Fimmtudagur 16. desember

Bara fjórir dagar

Já nú eru bara fjórir dagar þangað til ég fer heim. Hlakka ofsalega mikið til. Á nú bara daginn í dag og á morgun eftir hér í Grenoble því ég fer til Parísar eldsnemma á laugardagsmorguninn og ætla að eyða helginni þar með Jóni og Guðrúnu. Var nú svolítið fúl þegar ég komst að því að það yrði ekkert próf föstudaginn 17. des og að ég hefði því alveg getað farið heim þá eins og ég hafði ætlað mér í upphafi, en borgaði 5000 kall til að breyta miðanum mínum og fara heim þann 20. Væri alveg til í að vera bara að fara heim á morgun og vera 5000 krónum ríkari. En þetta er nú ekki alslæmt. Er viss um að ég á eftir að eiga alveg frábæra helgi með Jóni og Guðrúnu í París og svo förum við öll samferða heim á mánudaginn sem er jú ólíkt skemmtilegra en að þurfa að fljúga einn.


En nú verð ég að vera dugleg að læra í dag og á morgun. Skil ekki hvað er búið að vera að mér undanfarna daga, næ bara ekki að einbeita mér. En nú SKAL ég vera dugleg, bara tveir dagar og svo tek ég mér langþráð frí.


Hlakka til að sjá ykkur öll.

- Svanhildur | 08:27
Umræður

sara:

jamm..otholandi thegar svona lagad breytist. en thad er sko ekki amalegt ad geta bara skroppid til parisar i helgarferd. eg væri alveg til i thad. svo eg vorkenni ther ekkert svakalega..hihihihihi en jæja nuna ætla eg ad leggja lokahondina a undirbuninginn fyrir profid sem er nuna eftir 3 og halfan tima.
bid ad heilsa, og gangi ther vel.
sara

(16.12.04 09:43)

jons:

Já nú styttist!!! :D

(16.12.04 12:38)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni