Fimmtudagur 16. desember

Mjónubuxur

Dagurinn í dag er búinn að vera fínn, þótt ég sé nú lítið sem ekkert búin að læra. Sá í morgun að þetta var ekkert að ganga hjá mér og ákvað því að taka pásu og byrja bara aðeins að pakka. Byrjaði á því að tæma litlu ferðatöskuna mína en hún er full af fötum sem ég tók með mér út sem eru allt of lítil á mig og eru búin að vera ofan í tösku frá því ég kom út. Ég er nefnilega, eins og þið vitið, mikil bjartsýnismanneskja og ákvað að hafa þessi föt með mér ef ég skyldi nú grennast, hahaha. En þar sem ég var að tína fötin upp úr töskunni þá ákvað ég nú aðeins að máta og gá hvort ég gæti ekki troðið mér í eitthvað af þessu, og viti menn, nú á ég hvorki meira né minna en fernar "nýjar" buxur og nokkra boli sem voru nú bara ekkert svo þröngir. Já sko mína, búin að ná af sér smá spiki. Alltaf gaman að komast í föt sem maður hefur ekki komist í lengi. Veit samt ekki alveg hvað ég var að pæla þegar ég ákvað að taka öll þessi föt með mér því flest þarna er enn tveimur númerum of lítið. Var kannski aðeins of bjartsýn. Langstærsti hlutinn var því settur aftur ofan í tösku og verður sennilega þar næstu árin. Kemur samt ekki til greina að fara með þetta allt í Hjálpræðisherinn því hver veit nema ég komist í þetta einn daginn. Fór samt með fjórar flíkur í Hjálpræðisherinn og tvær enduðu í ruslinu þar sem þær voru of illa farnar til að hægt væri að gefa það fátækum.


Ég er sem sagt voða ánægð með mig í "nýju" buxunum mínum og þá er bara að passa að maður vaxi ekki upp úr þeim um jólin. Finnst reyndar ekkert ólíklegt að það gerist þar sem ég held ég sé búin að borða minna en venjulega undanfarna daga. Það er alveg hræðilegt að vera alveg að fara að fara og vilja ekki vera að versla eitthvað sem skemmist og ætla sér að klára bara það sem til er í ísskápnum, sérsatklega þegar það er ein krukka af majonesi, dolla af sýrðum rjóma, kartöflur, mjólk og bjór. Þá opnar maður ísskápinn þegar maður er svangur en finnur ekkert sem mann langar í (nema þá helst bjór) og lokar aftur. Svo nennir maður heldur ekkert að vera að elda eitthvað fínt þegar maður er bara svona einn og ég er búin að lifa á núðlum, pakkasúpum og pasta undanfarnar 3 vikur og verð að viðurkenna að ég er komin ansi mikið með leið á því. Hlakka því til að koma heim og borða góðan mat og fer svo bara í sund á hverjum degi til að passa áfram í buxurnar.


Annars er svo búið að bjóða mér í jólaglögg í kvöld hérna í næsta herbergi svo að þetta ætlar að verða hinn besti dagur.

- Svanhildur | 15:08
Umræður

mundi:

skilaðu kveðjum í næsta herbergi.

(16.12.04 16:22)

Svanhildur:

Geri það.

(16.12.04 17:05)

Ziggy Flotti:

Já um að gera að vera jólaglöggur á aðventunni!

(17.12.04 09:54)

Ragnheiður:

Hæhæ Svanhildur...kominn tími á að ég kvitti fyrir reglulegri komu minni hingað! Gaman að fylgjast með fréttum af gamalli vinkonu í útlandinu. Kannski maður fyllist bjartsýni núna og kíki á fötin sem þvottavélin hefur minnkað í gegnum tíðina ;)Gleðileg jól :)
Kv.Ragnheiður Ásta

(17.12.04 11:15)

Svanhildur:

Nei hæ Ragnheiður. En gaman að fá komment frá þér, hafði ekki hugmynd um að þú værir að fylgjast með mér. Annars fæ ég nú alltaf fréttir af þér öðru hvoru líka.
Ég er að fara að hitta Eddu og sennilega Sólveigu Kristu líka á miðvikudaginn. Ætlum að rölta aðeins laugaveginn og svo skreppa á kaffihús og spjalla. Væri gaman að hitta þig líka (og líka ef það eru einhverjar fleiri "gamlar" vinkonur sem lesa). Ef þú ert laus hafðu þá endilega samband, verð í síma 564 4257 eftir að ég verð komin til Íslands.
Takk fyrir að kvitta og gleðilegt jól.

(17.12.04 11:38)

Ragnheiður:

Ég væri svo sannarlega til í það...bjalla í þig eftir helgi :o)

(17.12.04 15:20)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni