Fimmtudagur 9. desember

Gamaldags Danir

Hvað er nú eiginlega málið með Dani. Ég hélt alltaf að þetta væri háþróuð þjóð og maður heyrir þær sögur að allt sé svo þægilegt í Danmörku, allt svo ligeglad og gott. Spurning hvort þeir hafi orðið aðeins of ligeglad og gleymt sér aðeins. Og já, ég hef mínar ástæður til að vera að dissa Dani.


Í fyrsta lagi þá er þvílíkt vesen að fá orlofið sitt borgað í Danmörku. Það virkar ekki þannig að maður fái það bara lagt inn á reikninginn sinn í maí heldur þarftu að sækja sérstaklega um að fá það borgað, jafnvel þótt þetta séu þínir peningar sem er búið að draga af laununum þínum. Og ef þú sækir ekki um að fá orlofið þitt borgað innan árs þá hverfur það bara. Veit ekki hver fær það, bara Ríkið eða verkalýðsfélagið eða eitthvað. Þetta er náttúrlega alveg fáránlegt. Þar sem ég bý nú ekki í Danmörku og danski pósturinn minn er sendur til tengdó þá bað ég tengdamömmu um að hafa samband við orlofspeningasjóðinn og biðja um að orlofið mitt yrði greytt inn á reikninginn minn. En nei, málið er ekki alveg svo einfalt. Ég þarf að senda bréf og gefa tengdó umboð til að skrifa undir að ég vilji virkilega fá þennan pening. HVAÐ ER AÐ??? Alla vega, þá var ég að senda þetta bréf í dag og fer því vonandi að fara að fá orlofið mitt (við erum að tala um orlof fyrir tímabilið júní-ágúst 2003).


Í öðru lagi, þá erum við Mundi búin að vera að græja flug-og lestarmiða alveg hægri vinstri og auðvitað allt gert í gegnum netið og virkar það ýmist þannig að þú færð miðann sendan heim til þín eða prentar hann út sjálfur. Höfum við góða reynslu af þessu bæði í viðskiptum við frönsk og íslensk fyrirtæki. En svo þarf Mundi að kaupa sér lestarmiða frá Köben til Vejle og þá er hvorki hægt að fá miðann sendan heim né prenta hann út sjálfur heldur þarf að fara á einhverja lestarstöð í Danmörku 8 dögum fyrir brottför og sækja miðann. Enn og aftur spyr ég HVAÐ ER AÐ??? Frekar erfitt fyrir fólk sem ekki er staðsett í Danmörku að framkvæma þetta.


Að lokum má ekki gleyma þessum helv... Dankortum í stað VISA eða EURO. Og svo þarf maður að hafa búið í landinu í eitt ár til að geta fengið DANKORT og verður fram að því bara að nota "hævekort" sem maður getur bara notað til að taka pening út úr hraðbönkum en ekki í búðum. HVAÐ ER AÐ???


Ég vil taka það fram til að koma í veg fyrir misskilning að ég hef ekkert á móti Dönum, finnst þeir fínir, og ég gæti alveg skrifað jafn langan lista og jafnvel lengri um Frakka eða Íslendinga. En þetta þrennt (og þá sérstaklega þessi tvö fyrstu artriði) eru að pirra mig akkúrat þessa stundina svo mig langaði til að losna við pirringinn með því að skella honum yfir á ykkur lesendur góðir.


ps. Ætla engir fleiri að bjóða sig fram í tilraunina mína? Ég skal gefa öllum sem vilja vera með nammi!!!

- Svanhildur | 19:20
Umræður

Hildur:

Ég er sko til í að taka þátt í tilrauninni, vá hvað ég er samt búin að gleyma allri frönsku.. þú getur svo fengið Sólveigu líka og Sigga og svo Halldóru, Guðríði sem bjó úti í nokkur ár mmm.. skal láta þig vita ef mér dettur fleiri í hug

(09.12.04 19:38)

Svanhildur:

Hey já auðvitað, takk fyrir hugmyndirnar, endilega spurðu stelpurnar og Sigga, ef þú hittir hann eitthvað, hvort þau væru til í að taka þátt. Ég mun svo bara hafa samband við þá sem eru tilbúnir þegar ég verð komin heim.

(09.12.04 20:02)

mundi:

nú lágu danir í því ...

(09.12.04 23:48)

mundi:

já flott fyrir mig ef að þú færð orlofið áður en ÉG fer í mörkina ---- múhahaha..... ;)

(10.12.04 00:31)

Svanhildur:

Já þú heldur það. Hahahah

(10.12.04 06:09)

jons:

Já, ég þarf mikið nammi fyrst það á að teipa mann.

Ísland Best í heimi!!!

(10.12.04 08:17)

Beta:

Tíhí, égg skal vera með.Ef þig vantar þátttakendur er líka hægt að tékka á Ragga bróður, hann á að vera með stúdentspróf í frönsku...

(10.12.04 09:20)

Bjössi:

á nokkuð að teipa menn eins og köttinn forðum?......;)

(10.12.04 10:01)

Viddi:

Danir eru flestir bölvaðir fasistar og ekkert ligeglad við þá.
Danir ligeglad er þjóðsaga og þjóðsögur eru alltaf ýkjur eða bull, nema hvorttveggja sé

(10.12.04 12:04)

Ziggy Flotti:

Það er komið til af því að fólk er að fara til danmerkur á sumrin og hitt þá létt mollí dani að skemmta sér í tívolí með fjölskyldunni. Hver væri ekki ligeglað við þær aðstæður???

(10.12.04 12:46)

Bjørk:

their eru ligeglad vardandi kynlif, dop og afengi....

(12.12.04 11:08)

sara:

eg vil alveg vera med

(12.12.04 12:14)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni