Þriðjudagur 14. desembergrennandi fitaVar að lesa á mbl að margt bendir til að fita jórturdýra veiti vörn gegn offitu og hjartasjúkdómum. Svo er maður búinn að vera að skera fituna af í öll þessi ár til að grennast, já eða sleppa því bara og kenna fitunni um að maður grennist ekki. Er nú farin að hallast að því að maður eigi að láta fullyrðingar eða tilgátur vísindamanna sem vind um eyrun þjóta. Allar þessar tilgátur virðast snúast 180°á nokkurra ára fresti. En samt trúir maður vísindamönnunum alltaf því þeir eru jú búnir að rannsaka málið gaumgæfilega áður en þeir birta niðurstöðurnar. Ég legg því hér fram beiðni til mömmu um að gefa mér vel feitt lambakjöt í fríinu, ég er nefnilega í megrun híhíhí. - Svanhildur | 19:44
Umræður
Torfi: Einhverntíman sagði vitur maður "allt er gott í hófi" ætli það sé ekki nokkuð til í því ! (14.12.04 23:21)
jons: jámm, þarf eiginlega ekki fleiri orð. Mitt motto er að borða það sem þú vilt, bara ekki of mikið af því. (15.12.04 09:43)
sara: tek undir orð torfa, en segi ennfremur að það er alltaf val einstaklingsins, hvernig hann vill haga sinu lífi og líkama. það er alveg common sense, að ef maður borðar óhollan mat, hreyfir sig lítið, og stundar óhollustu af miklu magni, þá er maður ekki góðum málum. en það er svo annað mál, í hvaða formi þetta er gert, og hvert er jafnvægið á milli þessara þátta. erfðarþættir koma líka mikið við sögu. ættin okkar svanhildar er ekki grannvaxið-fólk-ætt, við erum öll þannig gerð að upplagi. það skiptir engu máli hvort maður borðar lítið og hollan mat, hreyfir sig mikið. við verðum aldrei mjó! sem er pirrandi, en staðreynd. það sem ég er að reyna að segja, er að þetta er rosalega einstaklingsbundið hvernig líkaminn okkar bregst við því sem sett er í hann og svo framvegis. rannsóknir sýna nefninlega líka að mjög grannt fólk, sem borðar óhollan mat, og hreyfir sig ekki það á í meiri hættu á að fá hjartasjúkdóma en það fólk sem er kannski aðeins yfir "meðalþyngdinni". (15.12.04 10:14)
Svanhildur: Ég er fullkomlega sammála ykkur öllum og ætla nú ekkert að fara að lifa á jórturdýrafitu eftir að hafa lesið þessa grein. Setti þetta bara meira svona inn af því mér fannst þetta fyndið. (15.12.04 10:27)
Jóhanna Héðinsdóttir: Púff... (15.12.04 11:15)
Svanhildur: Það væri alveg frábært að hafa einn saumaklúbb. Ég kem heim á mándaginn og fer aftur út 7. jan. Mundi verður lengur. Það væri kannski gott að hafa saumó 2. 3. eða 4. janúar. Minnir að Hildur flytji norður þann 5. (hún er að fara í verknám á Akureyri). Ég dríf kannski bara í að senda tölvupóst á hinar píurnar og tékka á hvort þær séu lausar einhvern þessara daga. (15.12.04 11:34)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|