Fimmtudagur 9. desember

Til allra frönskumælandi sem ég þekki (eða þekki ekki)

Mig vantar sjálfboðaliða sem kunna frönsku (vel eða illa) og eru til í að eyða eins og 15-20 mínútum með mér í jólafríinu. Sjálfboðaliðarnir þeurfa að fara með ca. 10 setningar á frönsku sem ég tek upp á segulband og svo mun ég nota þessar upptökur við rannsókn á hvaða hljóð í frönsku eru Íslendingum erfið í framburði. Ég þekki nóg af fólki sem talar góða frönsku (Margrét, Beta, Guðrún, Jón, Sirrý, Mundi, Rósa: ég treysti á að þið séuð öll til í að hjálpa mér (Heiða og Birta, ég er ekkert að gleyma ykkur en er bara ekki viss um að ég nái neitt að hitta ykkur í jólafríinu)). En ég þarf líka að fá einhverja sem telja sig bara vera svona u.þ.b. "melluflæra" í frönsku, einhverja sem hafa tekið (eða eru að læra) frönsku í framhaldsskóla. Hef ekki eins margar hugmyndir þar: Sara, Hildur, Sólveig, Halli og pabbi eru þau einu sem koma upp í hugann í fljótu bragði, en ég er viss um að ég þekki marga sem hafa framhaldsskólakunnáttu í frönsku án þess að ég kannski viti af því.


Ég treysti á að fá góð viðbrögð við þessari beiðni minni. Endilega látið mig vita með kommentum ef þið eruð til í að taka þátt.

- Svanhildur | 10:27
Umræður

Heiða í Sviss:

já mér var bara farið að sárna að sjá ekki nafnið mitt þarna hehe;) nei nei en já annars finnst mér hundfúlt að þú verðir ekki komin þegar ég stoppa í reykjavík..búin að plana hitting með skvísunum..en jæja c'est la vie:)

(09.12.04 10:53)

Óli Helgi:

Halló !!!
Ég gæti nú alveg hugsanlega babblað e-ja frönsku, ég er ekkert sár yfir því að vera ekki á þessum lista. Ég er kannski ekki á honum vegna þess að ég tala svo góða frönsku ! Já, það er sennilega skýringin.

(09.12.04 11:47)

Svanhildur:

Heiða: Já ég er ansi svekkt að missa af þér. Ég verð nú bara að kíkja í heimsókn til þín eftir áramót. Þá verð ég bara í skólanum á miðvikudögum og fimmtudögum og get því kannski bara kíkt langa helgi til þín. Spurning um að plana það bara núna. Hvernig hentar næstsíðasta eða síðasta helgin í janúar þér? Þá verð ég búin í prófum og Mundi á Íslandi eða í Danmörku. Væri ekki alveg tilvalið að ég kíkti bara í heimsókn? Já eða þú til mín ef þú vilt það heldur (það eru 2 Sephora búðir hérna og ein H&M híhí)?

Óli: Fyrirgefðu Óli minn að ég skildi gleyma þér. Ég er viss um að þú ert ekki sá eini, á örugglega eftir að fá komment frá fullt af fólki sem ég bara var búin að gleyma að talaði frönsku. En það þýðir ekki að ég sé búin að gleyma þeim, bara frönskukunnáttunni. En takk fyrir að vera ekki sár og fyrir að vera til í að bjóða þig fram. Þú veist að þetta tilboð er óafturkallanlegt og ég mæti til þín með upptökutækið í jólafríinu :-)

(09.12.04 12:45)

Bjössi:

Ég skal....;)

(09.12.04 12:47)

jons:

Ekki málið!

(09.12.04 13:36)

Margrét:

Að sjálfsögðu tek ég þátt í þessu fyrir þig esskan:)
þó það nú væri...

(09.12.04 14:37)

Heiða í Sviss:

jei jei...já mér líst ferlgea vel á að þú skellir þér í heimsókn....ég sé ekki fram á að geta bætt ferð til grenoble við á fjárhagsáætlunina mína..hún er frekar skökk þessa dagana og batnar ekki næstu mánuðina þar sem maður er ekkert að vinna neitt...en já önnur þessara helga hentar mér...ég ætla að fara í til Zurich eina helgi í janúar en það skiptir ekki máli hvenær það verður...ég er sko bara til hvenær sem er!!! Ekki það að það er svo sem ekkert súper mikið að gerast í Brig sko en það er náttúrulega hægt að fara nánast hvert á land sem er á stuttum tíma og svo náttúrulega bara upp í fjöllin...jæja tölum umþetta við tækifæri:)

(09.12.04 15:24)

mundi:

jón - hún verður með tækið - við verðum teipaðir !!!!

(09.12.04 17:49)

jons:

hahahaha, já shit!

(10.12.04 08:08)

sara:

ekki malid

(10.12.04 09:08)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni