Sunnudagur 28. nóvember

Lærdómur

Var að enda við að æla einu nokkuð stóru verkefni út úr prentaranum. Er búin að vera að vinna að þessu lengi og það er alltaf jafn góð tilfinning þegar maður tekur ákvörðun um að nú sé þetta orðið gott og ýtir á "print"takkann.


Ég er bara búin að sitja við tölvuna og læra alla helgina og því lítið að frétta, nema ef þið viljið fá upplýsingar um mun á franskri og íslenskri hljóðfræði og hvaða vandræði þessi munur getur haft í för með sér fyrir Íslendinga sem reyna að tala óaðfinnanlega frönsku. Efast um að margir hafi áhuga á að vita meira um þetta svo ég ætla bara að kveðja ykkur í bili og fara að byrja á næsta verkefni: fara að skoða hvernig mismunandi kennslubækur kynna nemendur fyrir passé composé og imparfait. Jæja, best ég hætti áður en ég drep ykkur úr leiðindum.

- Svanhildur | 17:08
Umræður

sara:

spennandi.
au revoir

(28.11.04 20:32)

Spilda:

Vá mig langar að sjá þennan franska ædol þátt, gæti alveg trúað því að þetta væri eitthvað fyrir mig. Gangi þér vel með imparfaitið :)

(29.11.04 11:14)

Svanhildur:

Já Hildur, þetta er voða skemmtilegt.
Takk fyrir kveðjuna, þetta á örugglega allt eftir að ganga voða vel : )

(29.11.04 12:02)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni