Þriðjudagur 7. desember

Jibbý jei, ég er komin í samband við umheiminn

Hann elsku besti Jón var rétt í þessu að tengja mig við netið. Nú er ég tengd í gegnum Tele2 svo ég mun sennilega halda mig við þá og drífa í að segja upp áskriftinni hjá Frence Telecom. Mér hefur ekki enn tekist að tengja mig í gegnum þá en Tele2 sendi mér "password" til að tengjast þeim í gær.


Ég hef ekki getað stillt mig um að blogga smá þessa daga sem ég hef verið án netsins og hendi því inn tveimur færslum frá fimmtudegi og laugardegi.


Laugardagsblogg


Ég var ekki búin að segja ykkur frá því að ég fékk vinning í Happdrætti Háskólans um daginn, heilar 4000 krónur! Af því tilefni ákvað ég að skella mér í bæinn í dag og kaupa mér eitthvað skemmtilegt fyrir vinninginn. Mér finnst alltaf voða gaman að rölta um bæinn á laugardögum því þá er alltaf svo mikið um að vera og ekki minnkar það nú þegar líða fer að jólum. Nú er búið að byggja jólaþorp úr litlum sætum bjálkahúsum á öllum torgum bæjarins og þar selur fólk ýmsan varning. Svo er búið að kveikja á jólaljósunum en það verður nú að segjast að það er ekki alveg nógu dimmt hérna á daginn til að ljósin gefi mikla stemningu. En það var voða kósý að labba um bæinn og mér tókst að eiða vinningnum og rúmlega það. Missti mig aðeins í bókabúðinni og kom heim 7 bókum ríkari og 12000 krónum fátækari. Ég þarf sem sagt að fá tvo nýja vinninga í happdrættinu (væri nú samt allt í lagi að fá bara einn aðeins stærri). Ég held ég sé búin að kaupa mér u.þ.b. 20 bækur í vetur og allar tengjast þær náminu. Langar í allavega 40 bækur í viðbót en reyni að taka þetta svona í smá skömmtum og hef aldrei keypt eins margar í einu og ég gerði í dag. Ætla núna að fara að glugga í nýju bækurnar mínar og reyna að nýta þær til að vinna verkefni upp á 10.


Fimmtudagsblogg


Nú (fimmtudaginn 2. desember) er ég ekki búin að komast inn á netið í 3 daga og er farið að líða alveg hræðilega sökum þess. Ég er búin að komast að því að ég er orðin háð því að kíkja á netið á hverjum degi, sérstaklega þegar maður er svona einn í útlöndum þá er alveg ómissandi að geta spjallað við fólk á msn, blogga, lesa annarra manna blogg og kíkja á mbl. Svo er ég líka vön að afla mér heimilda á netinu fyrir verkefni sem ég er að vinna svo að þetta er alveg hræðilegt ástand.


Til að létta aðeins á bloggþörfinni ákvað ég að blogga aðeins núna í Word og afrita það svo yfir á síðuna okkar Munda þegar netið kemst aftur í gagnið. Ég var rétt í þessu að koma frá France Telecom (netþjónustan okkar) til að reyna að koma þessu í lag og því miður þá tekur það víst 3 daga. Þetta er þó ekki þeim að kenna. Málið er að önnur símafyrirtæki eru búin að vera að bjóða betri verð og við Mundi ákváðum að skipta um þjónustu og fara að borga aðeins minna á mánuði. Ég fyllti út eitthvað blað fyrir tveimur mánuðum og sendi á ódýra símafyrirtækið en svo hefur ekkert gerst og við Mundi ákváðum að vera bara áfram hjá France Telecom þar sem þeir eru með góða þjónustu. Svo allt í einu á þriðjudaginn þá komst ég ekki inn á netið. Ég hélt þetta væri bara eitthvað vesen sem myndi lagast að sjálfu sér en þegar netið var enn óvirkt í dag ákvað ég að þetta gengi ekki svona lengur og fór og talaði við þá hjá France Telecom. Þar fékk ég frábæra þjónustu eins og vanalega og komst að því að ég var ekki lengur á skrá hjá þeim heldur hjá hinu fyrirtækinu, sem hefur þó aldrei sent mér neitt “installation kit” svo að ég kemst ekkert inn á netið í gegnum þeirra þjónustu. Allavega, þá ætlar France Telecom að redda þessu fyrir mig en það tekur víst 3 daga, sem mér finnst nú ansi langt og þeir fá smá mínus út á það, en ég er samt að gera mér vonir um að þetta taki eitthvað styttri tíma því þegar við byrjuðum hjá þeim þá sögðu þeir að það myndi taka 2 daga að fá símalínuna til að virka en svo tók það bara einn dag.


En ég ætlaði nú ekki bara að segja ykkur frá þessu veseni. Vildi líka segja ykkur hvað á daga mína hefur drifið frá því ég skrifaði síðast. Ég fór sem sagt í partý þarna á mánudagskvöldið og það var voða gaman og ég verð að fá að monta mig aðeins. Það elskuðu allir túnfisksalatið mitt, allir voru að biðja mig um uppskriftina og ég fór með fullt eins líters ísbox af salati og það var ekki lengi að klárast (samt vorum við bara 13). Verð líka að koma því að, af því það er svo oft talað um að Íslendingar kunni ekki að drekka, að ég er búin að komast að því að aðrar þjóðir eru ekkert skárri. Við vorum nú fljót að komast að því í Danmörku að Danirnir eru ekki hótinu betri en við Íslendingar þegar kemur að drykkju. Og svo í þessu partýi þá drapst nú einn strax klukkan níu. Það var þó ekki áfengisdauði heldur hassreykingadauði og ekki tel ég það nú vera mikið skárra. Svo voru allir strákarnir alltaf að skála í botn og skipti þá engu máli hvort það var hvítvín, rauðvín eða romm í glösunum. Þeir voru sem sagt ekki lengi að komast á skallann. Ég var hins vegar voða góð og róleg stelpa, þótt reyndar þetta eina rauðvínsglas sem ég ætlaði að drekka hafi endað í einum bjór, einu hvítvínsglasi og þrem rauðvísglösum. En ég virðist vera komin með svo gott þol eftir þessa Frakklandsdvöl mína að ég fann nú bara svona pínu á mér. En ég skemmti mér sem sagt vel en dreif mig heim klukkan ellefu og var komin í háttinn fyrir tólf. Vaknaði svo eldsnemma á þriðjudagsmorgninum, renndi yfir glósurnar mínar og dreif mig í prófið og gekk bara vel. Það er kannski bara gott að fá sér aðeins í glas fyrir próf, fær mann til að slaka á og sofa vel.


Eftir prófið fór ég í bæinn í fataverslun sem ég hafði keypt mér gallabuxur í fyrir rúmum mánuði. Það kom gat á þær fyrir nokkrum dögum, algjörlega upp úr þurru, ég hafði ekki rekið mig í neitt eða neitt svoleiðis. Svo ég fór í búðina með buxurnar og sagði að mér þætti þetta nú ekki mjög góð ending. Afgreiðslukonan bauð mér þá að velja mér eitthvað annað í staðin. Ég mátaði og mátaði buxur, því mig vantar buxur, en fann engar góðar og endaði á því að kaupa mér pils. Er svolítið svekkt yfir að þetta hafi farið svona með buxurnar því ég elskaði þær og var búin að vera í þeim nánast á hverjum degi frá því ég fékk þær. En ég er líka voða ánægð með nýja pilsið mitt og er sátt við þjónustuna sem ég fékk í búðinni. Ætla að skreppa í Vera Moda þegar ég kem til Íslands því ég keypti mér buxur þar í sumar og rennilásinn eyðilagðist eftir mánuð. Spurning hvort þær verði jafn almennilegar þar (og ég er alls ekki að fara fram á að þær leyfi mér að velja mér nýjar buxur, bara að þær skipti um rennilás án þess að ég þurfi að borga fyrir það).


Annars hefur svo sem ekki mikið á daga mína drifið, er búin að vera dugleg að læra á daginn og glápa á sjónvarpið á kvöldin. Fékk samt mjög skemmtilegt símtal í fyrradag þegar hún Margrét frönskuskvísa hringdi í mig. Þetta má samt ekki misskiljast, alltaf voða gaman að fá símtöl frá mömmu, pabba og Munda en þetta var bara svo óvænt og gaman. Takk takk fyrir að hringja Magga mín. Þetta má heldur ekki misskiljast þannig að nú eigið þið hin að fara að hringja meira í mig. Ég hringi sjálf nánast aldrei í neinn og ætlast alls ekki til að það sé verið að hringja í mig. Það er nú einu sinni ástæðan fyrir að við erum með netið, þ.e. til að geta haldið sambandi við fólk án þess að það setji okkur á hausinn. Þannig að þetta má alls ekki misskiljast.


Jæja, þetta er orðið ansi langt blogg og Bravó! ef þú ert enn að lesa. Ætla að segja þetta gott í bili og vona að ég komist á netið sem fyrst. Fer bara að læra og horfa á sjónvarpið þangað til.

- Svanhildur | 09:44
Umræður

Beta:

Mikið var nú gott að sjá þessa færslu frá þér því ég vorkenndi þér ógurlega að vera internetslaus og ein í Grenoble.....

(07.12.04 10:51)

Svanhildur:

Já takk fyrir Beta, þetta var ansi erfitt.

(07.12.04 11:19)

mundi:

já þetta er tóm sæla að þú sért tengd á ný

(07.12.04 16:55)

Heiða í Sviss:

hæ svanhildur mín, gaman að sjá að ´þú ert tengd á ný...var farin að sakna færslnanna frá þér:) Efa það samt að þær í Vero Moda heima verði jafn almennilegar og þær þarna í france...finnst ég alltaf fá verri og verri þjónustu heima, sérstaklega í svona búðum:(
En jæja vildi bara segja hæ..gros bisous

(07.12.04 18:14)

hanna "mágkona":

Já gott að netið er komið í lag eftir mikið basl.. mætti halda að þú hefðir verið að brasa í þessu hérna heima á Íslandi - þvílík þjónusta! :S

(07.12.04 18:55)

jons:

Já, hrikalegt að vera netlaus! Jafnvel verra en að vera með gat í klósettinu sínu :D

(07.12.04 20:49)

Svanhildur:

Hahaha, já Jón, það má alveg deila um hvort sé verra.

(07.12.04 21:16)

mundi:

nei - heldur vildi ég búa í frans með saurstamp "a la Vizille" heldur en netlaus. það er sko alveg á hreinu.

(08.12.04 16:25)

jons:

Tek undir það, saurStampur venst furðu vel, vindar vel um bossann og svona!

(09.12.04 09:35)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni