enn til fjalla
þá er þessi helgi senn á enda og ansi var hún nú eitthvað snubbótt og stutt. ég er búinn að eyða megninu af deginum í það að snúast með bíllausa þjóðverja. það hefur reyndar verið ágætt að brasast í því meðan svanhildur hefur verið að læra.
eldsnemma í fyrramálið fer ég svo til fjalla á ný og gisti þar eina nótt. aðeins að brasa meira fyrir gonna. ég er alls ekki að nenna því í þetta skiptið, af því að ég held að þetta verði einhver atvinnubótavinna í boði frúarinnar geðgóðu í þetta skiptið. en vonandi ekki.
góðar stundir
Torfi:
góðar stundir sömuleiðis bara.....
(22.11.04 08:43)
Ziggy Flotti:
Jamm ertu nokkuð kominn í samkeppni við Fjalla Bensa??
(22.11.04 11:06)
Bjössi:
passaðu þig á geitunum...
(23.11.04 09:10)
jons:
Verst að við náðum aldrei að hitta frúna góðu!
(23.11.04 15:51)