Föstudagur 26. nóvemberFranska ÆdoliðNú er Mundi kominn til Íslands og bara rétt rúmar 3 vikur í að ég komi heim. Hlakka alveg rosalega mikið til. Ótrúlega stutt í þetta og vantar víst ekki verkefnin sem ég þarf að vinna á þessum 3 vikum. Mér ætti því ekki að gefast tími til að leiðast án Munda míns þótt ég sé nú strax farin að sakna hans. En þar sem hann er ekki hérna núna þá nýti ég tækifærið og horfi á Star Academy án þess að hafa hann hérna röflandi yfir öxlina á mér hvað þetta sé nú glatað. Já það er nú bara gott að fólk hefur misjafnan smekk en ég er alveg veik fyrir svona raunveruleikasjónvarpi. Þessi þáttur er sá lang lang vinsælasti í frönsku sjónvarpi og minnir á Ædolið en hér þurfa keppendur að búa saman og eru í þvílíkri þjálfun, bæði söng, dans og tjáningu og það er klukkutímaþáttur á hverjum degi þar sem maður sér það helsta sem gerst hefur yfir daginn. Svo eru svaka tónleikar einu sinni í viku og þá syngja alltaf einhverjir frægir með þeim, í síðustu viku var það Seal, þarsíðustu viku Tina Turner og í kvöld er það Kylie Minouge (skrifar maður það svona?) og í lok tónleikanna er svo einn kosinn út. Nema hvað, kvöldið í kvöld er sérstaklega spennandi því það eru bara 6 eftir og 2 verða kosnir út í kvöld. Ég spái því að það verði Sofiane og Sandy. Hvað heldur þú Heiða (þú ert sú eina sem veist um hvað ég er að tala, annars gæti ég nú alveg trúað Betu til að laumast á netið öðru hvoru til að fylgjast með þessu). En jæja, nú ætla ég að fara að poppa með honum Poppy mínum og koma mér vel fyrir fyrir framan tækið. - Svanhildur | 20:29
Umræður
Beta: hmmmm, væri sko alveg til í að vera með TF1 til að geta fylgst með þessu frábæra sjónvarpsefni! Og nei, ég hef ekki kíkt á þetta héðan, einhvern veginn passar það ekki ..... (26.11.04 23:51)
sara: hæ, eg er med einhverjar franskar stodvar. TF1 segidi.. kiki kannski a thetta. klukkan hvad er thetta? sænska idolid var nefninlega ad klarast i kvold, og thad var svakalega spennandi og gott, og minn gutti vann!!! svo nuna vantar mig eitthvad annad til ad sokkva mer ofani. (26.11.04 23:54)
Svanhildur: Já þetta er á TF1 mánudaga - föstudaga klukkan 19 og laugardaga klukkan 18. En það er nú sennilega ekki skemmtilegat að horfa á það nema maður skilji frönsku ágætlega. En svo á föstudagskvöldum milli klukkan 21 og 23:30 þá eru tónleikarnir og þá skiptir litlu máli hversu mikið maður skilur. (27.11.04 09:32)
Heiða: váaa þú spáðir rétt! já ég er sko alveg sammála þér...ferlega gaman að horfa á þetta...mér finnast líka klukkutímaþættirnir á hverjum degi býsna skemmtilegir...fínt að þú getur núna horft á þetta í rólegheitum;) (27.11.04 15:51)
jons: Haha, við höfum bara ekki kveikt á sjónvarpinu okkar í langan tíma, nema til að spila Pacman. Spurning um að fara að kíkja á þetta. (29.11.04 09:09)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Yfir móðuna miklu
Síða í dauðateygjunum? Jólaútilegan 2007 Gleðileg Jól Að eiga erindi Fyrir utan Hamrahlíðina í dag... Nú bar vel í veiði Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|