« mars 2004 | Heim | maí 2004 »
apríl 30, 2004
pólfarir löggu og bófa

1. fallegur dagur í dag, sól, ský, skúr ... rammíslenskt veður sem breytist á kortérs fresti.


2. í gær sá ég löggu og bófa út um gluggann minn. blár sendlabíll með beyglað framhorn og sprungið dekk, kom hérna framhjá á ofsahraða og löggurnar á eftir og út um allt að reyna að umkringja bófann. það er örugglega erfitt starf að vera bófi.


3. undanfarið hef ég ákveðið að hafa þemavikur í tónlistinni í volfgang. ég hef tekið einhvern disk sem ég hef ekki spilað of lengi haft hann í bílnum og hlustað á á leið í og úr vinnu. nýdanskir voru að klára sína viku núna. pólfarir er diskur sem mér fannst ekki fara mjög hátt en hann tel ég vanmetinn, mér finnst hann massa góður. "...hugur minn orðinn bikasvartur, eins og óbotnaður fyrripartur, - órímaður ... "


4. annars er ég búinn að skila mínum tímum þessa viku og er að hekla mér rauðann fána fyrir morgundaginn. góða helgi

Posted by mundi at 03:37 EH | Comments (3)

apríl 29, 2004
veislur

tn_DSC03933.JPG


síðasti sólarhringur hefur verið ánægjulegur. í gær fór ég ásamt þjóðverjunum sem hér búa að kveðja matthias hinn þýska en hann er nú að halda til heimkynna sinna á ný. hann hafði því sagt vinum sínum hér að mæta í almenningsgarð hérna nálægt háskólasvæðinu og bað fólk að taka með sér eitthvað á grill. þarna hittust milli 30 og 40 manns, grilluðu spiluðu frisbee og áttu kveðjustund saman með Matze. Virkilega gaman, svanhildur komst því miður ekki með vegna prófanna en Matthias kom áðan til að kveðja hana líka.


svo er nú það sem mig langaði að segja ykkur frá. í gær sagði konan, sem býr í húsinu sem við erum að vinna í, við okkur að á morgun ættum við ekki að taka með okkur nesti, hún ætlaði að gefa okkur í gogginn í hádeginu. það munaði þá ekki um'ða. klukkan tólf var kallað í okkur og okkur boðinn apperetiv, martini fyrir matinn. svo kom hún með salat með tómötum og baunum, eggjum og gulrótum á borðið ásamt heimagerðu mæjónesi og nýbökuðu brauði. það var forrétturinn. þvílík snilld hann var. eftir hann hefði maður nú svosem ekki þurft meira, en ballið var rétt að byrja. eftir þetta kom svo aðalrétturinn sem var gratin dauphinois, sem er réttur þessa héraðs, kartöflugratín. það var sko ekkert smá gott og með því var svo þessi svaðalega lambasteik sem bráðnaðið í gómi. að þessu loknu var svo borinn fram osturinn að frönskum sið. það þarf nú varla að taka það fram að það var borið fram rauðvín með þessu öllu. ég taldi að þarna væri nú kominn endir á þetta enda farinn að finna vel fyrir mat mínum. en nei. nú kom heit ávaxtasúkkulaðikaka á borðið og hún var ekki skorin í stjúpmóðursneiðar sú. þannig að enn var gúffað. að þessu loknu var svo borið fram kaffi og súkkulaði, ásamt heimagerðum snaps sem gerður er úr einhverri plöntu sem vex einungis í ölpunum og það þarf víst að fara í yfir 2000 metra hæð til að finna hana. - þvílík veisla, enda var matartíminn óvænt lengdur í 2 klukkutíma í tilefni þessa. þeir voru frekar þungir á sér málararnir eftir hádegið í dag!!



það er ýmislegt hér í landi sem fellur mér ekki að geði - en það er ekki hægt að ásaka frakkann um að kunna ekki til verka í eldhúsi eða þess að njóta matar síns... ...það er á hreinu.

læt fljóta með myndir af 2 vinnufélögum, etienne og patrick, og svo af húsinu sem við vorum að klára. svo heppilega vildi nefnilega til að ég hafði gleymt myndavélinni í bakpokanum sem ég tek með mér í vinnuna, þegar ég notaði hann til að bera diska og matvæli á grill matthiasar í gær.

Posted by mundi at 06:04 EH | Comments (5)

tn_DSC03935.JPG

Posted by mundi at 05:21 EH | Comments (1)

Próf, próf og aftur próf

Já það er lítið að gerast hjá mér þesa dagana annað en lærdómur og því fátt nýtt að frétta. Var að koma heim úr málvísindaprófinu og gekk bara vel. Alltaf jafn góð tilfinning að koma úr prófi sem hefur gengið vel. Maður verður einhvernveginn miklu jákvæðari gagnvart hinum prófunum og hefur meiri orku til að halda áfram að læra en þegar gengur illa. Þannig að ég ætla að fara að læra núna. Vona að ykkur hinum sem eruð í sömu stöðu og ég gangi vel að læra og gangi vel í prófunum.

Posted by svanhildur at 08:52 FH | Comments (0)

apríl 28, 2004
lokaorð

...ég held að það sé loks kominn botn í þetta mál með spindilinn. ég henti fríðum flokki málara, tveggja franskra og eins alsírsksundir volfgang í dag, (getur það orðið mikið traustara, - samvinna franskra og arabískra málara við bilanagreiningu bifreiðar !!!), - skreið svo þangað sjálfur og potaði í bilaða hlutinn og spurði hvað þetta héti. þeir voru nokkuð sammála um að þetta héti rotule de direction. þannig að þið voruð alls ekki langt frá því í gær, reynist þetta rétt vera.

Posted by mundi at 03:39 EH | Comments (7)

Geitungar

Ég er orðin frekar pirruð á því að maður má varla opna gluggann þá er kominn geitungur inn í herbergið. Já það er sko nóg af þeim hérna. Ég veit vel að það eru mjög litlar líkur á að þeir ráðist á mig og stingi mig en ég bara get ekki að því gert, ég fríka alltaf út ef ég sé geitung nálægt mér. Ég var að losna við einn núna sem var búinn að grannskoða allt herbergið áður en hann fattaði loksins að hér var ekkert spennandi og fór út aftur. Ég er svo hrædd við þessi kvikindi að mér dettur ekki í hug að ráðast á þau og reyna að drepa þau heldur hleyp í dyragættina og horfi skelfingaraugum á þau og bíð eftir að þau fari út aftur. En nú er geitungurinn farinn, ég búin að loka glugganum og hann verður ekki opnaður aftur í bráð.

Posted by svanhildur at 03:29 EH | Comments (6)

tungumálatölvur!

ég vil þakka fólki góð viðbrögð við þessu spindilkúlumáli, líklega er þarna komin fram lausnin á þessu máli.

en ég var svona að pæla hvort huxanlega væri þá bara hægt að læra tungumál á þennan hátt?? prófraun á það ætla ég að varpa fram hérna núna og spyrja hvort einhver viti hvernig maður segir hnakkur á tyrknesku, ekki það að ég hafi nokkuð með það orð að gera, - en maður veit aldrei nema maður endi sem tyrkneskur hestamaður??? -...og þó!!!

Posted by mundi at 05:14 FH | Comments (1)

apríl 26, 2004
Spindilkúla - raunasaga svía

aumingja volfgang minn er orðinn pínu meira lasinn. hann er svona eins og börnin, ef honum er ekki sinnt þá lætur hann í sér heyra. ég er búinn að trassa það að láta gera við púströrið sem er nú komið í sundur. ég er hins vegar búinn að gera á því bráðabirgðareddingu sem er held ég að syngja sitt síðasta líka. ekki líkar honum svona fúsk og ákvað því að láta aðra spindilkúluna versna til muna, til að stytta þann tíma sem ég gæti hundsað hann.


ekki minnkar nú martröð íslendingsins í frakklandi við þetta. ég óska því eftir því að allir þeir sem þekkja franska orðið yfir spindilkúlu sendi mér það strax í tölvupósti eða gefi mér það í kommenti hér að neðan.


ég ætlaði nú að verða mér úti um þetta orð í snatri í dag og skreið undir bíl vinnufélaga míns og benti á spindilkúluna, og spurði hvað heitir þetta? hann svaraði mér því að þetta héti "cardan". ég ákvað nú að fletta því upp svona til öryggis þegar ég kom heim og það var ágætt að ég gerði það áður en ég ók volfgang vini mínum á verkstæðið og bað bifvélavirkjann að skipta um "cardan-inn" - því það reyndist vera franska orðið yfir hjörulið. það er ljóta að það sé aðeins til frönsk-íslensk orðabók sem virkar. þessir bjálfar gleymdu alveg að gera hinn helminginn sem ætti nú ekki að vera of flókið, hann er svona um það bil spegilmynd hins fyrri.


það endar með því að málhalti málarinn verður að skríða undir bílinn þegar á verkstæðið er komið og benda og segja "BIIIILAÐ", eins og Magnús um árið, nema þið sem lesið þetta getið hjálpað mér.

Posted by mundi at 04:49 EH | Comments (13)

apríl 25, 2004
Grenoble í dag

tn_DSC03919.JPG

Posted by mundi at 06:56 EH | Comments (0)

Góð helgi að baki

Það er búið að vera á planinu lengi að gera eitthvað saman við sem búum hér á hæðinni. Fyrir jól vorum við rosalega dugleg að borða saman og skemmta okkur öðru hvoru öll saman en eftir áramót hefur verið mun meira að gera í skólanum hjá flestum okkar og það hefur gengið illa að finna tíma þar sem við höfum öll getað tekið þátt. En í seinustu viku var ákveðið að við myndum borða raclette saman í gærkvöldi (jafnvel þótt ein af okkur gæti ekki verið með). Það var rosalega gaman og allir fóru glaðir og saddir að sofa í nótt.


Í dag er svo búið að vera alveg æðislegt veður (virðist tilheyra prófalestri hvar sem maður er í heiminum) en ég er búin að sitja inni og læra og er búin með heimaprófið mitt og er bara sátt við afrakstur dagsins. Mundi skellti sér hins vegar í tívolí með Svíunum sem búa hérna með okkur og vinum þeirra. Það var bara gaman hjá honum, enda ekki annað hægt þegar maður fer í tívolí í svona blíðu.


Á morgun er það svo bara lærdómur og vinna.

Posted by svanhildur at 06:03 EH | Comments (2)

apríl 23, 2004
TIL HAMINGJU MEÐ SONINN

Ég var að lesa það á síðunni hennar HönnuDaia og Óli væru búin að eignast son. Við biðjum fyrir okkar allra bestu kveðjur til þeirra þriggja og óskum þeim öllum heilbrigðis, hamingju og langlífis.

Posted by mundi at 08:34 EH | Comments (1)

smá pælingar í vikulok

það skiptir víst litlu máli hvað maður gerir eða hvar maður er, - helgin er alltaf jafn kærkomin. dagurinn í dag leið nokkuð hratt og örugglega í vinnunni. það var ekki eins heitt og í gær en þá voru 28 gráður. það er tvennt ólíkt að vinna við þann hita hér eða í mörk dana. hér er engan veginn sami rakinn og hiti um 25-30 gráður ekkert of erfiður við að eiga.


eftir að maður fór að vinna með mönnum er lífið alltaf að taka á sig svona eðlilegra og eðlilegra horf. það er eins með það eins og helgina, það skiptir ekki máli hvar maður er, - þetta er allt keimlíkt, vakna, vinna, borða og sofa. sem er í sjálfu sér ekki svo slæmt ef maður á góð frí inn á milli og getur gert eitthvað skemmtilegt.


merkilegt annars það, að meira að segja eftir tæpt ár í útlöndum, og finnast það vera orðið afar hversdaxlegt, þá fær maður einstaka sinnum svona eins og einhverskonar "flassbakk" og maður huxar eitt augnablik "hey, ég er í útlöndum". stundum finnur maður einhverja lykt, svona eins og maður finnur þegar maður stígur út úr flugvél. stundum er það eitthvað allt annað sem kveikir á þessari huxun. ég fékk einmitt svona tilfinningu í morgun þegar ég var á leiðinni í vinnuna. maður er varla vaknaður þegar maður er kominn út á þrefalda hraðbraut að aka til vinnu. þá huxaði ég "vá, ég keyri hraðbraut til vinnu, ég er sko í útlöndum!" svo rankaði ég við mér af þessum pælingum þegar björn jörundur byrjaði á viðlaginu... "og við svífum um loftið...tvær ástfangnar flugvélar...."

góða helgi

Posted by mundi at 02:31 EH | Comments (6)

apríl 22, 2004
Gleðilegt sumar
Posted by svanhildur at 05:36 FH | Comments (10)

apríl 21, 2004

...þegar maður kemur sveittur heim úr vinnunni, eftir að hafa setið fastur í umferðarhnút og 40 stig í bílnum, þá er gott að eiga ískaldan Carl's í ískápnum.

...takk takk billundbúar

Posted by mundi at 04:08 EH | Comments (2)

Sumardgaurinn fyrsti kominn í Grenoblehreppi

Já ég held að sumarið hafi komið til Grenoble í dag. Ég er búin að sitja úti og lesa skólabækur í mest allan dag; 25 stig og ekki ský á himni. Svo sá ég konu sitja og borða epli og fékk allt í einu óstjórnlega löngun í epli og kom því við á grænmetismarkaðnum á leiðinni heim og keypti mér epli. En ég lét ekki þar við sitja. Keypti líka kíló af jarðaberjum af tveimur ástæðum: þau eru svo rosalega góð og svo kostaði kílóið bara 170 kr. Ef sumarið er ekki einmitt sól og hiti og epla og jarðaberjaát, þá veit ég bara ekki hvað sumarið er. (það vantar reyndar kannski frostpinna inn í þessa jöfnu)

Posted by svanhildur at 02:31 EH | Comments (2)

Þýskir Stuðmenn

Við hlustum stundum á Rás 2 í gegnum netið. Það einhvernvegin tilheyrir með morgunkaffinu. Undanfarna daga virðist sem vinsælasti diskurinn sé nýi diskurinn með Stuðmönnum þar sem þeir syngja á þýsku. Ég verð að segja að mér finnst þetta alveg hræðilegt og mér er það gjörsamlega óskiljanlegt hvernig þessi diskur komst í spilun á Íslandi. Mér finnst ekkert að því að Stuðmenn gefi út disk á þýsku í Þýskalandi ef þeri telja einhverja möguleika á að selja sína tónlist þar, en þetta má alveg missa sín á íslenskum útvarpsstöðvum.
Það væri gaman að heyra hvað ykkur finnst um þetta. Er ég ein um þessa skoðun? Finnst ykkur þetta kannski alveg frábært???

Posted by svanhildur at 07:16 FH | Comments (10)

apríl 20, 2004
Próftafla

Já nú veit ég loksins hvernig prófin munu raðast hjá mér og ég er nú bara ansi sátt við þessa niðurröðun. Þetta lítur mun betur út en í jólaprófunum þar sem ég þurfti að taka 3 próf á tveimur dögum. En svona lítur þetta út:


1. prófið er heimapróf (mjög sátt við það) sem þarf að skila miðvikudagsmorguninn 28. apríl.


2. prófið er svo fimmtudagsmorguninn 29. apríl.


3. prófið er þriðjudagseftirmiðdag 4. maí.


4. prófið er mánudagseftirmiðdag 10. maí.


Og 5. og síðasta prófið er svo fimmtudagseftirmiðdag 13. maí.


Þetta dreifist því ansi vel og þá er bara að vona að það skili sér í einkunnunum. Annars er auðvitað einn svartur blettur á þessu öllu. Ég þarf að skila atóru hópvinnu- lokaverkefni í einu fagi 14. maí. Við erum nýbúin að fá að vita hvað við eigum að gera og erum því bara rétt byrjaðar sem þýðir að maður þarf víst eitthvað að vinna í því líka á prófatímabilinu. En það þýðir ekkert að vera svartsýnn, bara vera jákvæður og byrja að læra...

Posted by svanhildur at 02:16 EH | Comments (2)

apríl 19, 2004

já það var ansi hreint gott teitið um helgina eins og svanhildur tæpti á. og dagurinn í gær var svona "horfaáfrendsogétakebab" dagur.
þar fyrir utan er lítið að frétta, það var ágætasta veður í dag, sennilega verið nálægt 20 stigunum. spáin er líka góð sem er gott fyrir útivinnandi menn eftir rigningartíð undanfarið.

Posted by mundi at 05:49 EH | Comments (5)

apríl 18, 2004
Búin með ritgerðina

Já ég var að æla henni út úr prentaranum, heilar 27 blaðsíður. Mjög ánægð að vera búin með hana, hélt ég myndi ekki klára fyrr en á morgun. Nú ætla ég bara að vera góð við sjálfa mig og horfa á imbann það sem eftir lifir dags.

Posted by svanhildur at 01:11 EH | Comments (2)

rosalegt partý

Þá er maður loksins kominn heim úr partýinu en það dróst heldur betur á langinn. Ég kom heim klukkan 10 í morgun en restin af liðinu er enn í partýinu og það er alveg ljóst að ekki verður farið á skíði í dag. Það var reyndar orðið ljóst ansi snemma í gærkvöldi því að strákarnir voru ekki lengi að koma sér í mikinn partýgír. Þar sem ég var búin að lofa sjálfri mér að ég myndi ekki drekka mikið og ekki vaka allt of lengi þá skreið ég bara upp í rúmið hennar Betu upp úr klukkan 1 og stuttu seinna kom Guðrún upp í til mín. Beta hélt þetta aðeins lengur út ásamt strákunum en fór þó í háttinn að verða 3. Strákarnir voru hins vegar í miklu stuði og vöktu til klukkan 8 í morgun og gerðu ýmislegt skemmtilegt eins og að fylla vindsængina af vatni í staðinn fyrir að nota loft. Það var hins vegar ekki alveg að virka og aumingja Beta mátti fara á fætur og redda málunum þegar það var komið vatn út um allt, en strákarnir voru ekki alveg í ástandi til að redda þessu sjálfir.


Þegar ég fór frá Betu í morgun voru allir sofandi og ég reikna með að strákarnir eigi eftir að sofa í mestallan dag. En ég er bara hress og ætla að fara að klára þessa ritgerð

Posted by svanhildur at 08:58 FH | Comments (5)

apríl 17, 2004
Nóg að gera um helgina

Jón og Guðrún komu til okkar í gærkvöldi og verða hérna yfir helgina. Það var voða gaman að hittast aftur og við sátum og spjölluðum til klukkan tvö í nótt. En ég var dugleg í morgun og reif mig á lappir klukkan hálf níu og er búin að vera að vinna í ritgerðinni minni í allan dag. Ég er að skrifa ritgerð þar sem ég ber saman réttindasögu kvenna á Íslandi og í Frakklandi. Mér finnst þetta mjög áhugavert efni og hef frá allt of miklu að segja: ritgerðin er nú þegar komin yfir 20 bls. og á enn eitthvað eftir að lengjast. Já, ég er nú bara ansi dugleg (og munið að þetta er allt á frönsku) og er bjartsýn á að ná að klára þetta á morgun (á að skila seinni partinn á mánudaginn), þ.e.a.s. ef ég næ að halda mig á mottunni í kvöld. Það á nefnilega að vera smá Íslendingapartý þar sem við erum nú 5 hérna í bænum. En það verða allir að vera hressir á morgun því Jón, Guðrún og Mundi ætla að skella sér á skíði meðan ég læri.

En það er víst best að halda áfram...

Posted by svanhildur at 12:56 EH | Comments (0)

apríl 16, 2004
ef þú smælar framan í heiminn...

smile.gif

Posted by mundi at 04:55 FH | Comments (4)

uss

Posted by mundi at 04:51 FH | Comments (1)

apríl 14, 2004
sumarfrí

ég fékk laun rétt eftir mánaðamótin. það var kærkomið. með launaseðlinum fylgdi tilkynning frá fyrirtækinu þess efnis að því væri lokað 2. til 22. ágúst nk. þannig að það er útséð að fái ég áframhaldandi samning eftir reynslusamninginn þá verð ég í fríi þessar 3 vikur. sem er gott, frí er alltaf gott. hins vegar þá gæti það raskað öðrum áformum. ég veit nefnilega ekki enn hvað ég á mikinn frítökurétt. mér skilst að eftir árið eigi maður 5 vikur, en ég er nú bara nýbyrjaður svo ég reikna alveg eins með að þarna fari minn frítökuréttur eins og hann leggur sig, eftir þetta eigi ég ekki rétt á meira.


þannig að þetta er tvíbent eins og margt annað. kostirnir við þetta eru þeir að ég fæ sumarfrí, eitthvað sem er nú ekkert ofsalega algengt hjá málara, og annað hitt er það að á þessum tíma er víst alveg ofsalegur hiti hérna og trúlega ekki auðvelt að vinna jafn líkamlega vinnu og ég er í útivið.


ókostirnir eru hins vegar þeir að ég get þá huxanlega ekki tekið mitt frí á þeim tíma sem mér hentar, - hróarskelduferð er í uppnámi svo og það að ég hafði jafnvel huxað mér að reyna að kíkja "skottúr" í gæsir eða eitthvað slíkt heim á klaka í byrjun september.


það fer með þetta eins og svo margt, margt annað ... það er bara að bíða og sjá ...

Posted by mundi at 07:58 EH | Comments (5)

akklíles var eitthvað slæmur í hælnum.


guðmundi þótti hins vegar leiðinlegt að fara snemma á fætur.

Posted by mundi at 05:21 FH | Comments (8)

apríl 13, 2004
Fríið búið

Þá eru tengdó lögð af stað til Danmerkur eftir (að ég held) góða dvöl hér í Grenoblehreppi. Páskasteikin var elduð í gærkvöldi þar sem við komum seint heim á sunnudag og að sjálfsögðu var það öndin fræga. Af því tilefni er ég að hugsa um að standa við gefin loforð um að setja uppskriftina inn á síðuna:


Andabringur með ferskjum (fyrir 4)


2 vænar aliandabringur
1 dós niðursoðnar ferskjur
80 gr smjör
2 kjötkraftsteningar (hænu eða anda)
1 dl hvítvín
salt og pipar


1) Skerið í fituna á bringunum. Bræðið 20 gr. af smjörinu á pönnu og steikið bringurnar á fituhliðinni í ca. 7 mínútur við háan hita. Takið svo bringurnar af pönnunni og takið fituna af bringunum og hendið henni. Geymið fituna sem lak á pönnuna til að nota í sósuna.


2) Saltið og piprið bringurnar og steikið þær svo á pönnunni við meðalhita í 5-7 mínútur á hvorri hlið. Þegar bringurnar eru tilbúnar eru þær sneiddar niður og settar á stóran disk.


3) Bræðið 20 gr. af smjöri á pönnu. Skerið ferskjurnar í sneiðar og veltið þeim upp úr smjörinu í 5-7 mínútur. Ferskjunum er svo dreift yfir kjötið.


4) Leysið kjötkraftinn upp í hvítvíninu í potti. Bætið svo fitunni af kjötinu út í og um helmingnum af ferskjusafanum. Látið sjóða í um 10 mínútur. Takið svo pottinn af pönnunni og setjið restina af smjörinu út í sósuna og látið bráðna.


Þá er þetta bara klárt og verði ykkur að góðu.

Við erum vön að bera þetta fram með brúnuðum kartöflum og grilluðu grænmeti eins og sætum kartöflum, kúrbít, lauk og gráðostafylltum sveppum.

Posted by svanhildur at 06:08 FH | Comments (7)

apríl 12, 2004

tn_DSC03627.JPG

Posted by mundi at 06:45 EH | Comments (0)

stutt ferðasaga

þessi páskahelgi er búin að vera góð. seinnipartinn á föstudaginn lögðum við af stað suðureftir þar sem að hér var leiðinda rigning. við ókum stystu leið til pont de gard, en það er eldgömul áveitubrú. þar höfðum við pantað okkur "hyttu" sem var alveg snilld. hún var mun stærri og betri en við höfðum gert okkur vonir um. þegar við vorum komin þangað og búin að fá lyklana að henni drifum við okkur að fara og skoða brúnna, en hún var í göngufæri við dvalarstað okkar. að því loknu var svo étinn kveldmatur og farið að sofa skömmu síðar.


á laugardaginn var farið snemma af stað og eftir morgunverð ekið af stað til montpellier. við eyddum dálitlum tíma þar og skoðuðum gamlar byggingar og miðbæinn. þegar okkur fannst svo nóg séð þar keyrðum við niður að miðjarðarhafi, en það er stuttur spölur frá montpellier. þar röltum við smáspöl á ströndinni og fengum okkur að borða. áfram var svo haldið til nimes og skoðuðum þar hringleikahús, hof og svo það sem á vegi okkar varð. eftir þetta allt var svo kominn tími til heimferðar og við renndum til baka í "hyttuna" okkar og grilluðum þar lærisneiðar og höfðum það gott og fórum svo að sofa.

á páskadag, í gær pökkuðum við svo okkar hafurtaski í bílinn og héldum af stað norðureftir aftur. stoppuðum í avignon og eyddum þar lunganum úr deginum. þar var að sjálfsögðu margt að sjá og við skoðuðum eins mikið og okkur var unnt á þeim tíma sem við höfðum. seinnipartinn var svo haldið af stað heim á leið til grenoble, en við ákváðum að fara aðra leið heim en við komum. þannig að við keyrðum sveitavegi, gegn um vínræktarhéruð, upp í alpana, og svo fjallvegi alla leið til grenoble. þetta tók um 4 tíma að aka þetta svona. svo var nú bara slappað af hérna í gær eftir létta máltíð.



í dag erum við svo bara í slökun hérna heima. gæti nú trúað því að við skellum okkur út á eftir og skoðum eitthvað hérna í grenoble. veðrið er ekki slæmt en ekki gott heldur - eiginlega svona ekkert veður ekki kalt og ekki hlýtt, ekki sól en ekki rigning.


ps. ég er búinn að setja inn slatta af myndum í albúmið frá ferð helgarinnar.


Posted by mundi at 10:54 FH | Comments (3)

apríl 11, 2004
komin heim

við erum komin heim eftir magnaða ferð niður af miðjarhafi. margt skoðað og étnar steikur. en myndir og ferðasaga hér á morgun. -gleðilega páska-

Posted by mundi at 07:18 EH | Comments (0)

apríl 09, 2004
carte de sejour

þá er verið að pakka fyrir smá páskaferð. ég gat losnað úr vinnunni á hádegi þar sem ég þurfti að fara að ná í landvistarleyfið. ég er semsagt kominn með 10 ára landvistar og atvinnuleyfi í frans. og nú verður lagt af stað, skrifa kannski eitthvað hérna inn á sunnudagskvöldið, ef ekki þá mánudag.

ég óska lesendum gleðilegra páska.

Posted by mundi at 12:45 EH | Comments (0)

Ferðalag

Það var ágætis veður í gær svo að ég fór með tengdó í smá dagsferð. Það var tekinn rúntur upp í fjöllin og kíkt í dropasteinshellana. Fín ferð. Í gærkvöldi borðuðum við svo raclette og höfðum það huggulegt. En nú er byrjað að rigna aftur svo það á bara að elta sólina suður á bóginn. Ætlum að leggja af stað seinni partinn í dag og vera fram á sunnudagskvöld. Stefnan er tekin á Avignon, Pont du Gard, Nîmes og Montpellier. Við erum búin að panta hjólhýsi á tjaldstæði mitt á milli Avignon og Nîmes. Þá er víst bara best að fara að taka til svefnpokana og grillið.

Góða páskahelgi.

Posted by svanhildur at 06:59 FH | Comments (3)

apríl 07, 2004
mor og far

jæja þá er vinnudegi 3 af 5 þessa vikuna lokið. það voru ekki móttökur af verri endanum sem maður fékk þegar maður kom heim. mamma og pabbi voru komin og við sátum aðeins hérna og spjölluðum og fórum síðan út að borða eina þríréttaða á au fin gormet, sem er að verða okkar staður hérna.


svo er bara kominn háttatími og það verður vonandi gert eitthvað skemmtilegt eftir vinnu hjá mér á morgun líka, svanhildur ætlar að taka þau túr um bæinn á morgun, ef viðrar. þau eru nú ekki heppin með veður, þó það hafi verið ágætt seinnipartinn í dag, það er aftur orðið kalt hérna, og spáin heldur blaut. - þannig að stefnan er jafnvel tekin suður að miðjarðarhafi um helgina.

Posted by mundi at 09:34 EH | Comments (3)

apríl 06, 2004
CAF - franskar húsaleigubætur

í dag skulum vér gleðjast því bæði laun og húsaleigubætur skiluðu sér. alveg óskiljanlegt hvernig þetta franska kerfi virkar. maður sendir inn beiðni um húsaleigubætur ásamt fylgiskjölum. eftir nokkrar vikur fær maður bréf frá þeim sem segir að einhverjar upplýsingar vanti. maður sendir þær. 2-4 vikum seinna fær maður bréf sem segir að enn vanti einhverjar upplýsingar. eins og það hafi verið of erfitt að biðja um þær ásamt hinum upplýsingunum í fyrra bréfinu. svona getur þetta gengið - lengi, lengi og ...af göflunum.


í síðustu viku fengum við enn eitt bréfið einmitt þess efnis að upplýsingar vantaði, nánar til tekið afrit af dvalarleyfinu mínu. þar sem ég er enn bara með tímabundið leyfi, fer að ná í hitt á föstudaginn, þá ákváðum við að bíða með að senda þessa pappíra þangað til við gætum sent afrit af endanlegu dvalarleyfi til að fá þetta ekki í hausinn eina ferðina enn. en viti menn í gær kom bréf sem sagði að allt væri klappað og klárt, án þess að við séum búin að svara þeim kröfum sem gerðar voru. í því bréfi stóð að peningarnir væru væntalegir "fljótlega". þannig að við vorum alveg eins að búast við þessu í haust!! en viti menn - í dag var summan bara komin í heilu lagi inn á reikninginn hennar svanhildar. þetta kerfi hér er eins og kötturinn, gersamlega óútreiknanlegt. en ágætt að þetta er þá klárt.


Posted by mundi at 04:46 EH | Comments (4)

apríl 05, 2004
Páskaegg, harðfiskur, royal, ora o.fl.

Ég er búin að gera ýmislegt þennan mánudagsmorguninn. Byrjaði á að ljúka við að skrifa ferilskrána mína á frönsku, dreif mig svo í bæinn og byrjaði á að fara niður á sýslumannsskrifstofuna til að reyna að sækja endanlega dvalarleyfið hans Munda en eins og við áttum von á þá þarf hann að mæta sjálfur og ná í það. Hann þarf því að taka sér hálfan dag frí á næstunni til að fá þetta afhent. Því næst labbaði ég með ferilskránna mína og meðmæli á pizzastað hér í miðbænum og sótti formlega um vinnu þar. Vinafólk Betu og Georges er nýbúið að opna veitingastað og við Mundi fórum þangað og borðuðum með þeim í síðustu viku og ég sagði þeim að ég væri vanur þjónn og væri að leita að sumarvinnu. Þau hjónin (eigendurnir) tóku vel í þetta og ég held ég sé 95% örugg um að fá einhverja vinnu þarna í sumar. Hversu mikið það verður veit ég ekki enn enda vil ég helst bara vinna svona 20 tíma á viku til að hafa tíma til að skrifa ritgerðina mína.


Áður en ég fór heim kom ég svo við á ljósritunarstofu til að ljósrita nokkra pappíra sem þeir hjá Leigubótaskrifstofunni voru að biðja okkur um. Það er búið að vera töluvert vesen að fá þessar leigubætur. Við erum alltaf að fá send bréf þar sem við erum beðin um að senda þeim einhverja nýja pappíra og höfum ekki fengið krónu í bætur. Svo ég ljósritaði það sem þau voru að biðja um í þetta skiptið, kom svo við á pósthúsinu og sendi þetta.


Þegar ég kom heim sá ég að það voru 2 bréf til mín í póstkassanum. Eitt frá leigubótaskrifstofunni sem var að tilkynna mér það að ég fengi bráðlega (veit ekki hvort það þýðir í þessari viku eða eftir mánuð) 964,56 € (og reiknið nú) lagt inn á reikninginn minn. Þetta er ágætis summa sem á eftir að redda miklu og svo á Mundi að fá sína fyrstu útborgun í nýju vinnunni á morgun svo það horfir allt til betri vegar í peningamálunum og aldrei að vita nema það verði bráðlega splæst í Hróarskeldumiða. En þetta voru ekki einu góðu fréttirnar sem biðu mín í póstkassanum. Þar var líka tilkynning um að ég ætti pakka á pósthúsinu. Svo ég dreif mig aftur út á pósthús og tók við þessum líka ekkert smá stóra pakka sem var fullur af páskaeggjum, harðfiski, royal skyndibúðing, lakkrís, swiss miss, ora grænum og ég veit ekki hvað og hvað. Ég vil þakka Gauta bróður fyrir að sjá til þess að stóra systir í útlöndum fengi líka páskaegg og svo auðvitað líka mömmu og pabba fyrir að hafa sent okkur þetta allt saman. Ég er nú þegar búin að gleypa í mig heilt flak af harðfiski og ummmm, ég veit ekkert betra en góðan harðfisk.


En nú er víst kominnn tími til að læra smá.

Posted by svanhildur at 10:48 FH | Comments (1)

apríl 04, 2004
formúla og fleira

ég er að gera tilraun til að horfa á formúluna. svei mér þá, ég hef ekki eins gaman af henni og áður, sjúmmi er alveg búinn að eyðileggja þetta fyrir mér. hann er svo langbestur og á svo langbesta bílnum að það er ekki sniðugt. bensinn er heldur ekki að gera sig í bílasmíðinni þetta árið. nóg um það.


nóg um það. áður en formúlan hófst löguðum við aðeins til hérna í klefanum okkar og skúruðum gólfið. það var kominn tími á það.

svo ætla mamma og pabbi að koma hingað á miðvikudaginn og dvelja hjá okkur um páskana. ekki veit ég nú alveg hvað við gerum - það verður örugglega farið í einhverjar daxferðir að skoða eitthvað. reyndar verð ég að vinna alla næstu viku. þessir kaþólikkaheiðingjar eru ekki enn búinir að fá að frétta að skírdagur og föstudagurinn langi eru rauðir dagar. annar í páskum verður semsagt páskafríið mitt. þannig að næsta helgi verður þriggja daga og við munum örugglega nota hana til að gera eitthvað skemmtilegt.

Posted by mundi at 12:57 EH | Comments (2)

apríl 03, 2004
aðeins verið að klappa volfgang

yndislegt veður í dag, okkar mælir segir 22 í forsælu. ég notaði tækifærið áðan og skipti um olíu og síu á volfgang. kannaði vatn á batteríi, bremsuvökva, stýrisvökva, kælivatn og bætti á rúðupiss. mikið var hann nú glaður. hann kvartar einna helst yfir því að það er orðið afskaplega lélegt rörið fyrir framan aftari hljóðkútinn. ég er búinn að framkvæma á því bráðabirgðaviðgerð og lofaði honum svo að gera þetta almennilega um leið og efni stæðu til.

við röltum okkur svo áðan hérna út í lítinn almenningsgarð, þar sem við höfum engan sjálf. settumst þar niður og fórum í smá "pick-nic" í sólinni. þetta á að vera róleg helgi enda búið að vera mikið um að vera undanfarið og það er nóg framundan.


Posted by mundi at 02:09 EH | Comments (2)

apríl 02, 2004
læknis....

það er eins og ég hef alltaf sagt - maður á ekki að fara til lækna nema maður liggi hreinlega fyrir dauðanum. þetta helvítis bóluefni fór ekki vel í mig og ég er búinn að vera handlama í allan dag. fannst ég eitthvað þróttlítill líka og var ansi slappur eitthvað í vinnunni. var svo að komast að því að ég er með 39 stiga hita. já - maður fer frískur til læknisins og fer út slappur.
kennir þetta manni ekki eitthvað?

annars vil ég óska fólkinu sem þetta les góðrar helgar.

Posted by mundi at 04:56 EH | Comments (0)

apríl 01, 2004
lækningamenn

þá er sólin farin að skína og kominn steikjandi hiti. hitastigið í volfgang er svona rétt um suðumark þegar maður sest inn í hann eftir að hafa ekki fundið bílastæði undir tré.


annars er ég kominn óvanalega snemma heim í dag. ég þurfti nefnilega að fara til læknis núna eftir hádegið. það er eitthvað með frakkann, að maður þarf að fara í læknisskoðun til að geta unnið og það var þá engin smá klössun. fyrst þurfti að fylla út alveg bunka af pappírum, ég þurfti að svara hinum ýmsu spurningum um allan fjandann. frakkinn ekki að klikka á pappírsvinnunni að vanda. svo var það skoðunin. ég er búinn að komast að ýmsu um sjálfan mig í dag. svo sem það að ég er 181,5 cm á hæð og 95kg að þyngd, ég sé vel og heyri vel, er með blóðþrýstinginn 130/80 og hjartað slær eins og gangverk í svissnesku úri. svo er ég með ágæta "reflexa", búið að banka mig allan utan með hamri og pota í bumbuna á mér. lungnaþrek gott. að lokum fékk ég svo sprautu með bóluefni gegn sjúkdómnum "vhlah-flah" sem er víst mjög sjaldgæfur. þannig að ég get haldið áfram að vinna.


það voru 2 læknar sem framkvæmdu þessar rannsóknir á heimskautadýrinu, sá fyrri sá um spurningar og sjón og heyrn svo varð ég að hátta og hinn skoðaði það sem eftir var. það var eldri maður og hann var nú svolítið fyndinn. hann sagði mér að ef að ég ætlaði að vera lengi í frakklandi þá ætti ég að fá mér heimilislækni, það ætti ekki að vera vandamál því að í frakklandi væru jafn margir skotveiðimenn og í öllum öðrum evrópulíkjum samanlagt, og því væri eins farið með lækna, og svo hló hann bara og gerði meira grín.


vinnan gengur vel - ég er búinn að vera fljótur að ná þessum nýju vinnubrögðum. þessi vinna er þung á höndum, enda eiginlega nokkurskonar múrverk, nokkurskonar akrýlpússning ef einhver verður einhverju nær með það. vinnufélagarnir 2 sem ég er alltaf að vinna með eru hinir almennilegustu við útlendinginn og sýna mér skilning þegar ég er að reyna að böggla út úr mér ambögunum. mér leiðist hins vegar hvað ég er mállaus og get ekki verið með í samræðum í matartímanum og þess háttar. maður verður einangraður og það er ekki gaman.


...en best að nota sér það að vera kominn snemma heim og fara út í sólina.

Posted by mundi at 01:40 EH | Comments (4)

vehehei, wouhou, muhaha

Ég vildi að ég gæti látið ykkur ýta á takka á tölvunni til að heyra fagnaðarópin mín en þau eru gríðarleg. Já ég fékk miða og ég er að fara yfirum af hamingju. Þá er ekkert annað að gera en að bíða eftir 4. september.

Posted by svanhildur at 08:30 FH | Comments (9)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur5 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
chez An. Gonord
7 rue Ernest Calvat
38000 Grenoble
FRANCE

Heimasími:
0033-(0)4 7642 6706
Mundi gsm
0033-(0)6 3273 2816
Svanhildur gsm
0033-(0)6 6654 7023
Fólk
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni