« desember 2003 | Heim | febrúar 2004 » janúar 31, 2004
allt að gerast
fallegur dagur í dag hérna í grenoble. manni finnst bara vera vor í lofti, léttskýjað og bjart og auk þess smá hlý gola, en það verður að teljast sjaldgæft að kári láti til sín taka hér í bæ. hinn óopinberi hitamælir okkar sýnir 16 stiga hita. gærdagurinn endaði bara alveg nákvæmlega jafn vel og hann byrjaði. eftir skíðin elduðu eliane og normand quebec-ska ketsúpu sem var afbragðsgóð. til þeirra komu margir góðir gestir að snæða því þau eru búin að kynnast mörgu fólki hérna, þannig að við vorum 14 sem borðuðum saman og vorum af 7 þjóðernum. eftir matinn urðum við að forða okkur út úr húsinu því nornin sem gift er honum gonna gisti hérna í nótt og það er nú betra að hnerra ekki þá. - svo kvöldið endaði á smá pöbbarölti, og enn bættist í hópinn. já, - gærdagurinn var einn af þessum fullkomnu dögum. í dag vorum við svo að kveðja þetta góða fólk, þau eru að enda þetta ævintýri sitt, með vikuferð til Freiburg og Parísar. við eigum eftir að sakna þeirra mikið, og maður vonar að leiðir okkar muni liggja saman á ný. ...en auðvitað er ljós í myrkrinu, það er raclette átveisla hjá betu og george í kvöld, held að bókaormarnir frá Vizille ætli að mæta á svæðið líka svo þessi skemmtivika, sem er búin að vera líkari fríi en atvinnuleysi, klárast þá með stæl. janúar 30, 2004
á skíðum skemmt'ég mér trallara .....
við þreytumst ekkert á því að fara á skíði hérna. O-NEI í dag var ÓTRÚLEGT skíðafæri, og glampandi sól. við fórum með quebecbúunum af stað í morgun, á "the icelandmobile" eins og volfgang er kallaður hér, og skíðuðum grimmt fram að lokun svæðisins. ég gerðist svo djarfur að fara með honum, eftir fortölur, með hæstu lyftu, spenna af mér skíðin og ganga í hálftíma upp á topp. svo skelltum við okkur niður, í púðursnjó upp að hnjám. ég verð nú að viðurkenna að hjartað sló ansi hratt þarna uppi á fjallinu en þetta blessaðist allt og var alveg þvílíkt gaman, en að sama skapi erfitt, ég er ekki vanur að skíða svona utan brauta... fleiri myndir frá deginum eru komnar inn í álbúmið, fyrir þá sem ekki eru búnir að fá nóg af skíðamyndum héðan. heiðskírt = skíði
eftir alla snjókomuna undanfarið er nú orðið heiðskírt. ekki ský á himni. ég ætla því ekki að eyða meiri tíma hér - er farinn á skíði. janúar 29, 2004
myndir
eins og stundum áður þá birti ég hérna mynd sem tekin er út um gluggann okkar, því ég tel að þannig sé best að sýna fólki sem ekki þekkir staðhætti breytingar á ástandi, með því að vera alltaf með myndir af því sama en við ýmsar aðstæður. fjallið okkar er semsagt orðið alhvítt núna. einnig bendi ég velunnurum okkar á, að ég var að setja inn nýjar myndir frá ferð gærdaxins inn í myndaalbúmið okkar. þetta er á veðurstofu íslands, - veðurspá
héðan er lítið að frétta í dag. enn er snjókoma. ég held ég hafi bara ekki séð eins stórar snjóflygsur eins og komu af himnum ofan hér í gær. það er fallegt í logninu. það nær samt lítið að festa hérna í bænum en það gerir það hins vegar um leið og aðeins ofar er farið. grenoble stendur nefnilega ekki svo hátt eða 220m.y.s. ég var að horfa á sjónvarpsfréttirnar áðan og þær fjölluðu að mestu um algert kaos í samgöngum vegna veðursins. ekki var nú á það bætandi. já. - það er á fleiri stöðum en í reykjavík sem allt fer á hvolf í samfélaginu þegar hvíta röndin á gúmmískónum hverfur í snjó. janúar 28, 2004
Chartreuse og snjór
...og enn snjóar snjókoma
úff mar - hér kyngir bara niður ennþá! það er búið að snjóa helling síðan í gær. best að fara að kaupa sér þoturass... ps. ef að fanney frænka er að lesa þetta þá fær hún ammliskveðjur héðan frá okkur janúar 27, 2004
snjókoma
Það snjóar hér úti núna. Ég er nokkuð viss um að þetta er í fyrsta sinn í vetur sem snjóar hér niðri í dalnum. Það hefur alltaf bv-bara snjóað í fjöllin en rignt hér. En það er nú bara gaman að fá smá snjó. Skólinn byrjaði aftur hjá mér í seinustu viku og það er bara fínt að vera byrjuð aftur. Ég er í færri fögum núna en fyrir jól (er í fjórum fögum núna en var í 7) af því ég ætlað að reyna að ljúka BA-ritgerðinni minni samhliða skólanum. Ég er búin að fá einkunnir úr þremur prófum og náði prófunum í þeim fögum. Einkunnirnar mínar eru þó töluvert lægr hér en heima en það er nú bara eðlilegt, þetta er töluvert erfiðara hér en heima. Okkur var boðið í partý í gærkvöldi (hér þarf ekkert endilega að vera helgi til að djamma) og þar sem Mundi þurfti ekki að mæta í vinnu í dag og ég þurfti ekki að mæta í skólann fyrr en eftir hádegi þá skelltum við okkur í partý og það var mjög gaman. Við erum svo að fara í bíó á eftir að sjá nýju grínmyndina með Bill Murray sem ég man ekki hvað heitir, en þykir víst ansi góð og fékk nokkur verðlaun á Golden Globe. Svo er búið að bjóða okkur í partý annað kvöld svo það er nóg að gera. janúar 26, 2004
DÖH......
ég talaði við francois áðan. það verður víst engin vinna þessa vikuna. ég er ekki að fatta alveg hvernig þetta virkar með vinnu hérna.... spurt og svarað
spurt: hvernig veiðir maður flugfisk? svar: nú, í loftnet ! ps. ég er að snappa á þessu loftnetsmáli..... vinna, það er eitthvað minna
jámm, þannig fór það þá að ég fór ekki í vinnuna í dag. francois hringdi í mig í morgun og það er einhver verkefnaskortur vegna rigningar. en ég á að tala við hann í kvöld og heyra hvort það verður vinna á morgun. í dag er ég því búinn að vera að horfa á heimildamynd um danska ökuþórinn tom cristiansen hérna í nýju græjunum. daninn á neðri hæðinni lánaði mér hana í gær. svo fer maður kannski að skoða þessi loftnetsmál eitthvað betur seinnipartinn. janúar 25, 2004
íslendingar, frakkar, danir og hérinn !!
þreyta gærdaxins var mikil. ég fór fyrr að sofa en dæmi hafa verið um. þannig að við ákváðum að elda umræddan héra í kvöld. þess er skemmst frá að segja að hann var ljúfmeti mikið eins og önnur villibráð. svo fengum við hingað góða gesti í dag. george kom að hjálpa okkur aðeins með að reyna að ná sjónvarpssendingum. gott að hafa innfædda sér til hjálpar, nú náum við þó einni stöð svona þokkalega skammlaust. eftir matinn kom svo daninn sem var að flytja hérna inn á neðri hæðina í heimsókn, hann var með 2 vini sína í heimsókn og þeir komu með honum og fengu hjá okkur hver sinn carlsberginn. ágætt fyrir okkur að rifja aðeins upp dönskuna. svo er bara mánudagur og ný vinnuvika á morgun. ég held að ég eigi að fara að mála á veitingastað hérna í miðbænum. góðar stundir janúar 24, 2004
komdu litla héraskinn - því ég er vinur þinn
úff - nú er búið að taka á því. vorum að koma heim af skíðum með george. frábært færi í dag en sólin lét ekki ljós sitt skína. engu að síður logn og ágætis veður. en það eru sem sagt MJÖG þreyttir fætur hérna í augablikinu. en nú á að fara að elda. keyptum fyrir lítið villibráð á föstudaginn. þannig að það verður villtur héri í kvöld. ósvikinn villtur héri. ...og geri aðrir betur janúar 23, 2004
verslunarleiðangur
í dag gekk flest allt upp eftir óvænta byrjun. við ákváðum að fara hérna niður á Gabriel Péri, sem er stór gata með fullt af "stórum" verslunum. byrjuðum þó á því að fara í france telecom og panta hraðari nettengingu. vorum svo heppin að það var einmitt eitthvert tilboð í gangi þannig að við gátum fjórfaldað hraðann okkar fyrir aðeins 4 evrur til viðbótar á mánuði. hún komst svo í gagnið núna seinnipartinn, okkur algerlega að óvörum. okkur var tjáð að þetta tæki 2 daga, þannig að við reiknuðum með viku. svo vorum við búin að frétta af verslun sem seldi notaðan varning. fórum þangað að leita okkur að litlu sjónvarpi. okkur fannst þau helst til dýr, 130 E fyrir notuð sjúskuð tæki. þannig að við héldum ferð okkar áfram og kíktum í stórmarkaðinn Géant, sem selur allt, svona nokkurskonar hagkaup. þar var einmitt útsala á raftækjum. þannig að við gengum þaðan út með nýtt 14" toshibasjónvarp og DVD spilara. greiddum 149 E fyrir sjónvarp með textavarpi og 49 E fyrir spilarann. held að það sé bara vel sloppið. þegar við komum heim, kom svo vinnuveitandi minn hingað til að borga mér út !! allt frekar magnað. vandamálið er hins vegar núna að loftnetsskilyrðin hérna eru mjög bagaleg. þannig að meðan að lausn er fundin á því máli verðum við að láta okkur nægja að horfa á DVD, skiptum sennilega mest við dvd-leigu betu og george til að byrja með. óvænt frí
...enginn fiskur í dag, - þið getið farið heim og slappað af.... skipulag frakka er efni í margar ritgerðir. í gær gleymdist að segja mér að ég ætti frí í dag. það er víst enginn að vinna, þar sem við kláruðum sennilega fullhratt verkið í Mairron. þannig að ég fékk mér expresso hjá manon í morgun og beið eftir hinum. loks kom francois sem sagði mér tíðindin. hann keyrði mig svo heim, því að í morgun tók ég strætó til manons. þannig að ég get notað daginn til að græja og gera ýmislegt sem ekki hefur unnist tími til undanfarið, stofna bankareikning og fleira. svo eru skíði með george á morgun - spáin er góð. janúar 22, 2004
hættulegt starf
þessi vinnuvika hjá mér er þá senn á enda, aðeins einn dagur eftir. við erum búnir að vera að vinna í bæ hérna 30km frá grenoble þessa vikuna. þar höfum við verið að mála stigagang og veggfóðra eins og hálfa íbúð. við höfum verið þrír þarna núna í vikunni. það er einum meira en kemst í sæti í renault sendibifreið, þannig að ég hef fengið þann vafasama heiður að sitja afturí. það finnst mér ákaflega traust, að sitja þar innan um málningardollur og ýmsan varning, á þriggja akgreina hraðbraut, í bíl hjá keðjureykjandi frönskum bílstjóra, sem talar meira með höndunum en munninum og þegar við mætum lögreglubílum þá er bara kallað "beygðu þig" !!! þetta er alveg eins og í teiknimyndasögu... já ég þarf ekki að fara í rússíbanann næst þegar ég fer í tívolí janúar 20, 2004
pungaveisla
í gær sótti okkur heim mikið af góðum gestum, - því spurst hafði út að við ættum súrsaða hrútspunga, af íslensku fjallalambi. hér var því saman kominn talsverður fjöldi fólks af hinum ýmsu þjóðernum til að bragða á þessu ágæta millifótakonfekti. svipbrigðin voru af ýmsum gerðum, og fólk mishugað við að smakka, en þó var aðeins einn sem þurfti að taka steinbítstaki til að koma þessu ofan í. hann lifði af. myndin er af parinu frá Quebec sem býr hérna á hæðinni með okkur og gott ef hann George er ekki þarna líka. janúar 19, 2004
dagbókin
í dag er ég búinn að heita mundi í 29 ár. það verður að teljast viðunandi árangur en ég mun þó reyna að bæta um betur.
janúar 18, 2004
Komin til Grenoble
Þá er ég komin aftur til Grenoble eftir langt en mjög fínt ferðalag. Allt gekk mjög vel og ég var komin heim um klukkan fimm. Það er nú bara voða fínt að vera komin hingað aftur þótt ég hafi átt æðislega viku heima og átt svolítið erfitt með mig þegar ég var að kveðja fjölskylduna á flugvellinum í gær. En ég var nú líka farin að sakna Munda. Hann er að poppa handa okkur núna, ég fékk popp-vél í afmælisgjöf frá tengdó (Mundi valdi hana vitandi hvað ég er sjúk í popp). Ég verð að fara að smakka þetta. Svo ætlum við út að borða á eftir því ég átti afmæli í gær. Á morgun byrjar svo alvaran og annað kvöld er hrútspungaveisla hjá okkur. Mmmmm eða oojjjj janúar 17, 2004
afmæli
hún svanhildur mín á afmæli í dag og vil ég óska henni til hamingju með það. hún eyðir deginum á ferðalagi. annars er allt gott að frétta héðan, búið að vera ágætisdagur. ég fór niður á campus með þvott í dag, snéri nú bara við því þar voru allar vélar í gangi og fólk beið í löngum bunum eftir að það losnuðu vélar. þannig að ég ákvað að þetta væri verkefni morgundaxins. fór og verslaði í matinn í staðinn. en nú er ég að fara í mat til betu og george.... janúar 16, 2004
upplýsingar um ísland á kaffihúsi
það er sama hvar maður er í heiminum, það kemur alltaf helgi. og hún er alltaf góð. ekki síst ef að maður fær útborgað eins og ég fékk í dag, í fyrsta skipti í langan tíma. en annað: í gær mætti ég til Manons og drakk morgunkaffið mitt með lýðnum. Það er mér farið að þykja svolítið magnað, að hittast þarna og drekka expresso sem varla hnígur úr bollanum. þætti það eflaust enn betra ef ég ætti auðveldara með að tala, og gæti blandað mér meira í samræðurnar sem eru oft mjög fjörugar. einn af fastagestunum þar, maður svona rúmlega fertugur komst að því að ég væri frá íslandi. ég hafði eitthvað talað þarna og var spurður hvort ég væri hollenskur, "nei, ég er frá Íslandi" sagði ég þá varð hann eitt sólskinsbros og sagðist hafa komið þangað 1996. Sagði stundarhátt "Reykjavík" , með þessum stórskemmtilega franska hreim. En ég ætla nú ekki að fara að gera grín að því!! þá fóru kallarnir í kring að spurja hann hvar og hvernig þetta væri alltsaman. ég hélt alltaf að það væru bara heimskir kanar sem vissu ekki hvar nafli alheimsins væri, en er búinn að marguppgötva að svo er víst ekki. ég skildi nú megnið af því sem fram fór, gat nú því miður lítið blandað mér í umræðuna en staðfesti eða mótmælti á mis. kinkaði kolli eða hristi hausinn. sagði nokkur vel valin orð með norðlenskum hreim. en myndin sem þessi maður dró upp af íslandi var svolítið önnur en sú sem ég þekki. hann tjáði viðmælendum sínum að þetta land væri rétt við norðurpólinn og þarna væri alveg ofboðslega kalt, stundum 50 stiga frost. til þess að sigrast á frostinu þá væru allir íslendingar með vodkaflösku í innanávasanum til að ylja sér á. sýndi svo með látbragði hvernig farið væri að því ! en einmitt þess vegna væri mjög varasamt að keyra þarna, því íslendingar væru meira og minna fullir við stýrið. ekki þótti mér þetta nú vera í fullkomnu samræmi við sannleikann og reyndi að leiðrétta manninn svo mikið sem orðaforði minn leyfði. - hann bætti svo við að þetta land væri ákaflega fámennt og þarna væri ofboðslega mikið af heitu vatni neðanjarðar, sem gerði þennan kalda stað byggilegri. einnig að þarna væri ein fallegasta náttúra heimsins. ...mér þótti þetta nú heldur skárra, kinkaði kolli, kláraði kaffið mitt og fór að vinna Gaman á Íslandi
Það hefur verið nóg að gera hjá mér hérna á klakanum og enginn tími til að blogga. Ég kom til landsins seint á föstudagskvöld og það var alveg æðislegt að hitta fjölskylduna og við sátum og spjölluðum langt fram á nótt. Svo var farið til Ömmu í morgunkaffi á laugardaginn eins og venja er á laugardagsmorgun og þar hitti ég alla famelíuna (pabba megin) og það var voða gaman. Svo var farið heim að undirbúa partý og svo mættu vinkonurnar um kvöldið. Það var rosa gaman eins og við var að búast. Svo var farið í bæinn en eins og venjulega var miklu skemmtilegra í partýinu en í bænum, en gaman að kíkja aðeins út á lífið með vinkonunum. Það var svo smá þynnka á sunnudeginum en ég var orðin nógu hress til að fara með fjölskyldunni í 4-bíó. Sáum Kaldaljós og mæli ég með henni fyrir alla sem staddir eru á Íslandi. Þetta er bara fínasta mynd og rosalega vel leikin, sérstaklega eru krakkarnir góðir. Við mamma skruppum avo aðeins á útsölur á mánudeginum og náðum að eyða smá peningum, eða hún, því ég má ekki borga neitt, fer heim (eða út) hlaðin gjöfum. Hildur bauð mér svo í mat á mánudagskvöldið og við áttum alveg æðislegt kvöld saman. Það er svo gaman að hitta vinkonurnar aftur og blaðra og blaðra. Á þriðjudaginn hitti ég svo Eddu og Sólveigu og litla kútinn hennar sem ég var aldrei búin að sjá. Þetta fer nú bara að verða endurtekning hjá mér, en það var líka alveg æðislega gaman að hitta þær. Ég fór svo að hitta Ásdísi, sem er lektor yfir frönskudeildinni uppi í Háskóla, til að ræða við hana um möguleika á að taka master úti í Grenoble. Henni leist bara vel á það svo það er bara nokkuð líklegt að við verðum eitthvað áfram þarna úti. Svo tókst okkur mömmu að eyða smá meiri peningum á útsölum áður en ég fór í frænkuboð til Ömmu. Hún bauð okkur frænkunum (mér, Hörpu, Hlöllu, Söru og Ástrósu) í læri. Mmmm, það var gott og gaman. Í gærmorgun fór ég heim til Gerards til að ræða BA-ritgerðina mína. Hann samþykkti að vera minn leiðbeinandi og leist vel á efnið sem ég ætla að skrifa um. Ég ætla að skrifa um breytingarnar sem á að gera á háskólamenntun í Frakklandi, en það eru einmitt þessar breytingar sem valdið hafa miklum mótmælum í vetur og verkföllum hjá stúdentum. Svo fór ég á kaffihús með Ingibjörgu, sem var eins og allt sem ég er búin að gera hérna heima, alveg æðislega gaman. Það er sem sagt búið að vera nóg að gera og ofsalega gaman að hitta fjölskylduna og vinkonurnar. Í kvöld er svo Hrefna og fjölskylda að koma í mat og svo fer ég út á morgun. Þótt það sé búið að vera æðislegt að vera aðeins heima þá er ég samt alveg tilbúin til að fara út aftur því það er líka voða gott að vera þar og það verður gott að hitta Munda aftur, þar er líka hlýrra (úti en ekki inni). Þá vitið þið hvað ég er búin að vera að gera hér heima og við heyrumst bara næst frá Grenoble. janúar 15, 2004
öðruvísi
þau lönd sem ég er farinn að þekkja aðeins eru þrjú. ísland, danmörk og frakkland. þar er frakkland ólíkast !! hér er mjög margt öðruvísi - og allt öðruvísi en kálfurinn í sveitinni heima. sumt gera frakkar vel og annað illa, eins og gerist og gengur með aðrar þjóðir. eitt af því sem þeir gera afbragðsvel er kaffi. þetta er nú mikið hól fyrir þá, að fá, frá manni eins og mér, sem kemur frá heimabæ Bragakaffisins og hef drukkið ómælt magn af því í gegn um tíðina - og fundið þessa ilmandi brennslulykt þegar ég hef átt leið um oddeyrina. kaffið hérna er allsstaðar gott. það virðist ekki vera til sú sóðabúlla að hún selji þér ekki gott kaffi. gjarnan eru þessi kaffihús lítil og skítug, skúringafatan á miðju gólfi með skrúbbnum í, slatti af eldri karlmönnum þar inni, spjallandi saman og berandi saman lottóseðlana sína, því hérna er lottó menning. dæmi um slíkan stað er Chez Manon, barinn þar sem við í vinnunni, hittumst á á morgnana. þar gefur að líta alla flóruna. iðnaðarmenn, jakkalakka, öryrkja, ellilífeyrisþega ásamt öllu hinu fólkinu. blaðrandi saman með miklu handapati, heilsandi öllum sem aldavinum þegar þeir koma inn. ég borðaði líka þar í hádeginu í fyrradag. þar sem ég sat þá sá ég inn í eldhúsið þar sem kokkurinn, snyrtilegur til fara stóð og hrærði í pottum með eina filterslausa í munnvikinu meðan að vinur hans í fullum herklæðum iðnaðarmanns, ekki nýþvegnum, stóð og talaði við hann. ekki kannski beint lystaukandi sjón, en maturinn var góður og ódýr. það er svo margt hérna öðruvísi.... janúar 14, 2004
mistral
í dag var ég að mála einn hérna í mistral hverfinu, sem er svona álíka hverfi og vollsmose hverfið í odense, ekkert nema blokkir, fullar af innflytjendum. ég var að mála heima hjá rosknum manni sem var á eftirlaunum. þegar francois var farinn sleit sá gamli til sín pensil og málaði með mér af miklum móð. kom semsagt í ljós að hann var fyrrum málari. öllu vanur. þannig að það gekk mun hraðar en efni stóðu til í dag, francois ætlaði að ná í mig aftur kl 3 en ég var búinn með vinnuna klukkan eitt, þökk þeim gamla. þetta varð til þess að ég fékk mér bara launaðan göngutúr þarna um hverfið. best að fara að fá sér brauð. janúar 13, 2004
ég fékk flís
já - það er fjölbreytt málarastarfið hérna í frans. í dag var ég að flísaleggja af miklum móð. það er nú bara svoldið gaman, og gekk mjög vel svona í fyrsta skiptið. mér skildist á vinnufélaga mínum að þeir gerðu því sem næst allt sem viðkemur viðhaldi og endurbótum í þessu fyrirtæki. og ég fékk matartíma í dag, -það munaði þá ekkert um það þegar það byrjaði. 2 klukkutímar takk. lenti svo í umferðarteppu á leiðinni heim, það sem tók mig 12 mínútur að aka í morgun tók klukkutíma til baka. þannig að ég var ekki kominn heim fyrr en að ganga sjö. ágætur dagur að baki ef umferðarteppan er undanskilin. janúar 12, 2004
hundar og kettir
hér er búið að rigna hundum og köttum, eins og sagt er, í dag. samt vorum við francois að vinna úti, fundum bara hliðina þar sem ekki rigndi. talið barst aðeins að framhaldi vinnunar og hann talaði um það að ég þyrfti að fara að skrifa undir samning við firmað og semja um laun. það er víst hinn eigandinn, gerard sem sér um pappírana. ég hef nú ekki enn unnið með honum en hitti hann samt í morgun. þannig að þetta virðist allt vera að fara í rétta átt, svona samningur er mér nauðsynlegur til að fá landvistarleyfið. annars þyrfti ég að fara og skreppa með þvott, nenni bara varla aftur út í rigninguna. janúar 11, 2004
vikulok
ég er aldeilis búinn að eiga fínan dag í dag. ég og george fórum saman á kaffihús og spjölluðum þar dágóða stund. fórum svo hingað heim og fengum okkur meira kaffi og snarl. svo buðu hann og beta mér í þessa líka fínu máltíð á rue renauldon. ekki slorið í því. það var eiginlega verst að þegar ég borðaði svona góðan heimagerðan mat, sem kom ekki úr dós, settist svo í sófa fyrir framan sjónvarpið, með þeim - þá komst ég að því að ég sakna þess svolítið að geta ekki hent mér svona niður fyrir framan kassann öðru hverju. það var alveg dæmalaust magnað. hversdaxlegur hlutur er semsagt orðinn raritet. ætli maður læri ekki að meta margt á þennan hátt ?!? svo er ég nú bara að fara í háttinn, enda óneitanlega þreyttur eftir að hafa gengið um allann bæ í nótt með roger.... ;) sjalla-lalla-la ....ævintýri enn gerast
kvöldið í kvöld var mjög fyndið. við sátum hérna saman, ég roger, daniel og nýja stelpan á hæðinni, hin enska pippa. skrítið nafn. svo um klukkan hálfeitt, þegar hin voru farin í svefn, ákváðum ég ég roger að fara í bæinn á diskótek. málið var bara að hvorugur okkar vissi hvar það var að finna. þannig að við spurðum fólk sem varð á vegi okkar hvar slíkt væri. fengum bendingar í allar áttir og lítið af svörum sem hægt var að stóla á. svo hittum við loksins einhvern gæja sem var líka að leita að diskóteki, af því að hann hafði verið á einhverjum bar, og einhver gella hafði beðið hann um að hitta sig á diskóteki. hann var að leita að því og við að einhverju sambærilegu líka. á endanum fundum við þrír eitthvert diskótek. ætluðum að fara inn, en föttuðum í andyrinu að þarna voru ekkert nema leðurklæddir sveittir karlmenn. við snérum snarlega við og sprungum úr hlátri, það mátti semsagt litlu muna að við borguðum okkur inn á einhverja hommabúllu. á endanum bauðst þessi nýi vinur okkar rogers til að aka okkur heim, en hann reynsist vera allsgáður og akandi króati, á okkar aldri sem talaði jöfnum höndum ensku, frönsku og móðurmálið. ég sagði honum nokkur vel valin orð sem haris, hinn bosníski vinur minn kenndi mér, - hann hafði gaman af, - en bað mig lengstra orða að byrja nú ekki samtal við júgóslava með þessu !!! svo ók hann okkur heim, - og hér er ég - búinn að eiga virkilega skemmtilegt kvöld með óvæntum ævintýrum. janúar 10, 2004
hlýnandi
í dag hefur heldur betur hlýnað frá því sem verið hefur. og fínasta veður. ég hef notað daginn í það að skreppa hérna aðeins í hinn endann á bænum í stórmarkað og svo tók ég til og skúraði klefann og notaði tækifærið og opnaði út, svona til að skipta um loft. það er eitthvað sem hefur ekki verið æskilegt undanfarna viku. allt gott að frétta héðan sem sagt janúar 09, 2004
svanhildur fór til íslands í dag
það var næstum sami háttur á vinnunni í dag. það var lítið stoppað, fengum þó hálftímapásu vegna rigningarskúrs og francois bauð okkur á bar í nágrenninu í kaffi. ég komst hins vegar að því í dag hann er annar eigenda fyrirtækisins. komst líka að því að hvorki hann eða habib vissu hvar ísland var á hnettinum. útskýrði það í snatri fyrir þeim. svo spurði ég francois hvort ég ætti að koma á mánudaginn og halda áfram. svarið sem ég fékk var "si tu veux" (gróflega þýtt; ef þú vilt) sem ég sagðist og vilja. þannig að ég held ég sé ráðinn, en veit það samt ekki. þetta er allt frekar skrítið, allavega í meira lagi óformlegt. svo þegar ég kom heim hringdi síminn. það var einhver Thomas, sem vildi ólmur fá mig í vinnu. sagðist reka gluggaverksmiðju, ef ég skildi hann rétt.
janúar 08, 2004
svanhildur er að pakka
svanhildur er að pakka. hún leggur af stað til lyon um hádegi á morgun. ég verð nú ekki búinn að vinna þá þannig að ég verð bara að kveðja hana í fyrramálið. vinnudagurinn hjá frökkunum er frekar skrítinn finnst mér við fyrstu kynni. ég er nú ekki sú týpa sem hef lyst á morgunmat þegar ég er nývaknaður. þannig að ég borða minn morgunmat vanalega í fyrsta kaffitíma. hér er þetta einhvernveginn á annan veg. gæti reyndar trúað að það sé út af því að við erum að mála úti og dagurinn er stuttur, - fyrst þarf að þiðna og svo verður að hætta tímanlega svo ekki döggvist og frjósi. en allavega mætti ég klukkan átta á barnum og fékk mér expresso með köllunum svo var farið í sveitina og byrjað að vinna klukkan níu. síðan var ekki stoppað, ég er að meina ekki einu sinni í 5 mínútur fyrr en klukkan fjögur í dag. minni menn en mig var nú farið að svengja... :) ég sem hélt að frakkar væru sósíalískir mótmælaseggir, sem andmæltu öllu sem heitir brot á vinnulöggjöf og svo videre...
janúar 07, 2004
búin í prófum og á heimleið
Þá er ég búin í prófunum og held mér hafi bara gengið þokkalega. Er hinsvegar alveg úrvinda; 3 próf á tveimur dögum er bara allt of mikið og þýðir það að ég hef sofið frekar lítið síðastliðnar tvær nætur, verð alltaf að vera að lesa þangað til ég er farin að dotta ofan í bækurnar kvöldið fyrir próf og verð svo að vakna snemma til að renna yfir þetta áður en ég fer í prófið. En það er bara rosa gott að þetta er búið og nú er ég komin í frí og er að koma heim á föstudagskvöldið. Hlakka til að sjá ykkur! allt um ekkert...
það gekk bara vel í vinnunni í dag. enda fór ég bæði í prjónabrók og ullarsokkum. enn var málað elliheimili. ég var mest að vinna með áðurnefndum Habib í dag sem reynist vera frá túnis. ég spjallaði heilmikið við hann, þetta er allt að koma!! ég tala reyndar alveg hryllilega vitlaust held ég, en þeir virðast skilja mig og það er nú málið allavega til að byrja með. enn veit ég ekkert um hvort ég fæ einhverja framlengingu á þessari vinnu, prufan átti að vera 2-3 dagar, en er í raun bara sáttur meðan mér er ekki sagt að fara heim. annars allt eins og áður, við það sama. svanhildur er í tveim prófum í dag og er ekki komin heim. hún var líka í prófi í gær þannig að það er sko búið að vera nóg að gera hjá henni síðan við komum frá danmörku. en hún klárar í dag. heiðskírt í dag, en kalt, nema rétt í sólargeislunum. janúar 06, 2004
vinnudagur eitt - kómísk reynsla
fyrsti vinnudagurinn afstaðinn og ég er enn á lífi. ekki leist mér nú á það til að byrja með í morgun. það var náð í mig í morgun um hálf átta eins og um var rætt, í þvílíkum kulda. hér var svo kalt í nótt, að ég fór niður úr kojunni til að kveikja á bakaraofninum til að fá yl !! maðurinn sem ók bílnum bauð mér góðan dag en síðan ekki meir. ég veit ekki enn hvað hann heitir. svo var ekið af stað, á einhverjum þeim liðónýtasta peugeot sem sögur fara af. eftir töluverðann spöl var stoppað. ég hélt í einfeldni minni að þar væri vinnustaðurinn en svo var nú ekki, það var bara verið að ná í mann. aftur var lagt af stað og stoppað. ég losaði beltið. nei, bíddu, sagði nafnlausi málarinn og stökk út. kom að nokkrum mínútum liðnum aftur með málningardollu og við héldum áfram. enn var stoppað, við vorum búnir að fara einhvern risahring hérna í bænum. enn losaði ég beltið. nei, bíddu, sagði hann á ný og ég beið ásamt hinum sem reyndist heita Habib. loks var ekið af stað, og blússað beinustu leið út úr bænum. eftir dálitla stund komum við í lítið þorp. þar upphófst líka hringakstur. ég skildi alls ekki hvað var að gerast, en að lokum spurði Habib sem enn hafði varla mælt, að hverju hann væri að leita, tóbaksbúð?? nei, sagði bílstjórinn ég er að leita að bar. ég apaði nú bara upp eftir honum "BAR"??!?! - já sagði hann, til að fá okkur kaffi. mér létti. en enginn fannst barinn í fjallaþorpinu. þannig að við ókum á vinnustaðinn. þar náði ég einu priki, því ég var með bragakaffi á brúsa og gat boðið mönnunum heitann drykk svona í morgunsárið. þeir þáðu það með þökkum og einn bættist í hópinn. þeir sátu lengi og töluðu og fóru svo að benda mér hvað ætti að mála. þá runnu á mig tvær grímur því þeir bentu út um gluggann. ég hváði enn á ný og spurði á minni bjöguðu frönsku "úti??" já var svar í þríriti. þar var ég nú svei mér heppinn að hafa komið í stuttermabol, skíðapeysunni minni sem ekki má klínast út og á sandölum. og ekki nema alkul utandyra. þeir horfðu allir á skóna mína í forundran, litu svo hver á annan og töluðu hratt. sá nafnlausi spurði mig svo hvort það hefði gleymst að segja mér að það yrði málað utandyra í dag. Oui, svaraði ég - og brosti bara eins og heimski útlendingurinn. þeir bara brostu líka og kenndu kallinum sem hringdi um, skildi ég. svo var tekið til starfa þegar klukkan var að nálgast tíu. þá fékk ég reyndar lánaðan vettling á vinstri hendina, síðbúni málarinn notaði þann hægri. fékk líka pensil með brotnu skafti og slatta af málningu í skúringafötu. með þetta var svo farið af stað að mála tréverk utanhúss. mitt hlutverk í dag voru gluggahlerar. eftir allt þetta ævintýri, small allt saman þegar ég fékk pensilinn í vettlingslausu hendina og dagurinn gekk vel. komst meðal annars að því að ég var að mála elliheimili svo nú er ég með evrópuvottun sem elliheimilamálari, hef málað slík víða um heim. þrátt fyrir ansi skrautlega byrjun að mér finnst þá líst mér vel á þetta allt, þessir menn reyndust ákaflega vinalegir þegar líða fór á daginn. hann kláraðist reyndar snemma, við kláruðum þau verkefni sem við gátum leyst í dag en höldum áfram á sama stað á morgun því þá fáum við vinnulyftu. það eina sem klikkaði í restina var það að ég hafði nú tekið með mér verkfærakassann minn, en sá er síðastur kom, fór fyrr heim og á bílnum sem ég hafði komið í, - og nú veit ég ekkert hvar verkfærin mín eru niðurkomin, en reikna nú frekar með þeim þarna í fyrramálið. ég á að hitta nýja vinnufélaga á kaffihúsi hérna í úthverfi klukkan 8. þannig að verkefni mitt það sem eftir lifir dags er að kaupa mér ódýra kuldaskó eða þvíumlíkt, vinnuvettlinga (allavega á hægri hendina) og kannski einhverja ódýra peysudruslu sem má þá klínast í. þetta lofar góðu. janúar 05, 2004
fríinu mínu góða aflýst :(
þá er símtalið komið. málarinn sem ég talaði við fyrir jólin hringdi í morgun. ég var búinn að semja við svanhildi að ef að síminn hringdi þá mundi hún svara og segja að ég hefði skroppið frá, því það er enn sem komið er ansi erfitt fyrir mig að tala frönskuna í símann, og einhvernveginn hef ég ekki alveg komist í gang með hana eftir jólin. en henni var tjáð það að ég yrði sóttur í fyrramálið klukkan 7.30. þannig að í dag fer maður að finna til hvítu buxurnar, og skoða verkfærakassann. það er nú bara að maður muni hvernig þetta er gert ennþá... ...hef ekki hreyft pensilinn síðan ég málaði klefann okkar í byrjun október. en á næstu dögum kemur þá í ljós hvort ég held þessari vinnu, þessi prufa á að vera 2-3 dagar að mér skildist og eftir það fæ ég að vita meira. ekki laust við netta flugu í maga... janúar 04, 2004
bara til að leiðrétta smá misskilning... :)
þannig er nú mál með vexti að hún daia systir bauð okkur á sínum tíma, þegar við lögðum af stað í þetta ferðalag okkar að hýsa fyrir okkur þessa ágætu heimasíðu. við erum henni óskaplega þakklát fyrir. ekki alls fyrir löngu græjaði hún síðan myndasíðu, þar sem við getum sett inn fleiri myndir en hérna á síðuna. það er hlekkurinn sem er hérna að neðan og til hægri og heitir myndaalbúmið. þetta albúm er einnig vistað inn á heimasvæði hennar og óla. einhver brögð hafa verið að því að fólk sem fer þar inn, smelli á hlekk (sem heitir myndasafnið) sem er þar inni, og flytur fólk yfir í myndaalbúmið hennar og óla. þar eru meðal annars, sónarmyndir af erfingja þeirra sem enn unnir sér vel í móðurkviði, ásamt mörgum öðrum góðum myndum. þetta sama ágæta fólk hefur síðan sent mér og svanhildi árnaðaróskir, með símhringingum og tölvupósti. við viljum einfaldlega beina þessum hamingjuóskum áfram til daiu og óla, og leiðrétta þennan skondna misskilning. sunnudagur
því er skemmst frá að segja að grenoble burstuðu andstæðinga sína í gær 36-6, og ég hafði mjög gaman af því að fylgjast með þessu. en það var hins vegar orðið alveg hryllilega kalt undir lok leiks. dagurinn í dag er svo óráðin gáta, enn les svanhildur svo ég var jafnvel að spá að lesa bara eitthvað líka... ..ekki það sem kallað er æsispennandi líf hérna þessa dagana. janúar 03, 2004
bækur
já enn er tíðindalítið af suðurvígstöðvunum, svanhildur grúfir sig ofan í bækurnar frá morgni til kvölds og ég reyni að finna mér eitthvað til dundurs. er sjálfur búinn að vera að lesa svolítið sjálfur, ekki mér til fróðleiks eins og hún, heldur eingöngu til skemmtunar. svo hringdi hann george hérna áðan og bauð mér að koma með sér að sjá rugby-leik hérna í grenoble í kvöld. ég ákvað að slá til. ekki það að ég þekki haus né sporð á þeirri íþrótt, eða viti hverjir eru að fara að spila, ...huxanlega eftir kvöldið. janúar 02, 2004
janúar 01, 2004
árið
áramótin hér voru alveg stórskemmtileg. matargerðin tókst alveg frábærlega, svo vel að meira að segja kanadísk grænmetisæta fór að éta kjöt!! alltaf gott þegar maður getur hjálpað fólki inn á réttar brautir. svo skutum við upp flugeldunum, það vakti gríðarlega kátínu. svo var spilað, kjaftað og drukkið fram undir morgun, - þannig að það er búinn að vera svona "nýársdagur" í manni í dag. en fullkomlega þess virði... |
![]() Hafðu samband
mundi74 @ wanadoo.fr
svanhildur5 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur chez An. Gonord 7 rue Ernest Calvat 38000 Grenoble FRANCE Mundi gsm 0033-(0)6 6316 3546 Svanhildur gsm 0033-(0)6 6654 7023 Fólk
daia
baddý hanna torfi og eva jón og guðrún ziggy beta georges heiða birta bjagga frænka hilda torfa bjarni og bryndís Nýlegar færslur
allt að gerast
á skíðum skemmt'ég mér trallara ..... heiðskírt = skíði myndir þetta er á veðurstofu íslands, - veðurspá Chartreuse og snjór snjókoma snjókoma DÖH...... Gamalt efni
ágúst 2004
júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|