Fimmtudagur 4. nóvember

svo bregðast krosstré sem önnur

nú er ég ekki sáttur við málgagnið. eins og það hefur nú verið notalegt hérna í útlandinu að geta lesið um það sem er að gerast heima á klaka. það er aðeins hinn norðlenski hreimur og ómþýða rödd Gests Einars í morgunútvarpinu sem tekur morgunblaðinu fram í net-nostalgíu íslendinga á erlendri grund.


nú er mogginn hins vegar farinn að heimta æ oftar að maður gerist áskifandi. það er varla hægt orðið að lesa nokkuð að gagni á mbl.is án þess að upp komi gluggi sem segir manni að nú þurfi að borga og svo er manni bent á að smella á hnapp sem veitir manni leyfi til að gefa upp kreditkortanúmer.


- auðvitað hefur maður engan rétt á að vera að væla þetta, þetta er einkarekið blað í harðri samkeppni og engin ástæða fyrir það að vera að gefa mér upplýsingar. maður ætti sennilega frekar að þakka þann tíma sem maður hefur haft aðgang að þessu fyrir ekki neitt.


visir.is bragðast bara ekki eins vel með kaffinu !

- mundi | 16:36
Umræður

Svanhildur:

Jú jú. Ég er komin í mótmælaaðgerðir gegn mbl.is og er farin að lesa visi.is meira. Þar er líka hægt að lesa Fréttablaðið eins og það leggur sig á pdf formi og er það vel.

(04.11.04 17:14)

sara:

djofusins..

(05.11.04 00:35)

jons:

Já þetta er skita, líklega tapa þeir talsverðri markaðhlutdeild á þessu á endanum og þannig auglýsingartekjum.

(05.11.04 08:40)

Torfi:

... sjaldan lýgur almannarómur - en mogginn aldrei.

... en hann heldur hinsvegar stundum kjafti ef ekki passar að segja frá :)

(05.11.04 09:19)

Ziggy Flotti:

Étur þú blöð á morgnanna mundi???

(05.11.04 10:33)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni