Sunnudagur 14. nóvember

Vel heppnað föstudagskvöld

Í tilefni afmælisins fórum við út að borða á voða fínan veitingastað sem okkur hefur langað til að prufa frá því við komum hingað en höfum aldrei leyft okkur það því hann er ansi dýr, allavega á franskan mælikvarða. Við ákváðum fyrst við vorum komin þangað á annað borð að gleyma sparnaði þetta kvöld og fengum okkur þvílíka nautnaseggja máltíð og fengum okkur dýrasta "menúinn" á matseðlinum (það má kannski taka það fram að þessi staður sérhæfir sig í norskum réttum): fyrst fengum við kir royal í fordrykk og litla villisveppasúpu í for-forrétt, þvínæst kom forrétturinn: risadiskur fullur af ýmis konar hreindýrakjöti: reykt hreindýrakjöt, hreindýrakjötspylsa, hreindýrapaté o.fl. ásamt marineruðu nautakjöti, salati, tittuberjasultu, smurosti og steiktum lauk (sem vakti mikla lukku hjá Munda). Þessi réttur var tær snilld og slær allt út, fær 10 af 10 mögulegum í einkunn. Í aðalrétt var svo hreindýrasteik (mjög góð líka) og ég fékk mér svo ís í eftirrétt en Mundi sítrónusorbet með ákavíti út á (það var mjög gaman að horfa á svipinn á Munda þegar hann borðaði þetta: mjög súr sorbet með mjög sterku áfengi, verð að segja að mér fannst þetta ekki spennandi réttur en Mundi var sáttur). Eftir matinn var svo drukkið kaffi og að sjálfsögðu einn snafs af ákavíti. Þetta var sem sagt hrein snilld og ég fæ bara vatn í munninn við að skrifa þetta.


Þvínæst kíktum við aðeins á barinn og vorum svo á heimleið þegar við rákumst á Hagen (sem býr með okkur). Við ákváðum að kíkja aðeins 3 saman á annan bar og dönsuðum þar þangað til við vorum orðin þreytt og ákváðum að rölta heim, ánægð eftir vel heppnað kvöld.


Gærdagurinn var svo hinn fullkomni letidagur með tilheyrandi videoglápi.

- Svanhildur | 08:22
Umræður

sara:

va, en ædislegt. hljomar ekkert sma flottur kvoldmatur og bara eins og thu segir, velheppnad kvold. samgleds ykkur.

annars sit eg upp i skola ad vinna i verkefni. stud. var einmitt vakin i nott, eda i morgun vid gluggabank vinar mins, sem var of fullur og illa lyktandi til ad fara heim til sins. og thar sem eg by i midbænum og er tiltolulega agæt manneskja hleypti eg honum inn. eg hefdi betur latid thad ogert, thvi ekki fekk eg svefnfrid fyrir vondri lykt og hrotum. var thvi fljot ad forda mer upp i skola i morgun.
kv. sara

(14.11.04 11:14)

Torfi:

... lukke

(15.11.04 08:21)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni