« ágúst 2004 | Heim | október 2004 » september 30, 2004
september 28, 2004
Greiddum vaskinn
já - í dag fór Svanhildur og greiddi vaskinn. einhverjir verða kannski hissa á því en þeir sem hafa heimsótt okkur verða það sennilega ekki. vaskurinn í vistarverum okkar hefur nefnilega verið ömurlegur. svo lítill að það er ekki hægt að þvo á sér nema aðra hendina í einu - og diskanarnir, upp á rönd og svo snúið í hring.
september 27, 2004
Volfgang boginn
já svona fer fransmaðurinn með bílinn manns þegar hann vantar að hlusta á útvarpið. hurðin bara beygð upp eins og lok á niðursuðudós. ég sem hélt nú að sænska freðmýrastálið væri aðeins seigara en þetta!
Helgin
Eftir að hafa eytt tveimur og hálfum tíma á lögreglustöðinni við skýrslugerð og bið (aðallega bið) á laugardagskvöldið, fórum við heim og ákváðum að hætta að hugsa um bílinn í bili og fengum okkur í glas með Þjóðverjunum. Kvöldið var fínt og ekki laust við smá þynnku í gær með tilheyrandi videoglápi og hamborgaraáti.
september 25, 2004
ANDSKOTANS DJÖFULSINS HELVÍTIS
Mikið óskaplega varð ég glaður áðan þegar ég ætlaði að fara á bílnum mínum og sá að það var búið að brjótast inn í hann og losa mig við útvarpið, gömlu myndavélina mína úr hanskahólfinu og beygla hurðina hressilega.
Finnið fimm villur !
Er það bara ég - eða er ekki eitthvað bogið við þetta? Allavega ekki fengið mér kebab þarna enn sem komið er. :-) september 24, 2004
Jólafrí
Já það er ekki seinna vænna að fara að skipuleggja jólafríið svona þegar skólinn er nýbyrjaður eftir sumarfrí. Alla vega svona þegar maður býr í útlöndum og þarf að vera viss um að fá flug heim þegar manni hentar. Ég var að vonast til að vera ekkert í skólanum á föstudögum til að geta flogið heim seinasta kennsludag fyrir jólafrí sem er föstudagurinn 17. desember. Eins og gera mátti ráð fyrir rættist ekki úr þeirri ósk minni og ég þarf sennilega að taka tvö próf þennan dag. Ég var því að enda við að breyta flugmiðanum mínum heim og kem ekki fyrr en mánudaginn 20. desember. Svolítið fúlt að ná ekki þessari helgi heima en þetta þarf þó ekki að vera alslæmt. Málið er nefnilega að samkvæmt planinu eiga prófin að vera í byrjun janúar en það virðist sem margir kennarar velji frekar að hafa þau í seinustu kennslustund fyrir jólafrí. Nú þarf ég bara að komast að því hvort allir kennararnir mínir hugsi sér að hafa þetta þannig. Ef svo er þá gæti það þýtt að í stað þess að þurfa að eyða fríinu í að læra fyrir próf og þurfa að fara út aftur 2. janúar, þá mun ég kannski bara vera búin í prófum fyrir jól og þarf ekki að mæta aftur í skólann fyrr en um miðjan janúar. Þetta er samt enn allt óljóst en sakar ekki að láta sig dreyma um langt jólafrí í faðmi fjölskyldu og vina. september 23, 2004
Einkennileg einkenni
eitthvað held ég nú að elskuleg systir sé að gera grín í mér núna! skellihlær og skellir sér á lær. :) einkennismynd þessarar síðu er orðin einkennileg. og ég sem nota bara tölvur en kann ekki á þær! ég ákvað því að setja hér inn fyrstu myndina frá Grímseyjarferð okkar í sumar í þeirri von að það dragi athyglina frá hinni hægra megin við. afgangurinn af Grímseyjarmyndunum er á leiðinni - en bíðum samt aðeins.
Kvusslax
ef þið hafið eitthvað að segja - endilega kommentið þá. sjálfur man ég ekki eftir neinu í augnablikinu :-) september 22, 2004
lágkúra
hahahaha... ég var að hlusta á hádegisfréttirnar á Rúv. mér finnst þetta mögnuð lágkúra sem er í gangi hjá okkar heittelskaða fyrirtæki Flugleiðum. já það eru margar ástæður fyrir því að fljúga ekki með þeim. - hér er til dæmis ein: skoðið þetta og á hvaða vefslóð það er.
september 21, 2004
Breytingar á netfangi
í dag sóttum við um þjónustu hjá nýrri netveitu. við ætlum semsagt að færa okkur frá ríkisbatteríinu, france telecom, til einkaaðila. við höfum verið mjög sátt við þá þjónustu sem við höfum fengið - en nú er svo komið að aðrir eru einfaldlega að bjóða miklu betri verð, og bundinn árssamningur okkar við hina er að renna út. nú fáum við helmingi hraðari tengingu á hálfvirði þeirrar sem við erum með, (512=>1024) auk þess að þurfa ekki að binda okkur allt árið. þannig að netfangið mitt mundi74@wanadoo.fr fer að detta út einhverntíman á næstunni. því mælist ég til að þeir sem eru með mig inni á adressbook hjá sér fari að senda mér póstinn frekar á mundi74@hotmail.com og eyði hinu netfanginu. ég mun láta vita hér þegar þetta endanlega tekur gildi.
september 20, 2004
hillur
rólegur dagur að baki og afrakstur ekki mikill. þó náði ég að kaupa egg og brauð og setti upp hillu fyrir skíðaskóna okkar og vifturnar sem við þurfum vonandi ekki að nota fyrr en að nokkum mánuðum liðnum. plássið ekkert að plaga okkur hérna á 15 fermetrunum! en, já hér hefur aðeins kólnað síðustu 3 vikur - þó eru hér 18°C og logn, þegar þetta er skrifað rétt fyrir kl. ellefu um kvöld.
september 18, 2004
GÆSIR GÆSIR GÆSIR
síðasti myndapakkinn frá íslandi er svo með myndum frá Grímsey. hann gæti nú farið að detta inn innan tíðar. september 17, 2004
Köttur
september 16, 2004
1. verðlaun
já það voru fleiri með stafrænar myndavélar á siglufirði, um verslunarmannahelgina, en við. bæði Björn og Torfi eiga slíkar gersemar og besta skot helgarinnar er líklega í eigu Torfa.
september 15, 2004
Hinar ýmsu þjóðir
Þá fer fólkið smám saman að tínast hingað til grenoble. sem er gott. hér er búið að vera tómt hús síðan við komum en nú eru komnir hingað nokkrir nemar, frá bretlandi, þýskalandi og moldavíu. þar sem ég stóð,með sandpappír í annarri og hina í vasa áðan, þá fór ég að hugleiða hver væri svona megin munurinn á milli hinna ýmsu þjóða og þjóðerna. vissulega er hann stór, landfræðilega, pólitískt osfrv, en hugsanagangur er líka mjög mismunandi, það sem þykir tilhlýðilegt á einum stað fellur ekki í kramið á öðrum og svo framvegis. þannig að mér datt sísvona í hug að setja saman einhverja frasa sem lýstu meðalmanni hverrar þjóðar sem ég hef kynnst á þessu flandri mínu um útlönd. ákvað að hafa þetta svona:
Frakkinn gerir það - eins og honum hentar, þegar honum hentar Bretinn gerir það - öfugu megin við alla hina Daninn gerir það - þegar sólin skín og ölið er kalt Kaninn gerir það - af föðurlandsást Svíinn gerir það - best að eigin sögn Ítalinn gerir það - ekki ! en talar um að fara að gera það, ...eftir matinn Kanadamaðurinn gerir það - í rólegheitum Spánverjinn gerir það - ha, humm já á morgun bara er það ekki?? Arabbinn gerir það - ef mamma og konan eru veikar og geta það ekki ....og Íslendingurinn gerir það að sjálfsögðu í vinnutímanum !
september 14, 2004
SIGLÓ
´
september 13, 2004
Da Vinci lykillinn
Frá því við komum til Grenoble hefur Mundi haft í nógu að snúast við að mála og læra en ég hef hins vegar haft frekar tómlega stundatöflu og hef því nýtt tímann í lestur, og nei ég er ekki búinn að snerta á skólabókunum heldur hef ég eingöngu verið að lesa mér til gamans (og ef til vill líka til gagns). Ég var núna áðan að enda við enda við Da Vinci lykilinn sem þið hafið örugglega mörg lesið og þið sem hafið ekki gert það enn skuluð drífa í því (eða alla vega gera það í jólafríinu). Þetta er snilldar spennusaga sem velltir upp óteljandi áhugaverðum spurningum. Núna langar mig bara að fara að finna mér bækur um sögu Kirkjunnar með stóru Kái. En ég ætla nú annars ekki að segja mikið um innihald bókarinnar, vildi bara endilega mæla með henni við ykkur öll. Held þetta sé bók sem nær gjörsamlega til allra, skiptir engu máli hvort maður er karl, kona, strákur eða stelpa. 23 stig og logn
það er ákaflega tíðindalítið af suð-austur vígstöðvunum þessa dagana. ég dunda mér við að mála fyrir gonna fyrripart dags og svo reyni ég að nærast og kíkja í bækur þess á milli. en andinn ætlar ekki að koma yfir mig þessa dagana, ég er eitthvað hálf andlaus þegar ég ætla að skrifa eitthvað hérna inn, svo ég læt þetta duga að sinni september 10, 2004
Styttist í skólann
Ég var á fundi í morgun uppi í skóla þar sem var verið að útskýra nákvæmlega í hverju námið mitt mun felast og ég er bara rosa spennt að byrja eftir þennan fund. Þetta eru allt svo spennandi kúrsar. Það var líka gaman að hitta krakka sem ég var með í nokkrum kúrsum í fyrra en þetta verður töluvert öðruvísi hjá mér núna þar sem ég verð ekki að taka kúrsa með mismunandi hópum heldur alltaf með sömu krökkunum svo maður nær kannski að eignast einhverja vini í skólanum núna. Námið er skipulagt þannig að fyrstu önnina eru kenndar 15 einingar (30 ECTS) en á næstu önn verð ég bara í 7,5 einingum og þarf svo að skrifa 50 blaðsíðna ritgerð sem gildir 7,5 einingar. Þriðja önnin er svo aftur 15 einingar í skólanum en síðasta önnin er fjögurra mánaða verknám erlendis og svo lokaritgerð. Ég á því í rauninni bara eftir eitt og hálft ár hér í Frakklandi og svo bara spurning hvar maður tekur verknámið. Það er aldrei að vita nema maður skelli sér bara í það heima á Íslandi. Engar ákvarðanir hafa þó verið teknar enn enda nægur tími til stefnu til að ákveða hvort maður eltir heimþrána sem blundar alltaf í manni eða útþrána sem hefur alltaf verið mjög sterk í mér en fer þó minnkandi. Kannski hún verði horfin eftir eitt og hálft ár. Það er jú engin tilviljun að einhver fann upp á orðatiltækinu Heima er best. september 09, 2004
Fleiri myndir - miklu fleiri
já - enn eru komnar inn myndir í albúmið frá íslandsferðinni. og ekki þær síðustu. í þetta skiptið er það risastór myndapakki frá helginni eftir verslunarmannahelgi þá eyddum við föstudagskvöldinu við stöng í þjórsárdal með Torfa og Evu. á laugardag komu svo Snæbjörn, Ella og Gauti og ferðinni var haldið áfram inn í landmannalaugar og á sunnudeginum var svo gengið inn að háafossi með þeim. þetta var án nokkurs efa ein besta helgi sumarsins, enda veðrið með eindæmum gott og sló í eða nærri þrjátíu gráðum á laugardeginum.
- annars tíðindalítið, logn og 29 stig. september 08, 2004
gonni leigusali
það er búinn að vera annasamur dagur hérna. ég er búinn að vera að reyna að læra með öðru. mikið ofsalega finnst mér þetta fara eitthvað hægt af stað hjá mér, þeas mér þykir framleiðnin ekki mikil, það er ekki mikill afrakstur af hverjum klukkutíma. ég er að reyna að telja mér trú um að þetta séu svona byrjunarvandamál. annars kom hann xavier, betur þekktur hér á síðunni sem gonni leigusali, til okkar í dag. við skulduðum honum leigu fyrir ágúst og september sem við greiddum. skömmu síðar endurgreiddi hann okkur ágúst, sagði að við hefðum ekki verið hérna svo svona ætti þetta að vera. við kunnum honum þakkir fyrir það. svo var hann að biðja mig um að vinna fyrir sig. nú vill hann helst láta mála öll herbergin hérna á 7 rue ernest calvat. og sum sem allra fyrst. þegar ég klára það á hann svo verkefni í fjöllunum ef ég vil. þetta er náttúrulega alveg stórfínt og við skeggræddum þessi mál hérna yfir bolla af kaffi. ég lofaði honum að gera eins og ég gæti. svo réð hann mig formlega sem húsvörð hérna yfir herlegheitunum í dag. sá starfi felst í því að ef að eitthvað kemur uppá hérna, fer að leka vatn eða eitthvað þá á ég að redda því, og vera tengiliður við hann ef þess þarf með. hann ætlar að fara að hækka húsaleiguna hérna hjá öllum en mín greiðsla felst í því að við munum áfram greiða sama verð. já þannig að það er búið að vera í mörgu að snúast hér í dag og það fól í sér að það verður mikið að gera næstu daga og morgunhugleiðing um útilegu er í uppnámi ...já fussumsvei
ljúfur svali
hér er aðeins svalara nú í morgunsárið en undanfarna morgna, og er það bara vel. minn nýji mælir sýnir mér 22 gráður. annars ætla ég að reyna að vera duglegur við lærdóminn í dag og á morgun, gerði skurk í gær og fyrradag, en betur má ef duga skal. ég missti síðustu viku úr, og mig langar að eiga frí um helgina og fara eitthvað með tjaldið. miðjarðarhaf, ítalía eða sviss - nú eða bara fara eitthvað styttra, kannski upp í fjöllin.
september 07, 2004
nýtt símanúmer
...fyrir svolitlu síðan var mér gefið símakort. ég ákvað að nota það frekar en mitt gamla kort. það gleymdist hins vegar að breyta númerinu hérna á spássíunni en nú ætti það að vera komið í lag og allar upplýsingar réttar LES PHOTOS D'ISLANDE SONT ARRIVÉES !!!
já fyrsti myndapakkinn frá íslandsferð okkar er loksins kominn inn á myndasíðuna okkar. þetta eru myndir frá fyrstu helginni á íslandi, en þá fór ég með myndavélina norður í land að heimsækja vini mína. ekið var suður yfir sprengisand að næturlagi og tíminn nýttur vel. þetta var svona "stórustrákarnirleikasérhelgi!!!"
annars allt með kyrrum kjörum á suðurvígstöðvunum - 31 stig og logn. (mes amis francophones - les nouvelles photos sont dans l'album - il y en aura plus plus tard) september 05, 2004
MADONNA
dagurinn í dag er búinn að vera erfiður en uppskeran varð góð svo það var nú í lagi. við fórum til þess að standa í röð fyrir utan bercy höllina upp úr hádegi í dag. þar var fyrir talsverður fjöldi fólks, sumir höfðu greinilega gist þar nóttina fyrir tónleika til að ná góðu plássi. við komumst frekar framarlega í röðina. þar með er nú ekki nema hálf sagan sögð því það var alveg hrikalega heitt hérna í dag og við vorum í raun ekki nógu vel undir það búin að bíða þarna allan daginn í sólinni. hefðum haft með okkur meira að drekka og sólhlíf eða hatta eða eitthvað slíkt, hefðum við vitað hvað það var sem beið okkar. þetta bjargaðist nú samt allt því öryggisgæslukarlarnir komu allt í einu með fullt af vatni að gefa þeim sem biðu því það var farið að líða yfir einhverja af hitanum. þannig leið svo dagurinn í svitakófi og troðnigi, satt best að segja ekki mjög spennandi. nettur sólbruni á sumum.
september 02, 2004
rölt um bæinn
PARIS
já þá erum við nývöknuð og eldhress hérna í parís hjá Jóni og Guðrúnu. ferðalagið í gær gekk vel og við vorum komin hingað um kl 4. hér er besta veður, sól og blíða. við erum semsagt að byrja að blogga hérna á ný eftir ágætt sumarfrí, þannig að endilega kíkið hérna inn og kommentið, þá vitum við af ykkur. - myndiarnar sem ég var búinn að lofa eru ekki klárar á netið enn, ég á eftir að velja úr myndir til að minnka og setja inn en það gerist núna alveg fljótlega vonandi. annars viljum við þakka fjölskyldum, vinum og vinnufélögum góðar samverustundir og alla greiðana á meðan íslandsdvöl okkar stóð, það er ykkur að þakka að það var svona gaman.. húrrra fyrir ykkur. |
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur5 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur chez An. Gonord 7 rue Ernest Calvat 38000 Grenoble FRANCE Heimasími: 0033-(0)4 7642 6706 Mundi gsm 0033-(0)6 3273 2816 Svanhildur gsm 0033-(0)6 6654 7023 Fólk
daia
baddý hanna torfi og eva jón og guðrún ziggy flotti heiða birta baldur unnur og friðrik björk daníel skíði viddi og kolla hilda torfa bjarni og bryndís Nýlegar færslur
Fjarnám
Greiddum vaskinn Volfgang boginn Helgin ANDSKOTANS DJÖFULSINS HELVÍTIS Finnið fimm villur ! Jólafrí Einkennileg einkenni Kvusslax Gamalt efni
október 2004
september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|