það eina sem ég get gert núna er að stefna á að vera há þessa önn. Ætla því að fara að læra núna.
-Svanhildur | 09:40
| Comments (4)
janúar 17, 2005Helgin og afmælisdagurinnHelgin var hreint út sagt frábær. Jón og Guðrún komu hingað á föstudagskvöldið og það var spilað og drukkið rauðvín áður en við fórum í háttinn. Svo var skíðað á laugardaginn í glampandi sól, skroppið á veitngastað í fjallinu í hádeginu og snædd kálfasteik og áð sjálfsögðu rauðvín með og svo skíðað til lokunar. Þá var halðið heim á leið og fírað upp í raclette græjunni, drukkið meira rauðvín og spilað fram á nótt. Svo var farið aftur á skíði á sunnudaginn og enn var sama sólin og sami góði hádegispásupakkinn tekinn. Og svo að sjálfsögðu spilað fram á nótt. Í morgun (það var nú reyndar farið að nálgast hádegi þegar farið var á fætur) fórum við í bæinn og borðuðum afmælis-morgun/hádegisverð á kebabstað. Þau skötuhjúin lögðu svo af stað aftur til Parísar upp úr hádegi og ég tók þá eftir því að ég var ansi þreytt eftir lítinn svefn undanfarnar 6 nætur og steinsofnaði. Hafði samt ekkert fundið fyrir því að ég væri eitthvað þreytt um helgina því það var allt of mikið skemmtilegt um að vera til að maður týmdi eitthvað að vera að eyða tíma í að sofa. Þegar ég vaknaði aftur seinnipartinn var ég hálf löt og ákvað að eyða kvöldinu bara ein í rólegheitum yfir sjónvarpinu. En þá komu Daniel og Kelit mér skemmtilega á óvart og bönkuðu upp á hjá mér með risa afmælispakka. Hann reyndist innihalda voða flott freyðivínsglös og að sjálfsögðu fylgdi freyðivínsflaska með. Svo kom Hagen heim úr skólanum og söng fyrir mig afmælissönginn. Þar sem ég átti nóg af raclette-osti í afgang frá laugardagskvöldinu bauð ég þeim að borða raclette með mér og bragða á freyðivíninu í nýju glösunum. Þau voru að fara rétt í þessu og kvöldið er sem sagt búið að vera mjög skemmtilegt.
-Svanhildur | 22:08
| Comments (3)
janúar 14, 2005Törnin búinJá síðustu tveir sólarhringar eru búinir að vera mikil kvöl og pína en nú tekur skemmtun, hamingja og gleði öll völd. Mér tókst að klára seinna verkefnið rétt fyrir hádegi í gær með því að vinna í því næstum alla nóttina. Þegar ég var búin að skila tók svo próflestur við fyrir prófið sem ég var í í morgun. Mér fannst mér bara hafa gengið nokkuð vel þangað til ég fór að tala við krakkana eftir prófið og komst að því að ég hafði gert villu, hafði gert rétt fyrst en breytti því svo og er því ansi svekkt yfir því. En það þýðir víst ekki mikið að vera að svekkja sig yfir því núna, enda ekki hægt að breyta því sem orðið er. Vona bara að ég nái prófinu svo að ég þurfi ekki að fara í endurtektarpróf í júní þar sem planið er að eyða byrjun júní í ferðalag en ekki prófalestur.
-Svanhildur | 13:15
| Comments (11)
janúar 12, 2005Ég er að morknaVerð bara að taka mér smá bloggpásu. Er ekki að ganga nógu hratt hjá mér með þetta helv... verkefni og stefnir í að ég þurfi að vera að langt fram á nótt. Er enganvegin að nenna því. En ég hlýt nú að hafa þetta af. Get glatt mig með hugsununni um að eftir minna en tvo sólarhringa verður líf mitt tóm hamingja, þ.e.a.s. ef mér á ekki eftir að ganga allt of illa í þessu prófi. Já já, til að það gerist ekki er víst best að fara að hætta þessu bulli og halda áfram, þetta er að verða búið...
-Svanhildur | 17:11
| Comments (1)
Þetta er allt að komaÞá er ég búin að klára eitt verkefni og eins gott ég verði dugleg í dag því er bara hálfnuð með hitt verkefnið og það á að skila í fyrramálið. Líka eins gott að ljúka þessu af til að geta byrjað að læra fyrir prófið sem er á föstudagsmorguninn.
-Svanhildur | 11:20
| Comments (7)
janúar 11, 2005Queen á japönskuEr rétt í þessu að hlusta á Gest Einar á Rás 2 og hann er að spila Quenn-syrpu á japönsku. Vona að einhver þarna úti sé að hlusta líka því þetta er með því fyndnara sem ég hef heyrt.
-Svanhildur | 09:38
| Comments (3)
janúar 10, 2005Misheppnuð bókasafns- og verslunarferðÍ dag fór ég á bókasafnið til að fá lánaða bók sem ég tel að geti nýst mér við að vinna annað þessara verkefna sem ég á að skila núna á fimmtudaginn en því miður var hún ekki inni og þetta því tilgangslaus ferð á bókasafnið. Þvínæst fór ég í stórmarkaðinn til að kaupa prenthylki í prentarann til að geta prentað þessi verkefni mín út en þá voru prenthylkin sem mig vantaði ekki til. Þarna fór því hálfur annar klukkutími fyrir lítið og ég verð víst að skreppa í aðra búð á morgun og reyna að fá prenthylki. Frekar fúlt.
-Svanhildur | 19:00
| Comments (1)
janúar 9, 2005ég er á lífigleðilegt ár allir.
svo er síðasta vinnuvika mín að hefjast eftir nokkrar klukkustundir því stefnan er norður í land á næsta sunnudag. þar verður tekin vika áður en farið verður til danaveldis í 5 daga. að því loknu fer maður "heim" til frakklands á ný.
-mundi | 19:46
| Comments (3)
janúar 8, 2005Fríið búiðÉg kom heim til mín klukkan 18:30 í gærkvöldi eða nákvæmlega 12 tímum eftir að ég lagði af stað út á flugvöll. Mikið er nú leiðinlegt að ferðast einn. Ég var ansi þreytt þegar ég kom heim, fékk mér harðfisk og skyr í kvöldmat og fór svo bara eldsnemma í háttinn og vaknaði ekki aftur fyrr en 12 tímum seinna núna í morgun. Þegar ég leit út um gluggann sá ég að það er fullkomið skíðaveður; heiðskírt og 10 stiga hiti. En það verður víst enginn tími til að fara á skíði þessa vikuna þar sem nú er prófa- og verkefnaskilavika. Ég dreif mig í búðina að kaupa í matinn enda ísskápurinn galtómur. Ákvað í síðasta saumaklúbb að byrja nýjan lífstíl þegar ég kæmi aftur út þar sem allar stelpurnar virtust vera að byrja í megrun eftir ofát undanfarna daga. Nú er sem sagt planið að borða bara ávexti fram til hádegis og á milli mála, keypti hálfa kerru af ávöxtum og grænmeti í búðinni áðan svo nú er bara eins gott að ég borði þetta og láti þetta ekki skemmast eins og svo oft vill verða þegar ég kaupi ávexti. Svo var ein í saumaklúbbnum að mæla svo mikið með Spirulinu, sem eru einhverjar þörungapillur, svo að ég dreif mig í apótekið og keypti einhvern risadunk af þessu. Þá er bara að fylgja prógramminu og sjá hvort maður verði ekki orðin ný manneskja eftir svona mánuð; full af orku og kannski aðeins grennri.
-Svanhildur | 13:59
| Comments (4)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Danmörk kvödd að sinni
skemmtilegt djamm rólegheit í baunalandi Vonbrigði nord-jylland rauðmagar Miðrarvikudjamm mistök Fermingargjöf flugdónar Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|