desember 20, 2004

20.12.

kallinn kominn heim úr vinnunni og á leið í bað. ég er nefnilega að fara til KEF að ná í svanhildi rétt á eftir. það verður gaman.


svo eru afmæli og búferlaflutningar í dag líka, ég ætla að flytja mig aðeins austar í kópavoginn. mig langar að þakka torfa og evu húsaskjól og góðan félagsskap undanfarnar 3 vikur. þau lengi lifi - húrra húrra húrra.


við þau og ykkur hin segi ég "njótið dagsins"

-mundi | 12:48 | Comments (8)

desember 19, 2004

það helsta...

þá styttist óðum í að svanhildur komi heim á klaka. tæpur sólarhringur eftir. mér skilst að hún sé búin að hafa það gott hjá jóni og guðrúnu í parís enda erfitt annað þegar maður hittir þau eðalmenni fyrir.


það sem ég hef helst unnið mér til frægðar er það að fara í teiti og veislur. ég leit við í afmælisveislu snæbjarnar á föstudaginn og var svo í ógurlegu matarboði hjá hlyni og gunnu í gærkvöldi, og fram á nótt.


í dag kláraði ég svo jólagjafakaup og sinnti bílviðgerðum með torfa.

til sidst vil ég óska gleðipinnanum og snillingnum brynjari til hamingju með meistarabréfið sem hann fékk afhent í gær laugardag. til lykke bryns.

-mundi | 18:59 | Comments (1)

desember 17, 2004

Farin í jólafrí

Þá er síðasti skóladagurinn fyrir jólafrí búinn og ég ætla að leyfa mér að byrja í fríi á morgun þegar ég verð komin til Parísar, ætla að reyna að læra smá í lestinni þar sem maður hefur ekkert betra að gera þegar maður er einn á ferðalagi en vandamálið að ég verð alltaf að taka mér 15 mínútna pásu frá lestri eða skrifum á 5 mínútna fresti þar sem maganum mínum fer mjög fljótt að líða illa ef hann fær ekki að sjá út um gluggann. Verður því sennilega ekki mikið úr verki. annars verð ég nú að viðurkenna að ég hef valdið sjálfri mér vonbrigðum undanfarna daga hvað varðar einbeitingu og sjálfsaga, hefur ekki mikið gerst í þessum verkefnum mínum. Ég bara nenni þessu ekki lengur, langar bara heim í frí. Er samt núna að setja saman textann sem tilraunadýrin mín munu fá að fara með í jólafríinu. En þegar það verður búið þá ætla ég nú bara að láta restina eiga sig í bili og fara að pakka og gera allt klárt fyrir brottför. Það er nú alltaf jafn erfitt að skera niður farangurinn, ég vil alltaf taka allt með. Og ekki eru þessar "nýju" buxur að gera mér þetta auðveldara, var að fatta að þær eru 7 en ekki 4 svo að núna á ég 10 buxur og langar til að hafa þær allar með, get ómögulega gert það upp við mig hverjar ég á að skilja eftir. Svo er auðvitað alveg öruggt að ég tek svona 5 stykki með mér en nota bara 2 þeirra. En svona er þetta nú bara, veit að fleiri þarna úti kannast við þetta.


En það verður gaman að koma til Parísar á morgun og enn skemmtilegra að koma heim á mánudaginn.


Ég er að hugsa um að taka bara bloggfrí í jólafríinu og læt því kannski ekkert frá mér heyra hérna á netinu fyrr en ég verð komin aftur til Grenoble. Endilega hafið samband á meðan ég verð á Íslandi, það verður hægt að ná í mig í síma 564-4257. Væri gaman að heyra í og hitta sem flesta.


GLEÐILEG JÓL!!!

-Svanhildur | 13:58 | Comments (1)

desember 16, 2004

Mjónubuxur

Dagurinn í dag er búinn að vera fínn, þótt ég sé nú lítið sem ekkert búin að læra. Sá í morgun að þetta var ekkert að ganga hjá mér og ákvað því að taka pásu og byrja bara aðeins að pakka. Byrjaði á því að tæma litlu ferðatöskuna mína en hún er full af fötum sem ég tók með mér út sem eru allt of lítil á mig og eru búin að vera ofan í tösku frá því ég kom út. Ég er nefnilega, eins og þið vitið, mikil bjartsýnismanneskja og ákvað að hafa þessi föt með mér ef ég skyldi nú grennast, hahaha. En þar sem ég var að tína fötin upp úr töskunni þá ákvað ég nú aðeins að máta og gá hvort ég gæti ekki troðið mér í eitthvað af þessu, og viti menn, nú á ég hvorki meira né minna en fernar "nýjar" buxur og nokkra boli sem voru nú bara ekkert svo þröngir. Já sko mína, búin að ná af sér smá spiki. Alltaf gaman að komast í föt sem maður hefur ekki komist í lengi. Veit samt ekki alveg hvað ég var að pæla þegar ég ákvað að taka öll þessi föt með mér því flest þarna er enn tveimur númerum of lítið. Var kannski aðeins of bjartsýn. Langstærsti hlutinn var því settur aftur ofan í tösku og verður sennilega þar næstu árin. Kemur samt ekki til greina að fara með þetta allt í Hjálpræðisherinn því hver veit nema ég komist í þetta einn daginn. Fór samt með fjórar flíkur í Hjálpræðisherinn og tvær enduðu í ruslinu þar sem þær voru of illa farnar til að hægt væri að gefa það fátækum.


Ég er sem sagt voða ánægð með mig í "nýju" buxunum mínum og þá er bara að passa að maður vaxi ekki upp úr þeim um jólin. Finnst reyndar ekkert ólíklegt að það gerist þar sem ég held ég sé búin að borða minna en venjulega undanfarna daga. Það er alveg hræðilegt að vera alveg að fara að fara og vilja ekki vera að versla eitthvað sem skemmist og ætla sér að klára bara það sem til er í ísskápnum, sérsatklega þegar það er ein krukka af majonesi, dolla af sýrðum rjóma, kartöflur, mjólk og bjór. Þá opnar maður ísskápinn þegar maður er svangur en finnur ekkert sem mann langar í (nema þá helst bjór) og lokar aftur. Svo nennir maður heldur ekkert að vera að elda eitthvað fínt þegar maður er bara svona einn og ég er búin að lifa á núðlum, pakkasúpum og pasta undanfarnar 3 vikur og verð að viðurkenna að ég er komin ansi mikið með leið á því. Hlakka því til að koma heim og borða góðan mat og fer svo bara í sund á hverjum degi til að passa áfram í buxurnar.


Annars er svo búið að bjóða mér í jólaglögg í kvöld hérna í næsta herbergi svo að þetta ætlar að verða hinn besti dagur.

-Svanhildur | 15:08 | Comments (6)

Bara fjórir dagar

Já nú eru bara fjórir dagar þangað til ég fer heim. Hlakka ofsalega mikið til. Á nú bara daginn í dag og á morgun eftir hér í Grenoble því ég fer til Parísar eldsnemma á laugardagsmorguninn og ætla að eyða helginni þar með Jóni og Guðrúnu. Var nú svolítið fúl þegar ég komst að því að það yrði ekkert próf föstudaginn 17. des og að ég hefði því alveg getað farið heim þá eins og ég hafði ætlað mér í upphafi, en borgaði 5000 kall til að breyta miðanum mínum og fara heim þann 20. Væri alveg til í að vera bara að fara heim á morgun og vera 5000 krónum ríkari. En þetta er nú ekki alslæmt. Er viss um að ég á eftir að eiga alveg frábæra helgi með Jóni og Guðrúnu í París og svo förum við öll samferða heim á mánudaginn sem er jú ólíkt skemmtilegra en að þurfa að fljúga einn.


En nú verð ég að vera dugleg að læra í dag og á morgun. Skil ekki hvað er búið að vera að mér undanfarna daga, næ bara ekki að einbeita mér. En nú SKAL ég vera dugleg, bara tveir dagar og svo tek ég mér langþráð frí.


Hlakka til að sjá ykkur öll.

-Svanhildur | 08:27 | Comments (2)

desember 15, 2004

Ooohhhhh...

...hvað ég nenni ekki að læra. Gengur ekkert að halda einbeitingu og er svo langt frá því að ná að klára þetta verkefni sem ég er að gera og ætlaði að klára áður en ég færi heim. Það er auðvitað alls ekki nógu gott því það þýðir bara að ég þarf að vera á fullu að læra í jólafríinu. Skil ekki af hverju þetta gengur svona hægt hjá mér. Næ ekkert að halda einbeitingunni. Kannski ég skreppi bara út í göngutúr, eða í bæinn að kaupa mér sundbol til að geta farið í sund heima. Fór ekkert út úr húsi í gær og held það geti ekki haft góð áhrif mann.


Annars vil ég óska henni mömmu minni til hamingju með að vera að klára prófin í dag og óska öllum þeim sem eru enn að puða góðs gengis.

-Svanhildur | 13:27 | Comments (1)

desember 14, 2004

grennandi fita

Var að lesa á mbl að margt bendir til að fita jórturdýra veiti vörn gegn offitu og hjartasjúkdómum. Svo er maður búinn að vera að skera fituna af í öll þessi ár til að grennast, já eða sleppa því bara og kenna fitunni um að maður grennist ekki. Er nú farin að hallast að því að maður eigi að láta fullyrðingar eða tilgátur vísindamanna sem vind um eyrun þjóta. Allar þessar tilgátur virðast snúast 180°á nokkurra ára fresti. En samt trúir maður vísindamönnunum alltaf því þeir eru jú búnir að rannsaka málið gaumgæfilega áður en þeir birta niðurstöðurnar. Ég legg því hér fram beiðni til mömmu um að gefa mér vel feitt lambakjöt í fríinu, ég er nefnilega í megrun híhíhí.

-Svanhildur | 19:44 | Comments (7)

þjóðfélagsrýnirinn

mér sýnist stefna í svipaða hluti hérlendis og annarsstaðar þar sem ég þekki til. á byggingarstaðnum þar sem ég er að vinna þessa dagana er slatti af útlendingum að vinna iðnaðar- og verkamannavinnu.


ég hef hins vegar orðið vitni að sorglegum rasisma íslendinga. ef eitthvað aflaga fer þá er það "helvítis portúgölunum sem ekkert skilja eða geta" að kenna. ef að þeir tala saman, þá tala þeir of hátt. ef að þeir eru beðnir um eitthvað þá skilja þessir hálfvitar ekkert. ef þeim er kennt eitthvað þá gera þeir það ekki eins og þeir eiga að gera og svo framvegis.


ég efast um að fyrir ári eða tveim síðan hefði ég pælt svo mikið í þessu.

í dag þurfti ég að fara að tæma sokkinn, en þegar ég fór á klósettið þá var það upptekið. ekkert tiltökumál. ég fór til baka og ákvað að fara bara aftur eftir smá stund. þegar ég kom til baka þá spurði einn sem ég var að vinna með hvort það hefði verið upptekið? ég svaraði "já". þá byrjaði hann að bölsóttast að andskotans portúgalarnir væru alltaf á klósettinu. mér fannst þetta nú taka steinunn úr og ég gat nú ekki annað en hlegið að honum og sagði " já þetta er víst alveg ferlegt þarna í portúgal" og hann hváði "hvað?" og ég svaraði " þetta fólk pissar víst og kúkar, það er nú eitthvað annað en við íslendingarnir". hann varð nú hundslegur.


svona finnst mér þetta allt vera. auðvitað er fólk misjafnt, og ekki er ég að segja að þeir séu allir góðir. en hitt veit ég líka að þeir eru ekki allir vondir af því einu að þeir koma frá portúgal.


ég held að þeir sem að láta svona ættu að hugsa málið til enda. þessir menn eru að vinna hérna af því að íslendingar vilja ekki þessa vinnu og trúlega sér verktakinn sér hag í því að geta borgað þeim lægri laun.


þeir eru að vinna þarna á morgnana þegar ég kem og þeir eru enn að þegar ég fer heim. ekki veit ég hvernig þessir búa, en ég veit að portúgalar hjá öðrum verktaka hafast við í vinnuskúr í laugardal.


þessir menn hafa trúlega ekki haft aðgang að jafngóðu skólakerfi og við því portúgal er fátækt land. þess vegna tala þeir kannski ekki mörg mál reiprennandi er það ekki ábyrgð atvinnuveitandans að taka mann í vinnu sem ekki talar okkar tungumál? á hann að taka mann í vinnu sem hann getur ekki notað út frá grundvelli tungumálakunnáttu? mér finnst augjóst hvar ábyrgðin liggur.


svo eru þetta ólík þjóðfélög og það tekur sinn tíma að aðlaga sig og læra á það hvernig hlutir virka.


að lokum: er það portúgölunum 6 að kenna að klósettið er oft upptekið, eða hinum íslenska verktaka sem er með einn ókynntan saurstamp fyrir 30 iðnaðarmenn.


ps. hann pabbi minn á afmæli í dag. hrópum öll ferfalt húrra fyrir honum.

-mundi | 17:25 | Comments (5)

ball ball ball

Eitt af því sem ég sakna alltaf mikið frá Íslandi er að fara á böll. Elska alveg að fara á böll með skemmtilegri hljómsveit. Held þetta sé svolítið séríslenskt, veit alla vega ekki um svona hér. Hér eru bara barir og diskótek og svo hægt að fara á tónleika. Og svo sem ef það væri hægt að fara á böll hér þá væri það ekki eins og að fara á böll heima.


Ég var nú ansi svekkt að missa af Sálarballinu sem Mundi og Torfi fóru á um daginn og er því aðeins búin að vera að skoða heimasíður skemmtisataðanna í leit að góðu balli þennan tíma sem ég verð heima. Er búin að finna eitt ball sem mig langar á: Hljómsveitin Von á Players á jóladagskvöld. Fyrir þá sem aldrei hafa farið á ball með Von þá er það alveg "möst". Frábær hljómsveit, eins og þeir sem voru með á Sigló um verslunarmannahelgina vita. Svo eru einhverjir sem finnst ekki nógu spennandi að fara á Players, finnst að maður þurfi að fara í miðbæinn til að djamma. Ég fór á ball með Í svörtum fötum á Players í sumar og það var alveg rosalega gaman og eiginlega bara fínt að vera ekki í bænum. Þá er maður bara á ballinu og dansar, ekkert flakk á milli staða með tilheyrandi biðröðum og svo bara heim í háttinn eftir ballið, sem er eina vitið. Það eina sem ég get fundið því til fyrirstöðu að fara á þetta ball er að það er á jóladagskvöld og maður því kannski ekkert voða ferskur í jólaboðinu á annan. En þá verður maður bara að passa sig í drykkjunni.


Mig langar sem sagt voða mikið að fara á þetta ball og dansa og syngja en ekkert á neitt fyllerí. Vill einhver koma með?

-Svanhildur | 09:55 | Comments (2)

desember 13, 2004

upptalningarfærsla

það helsta undanfarið:


1. ég er byrjaður að vinna við að mála ingunnarskóla. þar er nóg að gera.


2. gunnar meistari bauð "staffinu" á lækjarbrekku á föstudaginn. byrjuðum á því að fara í keilu. vel heppnað kvöld.


3. hann lánaði mér jeppann sinn og það er frábært. án bíls er ég bjargarlaus.


4. ég er að verða búinn að græja þetta með jólapakkana. gerði það á laugardaginn. notaði jeppann.


5. hins vegar er listinn yfir fólkið sem ég sendi jólakort í frans. sjitt.


6. í dag heimsótti ég grétar og boggu. ég ætlaði aldrei að finna húsið.


7. í kvöld heimsótti ég gunnu og hlyn og borðaði mikið makkíntoss.


8. ég er að safna skeggi. það er orðið talsvert. mig langar að raka það af því að mér klæjar oft í það. ætla samt að reyna að þrauka fram að ammli. nú eða lita það bara hvítt!


9. gunna átti ammli í gær, snæbjörn í dag og pabbi á morgun. ammli ammli ammli.


10. ég er orðinn allt of seinn í háttinn

-mundi | 00:29 | Comments (2)

desember 10, 2004

Illa lyktandi Rússi

Ég bara verð aðeins að fá að segja ykkur frá Rússanum sem býr hérna með okkur. Þetta er voða fínn, skemmtilegur og hjálplegur strákur en hefur einn mjög stóran mínus: sóðaskap. Já þessi mínus er ansi stór því hann verður til þess að maður forðast að umgangast hann. Hann lyktar svo hræðilega illa að maður getur varla verið nálægt honum og vill helst ekki fá hann inn í herbergið sitt því þá fer allt herbergið að lykta og það þarf að opna allt og kveikja á reykelsum þegar hann er farinn. Ég reyndi nú til að byrja með að láta þetta ekki fara í taugarnar á mér og vera ekki vond. Ákvað að sennilega gæti hann ekkert að þessu gert, væri bara með svona svakalega líkamslykt greyið. En svo sá ég inn í herbergið hans og komst að því að maðurinn er bara svona rosalegur sóði og fer örugglega aldrei í sturtu (hann er líka alltaf í sömu fötunum). Herbergið hans er ekki bara svona allt í drasli heldur er það bara fullt af skít. Hann hefur örugglega aldrei þrifið gólfið inni hjá sér (Mundi segist reyndar hafa séð hann gera það einu sinni en hann er nú líka búinn að búa hérna í 3 mánuði) en það sér ekki í gólfflísarnar fyrir skít, gólfið er bara svart, og lyktin þarna inni: slæm blanda af svitalyktinni hans og einhverri annarri vondri fýlu í herberginu. Svo, af því að gólfið inni hjá honum er allt svart og klístrað, þá ber hann þennan skít með sér um allan gang og því ekki lengur hægt að ganga um berfættur eða á sokkum um íbúðina. Þetta er sem sagt mjög slæmt. Ykkur finnst ég kannski vera vond að skrifa þetta og að ég hljóti nú eitthvaða að vera að ýkja en ég get bara ekki orða bundist, ég hefði aldrei trúað því að einhver gæti lifað svona. Þetta er ógeðslegt og nei ég er ekki að ýkja. Manninum væri vorkun ef hann lyktað svona af einhverjum óviðráðanlegum ástæðum en svo virðist ekki vera.


En ástæðan fyrir að ég er að segja ykkur frá þessu núna er að hann kom hérna til mín rétt áðan og sagði mér að vinur hans væri að koma í mat til hans og bauð mér að borða með þeim. Mjög fallega boðið og eins og ég sagði þá er þetta voða fínn strákur fyrir utan þennan eina stóra galla. En ég gat ekki hugsað mér að borða máltíð inni í herberginu hans þar sem það lyktar svo illa og er svo ógeðslegt og ég er heldur ekkert sérstaklega spennt fyrir að borða eitthvað sem hann hefur eldað. Sem betur fer var ég nýbúin að borða þegar hann kom og gat því sagt honum það án þessa að þurfa að ljúga einhverju og lánaði honum svo útileguborðið okkar. Hvað á maður að gera í svona máli? Ekki er hægt að segja manninum að fara í sturtu og skúra gólfið. Þannig að ég reyni bara að þurfa ekki að vera nálægt honum of lengi í einu og fer helst ekki inn í herbergið hans.

-Svanhildur | 20:35 | Comments (11)

desember 9, 2004

Gamaldags Danir

Hvað er nú eiginlega málið með Dani. Ég hélt alltaf að þetta væri háþróuð þjóð og maður heyrir þær sögur að allt sé svo þægilegt í Danmörku, allt svo ligeglad og gott. Spurning hvort þeir hafi orðið aðeins of ligeglad og gleymt sér aðeins. Og já, ég hef mínar ástæður til að vera að dissa Dani.


Í fyrsta lagi þá er þvílíkt vesen að fá orlofið sitt borgað í Danmörku. Það virkar ekki þannig að maður fái það bara lagt inn á reikninginn sinn í maí heldur þarftu að sækja sérstaklega um að fá það borgað, jafnvel þótt þetta séu þínir peningar sem er búið að draga af laununum þínum. Og ef þú sækir ekki um að fá orlofið þitt borgað innan árs þá hverfur það bara. Veit ekki hver fær það, bara Ríkið eða verkalýðsfélagið eða eitthvað. Þetta er náttúrlega alveg fáránlegt. Þar sem ég bý nú ekki í Danmörku og danski pósturinn minn er sendur til tengdó þá bað ég tengdamömmu um að hafa samband við orlofspeningasjóðinn og biðja um að orlofið mitt yrði greytt inn á reikninginn minn. En nei, málið er ekki alveg svo einfalt. Ég þarf að senda bréf og gefa tengdó umboð til að skrifa undir að ég vilji virkilega fá þennan pening. HVAÐ ER AÐ??? Alla vega, þá var ég að senda þetta bréf í dag og fer því vonandi að fara að fá orlofið mitt (við erum að tala um orlof fyrir tímabilið júní-ágúst 2003).


Í öðru lagi, þá erum við Mundi búin að vera að græja flug-og lestarmiða alveg hægri vinstri og auðvitað allt gert í gegnum netið og virkar það ýmist þannig að þú færð miðann sendan heim til þín eða prentar hann út sjálfur. Höfum við góða reynslu af þessu bæði í viðskiptum við frönsk og íslensk fyrirtæki. En svo þarf Mundi að kaupa sér lestarmiða frá Köben til Vejle og þá er hvorki hægt að fá miðann sendan heim né prenta hann út sjálfur heldur þarf að fara á einhverja lestarstöð í Danmörku 8 dögum fyrir brottför og sækja miðann. Enn og aftur spyr ég HVAÐ ER AÐ??? Frekar erfitt fyrir fólk sem ekki er staðsett í Danmörku að framkvæma þetta.


Að lokum má ekki gleyma þessum helv... Dankortum í stað VISA eða EURO. Og svo þarf maður að hafa búið í landinu í eitt ár til að geta fengið DANKORT og verður fram að því bara að nota "hævekort" sem maður getur bara notað til að taka pening út úr hraðbönkum en ekki í búðum. HVAÐ ER AÐ???


Ég vil taka það fram til að koma í veg fyrir misskilning að ég hef ekkert á móti Dönum, finnst þeir fínir, og ég gæti alveg skrifað jafn langan lista og jafnvel lengri um Frakka eða Íslendinga. En þetta þrennt (og þá sérstaklega þessi tvö fyrstu artriði) eru að pirra mig akkúrat þessa stundina svo mig langaði til að losna við pirringinn með því að skella honum yfir á ykkur lesendur góðir.


ps. Ætla engir fleiri að bjóða sig fram í tilraunina mína? Ég skal gefa öllum sem vilja vera með nammi!!!

-Svanhildur | 19:20 | Comments (12)

ta ta ...

hér er bara allt í sóma. ég var að byrja á nýju verki í dag, heljarstór skólabygging í grafarholti verður sennilega það sem ég fæ að fást við þangað til ég flý land á ný og fer á suðrænni slóðir þar sem fjöllin eru há og skíðabrekkurnar langar.


ég verslaði mér einmitt flugmiða áðan, ég flýg til kuben þann 25. jan og svo frá billund til parísar þann 31. jan.

-mundi | 17:59 | Comments (2)

Til allra frönskumælandi sem ég þekki (eða þekki ekki)

Mig vantar sjálfboðaliða sem kunna frönsku (vel eða illa) og eru til í að eyða eins og 15-20 mínútum með mér í jólafríinu. Sjálfboðaliðarnir þeurfa að fara með ca. 10 setningar á frönsku sem ég tek upp á segulband og svo mun ég nota þessar upptökur við rannsókn á hvaða hljóð í frönsku eru Íslendingum erfið í framburði. Ég þekki nóg af fólki sem talar góða frönsku (Margrét, Beta, Guðrún, Jón, Sirrý, Mundi, Rósa: ég treysti á að þið séuð öll til í að hjálpa mér (Heiða og Birta, ég er ekkert að gleyma ykkur en er bara ekki viss um að ég nái neitt að hitta ykkur í jólafríinu)). En ég þarf líka að fá einhverja sem telja sig bara vera svona u.þ.b. "melluflæra" í frönsku, einhverja sem hafa tekið (eða eru að læra) frönsku í framhaldsskóla. Hef ekki eins margar hugmyndir þar: Sara, Hildur, Sólveig, Halli og pabbi eru þau einu sem koma upp í hugann í fljótu bragði, en ég er viss um að ég þekki marga sem hafa framhaldsskólakunnáttu í frönsku án þess að ég kannski viti af því.


Ég treysti á að fá góð viðbrögð við þessari beiðni minni. Endilega látið mig vita með kommentum ef þið eruð til í að taka þátt.

-Svanhildur | 10:27 | Comments (10)

desember 8, 2004

Enn um Star Academy

Haldiði að hún Jennifer Lopez hafi ekki bara ákveðið að lenda þyrlunni sinni á túninu fyrir framan kastalann þar sem keppendurnir í franska Ædolinu búa til að gefa þeim nokkur góð ráð. Ekki amalegt það. Annars var ég að komast að því að úrslitakvöldið verður 22. desember svo ég missi af því og finnst það miður. Er nokkur þarna úti með gervihnattadisk sem nær TF1 og vill bjóða mér í heimsókn þetta kvöld??? Nei annars, ég mun nú hafa svo margt skemmtilegt að gera heima og svo margt skemmtilegt fólk að hitta að ég fer nú sennilega ekkert að eyða heilu kvöldi fyrir framan imbann.

-Svanhildur | 18:51 | Comments (2)

Læri læri tækifæri

Hún Silvía, pólsk besskjarsystir mín, er búin að vera hjá mér í allan dag því við vorum að skrifa ritgerð saman og haldiði ekki bara að við höfum náð að klára. Ekki amalegt það. Þá er bara að bíða og sjá hvað kennarinn segir þegar við skilum henni á föstudaginn. Við vorum nefnilega búnar með þessa ritgerð fyrir löngu en svo kom í ljós að við (eins og reyndar flestir aðrir) höfðum eitthvað misskilið hvað það var nákvæmlega sem kennarinn vildi að við gerðum. Þannig að við máttum gera allt upp á nýtt (gátum notað eina blaðsíðu úr fyrri ritgerðini). En við vorum sko ekkert að sluxa við þetta heldur rumpuðum Þessu bara af. Ég er svo rétt um það bil að klára annað skilaverkefni svo það grynnkar óðum á verkefnaskilunum hjá mér, sem er hið albesta mál.

-Svanhildur | 16:03 | Comments (2)

desember 7, 2004

Jibbý jei, ég er komin í samband við umheiminn

Hann elsku besti Jón var rétt í þessu að tengja mig við netið. Nú er ég tengd í gegnum Tele2 svo ég mun sennilega halda mig við þá og drífa í að segja upp áskriftinni hjá Frence Telecom. Mér hefur ekki enn tekist að tengja mig í gegnum þá en Tele2 sendi mér "password" til að tengjast þeim í gær.


Ég hef ekki getað stillt mig um að blogga smá þessa daga sem ég hef verið án netsins og hendi því inn tveimur færslum frá fimmtudegi og laugardegi.


Laugardagsblogg


Ég var ekki búin að segja ykkur frá því að ég fékk vinning í Happdrætti Háskólans um daginn, heilar 4000 krónur! Af því tilefni ákvað ég að skella mér í bæinn í dag og kaupa mér eitthvað skemmtilegt fyrir vinninginn. Mér finnst alltaf voða gaman að rölta um bæinn á laugardögum því þá er alltaf svo mikið um að vera og ekki minnkar það nú þegar líða fer að jólum. Nú er búið að byggja jólaþorp úr litlum sætum bjálkahúsum á öllum torgum bæjarins og þar selur fólk ýmsan varning. Svo er búið að kveikja á jólaljósunum en það verður nú að segjast að það er ekki alveg nógu dimmt hérna á daginn til að ljósin gefi mikla stemningu. En það var voða kósý að labba um bæinn og mér tókst að eiða vinningnum og rúmlega það. Missti mig aðeins í bókabúðinni og kom heim 7 bókum ríkari og 12000 krónum fátækari. Ég þarf sem sagt að fá tvo nýja vinninga í happdrættinu (væri nú samt allt í lagi að fá bara einn aðeins stærri). Ég held ég sé búin að kaupa mér u.þ.b. 20 bækur í vetur og allar tengjast þær náminu. Langar í allavega 40 bækur í viðbót en reyni að taka þetta svona í smá skömmtum og hef aldrei keypt eins margar í einu og ég gerði í dag. Ætla núna að fara að glugga í nýju bækurnar mínar og reyna að nýta þær til að vinna verkefni upp á 10.


Fimmtudagsblogg


Nú (fimmtudaginn 2. desember) er ég ekki búin að komast inn á netið í 3 daga og er farið að líða alveg hræðilega sökum þess. Ég er búin að komast að því að ég er orðin háð því að kíkja á netið á hverjum degi, sérstaklega þegar maður er svona einn í útlöndum þá er alveg ómissandi að geta spjallað við fólk á msn, blogga, lesa annarra manna blogg og kíkja á mbl. Svo er ég líka vön að afla mér heimilda á netinu fyrir verkefni sem ég er að vinna svo að þetta er alveg hræðilegt ástand.


Til að létta aðeins á bloggþörfinni ákvað ég að blogga aðeins núna í Word og afrita það svo yfir á síðuna okkar Munda þegar netið kemst aftur í gagnið. Ég var rétt í þessu að koma frá France Telecom (netþjónustan okkar) til að reyna að koma þessu í lag og því miður þá tekur það víst 3 daga. Þetta er þó ekki þeim að kenna. Málið er að önnur símafyrirtæki eru búin að vera að bjóða betri verð og við Mundi ákváðum að skipta um þjónustu og fara að borga aðeins minna á mánuði. Ég fyllti út eitthvað blað fyrir tveimur mánuðum og sendi á ódýra símafyrirtækið en svo hefur ekkert gerst og við Mundi ákváðum að vera bara áfram hjá France Telecom þar sem þeir eru með góða þjónustu. Svo allt í einu á þriðjudaginn þá komst ég ekki inn á netið. Ég hélt þetta væri bara eitthvað vesen sem myndi lagast að sjálfu sér en þegar netið var enn óvirkt í dag ákvað ég að þetta gengi ekki svona lengur og fór og talaði við þá hjá France Telecom. Þar fékk ég frábæra þjónustu eins og vanalega og komst að því að ég var ekki lengur á skrá hjá þeim heldur hjá hinu fyrirtækinu, sem hefur þó aldrei sent mér neitt “installation kit” svo að ég kemst ekkert inn á netið í gegnum þeirra þjónustu. Allavega, þá ætlar France Telecom að redda þessu fyrir mig en það tekur víst 3 daga, sem mér finnst nú ansi langt og þeir fá smá mínus út á það, en ég er samt að gera mér vonir um að þetta taki eitthvað styttri tíma því þegar við byrjuðum hjá þeim þá sögðu þeir að það myndi taka 2 daga að fá símalínuna til að virka en svo tók það bara einn dag.


En ég ætlaði nú ekki bara að segja ykkur frá þessu veseni. Vildi líka segja ykkur hvað á daga mína hefur drifið frá því ég skrifaði síðast. Ég fór sem sagt í partý þarna á mánudagskvöldið og það var voða gaman og ég verð að fá að monta mig aðeins. Það elskuðu allir túnfisksalatið mitt, allir voru að biðja mig um uppskriftina og ég fór með fullt eins líters ísbox af salati og það var ekki lengi að klárast (samt vorum við bara 13). Verð líka að koma því að, af því það er svo oft talað um að Íslendingar kunni ekki að drekka, að ég er búin að komast að því að aðrar þjóðir eru ekkert skárri. Við vorum nú fljót að komast að því í Danmörku að Danirnir eru ekki hótinu betri en við Íslendingar þegar kemur að drykkju. Og svo í þessu partýi þá drapst nú einn strax klukkan níu. Það var þó ekki áfengisdauði heldur hassreykingadauði og ekki tel ég það nú vera mikið skárra. Svo voru allir strákarnir alltaf að skála í botn og skipti þá engu máli hvort það var hvítvín, rauðvín eða romm í glösunum. Þeir voru sem sagt ekki lengi að komast á skallann. Ég var hins vegar voða góð og róleg stelpa, þótt reyndar þetta eina rauðvínsglas sem ég ætlaði að drekka hafi endað í einum bjór, einu hvítvínsglasi og þrem rauðvísglösum. En ég virðist vera komin með svo gott þol eftir þessa Frakklandsdvöl mína að ég fann nú bara svona pínu á mér. En ég skemmti mér sem sagt vel en dreif mig heim klukkan ellefu og var komin í háttinn fyrir tólf. Vaknaði svo eldsnemma á þriðjudagsmorgninum, renndi yfir glósurnar mínar og dreif mig í prófið og gekk bara vel. Það er kannski bara gott að fá sér aðeins í glas fyrir próf, fær mann til að slaka á og sofa vel.


Eftir prófið fór ég í bæinn í fataverslun sem ég hafði keypt mér gallabuxur í fyrir rúmum mánuði. Það kom gat á þær fyrir nokkrum dögum, algjörlega upp úr þurru, ég hafði ekki rekið mig í neitt eða neitt svoleiðis. Svo ég fór í búðina með buxurnar og sagði að mér þætti þetta nú ekki mjög góð ending. Afgreiðslukonan bauð mér þá að velja mér eitthvað annað í staðin. Ég mátaði og mátaði buxur, því mig vantar buxur, en fann engar góðar og endaði á því að kaupa mér pils. Er svolítið svekkt yfir að þetta hafi farið svona með buxurnar því ég elskaði þær og var búin að vera í þeim nánast á hverjum degi frá því ég fékk þær. En ég er líka voða ánægð með nýja pilsið mitt og er sátt við þjónustuna sem ég fékk í búðinni. Ætla að skreppa í Vera Moda þegar ég kem til Íslands því ég keypti mér buxur þar í sumar og rennilásinn eyðilagðist eftir mánuð. Spurning hvort þær verði jafn almennilegar þar (og ég er alls ekki að fara fram á að þær leyfi mér að velja mér nýjar buxur, bara að þær skipti um rennilás án þess að ég þurfi að borga fyrir það).


Annars hefur svo sem ekki mikið á daga mína drifið, er búin að vera dugleg að læra á daginn og glápa á sjónvarpið á kvöldin. Fékk samt mjög skemmtilegt símtal í fyrradag þegar hún Margrét frönskuskvísa hringdi í mig. Þetta má samt ekki misskiljast, alltaf voða gaman að fá símtöl frá mömmu, pabba og Munda en þetta var bara svo óvænt og gaman. Takk takk fyrir að hringja Magga mín. Þetta má heldur ekki misskiljast þannig að nú eigið þið hin að fara að hringja meira í mig. Ég hringi sjálf nánast aldrei í neinn og ætlast alls ekki til að það sé verið að hringja í mig. Það er nú einu sinni ástæðan fyrir að við erum með netið, þ.e. til að geta haldið sambandi við fólk án þess að það setji okkur á hausinn. Þannig að þetta má alls ekki misskiljast.


Jæja, þetta er orðið ansi langt blogg og Bravó! ef þú ert enn að lesa. Ætla að segja þetta gott í bili og vona að ég komist á netið sem fyrst. Fer bara að læra og horfa á sjónvarpið þangað til.

-Svanhildur | 09:44 | Comments (9)

desember 6, 2004

allt eins

enn engin færsla hér frá frakklandi og því tel ég líklegt að france telecom séu ekki enn búnir að tengja hana svanhildi mína aftur.


annars allt með rólegasta móti í kópavogi og lítið að frétta. helst þó það að ég og torfi fórum á ball með sálinni á laugardaginn. sálin brást ekki dyggum aðdáendum sínum til fjölda ára og fór á kostum eins og vera ber. og ekki skemmdi nú fyrir nærvera lúðraþeytara jagúar. frábært ball - allt eins og það á að vera.


jens - komdu með fagottið.

-mundi | 21:16 | Comments (1)

desember 3, 2004

nettengingin í frakklandi

ég var að fá símtal frá svanhildi. það lítur út fyrir að nettengingin komist aftur í gagnið hjá henni á mánudaginn. ástæðan fyrir þessu var víst sú að við töluðum við netveituna tele2 fyrir löngu löngu síðan og ætluðum að fara að skipta við þá. frá þeim höfum við síðan lítið heyrt og ekki fengið neinar upplýsingar um það hvernig á að tengjast eða slíkt. svo tóku þessir jaxlar sig til og klipptu á sambandið okkar við hina þjónustuna, hjá france telecom.

svanhildur er búin að gefa þessum ösnum hjá tele2 langt nef og talaði við france telecom um að tengjast þeim aftur. það gerði hún í dag og þeir lofuðu henni að það yrði gert strax á mánudag.

-mundi | 20:57 | Comments (2)

nú snjóar... jeiiiiii

héðan er lítið að frétta. fór og synti smá sprett eftir vinnu og eyddi svo kvöldinu við kvikmyndagerð með torfa. hann var að gera nokkurskonar heimildamynd fyrir jólagleði vinnunnar. klippivinna og hljóðsetning voru verkefni kvöldsins. frumraun okkar beggja í þeim efnum. verkið verður svo lagt í dóm samstarfsmanna hans á morgun.


ég heyrði í svanhildi í gær. hún hafði samband símleiðis og það var ágætt í henni hljóðið fyrir utan það að nettengingin okkar í frans er í tómu tjóni og hún er sambandslaus við umheimin. ég vona bara að henni takist að koma netinu í gang aftur því ekki er nú gaman að vera eini íslendingurinn í grenoble og hafa hvorki morgunblaðið eða rúv á netinu.

-mundi | 01:20 | Comments (2)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni