Þriðjudagur 23. nóvember

ég kem alveg af ...

já maður kemur af fjöllum. og ekki í fyrsta og vonandi ekki í síðasta sinn. því betur var hræðsla mín við atvinnubótavinnu frúarinnar ástæðulaus, gonni sjálfur tók völdin og ég er búinn að sinna ýmsu þarna sem ekki tilheyrir íslenskri skilgreiningu á málaravinnu.


ég er orðinn alveg ófeiminn við að segja bara já þegar kallinn spyr mig hvort ég kunni þetta eða hitt, af því að hér í landi er held ég lagður allt annar skilningur í það að "kunna" eitthvað. því var ég að sinna flotspörslun, flísalögn og uppsetningu og eingangrun á gifsveggjum í þetta skiptið. svo kvaddi ég kallinn og óskaði honum gleðilegra jóla árs og friðar. allt eins og það á að vera.


þegar maður kemur svo heim, þá fær maður sér salat, kjöt og ost og rauðvínsglas með. kveikir á fréttatíma rúv á meðan að maður snæðir til að taka púlsinn á því sem er að gerast. ég skil ekki alveg hvaða dæmi er í gangi núna með þennan bruna. mér virðist eins og að þarna hafi einfaldlega kviknað í drasli og það er bara allt brjálað. enginn lét lífið, enginn slasaður, helsta málið er sót í gluggakistum á kleppsvegi. æstur fréttamaður spurði rólega húsmóður um allt tjónið, og hún svaraði því að hún þyrfti sennilega að þvo gluggatjöldin! mér þykir rúv sem að maður hefur treyst á í gegn um tíðina hafa sett niður þegar það hagar sér eins og lélegt breskt æsifréttblað. ...talar ekki um annað en það sem hefði getað gerst. hvað eiga þeir eftir að segja ef að það virkilega verður bruni með mannskaða og verulegu eignatjóni?? mér finnst þetta skrýtið, en kannski er ég bara ekki að gera mér grein fyrir alvarleikanum héðan úr 3000 km fjarlægð. kannski bara gúrka...


nú fer hins vegar að styttast verulega í vist minni hérna þetta árið, flug heim á föstudag. þannig að á morgun og hinn verða snúningar til að græja það sem þarf að græja. svo gleymir maður auðvitað flestu! ég fékk hinsvegar boðun á þorrablót í mývó þann 22. janúar og þakkaði það vel, fátt er betra en þorrahátíð í þeirri sveit, svo fer maður þaðan hingað í blússandi skíðavertíð. úlla la....


að lokum langar mig að benda á skemmtilega klausu sem góður vinur minn frá íslandi benti mér á. mér skilst að síðuhaldari sé sveitungi hans sem staðsett er í frakklandi eins og fleiri um þessar mundir. smellið á -þetta-

- mundi | 19:51
Umræður

jons:

Já, mér sýnist að hinn svokallaði íslenski alltmuligmann hafi álíka miklá sérþekkingu á hverju sviði og "sérfræðingarnir" á sínu sviði hér! Held þú ættir bara að stofna fyrirtæki sem býður Alhliðalausnir á öllum vandamálum. Ekki málið!

(23.11.04 21:37)

Torfi:

fúsk -

... er oft alveg helvíti gott !

(24.11.04 08:19)

Ziggy Flotti:

Jamm það er orðið svo langt síðan að það urðu hamfarir hérna að við verðum að nota okkur brunan til að metta æsifréttamennina!! (Þetta var víst töff eldur, stóðu eldtungurnar yfir Sæbrautina og alles).

(24.11.04 09:33)

batgirl:

ég er sammála þér bróðir, þessi æsifréttamennska er að verða frekar ýkt, mér finnst stöð 2 samt verri í þessum málum en rúv. og eins og þegar olíu-borgarstjóra-vesenið var þá voru fréttamennirnir alveg hrikalegir við þórólf maður skammaðist sín fyrir þeirra hönd!!!

(24.11.04 21:53)

batgirl:

og þetta með allt "fúskið" geturu ekki bara stofnað svona "handlaginn heimilisfaðir" fyrirtæki sem tekur að sér alla svona smiða-pípara-málara-allt muglig- vinnu?!?!?! ættir að græða á því....stíla inná karlmannslausu konurnar sem hafa engan til að sjá um þetta fyrir þær. var ekki einu sinni svona fyrirtæki einhversstaðar út í heimi sem hét rent a husband??!?!?!?! hehehehhehehehe

(24.11.04 21:56)

mundi:

jú ég ætti kannski bara að kaupa mér köflótta skyrtu og starta þessu ha?

(25.11.04 09:12)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni