Föstudagur 10. desemberIlla lyktandi RússiÉg bara verð aðeins að fá að segja ykkur frá Rússanum sem býr hérna með okkur. Þetta er voða fínn, skemmtilegur og hjálplegur strákur en hefur einn mjög stóran mínus: sóðaskap. Já þessi mínus er ansi stór því hann verður til þess að maður forðast að umgangast hann. Hann lyktar svo hræðilega illa að maður getur varla verið nálægt honum og vill helst ekki fá hann inn í herbergið sitt því þá fer allt herbergið að lykta og það þarf að opna allt og kveikja á reykelsum þegar hann er farinn. Ég reyndi nú til að byrja með að láta þetta ekki fara í taugarnar á mér og vera ekki vond. Ákvað að sennilega gæti hann ekkert að þessu gert, væri bara með svona svakalega líkamslykt greyið. En svo sá ég inn í herbergið hans og komst að því að maðurinn er bara svona rosalegur sóði og fer örugglega aldrei í sturtu (hann er líka alltaf í sömu fötunum). Herbergið hans er ekki bara svona allt í drasli heldur er það bara fullt af skít. Hann hefur örugglega aldrei þrifið gólfið inni hjá sér (Mundi segist reyndar hafa séð hann gera það einu sinni en hann er nú líka búinn að búa hérna í 3 mánuði) en það sér ekki í gólfflísarnar fyrir skít, gólfið er bara svart, og lyktin þarna inni: slæm blanda af svitalyktinni hans og einhverri annarri vondri fýlu í herberginu. Svo, af því að gólfið inni hjá honum er allt svart og klístrað, þá ber hann þennan skít með sér um allan gang og því ekki lengur hægt að ganga um berfættur eða á sokkum um íbúðina. Þetta er sem sagt mjög slæmt. Ykkur finnst ég kannski vera vond að skrifa þetta og að ég hljóti nú eitthvaða að vera að ýkja en ég get bara ekki orða bundist, ég hefði aldrei trúað því að einhver gæti lifað svona. Þetta er ógeðslegt og nei ég er ekki að ýkja. Manninum væri vorkun ef hann lyktað svona af einhverjum óviðráðanlegum ástæðum en svo virðist ekki vera.
- Svanhildur | 20:35
Umræður
sara: oj bara (11.12.04 15:38)
Bjössi: Nú, gefðu manninum rakspíra, gólftusku, gólfsápu og leiðbeiningar með....;) (12.12.04 11:41)
sara: þú getur líka keypt þér stóra plaskúlu og boðið honum að prófa, og um leið og hann fer inn í kúluna, þá lokarðu og læsir. þetta er svona meira varanlegra plan. fólk sem lyktar illa, brýtur á mannréttindum annarra. fólk sem undirstrikar vondu lyktina með skít-og óþrifaskap gerir ástandið enn verra. þú gætir líka reynt af öllum mætti að lykta verr en hann. það er líka hægt að kaupa mjólk og ýsuflak, og fela það inni hjá honum, svo það mygli. svo þegar lyktin verður of mikil að honum finnst, verður hann að leita að henni, og kannski laga til í leiðinni. þú gætir líka, kastað úr skúringafötunni á hann þegar þú ert búin að nota hana. það verður ábyggilega mesti þrifnaðurinn sem hann fær þann mánuðinn. (12.12.04 12:12)
mundi: verður ekki að fara að háþrýstiþvo mannin. þetta næst held ég ekki orðið af með sápu og vatni eingöngu (12.12.04 12:59)
Svanhildur: Sara kemur þarna með nokkrar ágætis hugmyndir et tvær þeirra eru þó alveg ómögulegar: (12.12.04 15:41)
sara: ja, mér finnst þú vera svoldið svartsýn. en þú gætir líka farið með hann á annan hátt. þú gætir byrjað á því að ganga um í ullarsokkum einum saman, og beðið til satans. svo ef hann spyr þig hvað þú sért að gera, ´þá ertu bara að baka. meiningin með þessu er einfaldlega að gera út af við hann, líkt og hann gerir við þig. (12.12.04 20:08)
Svanhildur: Takk fyrir góð ráð Sara. Ætli það endi ekki með því að maður tali um þetta við hann. Þetta getur jú ekki gengið svona mikið lengur. (12.12.04 20:44)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|