« júlí 2004 | Heim | september 2004 » ágúst 27, 2004
skóli!!! !
jámm - þá er kallinn sestur á skólabekk enn einn ganginn. ég er í augnablikinu í tækniskólanum að hlusta á fyrirlestur um bókhald... verð víst hérna um helgina að skoða þessi mál eitthvað nánar
ágúst 20, 2004
Rómeó og Júlía
Ég verð bara að segja ykkur frá því hvað ég átti æðislegt kvöld í gær. Harpa og Rúnar buðu okkur familíunni í alveg frábæran mat og svo fórum við í Borgarleikhúsið að sjá hið rómaða leikrit Rómeó og Júlíu. Ég var hálf hrædd um að ég væri að búast við of miklu því það voru svo margir búnir að segja mér hvað þetta væri frábær sýning en ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Þetta er ein besta sýning sem ég hef séð og við skemmtum okkur öll alveg rosalega vel. Þetta er svo rosalega skemmtileg uppfærsla, fjörug fyndin og vel leikin og ekki skemmdu loftfimleikarnir og fimleikahoppin fyrir.
ágúst 17, 2004
fréttir af Frónni
Maður verður víst að vera aðeins duglegri að skrifa hérna heima á Íslandi, frekar glatað að hafa bara tóma heimasíðu þar sem færslurnar fara í geymslu eftir að vera búnar að vera á forsíðunni í viku.
ágúst 07, 2004
þögnin rofin
já ótrúlegt en satt - ég er að henda inn færslu. ég komst nefnilega í tölvu hérna hjá daiu og óla, en þau voru að gefa okkur hreindýr og gæs að borða.
ágúst 03, 2004
Síldarævintýri á Sigló
Þá er maður mættur aftur á bókhlöðuna eftir alveg frábæra verslunarmannahelgi á Siglufirði. Held það verði bara aftur farið á síldarævintýrið að ári. Á föstudagskvöldinu var djammað og djúsað með Bjössa, Sísý, Söru og Evu. Dansað og sungið á torginu við undirspil hinna frábæru Miðaldamanna og eftir það farið á ball í bíóinu með hljómsveitinni Von sem er ein besta ballhljómsveit Íslands. Svo var skriðið í tjald um fimmleytið og smá þynnka á laugardeginum. Maður var þó fljótur að hrista hana af sér með söng og gítarspili á laugardagskvöldinu. Þá höfðu Torfi, Eva, Brynjar og Rán bæst í hópinn og eftir grillmatinn var sungið hátt og mikið og svo farið í bæinn og dansað langt fram á nótt. Ég verð að gefa Brynjari tíu rokkstig fyrir að hafa verið maður kvöldsins en ég hef sjaldan séð nokkurn mann dansa svona rosalega og svona líka flottan dans. Við Mundi fórum ekki á fætur á sunnudeginum fyrr en að ganga fjögur. Þá yfirgáfu félagarnir okkur og héldu til Akureyrar en við vorum svo alsæl á Sigló að við urðum eftir þar en færðum okkur þó um set og tjölduðum í garðinum hjá Laugu (frænku Munda) en þar var fullt hús af skemmtilegu fólki og djúsað smá með þeim. Það var svo mjög þreytt en hamingjusamt fólk sem dreif sig loks af stað í bæinn undir kvöld en það var svo sem ágætt að hafa lagt seint af stað því þá sluppum við við umferðina.
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur5 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur chez An. Gonord 7 rue Ernest Calvat 38000 Grenoble FRANCE Heimasími: 0033-(0)4 7642 6706 Mundi gsm 0033-(0)6 3273 2816 Svanhildur gsm 0033-(0)6 6654 7023 Fólk
daia
baddý hanna torfi og eva jón og guðrún ziggy flotti heiða birta daníel skíði viddi og kolla hilda torfa bjarni og bryndís Nýlegar færslur
Gamalt efni
október 2004
september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|