« janúar 2004 | Heim | mars 2004 » febrúar 28, 2004
með allt á hreinu...
við vorum að koma úr mat hjá betu og george. það klikkaði ekki frekar en vanalega, rauðvínssoðið naut er gæðafæða, ávaxtakaka með ís, og kaffi og koníak á eftir, - ásamt því að MEÐ ALLT Á HREINU var skellt í tækið. þetta kvöld var temmilega væld, en snyrtimennskan þó í fyrirrúmi. mikil gargandi snilld þetta allt er febrúar 27, 2004
jakkalakkar og pappírspésar
í morgun hringdum við í tilvonandi atvinnuveitenda, þeas ekki leiguskrifstofuna heldur þann sem mig mun leigja, af þeim. eins og fram kom í síðustu færslu þá vantaði einhverja pappíra frá þeim uppá það að ég gæti haldið áfram í þessu kerfisferli, hjá leiguskrifstofunni. konan sem við töluðum við þar, tjáði okkur að það gæti orðið eitthvert vandamál að redda þessum pappírum, - af hverju vitum við ekki. en það ætlar hún að skoða á þriðjudaginn, þannig að það er allavega orðið ljóst að ég byrja ekki að vinna þá eins og útlit var fyrir í gærmorgun - áður en allt varð ofsalega flókið.
febrúar 26, 2004
uppfærsla 2.0 - never ending story
þetta fer nú að verða mesti bloggdagur þessarar síðu enda ýmislegt sem hægt er að segja frá búið að gerast síðan í morgun.
uppfærsla á færslu
já þá er nú enn meira komið í ljós með þetta allt, og þeir sem ekki vita hvað ég meina ættu að byrja að lesa það sem er hérna aðeins neðar.
um daginn og veginn
já þið fáið fréttirnar frá frans hér þegar þær gerast. ég var að koma úr atvinnuviðtalinu og það gekk bara vel. þetta er stórt fyrirtæki, með skrifstofufólki og stóru húsnæði. ég vona að það viti þá á betra skipulag en það sem ég upplifði síðast en það verður tíminn náttúrulega að leiða í ljós. forstjórinn var vinalegur við mig og ákvað að gefa mér stuttan reynslusamning, sagði að það væri best fyrir okkur báða, þá gæti hann hætt við ef honum litist ekki á og það sama gilti fyrir mig. ég hef nú alltaf litið á svona varnagla sem afsökun fyrirtækjarekenda fyrir því að borga lægri laun í smá tíma, en eftir síðustu reynslu held ég bara svei mér þá að þetta sé ágætt, fyrst það virkar svona á báða vegu.
...en nú að smá þjóðfélaxfréttum héðan: ég get nú ekki neitað því að sumt hérna er bara til þess að hlæja að því. mótmælagleði frakka er löngu heimskunn og nú held ég bara svei mér þá að þeir hafi toppað.
en magnað er að heyra hverju bændurnir kenna um minnkandi neyslu í heimalandinu, jú - nefnilega því að þeir segja að þetta sé lögreglunni að kenna, hún sé búin að herða of mikið eftirlit með ölvunarakstri!!!!! hvað er að???? :) febrúar 25, 2004
viðtalið þarna á anpe er strax búið að skila árangri. það er búið að hringja og ég á að mæta í viðtal í bítið á morgun hjá einhverju fyrirtæki. nú er bara að bíða og sjá hvernig það fer. atvinnuleit á ný
þá er atvinnuleit farin af stað á ný hjá mér. fórum áðan og skráðum mig hjá afleysingaskrifstofum fyrir iðnaðarmenn, það á víst að vera gott ef að maður fær vinnu þar, betri laun og fleira, en einhvernveginn fannst mér það ekki vera mjög sannfærandi svona við fyrstu kynni, altsvo að þeir gætu útvegað vinnu.
febrúar 24, 2004
mardi gras
sprengidagur í dag. hér heitir sá dagur "feitur þriðjudagur" eða mardi gras. hefðin hér er víst ekki sú að éta saltað, feitt, íslenskt lambaket með kraftmikilli baunasúpu, heldur sú að borða Crépes sem eru pönnukökur fylltar með einhverju því sem hugurinn girnist, t.d. osti og skinku.
febrúar 23, 2004
lásasmiðurinn
borvélin sem ég fékk í afmælisgjöf kom að góðum notum áðan. ég fór og keypti bor fyrir járn og tókst að bora stýrislásinn út svo nú er volfgang kominn í nothæft ástand að nýju.
Alvaran tekin við eftir frábæra fríviku
febrúar 21, 2004
laugardagur til lukku
það er 14 stiga hiti hérna í dag samkvæmt okkar óopinbera mæli. gestirnir okkar fóru í bæinn að ganga frá viðskiptum og við ætlum að hitta þau þar eftir smá stund.
já - það er ekkert víst að ég bloggi á morgun!!! :) febrúar 20, 2004
verslanir og afmæli í gær
í gærkveldi héldum við upp á þrítugsafmæli mývatnströllsins, eftir langa gönguferð um verslanir bæjarins. við borðuðum saman önd sem var vel heppnuð í meira lagi. algott kvöld.
febrúar 18, 2004
gaman og nóg að gera
febrúar 17, 2004
Fúlt að vera veikur
Hildur, Halli, Bjössi og Sísí komu öll hingað í gær og það var alveg æðislega gaman að hitta þau. Við höfðum það mjög fínt hérna í gærkvöldi, borðuðum mexíkanskan mat og drukkum sangríu. Núna eru þau öll á skíðum, veðrið er eins og best verður kosið, glampandi sól og logn. En ég hangi heima því þessi flensa ætlar eitthvað að vera erfið við mig. Ég hakka í mig meðul úr apótekinu, bæði náttúrulækninga og viðurkennd vestræn lyf, en eitthvað gengur batinn hægt. Er satt að segja orðin hundleið á þessu. En ég ætla nú ekki að vera að pirra ykkur mikið á þessu, pirra mig bara við aumingja Munda. Vona bara að ég verði orðin hress á morgun svo að ég geti gert eitthvað skemmtilegt með krökkunum. febrúar 16, 2004
stattu klár á stöðinni...
þá er allt að bresta á. ég er að fara eftir nokkrar mínútur á lestarstöðina að taka á móti fyrra holli gesta í dag. þar með byrjar skemmtileg vika hérna hjá okkur sem við höfum beðið eftir.
febrúar 15, 2004
helgin að fjara út - en ný vika að byrja
já þá er þessi helgi senn á enda eins og þær sem á undan komu. uppgjör helgarinnar er bæði gott og slæmt.
framhald í næsta hefti... febrúar 13, 2004
enn og aftur um mastersnám
Jæja, þá virðist loksins sem framtíðin sé eitthvað farin að skýrast. Ég hitti kennarann sem sér um mastersnámið í morgun og hún var töluvert jákvæðari en seinast þegar ég talaði við hana. Ég þarf bara að standast þessa tvo aukakúrsa sem hún var búin að segja mér að taka, sem og aðra kúrsa sem ég er í, og þá ætti þetta allt að ganga upp. Ég þarf bara að mæta með einkunnaspjaldið mitt til hennar í júní og útbúa umsókn, en sem sagt, ef ég næ öllum prófunum þá virðist sem þetta sé allt klappað og klárt. En það verður sem sagt nóg að gera í vetur, 15 einingar + BA-ritgerð. Svo það er eins gott að fara að taka sig á, fara að taka þetta föstum tökum og læra alla daga frá morgni til kvölds. En alvaran má samt aðeins bíða, það á ekki mikið að sitja yfir bókunum í næstu viku. Nú þarf Mundi bara að finna vinnu þar sem ekki er kúkað á gólfið og þá stefnir allt í að við verðum hér í Grenoble tvö ár í viðbót. gestagangur framundan
nóg að gera í dag. svanhildur þarf að fara að tala við einn kennarann núna klukkan 9, varðandi mastersnámið, og ég ætla að nota tækifærið og fara með henni niðrá Campus og þvo þvotta, það safnast alltaf saman í óhreinatauinu - merkilegt. ótrúlega skemmtileg afþreying að sitja þar og horfa á löður, næstum eins gaman og að horfa á málningu þorna !!! :)
febrúar 11, 2004
kvefið
það er hægur batinn. ég er enn með þetta skrambans kvef og hálsbólgu. þjóðverjarnir sambýlingar okkar hafa nú tekið það mál föstum tökum og fært mér ýmsan varning sem á að styggja þennan hroða burt. allskonar mixtúrur og jurtaseiði auk úðalyfja og pillna. sjálfur tel ég að tíminn sé besta lyfið og það sé best að halda ró sinni og bíða þetta af sér.
febrúar 10, 2004
stórammli
vélvirkinn, snillingurinn og mývetningurinn Björn Böðvarsson stórvinur minn er þrítugur í dag. við viljum óska honum alls hins besta í að minnsta kosti 30 ár í viðbót. til hamingju með daginn Bjössi febrúar 09, 2004
Til hamingju með afmælið Keddi
ég vakna og allt er breytt!
mér tókst auðvitað að ná mér í pestina um helgina. var nú reyndar farinn að fá í hálsinn á föstudaginn, eða var ég kannski bara kominn með upp í háls?
febrúar 06, 2004
....ég get ekki neitað því að ...
í dag tók steininn úr - ég get ekki neitað því að að vinnubrögðin hjá fyrirtækinu sem ég vinn hjá eru svipuð þeim sem tíðkast við málun íslenskra togara
master
ég var að tala við konuna sem er yfir masternum hérna úti og hún gat því miður ekki gefið mér nein endanleg svör en ég er ekkert allt of bjartsýn á að þeir taki mig inn. Hún sagði mér samt að skrá mig í tvo kúrsa sem ég byrja í í næstu viku. Vandamálið er að ég er í rauninni bara á öðru ári í frönsku af því ég tók dönsku sem aukafag eitt ár. Það gæti því verið að þau myndu krefjast þess að ég tæki eitt ár í viðbót áður en ég get tekið masterinn og ég veit ekki alveg hvort ég er tilbúin til þess þar sem ég get byrjað í samskonar mastersnámi í háskólanum heima næsta haust. En þetta á allt eftir að koma betur í ljós og svo þurfum við Mundi líka að ræða þetta því þetta veltur líka svolítið á því hvað hann langar að gera, hvort hann vill vera lengur hér eða fara heim. Framtíðin er sem sagt enn óráðin. febrúar 05, 2004
master
Ég var að koma heim frá því að tala við konuna sem er yfir masternum sem mig langar til að taka. Hún sagði að ég þyrfti sennilega að taka nokkur fög til viðbótar við það sem ég er að taka núna sem eru sérstakur grunnur fyrir master í FLE (francais langue étrangère = franska sem erlent tungumál) svo að eins og staðan er í dag lítur út fyrir að það verði brjálaðp að gera hjá mér þessa önn, auk þess sem ég er þá b úin að missa af 3 fyrstu vikunum í þessum kúrsum sem ég þarf að taka aukalega. Vonandi verður það bara ekki mikið. febrúar 04, 2004
sól og sumar
Ég var að koma inn úr sólinni. Er búin að sitja úti á kaffihúsi og sötra bjór með vinum okkar Munda í glampandi sól og 18 stiga hita. Veðrið undanfarna daga er búið að vera ótrúlegt. Eftir þriggja daga stanslausa snjókomu í seinustu viku, hefur verið heiðskírt og sól frá því á föstudaginn og hitinn hefur verið á bilinu 15 til 20 gráður. Það er því komin vorstemmning hér í bæ. Matarboðið í gærkvöldi heppnaðist alveg rosalega vel og var ofsalega gaman. Við borðuðum hérna saman 9 manns og tel ég það mjög gott í 15fm herbergi. Svo skrapp ég upp í skóla í dag til að reyna að tala við konuna sem er yfir master-deildinni í kennslufræði frönsku sem erlends tungumáls til að reyna að fá að vita hvort ég geti tekið master hér. En hún var að sjálfsögðu ekki við svo ég þarf að fara aftur á morgun. Nú er Mundi kominn heim svo ég held við förum að drífa okkur út í sólina. febrúar 03, 2004
þriðjudagur
já þreyttur í dag. það eru erfiðir þessir dagar þar sem unnið er í 8 tímana án nokkurrar pásu eða matartíma. mér var lofað því í dag að þessi langþráði samningur yrði gerður annaðkvöld. nú er bara að bíða og sjá hverjar efndirnar verða. annars verður slatti af fólki hérna í mat í kvöld. hann roger vinur okkar spanjóli bað okkur í gær um að fá að bjóða fólki hingað í tilefni af afmælinu sínu sem er í dag. herbergið á görðunum þar sem hann er núna býður ekki upp á að þangað komi fleiri en 2 í einu, auk þess sem að flestir af þeim sem koma búa hér. ég á von á því að við verðum 9 stk. best að fara að reyna að gera gagn. febrúar 01, 2004
viðbót
það var óvænt bankað á hurðina hérna hjá okkur fyrir stundu. það var atvinnuveitandi minn francois. það verður vinna á morgun. sem er mjög gott, allt að komast í eðlilegt horf þá vonandi. |
![]() Hafðu samband
mundi74 @ wanadoo.fr
svanhildur5 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur chez An. Gonord 7 rue Ernest Calvat 38000 Grenoble FRANCE Mundi gsm 0033-(0)6 6316 3546 Svanhildur gsm 0033-(0)6 6654 7023 Fólk
daia
baddý hanna torfi og eva jón og guðrún ziggy beta georges heiða birta bjagga frænka hilda torfa bjarni og bryndís Nýlegar færslur
með allt á hreinu...
jakkalakkar og pappírspésar uppfærsla 2.0 - never ending story uppfærsla á færslu um daginn og veginn atvinnuleit á ný mardi gras lásasmiðurinn Alvaran tekin við eftir frábæra fríviku Gamalt efni
ágúst 2004
júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|