maí 31, 2004
komin heim og afmæli
því er skemmst frá að segja að við vorum að koma heim eftir stórvelheppnaða ferð niður að miðjarðarhafi. við nennum hins vegar ekki að rekja ferðasöguna og setja inn myndir núna þannig að það kemur vonandi bara á morgun.
annars langar mig og okkur að óska honum Torfa vini mínum innilega til hamingju með afmælið - en hann á stórafmæli í dag.
Posted by mundi at
06:03 EH
|
Comments (4)
maí 27, 2004
ussss.....
ég skil nú ekki svona. vera eitthvað að kvarta undan hálfslitnum klossum. jæja, kannski rúmlega hálfslitnum en allavega 3mm eftir í þeim enn. maður getur nú staðið á bremsunni alla leið í varmahlíð án þess að ná að klára það.
en allavega er stefnan tekin á miðjarðarhafsströndina á laugardaxmorgun, og ég ætla sko ekki að skilja volfgang eftir einan heima.... :)
Posted by mundi at
06:53 EH
|
Comments (7)
Volvo langveikur
Já það er nú eitthvað mikið í gangi þegar ég er byrjuð að blogga um hann Volfgang. Ég var að sækja hann á verkstæðið þar sem búið var að skipta um spindilkúluna. Góðu fréttirnar eru sem sagt þær að það mál er frá og þeir rukkuðu líka minna fyrir þetta en við bjuggumst við (80 evrur, ca. 7.500 isk. er það ekki vel sloppið?). Slæmu fréttirnar eru hins vegar þær að bifvélavirkinn sagði mér þegar ég sótti bílinn að bremsurnar væru nánast búnar og það þyrfti að skipta um þær sem fyrst og að við gætum ekki farið í neinar langferðir á bílnum svona og við skulum ekki gleyma því að það er farið að heyrast í bílnum eins og í kappakstursbíl. Þetta er sem sagt allt frekar fúlt þar sem við vorum að láta skipta um spindilkúluna til að geta farið í ferðalag um helgina en það er nú kannski hægt að redda því með því að taka bara lest eða eitthvað. Kemur allt í ljós.
Posted by svanhildur at
03:32 EH
|
Comments (4)
maí 26, 2004
klósettmenning
þeir sem hafa komið til frakklands hafa efalaust rekið sig á það að klósettmenning hér er nokkuð frábrugðin því sem við þekkjum norðurfrá. í vistarverum fólks hér er þetta gjarnan og oftast tvískipt sýstem, þeas, eitt herbergi með baði og vask og svo lítil kompa, gjarnan undir stiga eða súð, sem inniheldur saurstampinn. mér kemur þetta frekar franskt fyrir sjónir og skil ekki alveg prinsippið á bak við þetta. af hverju er þetta svona?? er þetta svo einn getið setið og lesið allt séð og heyrt blaðið meðan á aftöppun stendur, meðan annar/önnur baðast??? eða er þetta einfaldlega til þess gert að selja fleiri hurðir?? já spyr sá sem ekki veit.
svo eru það hin klósettin. þessi sem hafa forskeytið almennings. þau má finna á kaffihúsum, vinnustöðum, skólum og víða þar sem margir deila notkun. þau eru nú minna geðfeld en flest annað. þau eru jafnan þannig að það er gat í gólfið og svo ístöð beggja vegna. þessi hönnun virkar þannig að það virðist vera ómögulegt að hitta í holuna, ætli menn sér að gera númer 2. - ég hef sjálfur ekki reynt ennþá, og hef litla löngun til, en hef leiðinlega oft rekið mig á feilskot og misheppnaðar sendingar fyrri gesta. og verkfæri til hreinsunar að jafnaði ekki til staðar, í það minnsta ekki notuð. hvað er með þetta?? á hvaða öld búum við?? er venjulegt manna-klósett eitthvað meira vesen?? molbúar.
þetta skrifa ég því ég var að vinna í nýbyggingu í dag. í steikjandi hita og sól. þetta er fyrsta nýbyggingin sem ég legg hönd á hér í landi frakka. þar var svona skúr eins og oft er nú handa okkur iðnaðarmönnunum. mér varð það á að þurfa að míga, og spurði til vegar. mér var bent á bláan vinnuskúr, svona gám sem stóð þarna skammt frá. ég rölti að honum með svitaperlur á enninu og í átt að hurðinni, altsvo þeim megin sem gatið í gólfið er, ekki hinumegin, þar sem handþvottaaðstaðan er! steikjandi sól og þrjátíu stig, og sólargeislarnir endurköstuðust af stálklæðningunni. ég opnaði hurðina. eitt skref afturábak. síðan tvö. ég pissaði svo í næsta runna og hélt áfram að vinna.
Posted by mundi at
07:17 EH
|
Comments (4)
Ítalía here I come
Já nú er ég komin með lestarmiða til Mílanó í hendurnar. Ætla að skreppa til Ítalíu í næstu viku til að kíkja á tónleika með hinum frábæra kór Léttsveit Reykjavíkur. Svo er aukabónusinn við ferðina að ég hitti mömmu því hún er einmitt á leið í tónleikaferð til Ítalíu til að syngja með Léttsveitinni. Ótrúleg tilviljun.
Ég er strax orðin spennt. Það verður æði að eyða þremur dögum með mömmu og öðrum hressum konum á Ítalíu. Svo á kannski að skreppa niður að Miðjarðarhafi um helgina en það er ekki alveg öruggt ennþá. En það er búið að ákveða að hafa grillpartý hérna næsta föstudag. Við ætlum að grilla saman öll sem búum hérna, bæði efri og neðri hæðin, svo það stefnir í gott grillpartý. Svo það er nóg um að vera, enda á það að vera þannig.
Posted by svanhildur at
10:33 FH
|
Comments (4)
maí 25, 2004
vinnusögur
blíðviðri og sól í dag en ekkert of heitt. ég var að þvælast í í sendlabíl í allan morgun út um allar trissur með framkvæmdastjóranum og endaði svo daginn með smá múrbroti, múrun og málun í vizille. á morgun fer ég svo að vinna í Chambery sem er um klukkutíma akstur héðan í stefnu á ítalíu, maður er þá sirka hálfnaður á leið þangað! þar á ég víst að vera í einn mánuð eða svo áður en ég fer í verkefni aftur hér í grenoble. það versta við það er það að nú þarf maður að fara að vakna langt á undan hananum til að koma sér á staðinn.
góðu fréttirnar eru hins vegar þær að ég talaði við verkstæðismanninn sem reyndist gáfulegastur þarna um daginn og hann ætlar að laga hann volfgang minn á fimmtudaginn.
já - það er nú svo
Posted by mundi at
04:44 EH
|
Comments (6)
maí 23, 2004
Palais Idéal

í dag fórum við fjögur í bíltúr eins og um var rætt. við fórum og skoðuðum Palais Idéal. það var alveg bíltúrsins virði. þetta er bygging sem póstmaður bæjarins Hauterives byggði í kring um aldamótin 1800-1900. hann safnaði steinum á daginn meðan hann rölti með póstinn og eftir vinnu dundaði hann sér við að byggja þessa "höll" í bakgarðinum heima hjá sér. sagt er að hann hafi sótt hugmyndirnar í drauma sína. það tók hann 33 ár að gera þetta allt saman. sagt er að arkítektar eins og Gaudí hafi sótt fyrirmyndir sínar í þessa byggingu hans, og stóra kirkjan í Barcelona, Sagrada Familía ber einkenni þess.
eftir þessa skoðun, grilluðum við okkur í rjóðri og héldum síðan heim. semsagt virkilega vel heppnaður dagur. myndir af þessu má sjá á myndasíðunni okkar. smellið á hana hér til hliðar.
Posted by mundi at
06:46 EH
|
Comments (5)
sunnudaxbíltúrinn
farin í bíltúr - meira og myndir seinna!
Posted by mundi at
09:15 FH
|
Comments (1)
maí 22, 2004
rólegheit
rólegt í dag. á morgun ætlum við kannski að kíkja í smá bíltúr með Carinu og Danielle. - allt óráðið.
Posted by mundi at
10:36 FH
|
Comments (4)
maí 21, 2004
sumarkvefið
allt með kyrrum kjörum hér í dag. hitinn ögn minni og sólarlaust en samt góðviðri og 25 stig. við aflýstum því að fara í ferðalag þessa löngu helgi vegna þess að við viljum ekki beita volfgang í sérverkefni fyrr en hann er kominn í gott lag. hann Hagen vinur okkar hérna bauð okkur bílinn sinn, en allt kom fyrir ekki, því aumingja svanhildur náði sér í hálsbólgu og kvef. þannig að það er ljóst að okkur var ekki ætlað að fara eitthvað lengra til þessa helgina og unum því bara bærilega og notum tímann hérna heimvið til ýmissa verkefna.
Posted by mundi at
11:17 FH
|
Comments (4)
maí 20, 2004
skallapoppari

hvað gera bændur þegar það fer að verða verulega heitt. jú þeir ná sér bara í "gillettinn" sem er einmitt franskur og losa sig við hárið!!!
nú má júl brynner fara að vara sig...
Posted by mundi at
01:47 EH
|
Comments (12)
maí 19, 2004
steikt og sviðið
þvílíkur hiti hérna í dag, samt "ekki nema um 30 í forsælunni" að sögn vinnufélaga minna. þeir segja líka "bíddu bara" við mig. mér varð nú eiginlega nóg um í dag, og er satt best að segja kominn með verkkvíða fyrir því að eiga eftir að vinna þegar það fer að hitna meira.
ég er ekki með neina skoðanakönnun þegar ég segi það að hiti er fínn í fríi - það er allt annað að þurfa að vinna við hann.
góða helgi!!!
Posted by mundi at
07:09 EH
|
Comments (2)
maí 18, 2004
svita...
svakalegur hiti hérna í dag, og ennþá 25 gráður þegar þetta er skrifað síðla kvölds.
en það var nú ekki að sem ég ætlaði að tjá mig um í þetta skiptið.
þetta ætlar að verða sagan endalausa með þennan spindil í honum volfgang okkar. hahhaha... það er hreint með ólíkindum hvað einfaldir hlutir geta orðið flóknir með góðum vilja!! eins og þið vitið sem lesið þetta hjá okkur, þá leitaði ég eftir orðinu yfir þennan hlut á dögunum og fékk eina bara nokkuð góða tillögu. svo fékk ég 3 vinnufélaga til að skoða þennan hlut undir bílnum og fékk þar aðra.
á föstudaginn fór ég svo á verkstæði og skreið undir með bifélavirkjanum, benti, sagði "bilað" og fékk þar þá þriðju. að því loknu spurði ég hann hvort hann gæti skipt um þetta fyrir mig og hann svaraði "ekki málið - þú bara reddar þessum hlut og ég skipti!!" þar með var ég ekki miklu nær, því varahlutaumboð fyrir sænska bíla eru nú ekki út um allt hérna í landi frakka. okkur hefur ekki tekist að finna slíkt hér í bæ hvorki í símaskrá eða á neti, og það að standa í slíkum snúningum var nú eitt af því sem maður ætlaði að losna við með því að fara á verkstæði. því ákváðum við að leita betri þjónustu og fara bara á annað verkstæði þar sem okkur væri kannski ekki sagt að gera þetta bara sjálf.
af fenginni reynslu þá skreið ég undir bílinn með bifvélavirkjanum til að benda á bilaða hlutinn, því ekki vissi ég nú alveg hvað af þeim þrem orðum sem ég var búinn að heyra var rétt, og benti og sagði "þetta bilað". þar með kom hann með fjórða orðið. hann var nú trúverðugastur þeirra sem við höfðum rætt við fram að þessu en því miður var löng bið að komast að hjá honum.
franska er tungumál ríkt orða, það er ekki vafi, en eiga þeir virkilega 4 orð yfir spindilkúlu?? eða veit bara enginn neitt?? alla vega - þá er ég búinn að komast að niðurstöðu með þetta. hann Torfi vinur minn fer bara í brimborg, kaupir "íslenska" spindilkúlu, setur í umslag og sendir mér. ég kaupi mér þá 2 eða 3 lykla sem þarf og skipti bara um þetta hérna á gangstéttini fyrir utan.
málið dautt ... ...eða vonandi!
Posted by mundi at
08:36 EH
|
Comments (9)
maí 17, 2004
Góð helgi að baki
Já þessi helgi er búin að vera alveg frábær. Byrjaði vel strax á föstudagskvöldið en þá var snætt raclette og drukkið rauðvín. Svo komu Carina og Danièle yfir til okkar og það var spjallað fram á nótt.
Þegar við skriðum svo fram úr (eða niður úr) um hádegisbil á laugardaginn var glampandi sól svo að við röltum niður í bæ. Þar hittum við Roger og drukkum einn bjór með honum í sólinni og kíktum svo aðeins í búðir og fjárfestum meðal annars í sólvörn og eftirsólargeli (er þetta ekki góð íslenskun á after sun ?) og að sjálfsögðu var líka keypt moskítófælusprei og krem til að bera á moskítóbit. Þannig að við erum klár í sumarið. Svo var að sjálfsögðu Júróvisjonpartý hjá Betu á laugardagskvöldið og skemmtum við okkur öll vel yfir því og vorum sátt bæði við vinningsliðið og Jónsa, sem stóð sig mjög vel en var bara ekki með nógu grípandi lag.
Aftur var svo sofið til hádegis í gær og vaknað í glampandi sól svo að við drifum okkur upp í fjöllin með Carinu og Danièle og fórum í smá pikk nikk. Það var alveg æðislegt því það er aðeins kaldara og meiri vindur uppi í fjöllunum en ekki svona hita-mengunarmolla eins og hér í bænum. Í gærkvöldi var svo grillpartý í ofsalega fallegum og stórum almenningsgarði hér í útjaðri borgarinnar. Þangað fórum við öll saman sem búum hér á hæðinni og skemmtum okkur vel. Eini gallinn var að við gleymdum að taka nýja moskítóflugufæluspreiið okkar með og náðum okkur því í nokkur bit. Mikið hata ég nú þessar flugur. En ég eignaðist samt eitt nýtt vinadýr, leðurblökur. Það var allt fullt af þeim þarna í garðinum efitir að það tók að dimma og þær eru nú bara ekkert ógeðslegar. Svo skilst mér að þær lifi á moskítóflugum svo að ef það er rétt, þá eru leðurblökur mínu bestu vinir.
Beta ætlar svo að fá að gista hjá okkur í nótt því að á þessari stundu er verið að tæma íbúðina hennar og loka fyrir rafmagnið og allt saman. Hún ætlar því að vera hjá okkur í nótt og svo flytur hún heim á morgun. Þá verðum við ein eftir til að halda uppi heiðri Íslendinga hér í Grenoblehreppi.
Posted by svanhildur at
08:52 FH
|
Comments (10)
maí 13, 2004
Jabadabadúúúúú
Já þá er gleðin aftur við völd. Prófin búin, í bili að minnsta kosti. Þarf að taka eitt próf 15. júní af því að það er kúrs sem er skildukúrs til að komast inn í masterinn sem var kenndur fyrir áramót en ég vissi ekki að hann væri skyldukúrs og er því ekki búin með hann. Fer því í endurtektarpróf í honum þarna 15. júní. Svo ar bara ritgerðin eftir.
En ég ætla ekki að læra neitt fyrr en eftir helgi. Er komin með upp í háls og niður í tær aftur. Verð að fá smá pásu. Þannig að það á bara að hafa það gaman um helgina. Kíkja í bæinn á laugardaginn og kaupa sumargjöf frá m&p og svo er að sjálfsögðu júróvisjónpartí á laugardagskvöldið. Þetta verður Íslendingapartý (sem þýðir að við verðum 3 hahaha) en það þýðir lítið að ætla að horfa á júróvisjón með útlendingum. Annars hlustuðum við á fyrstu lögin í undankeppninni í gærkvöldi á rás 2 (undankeppnin er ekki það mikilvæg að hún sé sýnd í frönsku sjónvarpi jafnvel þótt það séu 3 ríkisreknar sjónvarpsstöðvar hérna) og ég verð að að segja að þetta var með því verra sem ég hef heyrt. Þatta er náttúrlega alveg fáránlegt hvað við Íslendingar erum sjúk í Júróvisjón en ég held ég eigi eftir að sakna stemmningarinnar heima á Íslandi þegar ég, Mundi og Beta verðum að horfa á þetta hér í Grenoblehreppi. Annars vil ég benda frönskuskutlunum á að lesa það sem hann Georges kærastinn hennar Betu (það er linkur á hann hér til hliðar) skrifaði á síðuna sína í fyrradag. Hann er franskur en er fluttur til Íslands (því að á Íslandi er best að vera!) og það er mjög gaman að sjá júróvisjónæði Íslendinga með augum Frakka. Mér fannst þetta allavega mjög fyndið.
Posted by svanhildur at
04:54 EH
|
Comments (7)
maí 12, 2004
hugvekja
ég sá svolítið sem vakti mig til umhuxunar á leiðinni heim úr vinnunni áðan. ég var á hraðbrautinni hérna rétt ókominn inn í bæinn þegar sjúkrabíll tók fram úr mér vinstra meginn. ekkert athugavert við það nema það að aftan á sjúkrabílnum stóð stórum stöfum: véhicule climatisée sem á mannamáli mundi þýða bifreið búin loftkælingu.
þetta eru náttúrulega algerlega ómissandi upplýsingar utan á sjúkrabíl. þegar einhver apinn er búinn að strauja mann niður, diskóbíllinn mættur að skafa mann upp með kíttispaða, maður kominn á börurnar og á að fara að koma manni inn í bílinn þá segir maður nú "Obb obb obb, heyrðu góurinn, er ekki örugglega loftkæling í þessum bíl??"
einskisnýtar upplýsingar nýtast kannski þegar öllu er á botninn hvolft til skemmtunar
Posted by mundi at
04:01 EH
|
Comments (9)
maí 11, 2004
eðlusaga
í dag varð ég fyrir þeirri reynslu í fyrsta skipti að brjáluð sjálfsmorðseðla stökk ofan í málningardolluna mína þar sem ég var í rólegheitum að lakka hengsli fyrir gluggahlera.
ég var á annarri hæð, við annann mann að klára síðustu handtökin áður en við fjarlægðum stillansinn. með lítersdós af svörtu lakki í vinstri hendinni og pensil í hinni, allt eins og það átti að vera. allt í einu kom fljúgandi eðla að ofan og lenti beint ofan í dollunni minni. ég varð steinhissa og labbaði í rólegheitum til kollega míns sem þarna var og sagði við hann þessa setningu sem ég hélt að ég ætti aldrei eftir að segja; "heyrðu, það er eðla í málningunni minni".
- hann hélt að ég væri að fíflast eithvað en leit samt ofan í dolluna. þar var eðlan komin á kaf og hann sagði mér að hætta þessu rugli. en allt í einu fór allt á fullt í dósinni. patrick rak upp stór augu og sagði mér að veiða eðluna upp úr dósinni. ég gerði það í snatri með penslinum en eðlan var rétt komin upp úr þegar hún tók undir sig stökk og lenti á stillansinum. við litum hver á annann og hlógum en þá fór kvikindið kolsvart af stað, - og hljóp nú eftir pallinum stjórnlaust með augun full af lakki. endaði með því að það hljóp fram úr pallinum húsmegin og endaði þá flugferð á hvítri gluggasyllu. þar er enn svart eðlufar, alveg eins og í teiknimynd!
- enn fór kvikindið að heyfa sig. þá skrækti sá franski á mig "Náð'enni - áður en hún hleypur upp vegginn og sporar allt út!!!" ég flýtti mér niður og náði eðlunni þar sem hún var að reyna að troða sér inn í húsið í gegn um litla rifu á glugga. ég henti henni niður á jörðina þar sem hún forðaði sér hið snarasta. líklega var þetta nú síðasti dagur þessarar litlu eðlu, því lakkið þornar hratt í sólinni og hitanum og ég reikna með að hún sé núna storkin, en háglansandi þar sem hún er!!!
já einhverntíman verður allt fyrst.
Posted by mundi at
03:29 EH
|
Comments (9)
maí 10, 2004
Volvo-vísa.
rakst á þetta á baggalút.is:
Vakur ertu Volvó sanseraður,
vekur jafnan yl og unaðskenndir.
Mótór þinn og messinggripir renndir,
mikill er þinn þokki' og gangur hraður.
-- -- -- --
Volvó, þú ert vinur minn og bróðir.
Vöknar mér um augu í návist þinni.
Stöðugt er þitt stýri og hemlar góðir,
stórkostleg öll virkni í bifreiðinni.
-- -- -- --
Ertu veikur Volvó minn á geði?
Vélin hikstar, stimplar haltir ganga.
Þú ert sjálfsagt þreyttur mjög á streði,
því sem gegnir röskur daga langa.
-- -- -- --
Það er ekkert grín að vera ekið,
út og suður brekkur, slóða og vegi.
Rammt er afl þitt, eftir því er tekið.
Reiðubúinn jafnt á nótt sem degi
Posted by mundi at
08:03 EH
|
Comments (5)
maí 07, 2004
góða helgi
aftur er komin helgi. þetta raðast leiðinlega hérna í frans þetta árið. 1. maí bar upp á laugardag, svo og þann áttunda, (rökrétt ekki satt??), en hann er líka rauður dagur hérna, vopnahlésdagurinn.
annars er helgin óráðin gáta hjá mér, reyndar er formúla á sunnudaginn. en það er nú spurning um að leigja sér bara spólu með gamalli keppni, og horfa þegar manni hentar, þetta endar alltaf eins orðið og ég er satt best að segja að missa svolítið áhugann á þessu annars göfuga sporti, það vantar orðið í þetta alla spennu finnst mér.
annars er lítið að frétta, red hot chili peppers voru að klára þemaviku sína í volfgang og það var vel. þeir eru alltaf skemmtilegir áheyrnar.
ég vonan bara að helgin leggist vel í fólk og reynið að njóta hennar.
Posted by mundi at
05:43 EH
|
Comments (4)
maí 06, 2004
sumri tekið að halla
þið hélduð kannski að við værum hérna í suður frans á sundskýlu með pina-colada í annarri og kúbanskann í hinni?? OOOOnei onei, maður hélt nú að maður væri sloppinn fyrir horn með það að híma í kulda fram eftir öllu ári, þegar maður flutti sig um set hingað til suður-evrópu. því er ekki að fagna þessa dagana. það var skítakuldi hér í dag, ég var í úlpu að vinna við múrverk, sem er nú þess eðlis að það ætti nú að halda á manni hita. og á leið minni í vinnuna þá mætti ég bílum sem voru allir í snjó, sennilega var það fólk sem býr hérna í fjöllunum, á leið til vinnu, en það hefur snjóað töluvert í fjöll hérna í þessari viku.
brrrrr........
Posted by mundi at
07:44 EH
|
Comments (6)
maí 05, 2004
salt og sætt
eitt af því sem frakkinn ekki skilur er það að matur geti bæði verið saltur og sætur en samt góður. samanber hina íslensku kartöflustöppu sem ekkert fær toppað.
þetta gengur ansi langt hérna, líkist mest trúarbrögðum. hér borða menn þetta allt sitt í hvoru lagi. í dag varð því uppi fótur og fit í matartímanum hjá mér. mér varð það nefnilega á að fá mér jógúrt á sama tíma og ég borðaði samlokuna mína. það má víst ekki. hér á að éta brauðið fyrst og svo jógúrtið á eftir. ég var að gæða mér í rólegheitum á brauðinu mínu og varð þá huxað til jógúrtdollunnar sem var í nestispakkanum. mér finnst þetta vera ákaflega gott saman og opnaði því dolluna og fór að éta úr henni samhliða því að jórtra á franskbrauði með osti. þetta varð til þess að ganga algerlega fram af vinnufélögum mínum, þó sérstaklega einum þeirra sem er mikill mathákur. hann spurði mig í forundran hvort ég ætlaði virkilega að borða þetta svona?, "blanda sætu og söltu?". ég svaraði því játandi, sagði að þetta væri miklu betra svona. og til að láta fransmanninn missa endanlega andlitið þá gerði ég það af skömmum mínum að taka skeiðina og moka jógúrtinu inn í samlokuna og klára hana þannig. það varð nú alveg til að kóróna hneykslun þessa ágæta manns og hann varð svo ofsalega hneykslaður að hann gat ekki einu sinni brosað að þessu. hinir tveir sáu hins vegar hvað vakti fyrir mér með þessu og brostu út í annað.
Hollráð Guðmundar eru því eftirfarandi:
veganesti frakklandsfara; - má ekki vera salt og sætt !
Posted by mundi at
07:30 EH
|
Comments (10)
Ég get ekki sagt að ég öfundi Munda af því að búa með mér þegar ég er í prófum. Sérstaklega er ég erfið fyrrihluta prófatímabilsins. Þá er ég rosa dugleg að læra en er fljót að verða þreytt og stressuð og er bara yfir höfuð í vondu skapi. Ég hugsa um lítið annað en lærdóminn og vil bara fá að vera í friði og finnst að Mundi eigi að sjá um öll heimilisverkin og bara kalla á mig upp úr bókunum þegar hann er búinn að elda handa mér (ég er nú kannski aðeins að ýkja en í alvörunni þá er ég ansi slæm). Mundi er nú búinn að ganga í gegnum 7 prófatarnir með mér og er farinn að þekkja mig og veit að þetta líður hjá og er farinn að taka þessu nokkuð þegjandi og hljóðalaust, en ég held hann hafi verið við það að hætta með mér þegar ég var í stúdentsprófunum.
En ástæðan fyrir því að ég er að segja ykkur þetta er sú að ég á það nú til að verða auðveldari í sambúð seinni hluta prófatímabilsins og það er ljóst að í dag er komið að þeim hluta í þessari prófatörn. Það þýðir að helmingur dagsins, í stað þess að fara í að læra, fer í tiltekt, þrif og eldamennsku. Þá er ég komin með svo mikið ógeð af lærdómnum að ég get ómögulega legið yfir bókunum allan daginn og verð rosalega dugleg að taka til. Einu sinni þegar ég var í prófum í Háskólanum heima, þá var ég búin að taka nokkra svona tiltekltardaga í röð og lítið eftir til að þrífa. En ég var ekki lengi að finna mér eitthvað bráðmikilvægt verkefni. Þegar Mundi kom heim var ég búin að raða öllum geisladiskunum okkar (við eigum nokkur hundruð) í stafrófsröð. Þetta hafði ég dundað mér við í nokkra klukkutíma.
Ég er semsagt búin að vera dugleg við ýmislegt annað en að læra í dag og í stað þess að fara á bókasafnið og vera þar að lesa í kvöld, ætla ég að fara að elda og vera tilbúin með góðan kvöldmat handa Munda þegar hann kemur heim.
Posted by svanhildur at
03:36 EH
|
Comments (5)
maí 03, 2004
mánudagspirringurinn !
djöfull munaði litlu að volfgang missti vinsti hliðina áðan. eitthver fíflið ákvað allt í einu að skipta um akgrein rétt fyrir umferðarljós án þess að aðgæta nokkuð hvort einhver væri að koma á hægri akgreininni. mér tókst sem betur fer að rífa í stýrið og redda því sem reddað varð og henda mér hálfum upp á gangstétt - en ekki mátti það miklu muna ....
.... ég hef sagt það áður og segi það enn ... frakkar eru fífl á bílum og ættu ekki að eiga þannig.
Posted by mundi at
05:33 EH
|
Comments (6)
maí 01, 2004
Ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til, en það er langt ó svo langt að bíða... en samt ansi stutt
Alltaf finnst mér jafn leiðinlegt og erfitt að vera í prófum. Eins og mér finnst gaman að vera í skóla, þá finnst mér jafn leiðinlegt að taka próf. Er komin með upp í háls af lærdómi og er búin að vera með hausverk í fjóra daga en prófin rétt að byrja. En ég veit af reynslunni að þetta verður búið áður en ég veit af og þá tekur við sól og sumar með lömb í haga og eina BA-ritgerð. Ég hlakka til!!!
Posted by svanhildur at
06:34 EH
|
Comments (8)
1. maí - berjumst bræður - í bökkum
hvað er nú betra en gamall ískápur sem fyllist af ís mánaðarlega?
ég tel að það sé nauðsynlegt hverjum og einum að eiga einn slíkan heimvið - þó ekki væri nema til þess að hafa eitthvað fyrir stafni fyrstu helgi hvers mánaðar. auk þess er fyrsti maí í dag, frídagur verkalýðsins og allt lokað. það er hins vegar annað mál - ég tel að hinar vinnandi stéttir ættu að berjast fyrir því í næstu kjarasamningum að það verði bannað að hafa þann dag um helgi, sem og aðra frídaga sem bindast dagsetningum en ekki vikudögum.
því mun verkalýðurinn nota þennan dag til ræstinga á vistarverum sínum meðan námsmennirnir nota tímann og reyna að þenja hugann upplýsingum vegna komandi ögurstunda.
Posted by mundi at
11:32 FH
|
Comments (4)