júlí 20, 2004
búið í bili
já þá eru tveir og hálfur tími í það að við förum héðan út úr húsi. þá er það rúta til Lyon og svo flug til London osfrv.
ég get nú ekki sagt að ég eigi eftir að sakna grenoble því hitinn hérna er núna orðinn of mikill, og gerir ekkert nema að aukast. það sem verst er, er það að hann er líka svona mikill hérna inni hjá okkur, maður kemst hvergi í skjól. við fórum snemma í háttinn í gær til að safna kröftum fyrir ferðalagið, náðum aðeins að sofna en vöknuðum upp úr miðnætti í svitabaði. það endaði með því að við drösluðum dýnunni okkar niður á gólf og lágum þar með stóru viftuna okkar blásandi á okkur. þannig tókst okkur að sofna seint og um síðir.
núna er einmitt verið að leggja lokahöndina á það sem þarf að gera, það er nú svosem ekki mikið.
þannig að við kveðjum lesendur okkar héðan að sinni og næsta færsla verður væntanlega frá ÍSLANDI.... ROGER OVER AND OUT
Posted by mundi at
08:27 FH
|
Comments (8)
júlí 19, 2004
Spenna í loftinu
Mundi er að fríka út hérna. hann er svo spenntur að hann getur ekki verið kyrr. Er eins og fimm ára krakki að bíða eftir jólunum. Hann ráfar um gólf og reynir að finna sér eitthvað að gera en er of eirðarlaus til að geta gert eitthvað (tekur reyndar stundum dansspor inn á milli, ansi fyndið). Þó ég sé líka orðin spennt yfir að vera að koma heim þá held ég að það sé ekkert miðað við spenning Munda, enda styttra síðan ég skrapp heim. En Mundi á sem sagt ansi erfitt núna, fylgist stanslaust með klukkunni sem gengur allt of hægt.
Posted by svanhildur at
01:48 EH
|
Comments (6)
allt að verða klárt fyrir heimferð
Við vorum að pakka í gærkvöldi og það er nú ansi mikið maus að reyna að pakka fyrir 6 vikna ferð og ætla að hafa útilegubúnaðinn meðferðis og halda sig innan við 20 kg. markið. Held okkur hafi þó tekist það að lokum, treystum bara á að fá ýmislegt lánað hjá vinum og ættingjum. En það er hins vegar ljóst að það verða önnur 20 kíló í handfarangri, vorum að kaupa 7 kíló af osti og öðru góðgæti fyrir afmælið hennar mömmu og svo er það auðvitað tollurinn: 4 rauðvín og líter af pastís. Já það er eins gott að ég á sterkan mann til að láta bera þetta fyrir mig hehe.
Posted by svanhildur at
12:15 EH
|
Comments (4)
júlí 18, 2004
Engisprettufaraldur

við erum búin að vera að pakka niður í kvöld og hefur gengið vel. en rétt í miðri pökkun fengum við óvæntan gest inn um gluggann. okkur varð nú frekar illt við, enda hvorugt okkar séð skordýr af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir áður. sem betur fer hafði beta skilið eftir brúsa af skordýraeitri þegar hún flutti til íslands og hann kom sér vel í þetta skiptið.
það er gott að vera á leið heim - því eins og kollegi minn knái söng um árið: "Hér verður aldrei engisprettufaraldur, Haraldur - því hér er of kalt!"
Posted by mundi at
10:46 EH
|
Comments (6)

Posted by mundi at
10:41 EH
|
Comments (0)
Enn nýtt í albúminu

ég var að enda við að setja inn síðasta myndapakkann héðan í bili. það eru semsagt komnar inn myndir frá bíltúr sem við fórum upp á Plateau d'Emparis, seinnipart 13. júlí. á þjóðhátíðardag frakka þann 14. fórum við hins vegar í þorpið Besse sem rétt við Clavans le Bas þar sem við bjuggum. þessa daga viðruðum við semsagt volfgang og skruppum aðeins þegar ég var búinn að skila daxverkinu. kíkið á.
...jæja ...best að reyna að gera eitthvað gagn, hætta þessu tölvurugli og fara að snúa sér að því að alvöru að pakka niður.
Posted by mundi at
04:32 EH
|
Comments (1)
Málarinn hættur í bili

já þá er kallinn búinn að þrífa pensilinn, eins og sjá má á myndinni að ofan. ég var semsagt í þessum töluðum orðum að klára það sem ég var búinn að lofa Gonna. Þannig að nú tekur við að fara að pakka niður því sem þarf að taka með heim til Íslands. ég óttast mest að það verði allt of mikið. en við munum nú reyna að skera það við nögl til að lenda nú ekki í því að þurfa að borga aukalega. í staðin verðum við örugglega eins og þurfalingar með margt, síbetlandi í vinum og ættingjum að fá hitt og þetta lánað - en það verður svo að vera.
eitt er hins vegar víst að hin íslenska lopapeysa verður stett í forgang. hana á svo að nota í mývatnssveit um verslunarmannahelgina, þegar menn ætla að mæta með gítar og grill þangað og eiga góða helgi.... ....er það ekki öruggt annars... ha??? Bjössi, Sísý,Torfi, Eva, Brynjar, Rán, Hildur, Ziggy, og allir hinir... er það ekki klárt???
Posted by mundi at
03:19 EH
|
Comments (3)
júlí 16, 2004
Alpar og Ísland

við erum nú komin aftur í klefann okkar hérna í grenoble eftir góða vist í fjöllunum. ég er búinn að mála heilmikið þar fyrir Gonna, og hefur gengið vel. kallinn kemur okkur stöðugt á óvart, það er sennilega varla sá steinn hér í ölpunum sem hann hefur ekki velt við. við vissum að hann "gædar" ferðamenn í fjallgögum öðru hverju á sumrin, en við vissum ekki að á yngri árum stundaði hann fjallaklifur, sem með árunum hefur svo breyst í gönguferðir. langi mjói tindurinn hér að ofan er einn að þeim sem hann hefur meðal annars sigrað. við erum búin að njóta góðs af þessu svo um munar, með leiðsögn hans hvert er gott að fara á hverjum tíma og hvað er þar eftirtektarvert, fengið lánuð kort, og svo frv. í gærmorgun sagði hann mér svo þegar ég mætti í gallanum með pensilinn í hendinni, að spáin væri góð, ég skyldi ekki mála í dag...
þannig að við fórum að hans ráðum og fórum í langa gönguferð, inn fallegan dal sem endar í hrikalegum fjallahring. gengum úr 1700m í 2400 metra, vorum komin nálægt jöklunum þegar við snérnum við. ég hef fullan hug á því að fara aðeins lengra næst. ganga í næsta skála, það er nefnilega annar skáli uppi á jöklinum. en það verður að segjast að þessi alpínismi er farinn að eiga hug okkar hérna. það er alveg magnað að ganga hérna um fjöllin, og því miður ná þessar myndir sem við setjum inn engan vegin að skapa sömu stemmingu og er á staðnum, gefa þó kannski nasasjón fyrir þá sem hafa áhuga á slíku.
annars er hugur okkar ekki bara í fjöllunum hérna, hann er farinn að leita heim á við til íslands en ef allt er á áætlun þá eigum við að lenda í KEF á þriðjudagskvöld klukkan 10 að staðartíma. okkur er farið að hlakka mikið til að sjá á ykkur smettin.
ps. það er fullt af nýjum myndum í albúminu (NEW PHOTOS)
Posted by mundi at
07:15 EH
|
Comments (5)
júlí 11, 2004
París - Grenoble - Clavans le bas

þá erum við komin aftur til grenoble eftir alveg stórgóða heimsókn til verkfræðinganna í París. Við vorum reyndar ekki heppin með veður, en þeim mun heppnari með flest annað. það rigndi nefnilega hundum og köttum mest allan tímann. þannig að það var nú minna skoðað en ella. hins vegar varð það til þess að það var spilaður miklu meiri kani heldur en gerist og gengur. svo var borðað vel og mikið og oft og drukkið rautt.
nú er stefnan hins vegar tekin á síðustu heilu vikuna í frakklandi að sinni, erum að fara af stað til fjalla á ný og komum ekki aftur fyrr en á föstudagskvöld eða laugardag.
þessi helgi var alveg snilld og við viljum þakka gestgjöfum okkar kærlega fyrir móttökurnar, sérstakar þakkir fyrir hið frábæra SS pylsusinnep, kokteilsósuna og vogaídýfuna
Posted by mundi at
05:59 EH
|
Comments (3)
júlí 10, 2004
PARIS

já auðvitað er allt hér hjá jóni og guðrúnu í parís, meira að segja gestanettenging. en við komum hingað á fimmtudagskvöld og þau náðu í okkur á lestarstöðina. svo var rölt um bæinn í gær, aðeins verslað, aðeins skoðað en aðallega haft það gott. veðrið var reyndar eitthvað að stríða okkur, hér var bara hálf kalt og rigning, en það er víst ekki til vont veður, aðeins rangur klæðnaður.
svo er komið bjartviðri núna og best að fara að gera eitthvað skemmtilegt
Posted by mundi at
09:22 FH
|
Comments (1)
júlí 08, 2004
Master hér kem ég - Ísland hér kem ég líka
Já ég er greinilega á leiðinni á marga staði, er nú rétt í þessu á leiðinni til Parísar. En það er ýmislegt búið að gerast í dag. Fyrir utan það að kaupa eins og tvo flugmiða til Íslands eftir skyndiákvörðun um að eyða eins og 6 vikum á landinu bláa, þá var ég rétt í þessu að opna bréfið sem var í póstkassanum til mín frá skólanum mínum hérna úti. Ég var svo stressuð að opna bréfið að ég skalf, og svo áfram í svona 5 mínútur eftir að ég var búin að lesa bréfið. En til að gera langa sögu stutta þá stóð í bréfinu að þær tæækju mig inn í mastersnámið sem ég sótti um. Það má því segja að framtíðin hafi ráðist í dag, bæði næstu tveir mánuðir og næstu tvö ár.
En ég er sem sagt voða glöð í dag, á leið til Parísar, svo beint upp í fjöllin og þaðan beint til Íslands og svo aftur út í masterinn. Er hægt að biðja um það eitthvað betra? Ég held ekki. Eða jú annars, þetta er enn betra, það má ekki gleyma Madonnutónleikum sem koma þarna inn í á milli Íslands og skólans. Mikið er lífið nú yndislegt!
Posted by svanhildur at
01:05 EH
|
Comments (5)
Fullt af fréttum

það hefur af eðlilegum ástæðum ekki verið mikið um fréttafluttning hér á síðunni í þessari viku. við erum búin að vera uppí fjöllunum síðan á föstudaginn. notuðum helgina vel, fórum í stutta gönguferð á laugardag og svo eina heljarmikla á sunnudag.
ég er búinn að vera að hjálpa Gonna, þangað til að við komum hingað í gærkvöldi. við ákváðum að koma hingað aðeins fyrr en við ætluðum, því við ætluðum að nota daginn í dag í ýmislegt nytsamlegt. þar á meðal keyptum við okkur flugmiða til íslands þann 20. júlí. mér líst afskaplega vel á það að koma heim, enda ekki séð klakann í 14 mánuði.
svo erum við að fara af stað til parísar rétt á eftir, svanhildur náði tali af prófessornum sínum og á fund með honum í fyrramálið. svo verður tekið til við stanslausa skemmtidaxkrá og skoðunarferðir með jóni og guðrúnu þangað til við förum til baka á sunnudag og förum beint upp í fjöll aftur þar sem við verðum næstu viku líka. svo verður helgin þar á eftir tekin hérna einhversstaðar og svo farið til Lyon og heim á þriðjudaginn þar á eftir. þannig að hér er stundaskráin þétt skrifuð þessa dagana.
myndirnar sem eru hér voru teknar í fjöllunum, önnur er úr gönguferð sunnudaxins, hin er af húsinu sem við búum í þarna uppfrá. þetta er 32 fm einbýlishús á tveim hæðum!!!
Posted by mundi at
12:29 EH
|
Comments (2)

Posted by mundi at
12:19 EH
|
Comments (1)
júlí 01, 2004
Deiglan
já það er ýmislegt í henni þessa dagana. ég gaf atvinnuveitenda mínum rauða spjaldið nú í vikunni. mér féll þessi vinna sífellt verr og í raun engan veginn. fyrir því voru ýmsar ástæður, en þegar mér fannst vera meira en nóg komið þá ákvað ég að það væri rétt að þakka fyrir mig og kveðja.
það þýðir þó ekki að ég hafi setið aðgerðalaus því hann Gonni leigusali á töluvert af húseignum. ég hef verið að sletta úr pensli fyrir hann hérna í vikunni. seinnipartinn á morgun ætlum við svo upp í fjöllin til þeirra hjóna, og eyða þar helginni á svipuðum nótum og síðast, með gönguferðum og grilli. (sjá myndasíðu) einnig ætla ég að skoða betur húsið sem hann er að gera upp þar, það er svona ekta alpahús frá sautjánduöld. hann hefur orðað við mig að rétta sér hjálparhönd við það. við sjáum hvað setur og um hvað semst.
allavega er stefnan tekin í svalann í fjöllunum úr hitanum hérna, og áætluð heimkoma er ekki fyrr en um hádegi á fimmtudag. við eigum einmitt stefnumót við Jón og Guðrúnu í París á fimmtudagskvöld og gott ef ekki eins og tvo lestarmiða þangað líka sama dag. heppilegt!
Posted by mundi at
09:16 EH
|
Comments (4)