Þriðjudagur 14. desember

ball ball ball

Eitt af því sem ég sakna alltaf mikið frá Íslandi er að fara á böll. Elska alveg að fara á böll með skemmtilegri hljómsveit. Held þetta sé svolítið séríslenskt, veit alla vega ekki um svona hér. Hér eru bara barir og diskótek og svo hægt að fara á tónleika. Og svo sem ef það væri hægt að fara á böll hér þá væri það ekki eins og að fara á böll heima.


Ég var nú ansi svekkt að missa af Sálarballinu sem Mundi og Torfi fóru á um daginn og er því aðeins búin að vera að skoða heimasíður skemmtisataðanna í leit að góðu balli þennan tíma sem ég verð heima. Er búin að finna eitt ball sem mig langar á: Hljómsveitin Von á Players á jóladagskvöld. Fyrir þá sem aldrei hafa farið á ball með Von þá er það alveg "möst". Frábær hljómsveit, eins og þeir sem voru með á Sigló um verslunarmannahelgina vita. Svo eru einhverjir sem finnst ekki nógu spennandi að fara á Players, finnst að maður þurfi að fara í miðbæinn til að djamma. Ég fór á ball með Í svörtum fötum á Players í sumar og það var alveg rosalega gaman og eiginlega bara fínt að vera ekki í bænum. Þá er maður bara á ballinu og dansar, ekkert flakk á milli staða með tilheyrandi biðröðum og svo bara heim í háttinn eftir ballið, sem er eina vitið. Það eina sem ég get fundið því til fyrirstöðu að fara á þetta ball er að það er á jóladagskvöld og maður því kannski ekkert voða ferskur í jólaboðinu á annan. En þá verður maður bara að passa sig í drykkjunni.


Mig langar sem sagt voða mikið að fara á þetta ball og dansa og syngja en ekkert á neitt fyllerí. Vill einhver koma með?

- Svanhildur | 09:55
Umræður

sara:

hæhæ. thetta finnst mer hljoma mjog skemmtilega. eg tek thetta til alvarlegrar athugunar. von er ju thrusu skemmtilegt ball band. og thad er rett hja ther. thad er sko ekki hægt ad fara almennileg boll neins stadar nema a froni.
see ya

(14.12.04 19:06)

Svanhildur:

Já við skellum okkur saman á ball!

(14.12.04 19:36)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni