« febrúar 2004 | Heim | apríl 2004 »
mars 31, 2004
Og meira um Madonnutónleika

Guðrún hringdi í mig upp úr hádegi og sagði mér að það væri byrjað að selja miða á tónleika númer tvö. Ég dreif mig í bæinn en allir miðarnir voru uppseldir. Ef ég hefði beðið lengur í morgun, þ.e. ekki farið þegar mér var sagt að það væri uppselt, þá hefði ég pottþétt fengið miða á þá tónleika. En þetta er nú ekki allt svart. Mér var sagt að það væri búið að ákveða að halda þriðju tónleikana og að miðar yrðu seldir á þá á morgun. Sami leikurinn mun því endurtaka sig á morgun en vonandi með öðruvísi og betri endi.
Ég er alveg gjörsamlega eftir mig eftir þennan dag. Búin að sofa lítið og mjög mikið stress í gangi. Ég treysti á að þetta reddist á morgun.

Posted by svanhildur at 01:55 EH | Comments (9)

Enn um Madonnutónleika

Var að kíkja á heimasíðuna hjá Madonnu og sé að það er búið að bæta við tveimur aukatónleikum í London svo ég er að verða bjartsýn á að það sama verði gert hér og að við fáum þá miða.

Posted by svanhildur at 10:56 FH | Comments (0)

Engir miðar uhuhu

Þá er ég komin hem miðalaus eftir þvílíka spennu í biðröðinni. Miðarnir seldust upp á 5 mínútum og stelpan á undan mér fékk síðustu miðana í ódýrasta flokknum. Þá ákvað ég að kaupa bara næstódýrustu miðana (sem kostuðu 101 evru). Konan sagðist eiga tvo og ég ákvað að það yrði bara að duga þótt ég hefði ætlað að kaupa fjóra(líka fyrir Jón og Guðrúnu) en svo sagði hún að hún ætti bara einn og ekki vildi ég fara ein til Parísar á tónleika. Ég titra enn, þetta var svo mikið spennufall. Ég var svo viss um að fá miða þar sem ég var næst í röðinni. Það voru ca. 50 manns að bíða eftir miðum en aðeins um 15 manns fengu miða. Ég er svo svekkt að ég gæti grenjað. En það er samt ljós í myrkrinu. Guðrún var að hringja í mig og segja mér að það væri búið að ákveða að halda aðra tónleika daginn eftir þar sem að miðarnir hefðu selst upp svo hratt. Þá er bara að komast að því hvenær þeir verða seldir og gera aðra tilraun.

Posted by svanhildur at 10:43 FH | Comments (1)

Madonna

Ég er búin að vera andvaka frá því klukkan 4 í nótt. Ég er nefnilega að deyja úr spenningi og stressi. Ég komst að því fyrir tveimur vikum að Madonna væri að fara að halda tónleika í París 1. september næstkomandi og að miðasala byrjaði 31. mars, sem sagt í dag. Ég er ekki búin að hugsa um annað en það að komast á þessa tónleika frá því ég frétti af þeim en ef einhver skyldi lesa þetta sem þekkir mig ekki mikið, þá er Madonna búin að vera mitt uppáhald frá því ég var 5 ára og jafn lengi hefur það verið einn af mínum stærstu draumum að sjá hana á tónleikum. Ég er bara svo hrædd um að fá ekki miða. Ég er að deyja. Ætla að drífa mig út og standa í biðröð, miðasalan á að opna klukkan 9.30. Wish me luck.

Posted by svanhildur at 04:49 FH | Comments (2)

mars 29, 2004
heitt og kalt

það er þá farið að hitna vel hérna aftur, samt er mikill munur á nóttu og degi. í morgun var við frostmark og í dag var alger steik. maður veit eiginlega ekkert hvernig maður á að fara klæddur til vinnu! annars allt með kyrrum kjörum hér.

myndir frá ítalíu eru komnar í myndaalbúmið

Posted by mundi at 06:30 EH | Comments (1)

mars 28, 2004
ítalíuferðin var snilldin eina

tn_DSC03579.JPG


jæja við erum komin heim eftir viðburðaríka og æðislega helgi á ítalíu. við fórum á föstudaginn og Daniele tók á móti okkur og Carinu með ítölsku eyrnasnepplapasta, sem bragðast betur en það hljómar!


á laugardaginn var skíðað alveg þangað til allir voru orðnir uppgefnir. það var nú ekki sérstakt veður þegar við vöknuðum, snjókoma og skýjað en það átti heldur betur eftir að lagast þegar líða fór á daginn og við enduðum í alveg heiðsskíru og hlýku veðri. bærinn þar sem fjölskylda hans á þennan fjallakofa heitir Bardoneccia og þar verða vetrarólympíuleikarnir haldnir árið 2006. reyndar verða þeir kenndir við Torrino en í þessu þorpi fara nokkar greinar fram. við prófuðum auðvitað að skíða keppnisbrekkurnar.

eftir einn besta skíðadag vetrarins var svo farið heim í hús, þetta er ekki svona fjallakofi eins og maður sér fyrir sér heldur er þetta íbúð þarna í þorpinu í eldgömlu húsi. þorpið er allt alveg ótrúlega kósí með þröngum götum og gömlum húsum. þar var svo græjað raclette eins og það verður best. hann gaf okkur svo að smakka vín sem er gert úr jurtum sem vaxa þarna í dalnum við hliðina á, eitthvað sem frændi hans hafði gert 1996.


í dag fórum við svo í gönguferð og gengum frá ítalíu yfir til frakklands! það hljómar auðvitað sem mikið afrek, sem það og var þó ekki væri um langan veg að fara. svo var borðað meira pasta italiano og að því loknu ekin lengri leiðin heim. þá fórum við ekki í gegn um jarðgöng milli landanna heldur keyrðum sem leið lá yfir alpana.


þegar við vorum svo komin yfir til frakklands stoppuðum við í borg sem heitir Briancon. það er víst hæstliggjandi borg evrópu og státar af því að hafa 300 sólskinsdaga á ári að meðaltali. meðaltalið var einmitt okkur í hag þar í dag og við skoðuðum gamla bæinn þar og kirkjuna. þetta er nú fallegasti bær sem ég hef séð hér í landi fram að þessu, snyrtilegur og hús og götur í ágætu viðhaldi, eitthvað sem vantar nú ansi víða hér. svo var haldið af stað í gegn um skarð til grenoble. þar náði vegarstæðið hæst í 2058m. það var alveg órtúlegt útsýni á þeirri leið, maður var við það að falla í stafi hvað eftir annað. komumst meðal annars í návígi við fjallageit þar og tókum af henni mynd.


svo vorum við að koma heim - við erum að fara að sofa núna, nú er klukkan komin á sumartíma, það gerðist í nótt sem leið svo nú erum við 2 tímum á undan þeim sem búa á íslandi. auðvitað tók ég fullt af myndum. ein 190 stykki eða svo þannig að ég ætla að henda inn myndum af þessum magnaða leiðangri við fyrstu hentugleika.

góðar stundir

Posted by mundi at 08:54 EH | Comments (1)

tn_DSC03499.JPG

Posted by mundi at 08:36 EH | Comments (1)

mars 25, 2004
ítalía og spilamennska

jæja einn vinnudagur eftir af þessari viku og eftir það er það skíðaferð til ítalíu. ég get ekki neitað því að ég er mjög spenntur fyrir þeirri ferð, hef aldrei komið til ítalíu og hef aldrei komið í alvöru fjallakofa í ölpunum. ég ímynda mér að þetta verði rosagaman, skíða á daginn og borða góðan mat á kvöldin.


annars eru jón og guðrún á leiðinni til okkar, við ætlum að spila hérna í kvöld. það verður svona lokakveðjustund því þau flytja til parísar um helgina. þeirra verður sárt saknað hér en ég held nú hins vegar að það verði samgangur okkar á milli þó að þau verði komin í borgina. báðir aðilar á bílum, hraðlest á milli osfrv.

ps. ég laumaði 12 myndum af heimsókn okkar í hallargarðinn í vizille inn í myndaalbúmið í gær

Posted by mundi at 06:07 EH | Comments (3)

mars 24, 2004
af því að ég gleymdi að segja ykkur það...

fyrir þá sem hafa einhvern áhuga þá er hægt að nálgast tvö stutt myndbönd frá skíðaferð síðastliðins sunnudags á heimasíðu Jóns og Guðrúnar

Posted by mundi at 09:55 EH | Comments (4)

Pour nos amis francophones

Salut tous!
Cela est fait specialement pour nos bons amis Éliane et Normand (vous nous manquez beaucoup) mais aussi pour tous nos amis francophones. Je ne croyais pas que vous lisiez notre site mais cela me fait vraiment plaisir, au moins vous pouvez comprendre les photos. Je dois avouer que c'est très difficile pour moi d'écrire en francais (je peux seulement écrire un c comme ca) et il faut aussi que j'avoue qu'on est dans la deuxième bouteille du vin rouge (ce qui a été nécessaire pour moi pour pouvoir écrire en francais sans chercher tous les deux mot dans le dictionnaire), mais il est nécessaire de faire un peu d'exercice si je veux devenir un prof de francais dans le futur.


Mais alors, qu'est-ce qui ce passe chez nous à Grenoble? Mundi a trouvé un travail où personne ne fait kaka dans le sol et il est donc très content. Chez moi, mes études deviennent de plus en plus difficiles et je dois beaucoup travailler si je veux avoir la possibilité d'être accepté pour faire le master ici à Grenoble. J'ai donc décidé de me concentrer sur mes cours ce semestre et je vais écrire mon mérmoire cet été.


Ici à Grenoble, on croyait que l'été était venue la semaine dernière. Toute la semaine il y avait du soleil et entre 20 et 26 degrès Celcius (ne me demandez pas de l'expliquer en Farenheit). Mais ce n'était qu'une blague et cette semaine il a fait très froid (peut être pas très froid pour les Québequoises mais pour les Islandais il a fait froid!). Mais le chaleur et le soleil vont revenir pendant le weekend où on va aller en Italie avec Carina et son copin. On va passer le weekend dans un chalet dans les alpes italiens et Mundi va boire un Kronenbourg (ou deux) pour Norm. C'est donc sûr qu'on va passer un bon weekend et on espère que vous aussi.


A plus et bisous.

Posted by svanhildur at 08:58 EH | Comments (8)

Fiður kjúlli

Ég var að setja kjúkling í ofninn, eftir hálftíma fiðurplokk. Við höfðum mjög oft kjúkling í matinn í Danmörku þar sem hann er mjög ódýr þar í landi en það kom mér á óvart að í kjúklingalandinu Danmörku þá virðast slátrararnir ekki kunna að reyta kjúklingana. Áður en hægt er að stinga þeim í ofninn þarf að eyða hálftíma í að plokka fiðrið af þeim. Allavega ef maður er eins og ég og fær klígju við að sjá hár í mat (nema það sé úr mér) og fyrir mér er þetta eins og að hafa hár í matnum. En jæja, við höfum bara prufað að kaupa kjúklingabringur hér í Frakklandi en áðan keypti ég alvöru kjúkling með skinni (skinnið er jú besti hluti kjúklingsins) og ef eitthvað er þá eru Frakkarnir verri reytarar en Danirnir.
Já, maður lærir að meta ýmislegt við landið sitt þegar maður er í útlöndum og ég vil nota tækifærið og þakka íslenskum kjúklingafiðurreyturum fyrir vel unnin störf.

Posted by svanhildur at 06:01 EH | Comments (2)

útsýnið okkar fyrir 5 mínútum !

tn_DSC03413.JPG

Posted by mundi at 05:54 FH | Comments (0)

mars 23, 2004

uss uss. það er ekkert sem minnir á vorkomu hérna í grenoble í dag. það hefur verið skítaveður, kuldi, vindur og rigning. veðurfar sem ég kenni við höfðuðborg íslands. það hefur meira að segja snjóað töluvert í fjöllin.

ég gat fundið mér smá skjól fyrir riginingunni undir þakskyggni í dag og böðlaðist þar við að koma því í horfið. þetta er alveg gerólíkt veðrinu í síðustu viku en þá var ég á sama stað ber að ofan og allt klárt. vinnan gengur annars ágætlega - þetta svona rúllar áfram í rólegheitum, en svosem lítið meira um það að segja.

núna vona ég bara að svanhildi batni pestin og sólin komi aftur.

Posted by mundi at 05:30 EH | Comments (3)

Ælupest

Já ég náði mér í ælupest. Vá hvað þetta er versta flensa í heimi. Ég hélt ég myndi deyja í gær, ældi, ældi og ældi og hélt þetta myndi aldrei taka enda. En ég hef ekkert ælt í dag og er að hressast, samt eitthvað voða orkulaus og með hita en verð örugglega orðin frísk á morgun. Ég hef sem sagt ekki frá neinu sérstaklega skemmtilegu að segja í dag, er að hugsa um að skríða upp í koju og horfa á döbbaða sápuóperu í sjónvarpinu.

Posted by svanhildur at 12:36 EH | Comments (1)

þriðjudagur og það er rigningarlegt

Posted by mundi at 05:54 FH | Comments (5)

mars 21, 2004

tn_DSC03405.JPG

Posted by mundi at 08:21 EH | Comments (1)

Stórkostleg helgi

tn_DSC03309.JPG


frábær helgi að baki hérna hjá okkur í Grenoble. það er ekki búið að vera aðgerðaleysi þessa helgina.

strax eftir vinnu og skóla hjá okkur á föstudag var brunað til Vizille í kveðjuhóf hjá Jóni og Guðrúnu. þau eru að kveðja okkur hérna og eru að fara til Parísar að gera garðinn frægann. Beta og George voru þarna líka, það var grillað og snætt úti og sátum þar fram undir miðnættið. Það má kannski segja að þetta hafi verið kveðjuhóf fyrir þau líka því á laugardaginn fékk George vinnu á íslandi og þau eru því líka að flýja okkur innan tíðar. mér líst ekki alveg á þetta - en svona er lífið.

á laugardaginn var svo nett lágskýjað en við notuðum laugardaginn til að taka okkur göngutúr í hallargarðinum í Vizille, - en hann er mjög fallegur með töluverðu dýralífi.


í dag fórum við svo með Jóni og Guðrúnu í les 2 alpes. skíðuðum þar léttklædd í allan dag í slíkri blíðu. við eigum fullt af myndum eftir helgina sem ég ætla að reyna að gefa mér tíma til að setja inn á myndasíðuna í vikunni, ég nenni því ekki núna. þakkir til þessa góða fólks sem gerði þessa helgi svona skemmtilega. -næsta helgi ætti ekki að verða síðri því það er búið að bjóða okkur að koma til ítalíu, carina hin þýska sem er sambýlingur okkar á kærasta sem er ítali og foreldrar hans eiga fjallakofa í ítölsku ölpunum. þannig að það er byrjað að telja niður fyrir næstu helgi.

Posted by mundi at 07:46 EH | Comments (6)

mars 18, 2004
Lítið að frétta

naukowiec.gif


mynd segir víst meira en mörg orð - þannig að þetta er pistill daxins. :)

Posted by mundi at 05:35 EH | Comments (2)

mars 17, 2004
ónefnt

sennilega var heitasti dagur þessarar viku í dag - það fór í 25-26 gráður þar sem ég var að vinna. það er samt bærilegra að vinna við þennan hita hér en í danmörku - það er ekki eins rakt. nú á aðeins að fara að kólna aftur.


annars gengur vinnan bara vel, ég skil auðvitað ekki næstumþví allt sem fram fer - en næ að skilja svona um það bil það sem skiptir máli. þannig að þetta hefur verið alveg ágætt það sem af er. mér finnst langur átta tíma vinnudagurinn hérna, ég vakna klukkan hálfsjö og kem heim klukkan sex, hálfsjö. umferðin hérna er nefnilega hreinasta helvíti. ég hata hana alveg út af lífinu, en þetta býr fjöldi fólks við og ég verð að láta mér það lynda enn um sinn.


best að fara í sturtu og fá sér kvöldmat

Posted by mundi at 05:49 EH | Comments (2)

mars 16, 2004
Vei, ég er með far

tn_DSC03271.JPG


Eins og þið sjáið þá náði ég mér í smá lit í dag (vonandi verður þetta orðinn annar litur en rauður á morgun). Dagurinn í dag var nú bara hinn besti dagur, allavega miðað við það að ég er búin að vera aðl æra undir próf í allan dag. Ég dreif mig á lappir með Munda í morgun og var eitthvað að slæpast á netinu og reyna að fá mig til að líta í bækurnar fram eftir morgni. Klukkan að ganga 11 skellti ég mér í hnébuxur og ermalausan bol og svo berfætt í sandalana og dreif mig upp á háskólasvæðið og fann mér góðan stað til að stjast niður og lesa í sólinni. Mér gekk miklu betur að einbeita mér þarna úti en heima og svo var þetta svo gaman og yndislegt að geta bara setið í sólbaði. Skrapp svo í tíma milli klukkan 13:30 og 15:30 og svo aftur út í sólina að lesa. Þar sat ég til klukkan 17, en þá var ég aðeins farin að verða rauð og ákvað að tími væri kominn til að fara heim. Þrátt fyrir að ég sé pínu rauð er ég voða ánægð að vera komin með far, hef aldrei áður verið með far um miðjan mars. Auk þess er ég að lesa fyrir mjög erfitt próf í afskaplega leiðinlegu fagi og hef átt erfitt með að halda mér yfir bókunum undanfarna daga, en í dag gekk allt eins og í sögu. Aldrei að vita nema ég setjist út á morgun og verði bara í peysu og reyni að fá lit á fæturna, þá hlýt ég að fá tíu í þessu prófi.

Posted by svanhildur at 09:01 EH | Comments (1)

mars 15, 2004
fyrsti vinnudagur chez MDF

jámm, það er ekki ofsögum sagt af blíðunni. fyrsti vinnudagur minn hjá MDF, eins og fyrirtækið heitir, fór bara nokkuð vel fram. ég var að mála glugga á 4. og 5. hæð. í fallegu sveitaþorpi sem heitir vizille. þetta virkar allt í fyrstu mun gáfulegra en það síðasta sem ég reyndi - en ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta eftir einn dag, - fæst orð bera minnsta ábyrgð. en allavega gott start á sólskinsdegi.

Posted by mundi at 07:00 EH | Comments (8)

Sumarið er komið

svona á það að vera
sólin leikur um mig
algjörlega bera
dabdabdabadababei


Heiðskír himinn, 20 stig, fólk að slá grasið og litlu eðlurnar farnar að hlaupa um göturnar. Mig langar að leggjast í sólbað og grilla svo í kvöld og borða úti. Er reyndar bara búin að sitja inni og læra í dag og skrapp svo í smá eróbikksprikl. En ég öfunda Munda af því að vera að vinna úti í dag, hef reyndar smá áhyggjur af að hann komi sólbrenndur heim.

Posted by svanhildur at 02:47 EH | Comments (3)

mars 14, 2004
sunnudagur til sælu

við vorum að koma úr bænum fyrir 10 mínútum. í dag er stuttermabolsveður hérna og iðandi mannlíf í miðbænum. í dag er markaðsdagur þar og fólk að selja allann andskotann út um allt. víð byrjuðum á því að fara bara út í göngutúr hérna meðfram ánni í blíðunni en löbbuðum svo til betu og george. þaðan fórum við saman og settumst í sólina á einu kaffihúsinu og fengum okkur expresso. kíktum svo aðeins á markaðinn. það er heldur betur vor-fílingur í manni í dag, ekki annað hægt í slíkri blíðu..

Posted by mundi at 04:05 EH | Comments (4)

mars 13, 2004
vorið að koma ??

tn_DSC03262.JPG


vinir okkar matthias (D) og roger (E) komu í heimsókn í gærkvöldi og við sátum og drukkum saman bjór og rautt og ræddum heimsmálin fram eftir nóttu. þetta eru toppmenn sem er alltaf gaman að hitta. gracias por el visite !


...svo held ég að ég sé að verða berdreyminn, mig dreymdi fyrir veðrinu og samkvæmt spánni á það að ganga eftir, - vorið fer að koma, hér á að vera 15 - 20 stiga hiti þegar líða fer á komandi viku. ekki slæmt - ekki síst vegna þess að ég byrja að vinna á mánudaginn og það er jú allt utanhúss.

Posted by mundi at 09:07 EH | Comments (3)

prufa....

Posted by mundi at 09:06 EH | Comments (1)

mars 12, 2004
Fréttir af Svanhildi: BA-ritgerð og toppur

Ég er búin að vera í smá stresskasti undanfarna daga og hef lítið annað gert en að læra. Var svo í prófi í gær sem gekk ekki alveg eins vel og ég hafði vonað en það verður bara allt að koma í ljós. En það er semsagt búið að vera rosalega mikið að gera og lítill tími gefist til að huga að aumungja BA-ritgerðinni minni. Ég er því nokkurnvegin búin að taka þá ákvörðun að fresta skrifunum fram á sumar. Er bara eftir að fá endanlegt svar við að ég geti byrjað mitt mastersnám í september þótt ég útskrifist ekki með BA-próf fyrr en í október. En samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef frá háskólanum heima, þá ætti það ekki að vera mikið vandamál. En ég mun ræða þetta við yfirmennina (eða yfirkonuna) hérna úti í næstu viku. Hún hlýtur að skilja þetta þar sem það var hún sem sagði að ég þyrfti að taka tvo aukakúrsa sem eru nú ástæðan fyrir því að ég sé ekki fram á ða ég geti bæði klárað að skrifa ritgerðina og náð öllum prófum með ásættanlegri einkun.


Annars, þá tók ég eina aðra mikilvæga ákvörðun í vikunni. Ég er byrjuð að safna toppinum, nenni ekki að vera með topp lengur, maður þarf alltaf að vera að klippa hann og laga og er aldrei fullkomlega ánægður. Svo er líka farið að styttast í sumarið og þá er ómögulegt að vera með topp því manni verður svo heitt á enninu og svitnar og svitnar undir hárinu. Svo nú mun toppurinn fá að vaxa sem þýðir að það er hræðilegur hármánuður framundan. Það er því kannski bara best að hanga inni og læra og láta ekki nokkurn mann sjá sig. Nei ég er nú bara að spauga. Hahahaha, fannst ykkur þetta ekki fyndið? Ég held ég sé að fara yfirum, of mikill lestur, of mikið kaffi, of mikið stress...


Held ég fari því að kveðja ykkur í bili. Á að gera eitthvað um helgina? Aldrei þessu vant er ekkert planað hjá okkur en það breytist nú vonandi í kvöld.

Posted by svanhildur at 09:28 FH | Comments (5)

mars 11, 2004

hér er það sjálfsagt eins og allsstaðar, það loga allir fjölmiðlar út af þessum hryðjuverkum í Madrid. það er sama hvort maður opnar netsíður, útvarp eða sjónvarp. franska lögreglan er víst búin að herða gífurlega landamæragæslu við spænsku landamærin enda skammt frá héruðum baska. þetta er viðurstyggð alltsaman.

annars lítið að frétta af okkur, kalt í morgun en fallegt veður þegar líða fór á daginn.

Posted by mundi at 04:13 EH | Comments (3)

mars 10, 2004
svona gerast kaupin á eyrinni

já enn er allt dauðrólegt af suðurvígstöðvunum, þeas af mér. svanhildur greyið sér hins vegar varla út ur augum fyrir námi. það eru ritgerðaskil og próf og BA ritgerð og ég veit ekki hvað og hvað. ég öfunda hana ekki af þessu, það verður mikið að gera hjá henni alveg fram að skólalokum, það er nú þegar orðið morgunljóst.


en það sem ber kannski helst til tíðinda héðan er veðrið! já - hér er búinn að vera vindur í 3 daga núna, nokkuð sem hefur ekki gerst síðan við komum hingað, líklega er þetta bara lognið að flýta sér.


af því að ég hef ekki frá neinu merkilegu að segja þá ætla ég að segja þetta gott, en óska Torfa og Evu innilega til hamingju með íbúðakaupin, Kópavogur er nú ríkari en áður.


Posted by mundi at 12:50 EH | Comments (6)

mars 09, 2004
ferðahugur... ...mig langar ...mig langar

jámm, ég dreif mig bara snemma af stað í morgun, sem verður að teljast orðið óvanalegt. enda engin ástæða til að drífa sig framúr eldsnemma - það eru engin ósköp við að vera.



ég er búinn að vera að vafra á netinu, í morgun, skoða ferðasíður meðal annars, mikið er mig nú farið að langa að fara eitthvað. mér finnst að ég sé búinn að sitja hérna nógu lengi. en líklega verður maður nú fyrst að vinna sér inn pening, og svo að hafa tíma ef þetta á að ganga. en það kostar sáralítið að láta sig dreyma. en það eru reyndar einhver ferðalög á döfinni.

carina, þýska stelpan sem býr hérna með okkur á ítalskan kærasta, en foreldrar hans eiga fjallakofa í ítölsku ölpunum. þau eru búin að bjóða okkur þangað einhverja helgi þegar allir hafa tíma. svo er roger spanjóli búinn að bjóða okkur að koma til sín til barcelona í sumar. vinur minn hann haris, á sumarhús í bosníu og síðastliðið sumar bauð hann mér að við mættum koma þangað þegar hann verður þar í sumar. svo er auðvitað hróarskelduhátíðin og foreldrarnir í danmörkinni, mig langar heim til íslands, að heimsækja fólkið mitt og skjóta gæsir í haust, ef við verðum enn hér þeas. svo mig langar líka til afríku !!

-- ætli sé ekki bara best að sitja hérna aðeins lengur og huxa þetta!!

Posted by mundi at 09:01 FH | Comments (8)

mars 08, 2004

þá er kominn mánudagur. fín helgi að baki, innihélt góðan mat og félaxskap ásamt spilamennsku, sveitaferð og ýmsu fleiru.

í morgun fékk ég svo póst frá tilvonandi atvinnuveitanda og ég á að byrja á mánudag, að viku liðinni.

Posted by mundi at 12:25 EH | Comments (6)

mars 05, 2004
sjaldan er góð misvísa of oft kveðin !!!

samræmingin hjá fransmanninum í kerfinu er stórkostlegt eins og fram hefur komið. hef grun um að þeir hafi átt sér ansi flókið kerfi áður en þeir bættu svo við kerfi EB, og nú er ríkjandi einhver óskilvirk blanda af báðum sem engin skilur, og allra síst þeir sjálfir.


en allavega fórum við áðan til fógeta og allt gekk vel. hins vegar fengum við ALLT aðrar upplýsingar þar núna en við fengum síðast. við vorum eiginlega spurð: "af hverju eruð þið að brasast í þessu, þú mátt alveg vinna hérna án pappíra". gott að segja manni það bara núna! en það varð víst einhver breyting á þessum evrópulögum um áramót sem okkur var ekki kunngjört þegar við fórum þarna rétt fyrir jól. ég er ekkert að fatta þetta, en þetta fór þó vel í þetta skiptið - allir sáttir.


ég óska fólki góðrar helgar.

Posted by mundi at 12:11 EH | Comments (1)

jámm, ég er þá loksins kominn með þetta langþráða blað í hendur, blaðið sem á að veita mér þau leyfi sem ég þarfnast. þannig að ég og svanhildur ætlum að fara saman niðrá fógeta að þessum orðum rituðum að byrja að vinna í því.


ps. svo að maður eyði nú peningunum áður en maður aflar þeirra, - það þarf að fara að eyrnamerkja nokkra aura hróarskeldumiðum, - eru ekki einhverjir að lesa sem ætla með?? 1.-4.júlí

Posted by mundi at 09:15 FH | Comments (12)

mars 04, 2004
afmæli og vinna

í gær vorum við óvænt boðin í afmæli. Luka, ítalskur strákur sem er að læra læknisfræði hérna bauð okkur í afmælið sitt. við fórum þangað og snæddum ítalskan mat ásamt mörgum öðrum. fín kvöldskemmtun.


hinar fréttirnar sem eru nú kannski betri eru þær að ég var að fá tölvupóst frá feðgunum og þeir hafa greinilega unnið í þessu máli, því þeir voru nú með upplýsingar, hvað þyrfti að gera svo ég geti unnið hjá þeim. þeir ætla semsagt að láta mig hafa einhverja pappíra sem ég þarf svo að framvísa hjá fógeta til að fá bráðabirgða-atvinnuleyfi og þegar ég verð kominn með það blað í hendur þá get ég byrjað að vinna. þannig að komi ekki eitthvað óvænt upp, þá byrja ég sennilega að vinna hjá þeim í næstu viku.

Posted by mundi at 05:13 EH | Comments (4)

mars 03, 2004
Hummm..........

jæja - heiðskírt í dag. svanhildur situr við tölvuna og lærir og lærir. ég er hins vegar að spá í að skreppa út og þvo pínulítið. annars ekkert að frétta enn, af vinnu. við hringdum í feðgana í gær en þeir voru ekki við, ritarinn lofaði því að þeir mundu hringja.


anpe var hins vegar að hringja og gefa mér númer hjá enn einu fyrirtækinu , mér líst þannig á, að ég salti það til morguns að hringja þangað - gefa feðgunum einn dag enn, eða hvað???

Posted by mundi at 12:02 EH | Comments (6)

mars 02, 2004
hvers-dagur?

...enn er beðið eftir viðbrögðum þeirra feðga eftir viðtal gærdaxins. vona það besta, annars tíðindalítið það sem af er degi. ofurvenjulegt og tíðindalítið.


áhugafólk um nýjustu hártískuna frá frans ætti að líta inn á síðuna hjá Jóni og Guðrúnu

Posted by mundi at 02:24 EH | Comments (2)

mars 01, 2004
atvinnuviðtal daxins

jæja loxins loxins virðist eitthvað gott vera að gerast. ég fór í atvinnuviðtal í morgun og svanhildur fór með mér. fyrirtækið sem þar um ræðir er í smábæ hérna 16km sunnan við Grenoble. Þar töluðum við við framkvæmdastjórann drykklanga stund og síðan kom pabbi hans þarna inn á kontórinn, virtist vera fyrirtæki í eigu þeirra feðga. við útskýrðum í sameiningu fyrir þeim þann vanda sem búinn er að vera, altsvo að ég fái ekki án atvinnuleyfi án samnings og ekki samning án atvinnuleyfis. það sem mér fannst mjög traust var að þeir hristu bara hausinn yfir þessu og gerðu grín. svo létum við þeim eftir afrit af fullt af pappírum og þeir ætluðu að ganga í þetta mál í dag, þeas tala við fógeta og kanna hvort væri nokkuð stórmál að græja þetta. það er í fysta skipti sem það gerist að einhver taki svona beinlínis minn málstað í baráttunni.


þannig að þessi vika fer allavega vel af stað - en eins og svo oft áður, - þá er bara að bíða og sjá.


ps. ég ætla að lauma nokkrum myndum inn í myndaalbúmið hérna á eftir

Posted by mundi at 11:24 FH | Comments (5)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur5 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
chez An. Gonord
7 rue Ernest Calvat
38000 Grenoble
FRANCE

Heimasími:
0033-(0)4 7642 6706
Mundi gsm
0033-(0)6 3273 2816
Svanhildur gsm
0033-(0)6 6654 7023
Fólk
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni