Laugardagur 27. nóvember

fyrstu íslandsfréttir

fyrsti dagur, eða öllu heldur dagspartur hér í höfuðborginni er þá senn liðinn. ég er nú búinn að ná að gera margt enda sólarhringurinn að verða langur í þetta skiptið. torfi náði í mig á bsí og svo fengum við okkur pylsu með öllu í tilefni af því. gott ef ekki tvær. það þykir mér nú ekki sérstaklega slæm fæða. svo horfðum við á stórmyndina maximum overdrive og að því loknu ákváðum við að skella okkur á næturlífið.


sáum fræbblana og botnleðju á gauknum og fórum svo í dúndrandi rokk á 22 þar sem einn ískaldur túborg til viðbótar var innbyrtur. við erum rétt komnir hingað heim til torfa, og nú er ég að fara að sofa og ætla að sofa frameftir því ég held að ég sé að verða svefnvana!!

góða nótt.

- mundi | 04:15
Umræður

Ziggy Flotti:

Samt er mun betra að verða svefnvana en andvana, nú eða verða vanaður það er sennilega það versta!!

(27.11.04 11:09)

Svanhildur:

Mér sýnist þú hafa náð heilum sólarhring á svefns.
Alltaf gaman á Gauknum og 22, hlakka til að fara að djamma á þessum stöðum í jólafríinu.

(27.11.04 13:38)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni