Þriðjudagur 30. nóvember

farir ekki sléttar...

...nei fjarskiptin hafa ekki verið að gera sig. í gær ætlaði ég að henda inn færslu hér en þá sagði netið upp störfum og lítið varð því af framkvæmdum.


í dag átti ég hins vegar stórleik með símann minn. ég ákvað að fara nú loksins og kaupa mér inneign á þetta bévítans frelsi. á rölti mínu heimáleið keypti ég kort af sverustu gerð fyrir 2 grönd, ég nenni ekki að vera sífellt að "hlaða" þetta drasl. þegar ég svo ætlaði að hlaða því inn á apparatið en þá var mér tjáð að ég hefði slegið inn rangt númer, sem var bara ekki rétt, ég aðgætti og það var alveg rétt, svo ég reyndi aftur. en þá fór minn gamli lúni sími eitthvað að gefa sig, úr honum komu hin undarlegustu hljóð, surg og brak og svo fraus hann bara, ég gat hvorki kveikt né slökkt. svo ég stakk honum í rassvasann ásamt kortinu nýja og gekk áfram mína leið. ég ákvað svo að skoða símann skömmu seinna og þá var allt eins og ég stakk honum aftur í vasann. þegar ég svo komst í hús þá ætlaði ég að reyna. þá var kortið bak og burt. sennilega hoppað upp úr vasanum þegar ég aðgætti símaapparatið í seinna skiptið.


því stend ég enn uppi inneignarlaus og nú líka með ónýtann síma... merde.


þess utan hafa tveir síðustu dagar verið ágætir. það hafa bara verið unnir 8 tímarnir. ég sá mér því leik á borði og svamlaði nokkra metra í laugardalnum í dag eftir vinnu. pottaði mig á síðan. eftir kvöldmatinn fórum ég og Snæbjörn svo í bíó því það eru franskir sakamálamyndadagar í háskólabíó. við sáum ágæta ræmu, hún var sannarlega í frönskum anda, menn með vín í glasi, mikill fúkyrðaflaumur, ofbeldi og nekt í aðalhutverkum.

læt þessu lokið að sinni - lifið heil

- mundi | 22:54
Umræður

Torfi:

.. þú mátt fá gamla símann minn, farðu bara fram á gang og inní eldhús... hann liggur á bekknum við hiliðina á brauðristinni - nýhlaðinn, grænn og gauraður.

:-)

(01.12.04 08:19)

Ziggy Flotti:

Ja ekki ruslið í þeim frönsku, þeir vita hvað menn vilja sjá og ekki endilega happy ending!

(01.12.04 08:48)

jons:

jámm, gott ef þessi sími er ekki búinn að borga sig upp nokkru sinnum!

(01.12.04 09:47)

bjössi:

Mundi, ertu farinn að halda að franskar bíómyndir séu góðar????þú ert búinn að vera of lengi þarna, drengur...;)

(01.12.04 15:23)

Torfi:

... alltof lengi - það verður farið í aðgerðir vegna þessa, snarlega.

(01.12.04 16:37)

Ziggy Flotti:

Nei það er kórrétt hjá pilti, franskar myndir eru ótrúlega margar snilld! Amelíe, City of lost children, delicatessen og svo videre!!

(01.12.04 17:10)

Torfi:

... city of lost children... Siggi minn, elsku kallinn - ég held það það sé bara þú sem ert "lost" - börnin eru löngu komin heim og farin í háttinn....

(01.12.04 22:00)

Jón Gunnar:

Hvernig á maður þá að ná sambandi við þig ef maður vill fá þig með í jólabjóra smakk eitthvert kvöldið Mundur... senda þér bréfdúfu?

(02.12.04 12:01)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni