fréttaþörf nútímans
við erum komin til baka úr fjallaferðinni. framlengdum um einn dag. þar var alveg ágætt að vera að vanda þrátt fyrir heldur meiri kulda þar en hér. en þá var lítið annað að gera en að fara úr að ofan og höggva í eldinn.
þegar maður kemur til baka og opnar miðilinn þá kemst maður að því að á landinu eina sanna eru olíuskandalar og eldgos, sáttatillögur og gott ef ekki er verið að segja frá amerískri pólitík. lífið í fjöllunum er heldur einfaldara, þar veit maður það eitt að sólin kemur upp í austri í fyrramálið.
Torfi:
...sumir vita það ekki einusinni :|
(02.11.04 17:48)
sara:
heyr heyr. fjollin bua yfir meiri visku og frettum en frettastofurnar nokkurn timann.
kossar og knus
(02.11.04 21:09)
Ziggy Flotti:
Enda hafa fjöllin vakað í þúsund ár!!
(03.11.04 08:16)
Torfi:
hvað sér maður ef maður rýnir inn í bergið ?
(03.11.04 12:50)
mundi:
og hvaða mál talar hún??
(03.11.04 14:15)