Laugardagur 20. nóvember

Fjallaferð

ég kom hingað heim aftur í gærkvöldi með rútunni ofan úr fjöllunum. þar átti ég ágæta törn með purdy og svo var það auðvitað fjallgangan á fimmtudaginn.


þetta var nú sennilega sú sverasta sem ég hef farið í hérna, gengið úr 1500m í 2700m. og þar með alveg upp að jökli. þar sem skriðjökullinn hefur hopað er nú stöðuvatn sem var frosið og við gengum á því að jöklinum. gengum aðeins á jökulinn líka svona til prufu. svo var tekin allt önnur stefna heim, gengið utan í fjalli og yfir á nokkurskonar hrygg. það var nánast heiðskýrt þennan dag svo útsýnið var stórkostlegt, mont blanc blasti við okkur í allri sinni dýrð, sá tindur enda rúmum 2000m ofar !!. eins sáum við vel yfir til ítalíu. að endingu röltum við okkur niðurímót í áttina heim. þar gengum við óvænt fram á steingeit en hún var í klettunum fyrir neðan okkur. það var hreint ótrúlegt að sjá þetta kvikindi athafna sig í snarbrattri hlíðinni en skömmu áður vorum við búnir að sjá hóp af einhverri annarri villigeitategund.


þetta var 10 klst labb, og fæturnir mínir voru búnir að fá alveg nóg af skónum þegar þessu var lokið, setti persónulegt met í "kjöt-blöðrum" . nettur sólbruni og varaþurrkur. en þetta var alveg magnaður dagur og ég er farinn að hlakka til næstu ferðar.

- mundi | 12:02
Umræður

sara:

veit ekkert hvad eg ætla ad segja, en mer finnst mjog gaman ad lesa ad thu hafir gengid a fjalli. virkar mjog skemmtileg reynsla. til hamingju.

(20.11.04 12:32)

Torfi:

... ég hélt að það ætti að vera jeppi á fjalli...

... en það verður víst að notast við bífurnar stundum :-)

(22.11.04 08:41)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni