Föstudagur 17. desemberFarin í jólafríÞá er síðasti skóladagurinn fyrir jólafrí búinn og ég ætla að leyfa mér að byrja í fríi á morgun þegar ég verð komin til Parísar, ætla að reyna að læra smá í lestinni þar sem maður hefur ekkert betra að gera þegar maður er einn á ferðalagi en vandamálið að ég verð alltaf að taka mér 15 mínútna pásu frá lestri eða skrifum á 5 mínútna fresti þar sem maganum mínum fer mjög fljótt að líða illa ef hann fær ekki að sjá út um gluggann. Verður því sennilega ekki mikið úr verki. annars verð ég nú að viðurkenna að ég hef valdið sjálfri mér vonbrigðum undanfarna daga hvað varðar einbeitingu og sjálfsaga, hefur ekki mikið gerst í þessum verkefnum mínum. Ég bara nenni þessu ekki lengur, langar bara heim í frí. Er samt núna að setja saman textann sem tilraunadýrin mín munu fá að fara með í jólafríinu. En þegar það verður búið þá ætla ég nú bara að láta restina eiga sig í bili og fara að pakka og gera allt klárt fyrir brottför. Það er nú alltaf jafn erfitt að skera niður farangurinn, ég vil alltaf taka allt með. Og ekki eru þessar "nýju" buxur að gera mér þetta auðveldara, var að fatta að þær eru 7 en ekki 4 svo að núna á ég 10 buxur og langar til að hafa þær allar með, get ómögulega gert það upp við mig hverjar ég á að skilja eftir. Svo er auðvitað alveg öruggt að ég tek svona 5 stykki með mér en nota bara 2 þeirra. En svona er þetta nú bara, veit að fleiri þarna úti kannast við þetta.
- Svanhildur | 13:58
Umræður
Heiða í Sviss: jáa váaa hvað ég kannast við þetta með farangurinn...er að krossa fingur hérna hægri og vinstri að ég verði ekki með yfirvigt..jah ekki mikla a.m.k.;) Já fúlt að geta ekkert séð þig chérie en það verður kannski eitthvað gert í því þegar við erum komnar til útlanda aftur:) Góða ferð til Parísar og svo heim til ÍSLANDS:) Gleðileg jól!! (17.12.04 17:47)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|