« maí 2004 | Heim | júlí 2004 »
júní 29, 2004
Dragostea Din Tei með HAIDUCII

Þá er ég búin að skila umsókninni minni til að komast inn í mastersnámið og þá er ekkert annað að gera en að bíða eftir svari. Það kemur sem sagt í ljós á næstu vikum hvort við verðum hér í Grenoble næstu tvö árin eða hvort við séum á heimleið, eða einhverri annari leið. Ég verð nú að viðurkenna að ég verð ansi svekkt ef þeir taka mig ekki inn og mun eiga erfitt með að skilja af hverju, þar sem ég hef nú bara staðið mig ansi vel í mínu námi hingað til. En það er samt ekkert öruggt í þessu þar sem þeir þurfa að samþykkja mitt nám á Íslandi. En ég er alla vega búin að gera allt sem í mínu valdi stendur og get hætt að hugsa um þetta núna.


Ég hef sem sagt tekið mér smá frí frá ritgerðarskrifum vegna þessa máls undanfarna daga og svo tók ég mér frí frá þessu öllu saman um helgina og við Mundi fórum í tjaldútilegu. Við tjölduðum við Annecyvatnið sem er alveg æðislegur staður tæpa 100 km frá Grenoble og áttum voða góða helgi þar. En nú verð ég víst að halda áfram með ritgerðina, þetta gengur nú bara alveg ágætlega hjá mér, er komin með 8 blaðsíður. Ætla að reyna að rumpa þessu af sem fyrst.


Annars vildi ég líka spyrja ykkur hvort lagið "Dragostea Din Tei" með honum Haiducii sé í spilun á Íslandi. Þetta er rúmenskt lag og er uppáhaldslagið okkar Munda um þessar mundir og er að gera allt vitlaust hérna í Frakklandi. Hafið þið heyrt það? Ef ekki þá verðið þið að verða ykkur úti um það. Þetta er hrein snilld og bókað mál að það kemur ykkur í stuð.

Posted by svanhildur at 12:06 EH | Comments (14)

júní 25, 2004
loksins loksins helgi

við ætlum að láta okkur hverfa héðan um helgina. fara eitthvað út í sveit þar sem er rólegra.


góða helgi

Posted by mundi at 02:45 EH | Comments (3)

júní 23, 2004
tuðruspark

...humm.. ...ég veit að ég er nú ekki fróður um slíkt, veit í raun sáralítið, en skil samt eitthvað minna en vanalega núna. kíkið á þetta.

Posted by mundi at 08:49 EH | Comments (8)

júní 22, 2004
Lokað vegna veðurs

Heyrði ég rétt í útvarpinu áðan? Ég er nokkuð viss um að ég heyrði nokkrar tilkynningar á rás2 fyrir hádegisfréttir sem tilkynntu annað hvort um hádegislokanir hjá ýmsun opinberum stofnunum eða tilkynningar frá búðum um það það yrði lokað klukkan 14 í dag. Allar þessar lokanir voru vegna veðurs. Þetta líst mér vel á, loka bara heila klabbinu alltaf þegar hitinn fer yfir 15 gráður, hver fer hvort sem er að versla eða í íbúðarlánasjóð þegar úti er sól og hiti. Hvernig er þetta með ykkur sem lesið þessa síðu? Er ekki búið að loka fyrirtækinu og þið bara á leiðinni í Nauthólsvíkina eða Heiðmörkina, eða í Kjarnaskóg þið fyrir norðan, eða bara í sund, eða út í garð eða...?

Posted by svanhildur at 12:28 EH | Comments (10)

fête de la musique

Helgin var góð að vanda. Til tilbreytingar ákváðum við að eyða henni hér í Grenoble og fórum út á lífið á laugardagskvöldið með Carinu og Daniele. Það er orðið ansi langt síðan við höfum drifið okkur út að dansa og það var heldur betur bætt upp fyrir það þetta kvöld. Við dönsuðum eins og brjálæðingar, uppi á borðum og stólum þangað til að barnum var lokað klukkan 2 ((að sjálfsögðu var farið á Couche Tard) fyrir þá sem þekkja aðeins til hérna). Þá vorum við engan vegin tilbúin til að hætta svo stefnan var tekin á diskótek þar sem haldið var áfram að dansa. Loks var ákveðið að halda heim á leið en Mundi var enn fullur af orku og tók nokkur fimleikastökk á leiðinn heim, okkur hinum til mikillar gleði. Fyrir þá sem hafa ekki enn farið á almennilegt djamm með Munda þá er það nefnilega þannig að hann á það til að breytast í fimleikamann eftir passlegt magn af áfengi og stuði. Það vekur iðulega mikla lukku meðal hópsins og varð engin breyting á í þetta skiptið.


Í gærkvöldi fór ég svo í bæinn með Carinu þar sem Frakkar héldu upp á sumarsólstöður (21. júní er sumardagurinn fyrsti hjá Frökkum, hér er haldið upp á sumardaginn fyrsta tveimur mánuðum eftir að sumarið kemur en ekki tveimur mánuðum áður en það kemur. Það má svo sem deila um hvort er heimskulegra). Eins og ég var búin að segja ykkur frá áður þá er haldið upp á 21. júní með risa tónlistarhátíð í öllum bæjum landsins. Þetta var alveg æðislega skemmtilegt og minnti mikið á menningarnóttí Reykjavík. Það var ekkert smá mikið af fólki í bænum (ég sá fyrst í gær að það búa virkilega 500.000 manns hérna) og það var gjörsamlega verið að spila tónlist út um allt. Það var búið að setja upp ca. 10 tónleikasvæði á vegum bæjarins en svo var líka tónlistarfólk að spila fyrir utan nánast hvern einasta bar í bænum. Það var alveg sama inn í hvaða götu maður gekk, allstaðar var einhver að spila. Og ekki vantaði upp á flölbreytnina: eftir að hafa hlustað á gospelkór gengum við fram á þungarokksveit og svo sáum við popp, rokk, djass, brass, lúðrasaveit, rapp, sinfoníu, franska þjóðlagatónlist, arabatónlist, afríska tónlist, austurevrópska tónlist...
Þetta var sem sagt alveg rosalega gaman.

Posted by svanhildur at 08:50 FH | Comments (7)

júní 17, 2004

Ég nenni ekki að læra. Er að hlusta á rás2 sem virðist aðeins spila íslenska tónlist í tilefni dagsins og er það vel. Ég er komin í svo mikinn fíling að ég tími ekki að slökkva á útvarpinu og fara að læra. Ákvað því að það væri bráðnauðsynlegt að taka aðeins til hérna og er með tölvuna í botni og syng hástöfum með íslenskum ættjarðarlögum. Sem betur fer er enginn annar á hæðinni heima, væri annars sennilega búin að gera alla brjálaða á mínum annars hljómfagra söng.


Annars ætlaði ég líka að segja ykkur frá því að í gær var farið í smá verslunarleiðangur og fjárfest í göngustaf. Eftir að hafa farið að ganga á fjöll síðasltliðnar tvær helgar erum við orðin húkkt og bara spurning á hvaða fjall verður gengið næstu helgi. Ætli það verði svo ekki endað á því í haust að fara á Mont Blanc eftir æfingagöngur sumarsins? Verður maður ekki alltaf að setja sér há markmið??? Allavega hefur Mundi trú á að hann geti farið um það bil hvert sem er með nýja fína stafnum sínum.


En nú verð ég að hætta. Japanska lagið með Grílunum var að byrja í útvarpinu svo ég verð að standa upp og dilla mér og syngja.

Mig langar á sveitaball!!!

Posted by svanhildur at 08:21 FH | Comments (2)

Hæ hó jibbý jeij og jibbý jeij jeij

Það er kominn 17. júní.


Til hamingju með þjóðhátíðardaginn Íslendingar.


Af óskiljanlegum ástæðum er þetta ekki frídagur hér svo það er víst best að fara að koma sér að verki. Hér verður hins vegar mikil hátíð 21. júní en þá er fête de la musique og flykkjast þá allir Frakkar í bæinn, hvort sem þeir búa í litlu þorpi eða í stórborg og tónlistamenn koma fram gjörsamlega út um allt; inni á öllum skemmtistöðum og á götum úti. Þetta er víst alveg frábær hátíð og verður því okkar 17. júní.

Posted by svanhildur at 06:05 FH | Comments (4)

júní 16, 2004
Búin í prófum

Kláraði seinasta prófið í gær og er að vonast til að mér hafi gengið nógu vel til að ná því til að komast inn í mastersnámið. Þetta var alls ekki auðvelt, ekki síst þar sem þetta var próf úr kúrsi sem ég sat ekki, en ég er að vona það besta. Verð mjög vonsvikin ef ég kemst ekki inn þar sem ég er búin að vera að bæta við mig fögum og fresta BA-ritgerðinni til að komast inn. Svo það er bara eins gott að kennarinn felli mig ekki.
En nú er ekkert annað að gera en bíða eftir einkunninni og fara að reyna að komast almennilega í gang með þessa blessuðu ritgerð mína.

Posted by svanhildur at 05:45 FH | Comments (5)

júní 14, 2004
vernd umhverfis og einstaklinga

ég er svo steinhissa á frakkanum eftir daginn í dag. svosem ekki í fyrsta skipti. við vorum að byrja á nýju verki, taka í gegn 4 stafna á tveim níu hæða blokkum. það þarf eins og lög gera ráð fyrir að skafa lausa málningu og svona. málið er bara að þarna er ekki nein laus málning á veggjunum, nei hún er blýföst. en þar sem við erum að fara að "akrýlmúra" veggina þá þarf víst að fjarlægja málninguna þó föst sé. á íslandi er það gert með öflugri háþrýstidælu og heitu vatni, það kemur ekkert því máli við að á íslandi sé mikið af heitu vatni, því vanalega eru það díseldrifnar dælur sem notaðar eru og ná upp 2-300 bara þrýstingi og hita vatnið um leið. - einstaka menn hita flötinn með kósangasi og skafa svo. við það rennur málningin af. ég þekki hvorutveggja.


frakkinn hefur annan hátt á. okkur voru í dag færðir 400 lítrar af málningaruppleysi. fyrir þá sem ekki vita þá er þetta efni mjög eitrað, inniheldur metýlenklóríð og er ekki hauskúpumerkt að ástæðulausu. þetta er mjög hættulegt við innöndun og brennir við snertingu. þessu á svo að maka á þessa risafleti, skafa og skola svo af með vatni. ég er nú þannig að ég huxa nú sennilega of oft fyrst um sjálfan mig, og mig langar ekkert að taka þátt í því að vinna með þetta efni í 30 stiga hita, (þið getið ímyndað ykkur uppgufunina), ég undra mig jafnvel meira á því að þetta skuli leyfast gagnvart umhverfinu, því það þarf ófáa lítra af vatni til að skola 400 lítra af þessum óþverra af 25 metra háum hússtöfnum. það eiturgutl rennur svo bara í svelginn eða í grasið og þar með beint út í náttúruna og grunnvatnið.


þróunarland

Posted by mundi at 06:33 EH | Comments (4)

júní 13, 2004
fjallaferðir

tn_DSC04462.JPG

já aldeilis stórmögnuð helgi senn að klárast. við ákváðum að þiggja loks heimboð leigusalans okkar hans Gonna. hann býr ásamt sinni kellu hérna upp í fjöllunum suður af grenoble. ekki langt frá les2alpes þar sem við förum oft á skíði. þar biðu okkar alveg stórkostlegar móttökur, við fengum 50 fermetra íbúð, með arni og alles, til afnota alla helgina. auk þess sögðu þau hjónin okkur sögur af ýmsu og bentu okkur á skemmtilegar gönguleiðir þarna í nágrenninu. það kom nefnilega upp úr kafinu að hann Gonni er "fjallgönguleiðsögumaður" og fer með hópa þarna um á sumrin.


þannig að við skelltum okkur í góða gönguferð á laugardaginn, vorum 5 tíma að rölta stíga og klífa fjöll. á sunnudeginum, í dag, fórum við styttra til, en röltum samt í eina 2 tíma eða svo. það er ljóst að það á eftir að skoða meira þarna þegar líða fer á sumarið, þarna er ofsalega fallegt og margt að skoða.

myndir helgarinnar má nálgast í albúminu (NEW PHOTOS!!!)

Posted by mundi at 03:13 EH | Comments (7)

júní 10, 2004
Parísarferð og forsetakosningar

Þá er búið að negla Parísarferð aðra helgina í júlí. Sumum finnst það kannski vera planað heldur langt fram í tímann en svona er þetta ef maður ætlar að heimsækja Jón og Guðrúnu. Svefnsófinn þeirra í stofunni er svo vinsæll að maður þarf að panta langt fram í tímann. Við ákváðum að kanna það á netinu í gærkvöldi hvort það gæti verið sniðugt að taka bara lestina, héldum að það væri kannski aðeins dýrara en að keyra en borgaði sig ef það væri ekki mikið dýrara því þá er maður bara 3 tíma á leiðinni í stað 5,5 sem munar jú þegar maður er að fara í stutta helgarferð. En viti menn, haldiði að við höfum ekki fundið svona frábært tilboð: 100 evrur (tæpar 9000 kr.) fyrir okkur tvö fram og til baka (það kostar u.þ.b. 150 evrur að keyra) svo að við ákváðum að vera ekkert að pæla í þessu lengur og keyptum bara miða í gærkvöldi í gegnum netið. Það verður gaman að hitta Parísarbúana á ný og svo ætla ég líka að reyna að hitta hann Gérard, en hann er leiðbeinandinn minn í BA-ritgerðinni og verður í París í allt sumar.


Annars var ég að koma úr símanum, var að tala við ræðismann Íslands í Lyon. Við ætluðum nefnilega ekki að svíkjast undan skyldu okkar sem íslenskra ríkisborgara og kjósa í forsetakosningunum. En þetta er ekki alveg jafn einfalt hér og heima þar sem kosningar eru á laugardegi og ef maður vill kjósa utan kjörstaða þá er hægt að gera það langt fram á kvöld. Það verður því sennilega ekkert af því að við rennum til Lyon að kjósa þar sem aðeins er hægt að gera það á skrifstofutíma, þ.e. virka daga milli klukkan 9-12 og 14-17. Þetta er kannski ekki svo alvarlegt í þetta skipti þar sem það er nokkuð öruggt hver mun fara með sigur í forsetakosningunum en það gætu nú verið kosningar framundan sem manni finnst nauðsynlegt að taka þátt í. Spurning hvernig því verður reddað en það er nú seinni tíma vandamál og allt of snemmt að fara að hafa áhyggjur af því núna.

Posted by svanhildur at 09:29 FH | Comments (11)

júní 09, 2004
ekki hundi út sigandi

í dag var allt í einu kominn hundur í bygginguna þar sem ég var að vinna. þetta var tannlaus, gamall og þreyttur svartur, kafloðinn hundur. mér varð nú hálf illt við þar sem ég stóð upp í tröppum úti á svölum og varð allt í einu var við kvikindið fyrir innan opnar svaladyrnar, starandi á mig. við reyndum að vísa honum út, en hann skellti skollaeyrum við íslenskum og frönskum skipunum, labbaði þó út að hurð, pírði augun út í sólina og snéri síðan við, labbaði út í horn í skuggann og lagðist þar niður. þar var hann enn þegar ég yfirgaf svæðið.


já - það er ekki hundi út sigandi í þessu veðri

Posted by mundi at 05:53 EH | Comments (4)

Hiti og sviti, er ég með fullu viti?

Ég ákvað áðan að ég yrði nú að kíkja aðeins út í sólina þar sem ég er bara búin að sitja inni og læra undanfarna daga. Það er skemmst frá því að segja að ég hélt hitann út í hálftíma, þá orðin rennandi af svita og farin að nálgast óráð af hitanum. Svo nú er ég komin aftur inn, er með gluggahlerana lokaða svo sólin nái ekki að skína innn og vifturnar á fullu. Ég dáist að Munda að geta unnið í þessum hita. Veit reyndar að honum finnst það lítið skemmtilegt og er farinn að þrá að komast aðeins til Íslandas, ekki bara til að hitta vinina heldur líka til að kæla sig held ég. Hann sagði við mig í gær að eftir þetta sumar væri alveg öruggt að hann myndi aldrei aftur þrá það að komast til heitu landanna. Nei Ísland er kannski bara besti staður í heimi? Allavega lærir maður að meta ýmislegt við landið sitt þegar maður býr svona í útlöndum.


Fyrir utan að læra og fara í misheppnað sólbað er ég búin að panta tíma fyrir bílinn á verkstæði á föstudaginn og búin að spjalla við hann Gonna (leigusalann okkar). Hann var hress að vanda og var ánægður að heyra að okkur Munda langaði til að skreppa í heimsókn til hans upp í fjöllin um helgina. Við ætlum sem sagt að renna til hans eftir vinnu hjá Munda á föstudaginn og gista hjá honum aðfaranótt laugardags. Á laugardaginn á svo að setja bakpokana á bakið og rölta eitthvað út í guðsgræna náttúruna og faire le camping sauvage, eða tjalda villt (þ.e. ekki á tjaldstæði). Hingað til höfum við látið tjaldstæðin nægja þar sem þetta er ekki eins og heima á Íslandi þar sem maður þekkir nokkurn vegin hvar er óhætt að tjalda án þess að vera rekinn í burtu. Hér er hins vegar nánast allt landið í eigu einstaklinga og erfitt að finna aðra staði en tjaldstæði til að planta sér niður yfir nóttina. En Gonni ætlar að vísa okkur á einhvern stað þar sem ætti að vera óhætt að tjalda án þess að brjálaður franskur bóndi komi og reki okkur í burtu. Það verður án efa gott að komast upp í fjöllin þar sem er aðeins kaldara en hér niðri í dalnum.

Posted by svanhildur at 02:53 EH | Comments (4)

júní 08, 2004
32 - haglél

ég var varla búinn að setja síðustu færslu inn á netið þegar heyrðist í þrumum. hitaskúr daxins lætur ekki á sér standa. nú er þvílík rigning hérna og ef að nói gamli væri enn á lífi færi hann eflaust að safna sprekum, og skerpa hefiltönnina.

það sem mér þykir nú kannski merkilegra er það að það, að rétt áðan kom svona líka rosalegt haglél með rigningunni. ég hef aldrei á ævi minni séð stærri högl. þau voru svona eins og kókapuffs á stærð, alveg spauglaust. ég náði myndbandi af þessu, ég þarf að skoða hvort ég get minnkað það eitthvað, svo ég geti sett það á netið.

Posted by mundi at 05:49 EH | Comments (5)

32

hiti dauðans í dag. ég var að koma heim úr vinnunni og okkar óopinberi mælir sýnir 32 gráður í forsælunni núna klukkan 6. ég var að vinna í sólinni í dag, komst því miður lítið í skuggann.

þá veit maður hvernig það verður ef að maður lendir í neðra eftir þetta líf.

Posted by mundi at 04:13 EH | Comments (6)

júní 07, 2004
yndislegur tími á Ítalíu að baki

Ég kom heim frá Ítalíu á laugardagskvöldið eftir að hafa átt þrjá yndislega daga með mömmu. Mestur tími fór í að sitja á veröndum veitingastaða í sól og blíðu og sötra rauðvín og spjalla, alveg æðislegt. Svo var aðeins kíkt í búðir á milli veitingastaða. Svona á lífið að vera, eða allavega fríin. Það var auðvitað ofsalega gaman að hitta mömmu og geta eytt smá tíma með henni og ég get ekki neitað því að það var ansi erfitt að þurfa að kveðja hana á laugardaginn. En það þýðir nú ekkert að væla, ég er bara ofsalega ánægð að hafa getað hitt hana aðeins.


En nú tekur alvaran við að nýju, próf 15. júní og BA-ritgerð. Best að fara að koma sér að verki.

Posted by svanhildur at 06:40 FH | Comments (6)

júní 06, 2004

tn_DSC04353.JPG

svanhildur kom heim í gærkvöldi. ekki vildi nú betur til en svo að vegna minningarathafnar í frakklandi vegna D-dagsins var landamæragæsla í hámarki. lestin sem hún kom með frá ítalíu var stöðvuð og skoðað og rótað í öllu ásamt vegabréfaskoðun. þetta varð til þess það varð talsverð seinkun, sem aftur leiddi af sér það að hún náði ekki lest frá Chambery til Grenoble. ég hafði verið að vinna í Chambery á laugardaxmorguninn og fór því tvær ferðir þangað þann daginn, því ég renndi og náði í hana um kvöldið. hún kom ekki tómhent til baka því mamma hennar færði henni harðfisk og ýmislegt góðgæti sem ekki er á markaði hér. svo fékk ég líka buxur og skyrtu frá svanhildi og úr frá Ellu. þakka þér fyrir það Ella mín.


í dag erum við svo búin að fara í smá gönguferð hérna uppí fjalli og skoða minnisvarða og hálfhrundar gamlar byggingar, auk þess að njóta verulega góðs útsýnis og veðurs. hér er búið að vera heitt í dag, ég veit ekki nákvæmlega hversu heitt en sennilega nálægt þrjátíu gráðunum. eftir svolitla göngu hérna uppí fjallinu fórum við svo niður aftur og niðrí bæ og fengum okkur ís. á leið heim með ísinn löbbuðum við fram hjá listasafni grenoble, en það var ókeypis þar inn í dag svo við skelltum okkur þar inn og löbbuðum einn hring. kíktum á nokkur verk eftir renoir, matisse, picasso, monet, warhol og fleiri jaxla.


nú erum við svo að fara að gera okkur góðan mat, hina frægu ferskjuönd, og klára þennan góða dag södd og sátt


nokkrar myndir af gönguferð dagsins slæddust inn í albúmið áðan.

Posted by mundi at 04:29 EH | Comments (1)

júní 04, 2004
andleysi

ekkert bloggað í gær og seint og illa í dag. ástæðan fyrir því er mestmegnis and-og atburðaleysi. en annars allt ágætt að frétta, ég hringdi til ítalíu áðan og þær mæðgur hafa það ágætt þar, og svo kemur svanhildur til baka annaðkveld.

....já

Posted by mundi at 07:32 EH | Comments (1)

júní 02, 2004
já pirraður bara ....ha!!

þetta er gremjulegt að vera að vinna í chambery, í annars ágætu verki, þar sem það fer mikill tími í milliferðir sem eru farnar utan vinnutíma. ég vakna klukkan hálfsex á morgnana og er farinn út kl 6. í dag var ég svo að koma heim upp úr klukkan 7. mér finnst það vera langur fjarverutími vegna vinnu þegar aktífir, greiddir, tímar eru bara 8. ég var (er sennilega bara enn!) andskoti pirraður þegar ég kom heim eftir að hafa eytt tveim tímum og kortéri í heimferðina. við vorum þennan vanalega klukkutíma á leið frá chambery til grenoble en eftir að ég tók bílinn minn þar sem ég geymi hann á daginn í st. martin d'héres, þá var ég rúman tíma í viðbót heim. sú leið tekur mig 10-15 mínútur á morgnana þegar ég er á undan umferðinni.

mér finnst einhvernveginn eins og ég hafi sagt ykkur þessa sögu eða aðra eins oft áður, ætli ég minnist ekki ansi oft á umferðina hérna í þessum línum mínum. sennilega er þetta bara partur af því að búa í alvöru borg, og þannig partur af lífi margra í heiminum. en þannig er því nú farið með mig að ég vildi helst bara eiga ferguson og búa útí rassgati í rólegheitum, - ég HATA UMFERÐ....


ps. er þetta nokkuð farið að minna of mikið á myndina Falling down? :), ef svarið skyldi vera já, þá get ég allavega huggað ykkur með því að ég er ekki enn kominn með með rýting undir bílstjórasætið eins og vinnufélagi minn er með...!!!! :/

Posted by mundi at 06:45 EH | Comments (9)

júní 01, 2004
ferðasaga

þá ætla ég að segja ykkur ferðasögu helgarinnar í stuttu máli.

við lögðum af stað á laugardagsmorguninn um kl 9, fyrst var komið við í kjörbúðinni og náð í ket á grillið, kál og rauðvín og eitthvað svona sem til þarf til að hafa það gott. svo var ekið sem leið lá í töluverðri umferð suður á bóginn, í átt að hafi. við stoppuðum á leiðinni til að fá okkur kaffi og svo til að skoða pont de gard, en daniele og carina höfðu ekki komið þangað. það var mjög stuttur krókur þannig að við kíktum þar við. svo héldum við áfram og keyrðum í gegn um nimes og niður til áfangastaðarins, aigues mortes. þar var tekið dótið úr bílunum, skroppið í sund, legið smá í sólbaði og svo snætt, en farið snemma að sofa.


á laugardaginn var ræs kl 8 og farið inn í bæinn sjálfan, en sumarhúsið var svona 3-4 km fyrir utan bæinn. þar var labbað og skoðað. þetta er lítill bær, með um 2000 íbúa, og múra allt um kring. eftir nokkuð gaumgæfilega skoðun var svo haldið á ströndina og legið þar fram að kvöldmat. ég var nú sjálfur meira í sjónum heldur en í sólbaði, enda hafði ég náð mér í þessar fínu froskalappir og kafaragleraugu á 12 evrur í kjörbúðinni. þannig að ég eyddi stærstum hluta tímans við það að "reyna að komast til botns í málunum." "þegar botninum var náð" mátti þar finna, krabba og skeljar og allskonar svona ýmislegt...

eftir að allir voru orðnir svona medium steiktir, þá héldum við heim í sumarhús og kveiktum upp í grilli. þar var svo snædd löng og gómsæt máltíð. svín, naut og hænsn með tilbehörende meðlæti og rauðu víni. að henni lokinni kíktum við á bar svæðisins og þaðan á diskótekið, (alvöru tjaldstæði !!) tókum létta sömbu og fórum í háttinn.


á sunnudaginn var aftur farið á fætur á undan öllum öðrum lifandi verum, eða um kl 8 og ekið til aigues mortes. við höfðum nefnilega veitt því athygli daginn áður að þar var hægt að kaupa sér svona týpíska túristasiglingu um "canala" svæðisins. þetta svæði er allt sundurgrafið í skurðum svona eins og eru í hollandi. við skelltum okkur öll í eina þannig. það var alveg ágætt, kannski full túristavætt fyrir minn smekk en gaman samt.
- svo lögðum við af stað hingað til grenoble um kl 15. því er skemmst frá að segja að umferðin á leiðinni var sú mesta sem ég hef séð. það var mikið af fólki niður við hafið um helgina og það voru ALLIR á leið heim. sem betur fer áttuðum við okkur tímanlega á því hvað var í vændum og komum okkur út af hraðbrautinni og inn á sveitaveg sem við ókum síðan heim. þar var reyndar líka mikil umferð, en gekk samt þokkalega. við sáum það síðan í kvöldfréttunum að það var 320KM löng umferðarteppa á hraðbrautinni milli marseille og parísar, en það var sú sem við tókum. þessi hraðbraut er þrjár akgreinar....


í morgun lagði svo svanhildur af stað til ítalíu að hitta mömmu sína, sem er þar á kórferðalagi. hún sendi mér sms þegar hún var í chambery, ég var einmitt að vinna þar í dag, og þá var hún þar og lestin biluð, - en unnið að viðgerð. hún átti að vera komin á leiðarenda um það leiti sem þetta er skrifað en ég reikna með að það verði nú eitthvað seinna. hún kemur svo til baka á laugardaginn.

- fyrir þá sem vilja skoða meira þá eru nýjar myndir komnar í albúmið

Posted by mundi at 05:50 EH | Comments (4)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur5 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
chez An. Gonord
7 rue Ernest Calvat
38000 Grenoble
FRANCE

Heimasími:
0033-(0)4 7642 6706
Mundi gsm
0033-(0)6 3273 2816
Svanhildur gsm
0033-(0)6 6654 7023
Fólk
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni