Þriðjudagur 14. desember

þjóðfélagsrýnirinn

mér sýnist stefna í svipaða hluti hérlendis og annarsstaðar þar sem ég þekki til. á byggingarstaðnum þar sem ég er að vinna þessa dagana er slatti af útlendingum að vinna iðnaðar- og verkamannavinnu.


ég hef hins vegar orðið vitni að sorglegum rasisma íslendinga. ef eitthvað aflaga fer þá er það "helvítis portúgölunum sem ekkert skilja eða geta" að kenna. ef að þeir tala saman, þá tala þeir of hátt. ef að þeir eru beðnir um eitthvað þá skilja þessir hálfvitar ekkert. ef þeim er kennt eitthvað þá gera þeir það ekki eins og þeir eiga að gera og svo framvegis.


ég efast um að fyrir ári eða tveim síðan hefði ég pælt svo mikið í þessu.

í dag þurfti ég að fara að tæma sokkinn, en þegar ég fór á klósettið þá var það upptekið. ekkert tiltökumál. ég fór til baka og ákvað að fara bara aftur eftir smá stund. þegar ég kom til baka þá spurði einn sem ég var að vinna með hvort það hefði verið upptekið? ég svaraði "já". þá byrjaði hann að bölsóttast að andskotans portúgalarnir væru alltaf á klósettinu. mér fannst þetta nú taka steinunn úr og ég gat nú ekki annað en hlegið að honum og sagði " já þetta er víst alveg ferlegt þarna í portúgal" og hann hváði "hvað?" og ég svaraði " þetta fólk pissar víst og kúkar, það er nú eitthvað annað en við íslendingarnir". hann varð nú hundslegur.


svona finnst mér þetta allt vera. auðvitað er fólk misjafnt, og ekki er ég að segja að þeir séu allir góðir. en hitt veit ég líka að þeir eru ekki allir vondir af því einu að þeir koma frá portúgal.


ég held að þeir sem að láta svona ættu að hugsa málið til enda. þessir menn eru að vinna hérna af því að íslendingar vilja ekki þessa vinnu og trúlega sér verktakinn sér hag í því að geta borgað þeim lægri laun.


þeir eru að vinna þarna á morgnana þegar ég kem og þeir eru enn að þegar ég fer heim. ekki veit ég hvernig þessir búa, en ég veit að portúgalar hjá öðrum verktaka hafast við í vinnuskúr í laugardal.


þessir menn hafa trúlega ekki haft aðgang að jafngóðu skólakerfi og við því portúgal er fátækt land. þess vegna tala þeir kannski ekki mörg mál reiprennandi er það ekki ábyrgð atvinnuveitandans að taka mann í vinnu sem ekki talar okkar tungumál? á hann að taka mann í vinnu sem hann getur ekki notað út frá grundvelli tungumálakunnáttu? mér finnst augjóst hvar ábyrgðin liggur.


svo eru þetta ólík þjóðfélög og það tekur sinn tíma að aðlaga sig og læra á það hvernig hlutir virka.


að lokum: er það portúgölunum 6 að kenna að klósettið er oft upptekið, eða hinum íslenska verktaka sem er með einn ókynntan saurstamp fyrir 30 iðnaðarmenn.


ps. hann pabbi minn á afmæli í dag. hrópum öll ferfalt húrra fyrir honum.

- mundi | 17:25
Umræður

Svanhildur:

Heyr heyr! Ekkert útlendingahatur hér. Maður lærir ýmislegt á því að búa erlendis, meðal annars hvernig það er að vera útlendingur. Það er ekki alltaf auðvelt. Held að ótrúlega margir séu rasistar án þess að átta sig á því, eins og til dæmis þessir menn sem þú ert að vinna með, þeir telja sig örugglega ekki hafa neitt á móti útlendingum en finnst samt sennilega að þeir ættu bara að vera heima hjá sér. Samt finnst okkur ekkert eðlilegra en að Íslendingar búi út um allar trissur, haldi fast í sína siði, haldi þorrablót og fagni 17. júní. Vissuð þið að það búa miklu fleiri Íslendingar í útlöndum en útlendingar á Íslandi? Held það veiti ekki af að opna aðeins þessa umræðu og að fólk hugsi aðeins sinn gang og geri sér grein fyrir hvar það stendur í þessu máli. Býst við að fáir vilji samþykkja það að þeir séu á móti útlendingum en það er samt oft erfitt að losna við fordómana. Tungumálaerfiðleikar eru náttúrlega alltaf stórt vandamál en maður verður að passa sig á því að stimpla ekki einhvern heimskan af því hann talar hvorki íslensku né ensku. Það tekur líka langan tíma fyrir fólk að fatta mentalitetið hjá ókunnugri þjóð og enn lengri tíma að aðlaga sig því. Sumstaðar þykir það til dæmis jaðra við guðlast (eða jafnvel eitthvað enn verra) að borða jógúrtina með brauðinu en ekki eftir að hafa borðað brauðið. Þetta er lítið dæmi um hvað litlu hlutirnir geta skipt miklu máli og verið flóknir fyrir þá sem ekki þekkja.


En nóg um það.


Húrra! Húrra! Húrra! Húrra! Til hamingju með afmælið Rabbi.

(14.12.04 20:17)

Beta:

Heyr heyr, tek undir með ykkur báðum. Þegar maður er heima á ástkæra ylhýra er auðvelt að auðvelt að gleyma því hvað það er erfitt að vera útlendingur í landi þar sem þar sem maður talar ekki málið og er ekki alveg inni í siðunum.

(14.12.04 23:13)

torfi:

það er mest skitið í sunnanverðu Portugal... og þá aðallega í fötur víst. Stórundarleg þjóð þetta :-|

(14.12.04 23:18)

jons:

Já ótrúlegir þessir fordómar, fólk skilur ekki hvernig það er að vera útlendingur fyrr en það prófar það sjálft! Ég vona að þetta haldi ekki áfram að aukast á Íslandi. Því miður virðist vera að fólk finni sér alltaf einhverjar afsakanir fyrir að haga sér svona. T.d. eins og þú segir með klósettin, ef það hefði ekki verið þetta þá hefði það bara verið eitthvað annað eins og að þeir tali of hátt. Ég held að besta leiðin til að berjast við svona sé einmitt að mynda mikla umræðu um þetta í samfélaginu og búa fólk undir breytingarnar. Ég hef trú á því að fleiri muni flytjast til Íslands til að vinna, sem er allra besta mál, allir hagnast á því. þetta sjá það hins vegar ekki allir og fólk er yfirleitt mjög hrætt við breytingar.

(15.12.04 09:40)

Jón Gunnar:

Ég fór einusinni til Ítalíu og þar skíta menn gjarnan í holu í gólfinu, a.m.k. á bensínstöðvum. Engar fötur þar. Ef vel er að gáð (samt ekki of vel) má sjá og heyra í lítilli á sem rennur undir holu þessari. Spurning mín til verkfræðinga og annara sem vit hafa á hvort virkja megi ár þessar því að rennslið virtist vera nokkuð gott. Spurning samt hvort að hlessingurinn fer illa í túrbínurnar?

Hils,

Jón Gunnar.

Ps: Verðum að skella okkur í pottinn fljótlega Mundur.

(15.12.04 13:28)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni