ta ta ...
hér er bara allt í sóma. ég var að byrja á nýju verki í dag, heljarstór skólabygging í grafarholti verður sennilega það sem ég fæ að fást við þangað til ég flý land á ný og fer á suðrænni slóðir þar sem fjöllin eru há og skíðabrekkurnar langar.
ég verslaði mér einmitt flugmiða áðan, ég flýg til kuben þann 25. jan og svo frá billund til parísar þann 31. jan.
Svanhildur:
Þannig að nú hef ég tvo daga til að hlakka til, fyrst 20. desember og svo aftur 31. janúar. Og svo hlakka ég líka til jólanna. En hvað það er gaman að hafa svona margt að hlakka til.
(09.12.04 18:20)
Torfi:
ég hlakka svo til
ég hlakka alltaf svo til
en það er alltaf svo langt að bíða
.....
(09.12.04 23:15)