nóvember 30, 2004

farir ekki sléttar...

...nei fjarskiptin hafa ekki verið að gera sig. í gær ætlaði ég að henda inn færslu hér en þá sagði netið upp störfum og lítið varð því af framkvæmdum.


í dag átti ég hins vegar stórleik með símann minn. ég ákvað að fara nú loksins og kaupa mér inneign á þetta bévítans frelsi. á rölti mínu heimáleið keypti ég kort af sverustu gerð fyrir 2 grönd, ég nenni ekki að vera sífellt að "hlaða" þetta drasl. þegar ég svo ætlaði að hlaða því inn á apparatið en þá var mér tjáð að ég hefði slegið inn rangt númer, sem var bara ekki rétt, ég aðgætti og það var alveg rétt, svo ég reyndi aftur. en þá fór minn gamli lúni sími eitthvað að gefa sig, úr honum komu hin undarlegustu hljóð, surg og brak og svo fraus hann bara, ég gat hvorki kveikt né slökkt. svo ég stakk honum í rassvasann ásamt kortinu nýja og gekk áfram mína leið. ég ákvað svo að skoða símann skömmu seinna og þá var allt eins og ég stakk honum aftur í vasann. þegar ég svo komst í hús þá ætlaði ég að reyna. þá var kortið bak og burt. sennilega hoppað upp úr vasanum þegar ég aðgætti símaapparatið í seinna skiptið.


því stend ég enn uppi inneignarlaus og nú líka með ónýtann síma... merde.


þess utan hafa tveir síðustu dagar verið ágætir. það hafa bara verið unnir 8 tímarnir. ég sá mér því leik á borði og svamlaði nokkra metra í laugardalnum í dag eftir vinnu. pottaði mig á síðan. eftir kvöldmatinn fórum ég og Snæbjörn svo í bíó því það eru franskir sakamálamyndadagar í háskólabíó. við sáum ágæta ræmu, hún var sannarlega í frönskum anda, menn með vín í glasi, mikill fúkyrðaflaumur, ofbeldi og nekt í aðalhutverkum.

læt þessu lokið að sinni - lifið heil

-mundi | 22:54 | Comments (8)

nóvember 29, 2004

partý og próf

Ég er að fara í partý í kvöld og próf í fyrramálið. Er nokkuð viss um að það hef ég aldrei áður gert. en einhverntíma er allt fyrst. Spurning hvort ég sé að verða svona kærulaus eða hvort ég kunni þetta svo vel að ég þurfi ekki að vera að læra fram á nótt eða að ég sé svo á þörfinni fyrir smá félagslíf að ég láti það ganga fyrir einkunnasýkinni.
Ætli þetta sé ekki bara góð blanda af þessu öllu.

-Svanhildur | 17:02 | Comments (3)

nóvember 28, 2004

Lærdómur

Var að enda við að æla einu nokkuð stóru verkefni út úr prentaranum. Er búin að vera að vinna að þessu lengi og það er alltaf jafn góð tilfinning þegar maður tekur ákvörðun um að nú sé þetta orðið gott og ýtir á "print"takkann.


Ég er bara búin að sitja við tölvuna og læra alla helgina og því lítið að frétta, nema ef þið viljið fá upplýsingar um mun á franskri og íslenskri hljóðfræði og hvaða vandræði þessi munur getur haft í för með sér fyrir Íslendinga sem reyna að tala óaðfinnanlega frönsku. Efast um að margir hafi áhuga á að vita meira um þetta svo ég ætla bara að kveðja ykkur í bili og fara að byrja á næsta verkefni: fara að skoða hvernig mismunandi kennslubækur kynna nemendur fyrir passé composé og imparfait. Jæja, best ég hætti áður en ég drep ykkur úr leiðindum.

-Svanhildur | 17:08 | Comments (3)

nóvember 27, 2004

fyrstu íslandsfréttir

fyrsti dagur, eða öllu heldur dagspartur hér í höfuðborginni er þá senn liðinn. ég er nú búinn að ná að gera margt enda sólarhringurinn að verða langur í þetta skiptið. torfi náði í mig á bsí og svo fengum við okkur pylsu með öllu í tilefni af því. gott ef ekki tvær. það þykir mér nú ekki sérstaklega slæm fæða. svo horfðum við á stórmyndina maximum overdrive og að því loknu ákváðum við að skella okkur á næturlífið.


sáum fræbblana og botnleðju á gauknum og fórum svo í dúndrandi rokk á 22 þar sem einn ískaldur túborg til viðbótar var innbyrtur. við erum rétt komnir hingað heim til torfa, og nú er ég að fara að sofa og ætla að sofa frameftir því ég held að ég sé að verða svefnvana!!

góða nótt.

-mundi | 04:15 | Comments (2)

nóvember 26, 2004

Franska Ædolið

Nú er Mundi kominn til Íslands og bara rétt rúmar 3 vikur í að ég komi heim. Hlakka alveg rosalega mikið til. Ótrúlega stutt í þetta og vantar víst ekki verkefnin sem ég þarf að vinna á þessum 3 vikum. Mér ætti því ekki að gefast tími til að leiðast án Munda míns þótt ég sé nú strax farin að sakna hans. En þar sem hann er ekki hérna núna þá nýti ég tækifærið og horfi á Star Academy án þess að hafa hann hérna röflandi yfir öxlina á mér hvað þetta sé nú glatað. Já það er nú bara gott að fólk hefur misjafnan smekk en ég er alveg veik fyrir svona raunveruleikasjónvarpi. Þessi þáttur er sá lang lang vinsælasti í frönsku sjónvarpi og minnir á Ædolið en hér þurfa keppendur að búa saman og eru í þvílíkri þjálfun, bæði söng, dans og tjáningu og það er klukkutímaþáttur á hverjum degi þar sem maður sér það helsta sem gerst hefur yfir daginn. Svo eru svaka tónleikar einu sinni í viku og þá syngja alltaf einhverjir frægir með þeim, í síðustu viku var það Seal, þarsíðustu viku Tina Turner og í kvöld er það Kylie Minouge (skrifar maður það svona?) og í lok tónleikanna er svo einn kosinn út. Nema hvað, kvöldið í kvöld er sérstaklega spennandi því það eru bara 6 eftir og 2 verða kosnir út í kvöld. Ég spái því að það verði Sofiane og Sandy. Hvað heldur þú Heiða (þú ert sú eina sem veist um hvað ég er að tala, annars gæti ég nú alveg trúað Betu til að laumast á netið öðru hvoru til að fylgjast með þessu). En jæja, nú ætla ég að fara að poppa með honum Poppy mínum og koma mér vel fyrir fyrir framan tækið.

-Svanhildur | 20:29 | Comments (6)

kominn á ról

er þetta ekki full snemmt?? uss. en veðurspáin lofar góðu. þá er það bara ferðalagið eftir.

-mundi | 04:31 | Comments (5)

nóvember 25, 2004

síðasta kvöldmáltíðin

þeirri síðustu að sinni hér í grenoble hefur verið sporðrennt. skruppum í búðina í dag og keyptum nokkrar jólagjafir og verðlaunuðum okkur erfiðið með ítölsku carpaccio.


ég held að ég sé að verða búinn að koma mér frá því að pakka. þetta eru nú engin ósköp, enda samþykkja þyngdarmörk flugfélagsins ekki stóra búslóðaflutninga. þetta er meira vesenið, maður þarf að koma öllu fyrir og veit svo í raun ekkert hvað manni á eftir að vanta. tekur örugglega eitthvað með sem maður þarf ekki og skilur annað nauðsynlegt eftir...


svo er lest til flugvallarins í fyrramálið kl 7.13. með stoppi og lestarskiptum í Lyon í þetta skiptið og flugvélin á að fara upp úr kl eitt ef ég man rétt. ég hlakka til að sjá ykkur.

-mundi | 20:17 | Comments (2)

nóvember 24, 2004

Enn lækkar gengi dals gagnvart

Enn lækkar gengi dals gagnvart evru, segir mbl.is í dag. ég vona bara að það sé ekki fnjóskadalur!!

-mundi | 18:38 | Comments (6)

nenni ekki að pakka ...

einn dagur eftir í grenoble. ég sem ætlaði að vera svo duglegur við undirbúning í dag en nenni bara engu. svanhildur er í sínu fyrsta prófi einmitt núna þegar þetta er skrifað og ég vona bara að hún sé að gera góða hluti þar.


ég verð að fara að taka í skottið á mér og gera eitthvað - getur ekki einhver sagt mér hverju ég á að pakka?

-mundi | 11:52 | Comments (7)

nóvember 23, 2004

ég kem alveg af ...

já maður kemur af fjöllum. og ekki í fyrsta og vonandi ekki í síðasta sinn. því betur var hræðsla mín við atvinnubótavinnu frúarinnar ástæðulaus, gonni sjálfur tók völdin og ég er búinn að sinna ýmsu þarna sem ekki tilheyrir íslenskri skilgreiningu á málaravinnu.


ég er orðinn alveg ófeiminn við að segja bara já þegar kallinn spyr mig hvort ég kunni þetta eða hitt, af því að hér í landi er held ég lagður allt annar skilningur í það að "kunna" eitthvað. því var ég að sinna flotspörslun, flísalögn og uppsetningu og eingangrun á gifsveggjum í þetta skiptið. svo kvaddi ég kallinn og óskaði honum gleðilegra jóla árs og friðar. allt eins og það á að vera.


þegar maður kemur svo heim, þá fær maður sér salat, kjöt og ost og rauðvínsglas með. kveikir á fréttatíma rúv á meðan að maður snæðir til að taka púlsinn á því sem er að gerast. ég skil ekki alveg hvaða dæmi er í gangi núna með þennan bruna. mér virðist eins og að þarna hafi einfaldlega kviknað í drasli og það er bara allt brjálað. enginn lét lífið, enginn slasaður, helsta málið er sót í gluggakistum á kleppsvegi. æstur fréttamaður spurði rólega húsmóður um allt tjónið, og hún svaraði því að hún þyrfti sennilega að þvo gluggatjöldin! mér þykir rúv sem að maður hefur treyst á í gegn um tíðina hafa sett niður þegar það hagar sér eins og lélegt breskt æsifréttblað. ...talar ekki um annað en það sem hefði getað gerst. hvað eiga þeir eftir að segja ef að það virkilega verður bruni með mannskaða og verulegu eignatjóni?? mér finnst þetta skrýtið, en kannski er ég bara ekki að gera mér grein fyrir alvarleikanum héðan úr 3000 km fjarlægð. kannski bara gúrka...


nú fer hins vegar að styttast verulega í vist minni hérna þetta árið, flug heim á föstudag. þannig að á morgun og hinn verða snúningar til að græja það sem þarf að græja. svo gleymir maður auðvitað flestu! ég fékk hinsvegar boðun á þorrablót í mývó þann 22. janúar og þakkaði það vel, fátt er betra en þorrahátíð í þeirri sveit, svo fer maður þaðan hingað í blússandi skíðavertíð. úlla la....


að lokum langar mig að benda á skemmtilega klausu sem góður vinur minn frá íslandi benti mér á. mér skilst að síðuhaldari sé sveitungi hans sem staðsett er í frakklandi eins og fleiri um þessar mundir. smellið á -þetta-

-mundi | 19:51 | Comments (6)

nóvember 21, 2004

enn til fjalla

þá er þessi helgi senn á enda og ansi var hún nú eitthvað snubbótt og stutt. ég er búinn að eyða megninu af deginum í það að snúast með bíllausa þjóðverja. það hefur reyndar verið ágætt að brasast í því meðan svanhildur hefur verið að læra.


eldsnemma í fyrramálið fer ég svo til fjalla á ný og gisti þar eina nótt. aðeins að brasa meira fyrir gonna. ég er alls ekki að nenna því í þetta skiptið, af því að ég held að þetta verði einhver atvinnubótavinna í boði frúarinnar geðgóðu í þetta skiptið. en vonandi ekki.


góðar stundir

-mundi | 20:41 | Comments (4)

nóvember 20, 2004

Verslunarferð

Við vorum að koma heim eftir 5 tíma verslunarferð í miðbæinn. Ætluðum nú bara svona aðeins að kíkja í bæinn og fá okkur kaffibolla og kaupa skóreimar og sokkabuxur. En úr varð hin mesta verslunarferð, voða gaman, híhí. Keyptum alveg endalaust mikið: að sjálfsögðu skóreimar og sokkabuxur og svo líka bækur, húfur, peysu, nærbuxur, brjóstarhaldara, salatáhöld, eina afmælisgjöf (leyndó hvað það er), kaffibauk, fullt af kertum og svo má ekki gleyma ferðinni í apótekið þar sem við keyptum verkjatöflur, hælsærisplástra og varasalva handa Munda sem er með uppþornaðar varir og ónýtar táslur eftir fjallaferðina. Við kláruðum alla peningana sem Mundi var að enda við að vinna sér inn en það er nú allt í lagi þar sem hann er nú að fara til Íslands að vinna.


Þetta er sem sagt búinn að vera hinn besti dagur.

-Svanhildur | 16:55 | Comments (4)

Fjallaferð

ég kom hingað heim aftur í gærkvöldi með rútunni ofan úr fjöllunum. þar átti ég ágæta törn með purdy og svo var það auðvitað fjallgangan á fimmtudaginn.


þetta var nú sennilega sú sverasta sem ég hef farið í hérna, gengið úr 1500m í 2700m. og þar með alveg upp að jökli. þar sem skriðjökullinn hefur hopað er nú stöðuvatn sem var frosið og við gengum á því að jöklinum. gengum aðeins á jökulinn líka svona til prufu. svo var tekin allt önnur stefna heim, gengið utan í fjalli og yfir á nokkurskonar hrygg. það var nánast heiðskýrt þennan dag svo útsýnið var stórkostlegt, mont blanc blasti við okkur í allri sinni dýrð, sá tindur enda rúmum 2000m ofar !!. eins sáum við vel yfir til ítalíu. að endingu röltum við okkur niðurímót í áttina heim. þar gengum við óvænt fram á steingeit en hún var í klettunum fyrir neðan okkur. það var hreint ótrúlegt að sjá þetta kvikindi athafna sig í snarbrattri hlíðinni en skömmu áður vorum við búnir að sjá hóp af einhverri annarri villigeitategund.


þetta var 10 klst labb, og fæturnir mínir voru búnir að fá alveg nóg af skónum þegar þessu var lokið, setti persónulegt met í "kjöt-blöðrum" . nettur sólbruni og varaþurrkur. en þetta var alveg magnaður dagur og ég er farinn að hlakka til næstu ferðar.

-mundi | 12:02 | Comments (2)

nóvember 19, 2004

grasekkjutíminn búinn - í bili-

Undanfarna 3 daga hef ég verið ein heima í kotinu þar sem Mundi er búinn að vera uppi í fjöllum að ná í björg í bú og fara í fjallgöngu. Fjallgangan var víst alveg frábær en ég er viss um að hann segir ykkur betur frá henni á morgun.


Ég er nú bara búin að vera ansi dugleg að læra þó ég hafi nú ekki náð að klára allt sem ég ætlaði mér að klára, en það er nú alltaf þannig. Svo er ég nú líka búin að vera dugleg á msn-inu og það er nú alltaf jafn gaman. Hlakka til að koma heim og hitta allt þetta fólk sem ég er búin að vera að tala við og líka alla hina.


Mundi er að koma heim eftir klukkutíma svo ég ætla að fara að ganga frá skólabókunum og taka aðeins til hérna (ég set allt í drasl þegar ég er bara ein) og elda svo eitthvað gott handa honum (ég fór meira að segja út í gúrmand búðina áðan og keypti alveg rosalega "overprised" (hvernig segir maður það á íslensku, svoa af því ég er nú nýbúin að vera að skammast út í lélega íslenskukunnáttu, ætti kannski líka að taka "gúrmand" út og setja "nautnaseggja"í staðinn, hmmm, ég hef greinilega engan rétt á að vera að gagnrýna aðra, en áfram með söguna), ég fór sem sagt í nautnaseggjabúðina og keypti mjög dýrt reykt andakjöt, nammi namm). Ég þarf nú að vera góð við hann núna því hann fer svo aftur eftir viku og þá alla leið til Íslands. Þarf samt líka að vera rosalega dugleg að læra því að prófin byrja hjá mér í næstu viku.


En jæja, ætla að fara að vaska upp núna.


Megið þið eiga góða helgi.

-Svanhildur | 18:17 | Comments (1)

nóvember 17, 2004

Nöldur

Það fer alveg ofsalega í taugarnar á mér að lesa stafsetningarvillur og málfræðivillur fara enn meira í taugarnar á mér. Get þó alveg sætt mig við þetta hjá "venjulega fólki" (þ.e. á heimasíðum einstaklinga, í bréfum á milli einstaklinga o.s.frv.)en þar eru það nú samt helst stafsetningarvillur sem maður rekur augun í og eins og ég sagði áðan þá finnst mér þær öllu betri en málfræðivillurnar. En ég bara get ekki lengur orða bundist yfir öllum villunum á fréttavefunum (og þá sérstaklega á mbl þar sem ég les þann vef mest). Þarna er verið að birta eitthvað opinberlega í nafni dagblaðs en það er greinilega enginn sem les efnið yfir áður en það er birt og þeir sem skrifa fréttirnar virðast ekki einu sinni hafa fyrir því að lesa þær yfir einu sinni áður en þeir smella á "birta" takkann. Ég gæti nefnt óteljandi dæmi um svona lagað en ætla að láta tvö dæmi úr einni mjög stuttri frétt sem ég var að lesa áðan duga:


Dæmi 1
"Læknar, sem stunduðu Yasser Arafat, forseta heimastjórnar Palestínu, á dánarbeði..." Ég hélt alltaf að læknar önnuðust sjúklinga sína en stunduðu þá ekki. Ekki nema þeir séu farnir að stunda þá eins og fóbolta bara, finnst svo gaman í vinnunni að þetta er bara eins og tómstundargaman.


Dæmi 2
"Frönsk læknalög þýða, að læknar Arafats geta aðeins veitt nánustu ættingjum Arafats upplýsingar um sjúkdómsgreiningu." Þetta er kannski bara smámunasemi í mér en mér finnst þetta mjög asnalega orðað. Verður maður ekki að segja: Frönsk læknalög kveða á um ?


En jæja, nóg um þetta í bili. Mundi er farinn til fjalla og ég ætlaði víst að nýta tímann vel til að læra og læra og læra en ekki til að lesa mbl og röfla svo um það sem ég les.

-Svanhildur | 14:08 | Comments (9)

nóvember 16, 2004

enn ein uppfærsla

já hér hafa hlutir þróast hratt og málin verið í óða önn að skýrast í dag og því er hér þriðja færsla dagsins!


svanhildur náði að góma miða aftur til frakklands þann 7. jan og fékk þar með nettilboðsmiða. við komumst nefnilega að því að sá er breytanlegur og því er það mál frá, áhættustýring tókst og allt klappað og klárt.


hitt er það að Gonni félagi okkar allra var að koma hingað áðan, ég fer til fjalla með honum í fyrramálið á undan hananum og ætla að sletta úr pensli fram eftir degi. hann er með norskan tengdason sinn í heimsókn og vegna anna og heilsuleysis treystir hann sér ekki í fjallgöngu á fimmtudaginn en hinn norski var búinn að panta eina slíka. því er búið að etja okkur víkingunum í kapphlaup upp á hæstu tinda hér á fimmtudag. þannig að ég mun gera hlé á gusugangi þann daginn. af þessum sökum er ég búinn að pakka föðurlandi, mannbroddum og ýmsu fleira fyrir þessa vinnuferð! á föstudag ætla ég svo að mála aðeins meira og koma mér til byggða. ég vonast til að ná einhverjum myndum af herlegheitunum, enda allt of langt síðan nýjar myndir hafa birst hér á síðunni. en nú kveð ég að sinni - a plus

-mundi | 20:25 | Comments (2)

Hjálp

Já mig vantar hjálp. Málið er það að Frakkar eiga frekar erfitt með að skipuleggja fram í tímann og það er þessa stundina að skapa mér vandræði. Gert er ráð fyrir því í skipulagi skólans að miðsvetrarpróf fari fram á tímabilinu 7. - 14. janúar. Allir mínir kennarar nema einn hafa hins vegar ákveðið að það sé mun betra að klára prófin bara fyrir jól og er það vel. Ég þarf sem sagt að taka eitt próf á þessu prófatímabili í janúar og er búin að bíða og bíða eftir því að prófataflan verði auglýst til að geta pantað mér flugmiða til baka frá Íslandi til Frakklands. Gafst hins vegar upp á að bíða í dag og fór á skrifstofuna til að spyrja út í þetta. Og viti menn, prófataflan kemst ekki á hreint fyrr en um mánaðarmótin.


Ég er búin að vera að skoða verð á flugi á netinu, bæði hjá Iceland Express og hjá Flugleiðum. Er orðin það sein að panta nú þegar að ég get ekki fengið ódýrara flug með Express en 15.000 kr. + skatta + hótelherbergi eina nótt í London (þar sem þeir eru hættir með morgunflug til London ) + flug frá London til Lyon sem kostar ca 8.000 + rútu frá Lyon sem kostar 1000 kall. Þetta er sem sagt ekki mjög góður kostur.


Þá neyðist maður til að kíkja á hvað Flugleiðir eru að bjóða upp á. Þar þarf auðvitað alltaf að kaupa miða fram og til baka og það kostar 42 000 kr. En viti menn, haldiði ekki að ég hafi fundið einn netsmell: flug fram og til baka (set þá bara flugið til baka í lok maí) á 26.000 kr. Og þá er komið að spurningunni sem ég þarf hjálp við að svara: Þetta er flug út 7. janúar (allir netsmellar búnir 3. janúar og Flugleiðir fljúga bara til Parísar á mánudögum og föstudögum, auk þess langar mig miklu meira að vera heima til 7. jan en 3. jan). En já, spurningin: Á ég að þora að panta flug 7. jan. þegar líkurnar á að ég eigi að fara í próf þann dag eru 1 á móti 6 eða bíða eftir að fá þetta allt á hreint og borga meira fyrir miðann (sem verður þó minna þegar upp er staðið ef ég þarf að vera komin út aftur fyrir 7. jan.) Verð reyndar að játa að ég er mannsekja sem vil alls ekki taka áhættu þegar peningar eru annars vegar (sem skapast nú sennilega af því að maður hefur ekkert allt of mikið af þeim) en veit samt að ég yrði ansi svekkt að missa af þessu tilboði ef ég þarf svo ekki að fara í próf þennan dag.


Hvað mynduð þið gera?

-Svanhildur | 16:37 | Comments (3)

miðar

jæja þá er það klárt. lestarmiði í höndum og flugmiða búið að breyta. áætluð lending í KEF kl.15.20 þann 26. nóv.


svo er ég sennilega bara farinn til fjalla frá og með fyrramáli, og bið að heilsa þangað til næst


þar til hafiði það gott

-mundi | 15:58 | Comments (1)

nóvember 15, 2004

drög að heimkomu

helstu fréttir frá frans í dag eru þær að í gær átti ég samtal við Gunna meistara. hann tjáði mér að hann gæti notað hendur í desember svoleiðis að það stefnir í það að ég fari að breyta flugmiðanum mínum. reyni að koma heim í kring um mánaðamót.

þannig fær svanhildur næði í prófalestri í desember en hún á pantað flug heim þann 20. á meðan get ég vonandi náð að skrapa saman nokkrum spesíum á meðan hún les.


skítkalt í dag, 3-4° en logn.

-mundi | 16:35 | Comments (5)

nóvember 14, 2004

Vel heppnað föstudagskvöld

Í tilefni afmælisins fórum við út að borða á voða fínan veitingastað sem okkur hefur langað til að prufa frá því við komum hingað en höfum aldrei leyft okkur það því hann er ansi dýr, allavega á franskan mælikvarða. Við ákváðum fyrst við vorum komin þangað á annað borð að gleyma sparnaði þetta kvöld og fengum okkur þvílíka nautnaseggja máltíð og fengum okkur dýrasta "menúinn" á matseðlinum (það má kannski taka það fram að þessi staður sérhæfir sig í norskum réttum): fyrst fengum við kir royal í fordrykk og litla villisveppasúpu í for-forrétt, þvínæst kom forrétturinn: risadiskur fullur af ýmis konar hreindýrakjöti: reykt hreindýrakjöt, hreindýrakjötspylsa, hreindýrapaté o.fl. ásamt marineruðu nautakjöti, salati, tittuberjasultu, smurosti og steiktum lauk (sem vakti mikla lukku hjá Munda). Þessi réttur var tær snilld og slær allt út, fær 10 af 10 mögulegum í einkunn. Í aðalrétt var svo hreindýrasteik (mjög góð líka) og ég fékk mér svo ís í eftirrétt en Mundi sítrónusorbet með ákavíti út á (það var mjög gaman að horfa á svipinn á Munda þegar hann borðaði þetta: mjög súr sorbet með mjög sterku áfengi, verð að segja að mér fannst þetta ekki spennandi réttur en Mundi var sáttur). Eftir matinn var svo drukkið kaffi og að sjálfsögðu einn snafs af ákavíti. Þetta var sem sagt hrein snilld og ég fæ bara vatn í munninn við að skrifa þetta.


Þvínæst kíktum við aðeins á barinn og vorum svo á heimleið þegar við rákumst á Hagen (sem býr með okkur). Við ákváðum að kíkja aðeins 3 saman á annan bar og dönsuðum þar þangað til við vorum orðin þreytt og ákváðum að rölta heim, ánægð eftir vel heppnað kvöld.


Gærdagurinn var svo hinn fullkomni letidagur með tilheyrandi videoglápi.

-Svanhildur | 08:22 | Comments (2)

nóvember 12, 2004

pólitísk viðbót daxins

í dag langar mig að senda íslenskum kennurum, sjómönnum og öðru því fólki sem hefur lent í því að ríkisstjórnin rífi af lögbundinn verkfallsrétt, samúðarkveðjur.


það hlýtur að vera erfitt að eiga í kjarabaráttu með þetta eina vopn, þegar þeir sem reynt er að semja við geta haldið að sér höndum og undantekningalítið treyst á að ríkisvaldið bjargi þeim úr skítnum. já sveiattan.

bestu kveðjur til ykkar frá frans

-mundi | 16:11 | Comments (3)

12. nóv

fallegur dagur í grenoble í dag en frekar kalt samt í heiðskýrunni.


gott ef við svanhildur opnum ekki eins og eina góða dós af niðursoðnum ávöxtum fyrir kvöldið, - því okkur telst svo til að við eigum 5 ára samvistaafmæli einmitt í dag.


góða helgi

-mundi | 10:40 | Comments (4)

nóvember 11, 2004

ellefu ellefu

það steingleymdist alveg hjá mér í umræðunni um kvikmyndina Maximum Overdrive, í gær, sú staðreynd að öll tónlist í myndinni er í höndum kónganna í ACDC, já það er snillingurinn Angus sem sér um rokkið.


annars er almennur frídagur í frans í dag, ellefti ellefti er að ég held sá dagur sem markaði enda fyrri heimsstyrjaldar. sel það samt ekki dýrara en ég keypti. bakarinn minn var samt með opið í dag og sá fyrir því að ég fengi brauð með skinkunni og croissant með kaffinu.

-mundi | 11:41 | Comments (4)

nóvember 10, 2004

B... eða ...

góðu fréttir daxins eru þær að í dag keypti ég myndina MAXIMUM OVERDRIVE á súpertilboði í carrefour á 1€. það er hámarksverð fyrir þessa mögnuðu mynd. við erum að tala um það að konungur B-myndanna er fundinn. ótrúlega magnaður leikur ásamt vel útfærðum tæknibrellum tvinnast þarna saman við hreint magnaðan sögðuþráð!! ég hlakka til að koma með þessa mynd heim og horfa á hana aftur í góðra vina hópi.

-mundi | 20:50 | Comments (5)

nóvember 9, 2004

arrgh....

pirringur daxins er í boði hleðslutækis fyrir sony myndavél. ég er búinn að snúa öllu við í leit að því - án árangurs. er ekki einhver með góð "hint" þarna handa mér?? er ekki miðill að lesa þetta?

-mundi | 14:20 | Comments (6)

þröngt mega sáttir leggja

tn_DSC06324.JPG


eftir að vera búinn að búa í frans í eitt ár kallar maður ekki allt ömmu sína þegar að því kemur að bakka í stæði. ég gat ekki annað en varist brosi í sumar þegar einn vinnufélagi minn lagði í annari götu því að það var ekkert stæði nálægt sagði hann. samt var pláss beint fyrir utan húsið sem var að minnsta kosti ein og hálf bíllengd.


ég skapp aðeins á bílnum í morgun og þegar ég kom heim bakkaði ég þarna inn - þurfti samt ekkert að "skúbba" - það gerir maður bara þegar það er enn þrengra.

-mundi | 11:59 | Comments (4)

nóvember 8, 2004

ferðasaga helgarinnar

eftir ársbúsetu í grenoble verður maður blindur á veðurspár. við komumst að því um helgina. við nefnilega skoðuðum hvernig veðrið ætti að vera suðurfrá, og jú sól og hiti. við gleymdum alveg að skoða þetta með vindinn. ef maður skoðar spá fyrir grenoble þá gerir maður það aldrei, hér eru bara 90% líkur á logni. en svona var helgin:


á föstudag var lagt af stað upp úr hádegi og ekið áleiðis hraðbrautin A7 suðureftir. þegar við komumst út úr fjöllunum og fórum að komast aðeins sunnar varð allaf bjartara og bjartara og þetta leit vel út. þegar við vorum komin suður til languedoc urðum við hins vegar vör við það að það virtist vera vel hvasst. sem og var staðfest þegar við stöðvuðum bílinn og stigum út. það var bara alveg hífandi rok. vindur úr þessari átt er kallaður mistral og er víst sá hvassasti á þessum slóðum. enginn fellibylur samt þó hann hafi nafn, en hvass. svo tók við leit að tjaldstæði, þau voru nefnilega flest lokuð. eftir mikinn akstur í 2 tíma fundum við loksins eitt opið. þar gátum við leigt okkur hjólhýsi fyrir lítið og komum okkur vel fyrir. volfgang litli varð hins vegar að eyða nóttinni úti í hneturegni, þarna var nefnilega fullt af hnetutrjám og þeim rigndi yfir menn og málleysingja í hviðunum.


á laugardaginn var farið snemma af stað til avignon, við ákváðum nefnilega að borgarmúrarnir, þétt byggðin og þröngar göturnar mundu veita skjól sem og reyndist rétt. þar vorum við svo fram yfir hádegið. seinnipartinn fórum við svo í ökuferð um vínekrurnar þar sem eðalvínin Châteuneuf du pape eru gerð. gott ef við fórum ekki í smökkun þarna hjá gömlum kalli og keyptum af honum flösku. renndum að því loknu um akra Côte du Rhône villages. þetta var góður dagur, við fræddumst um ýmislegt, við sáum fólk hlaupa á eftir höttunum sínum og fengum ferskann vindinn í lungun. kláruðum svo daginn með því að grilla, og fá okkur gullverðlaunaða rauðvínsflösku úr héraðinu með matnum.


sunnudagur og farið á fætur kl 9 pakkað saman og haldið í átt að grenoble. við ákváðum að fara lengri leiðina eða í gegn um alpana. verulega hlykkjóttir fjalllvegir og álag á bremsur og stýrisenda í sögulegu hámarki, enda tók það 7 tíma að keyra þessa 300 kílómetra. stoppuðum aðeins á nokkrum stöðum og ókum fram hjá öðrum. margt virkilega fallegt að sjá, enda er þetta ein fallegasta leið sem maður fer hérna, byrjar á undirlendi með suðrænum blæ, ekur í hólum og hæðum þegar maður kemst lengra frá sjó og endar í hrikalegum alpafjallgarðinum. ótrúleg breyting á veðráttu og landslagi á stuttum kafla.


því miður gleymdist myndavélin heima svo að það verða ekki birtar myndir frá þessari ferð hér. í dag er hins vegar fyrsti í sköfu hérna í grenoble, bílrúðurnar hrímaðar í morgun, og ekki nema 9 stig hérna núna.

-mundi | 09:30 | Comments (5)

nóvember 5, 2004

farin

farin suðureftir í sólina. montpellier, avignon eða nimes - enginn veit hvar tjaldi verður slegið upp í kvöld.


góða helgi

-mundi | 12:41 | Comments (5)

nóvember 4, 2004

svo bregðast krosstré sem önnur

nú er ég ekki sáttur við málgagnið. eins og það hefur nú verið notalegt hérna í útlandinu að geta lesið um það sem er að gerast heima á klaka. það er aðeins hinn norðlenski hreimur og ómþýða rödd Gests Einars í morgunútvarpinu sem tekur morgunblaðinu fram í net-nostalgíu íslendinga á erlendri grund.


nú er mogginn hins vegar farinn að heimta æ oftar að maður gerist áskifandi. það er varla hægt orðið að lesa nokkuð að gagni á mbl.is án þess að upp komi gluggi sem segir manni að nú þurfi að borga og svo er manni bent á að smella á hnapp sem veitir manni leyfi til að gefa upp kreditkortanúmer.


- auðvitað hefur maður engan rétt á að vera að væla þetta, þetta er einkarekið blað í harðri samkeppni og engin ástæða fyrir það að vera að gefa mér upplýsingar. maður ætti sennilega frekar að þakka þann tíma sem maður hefur haft aðgang að þessu fyrir ekki neitt.


visir.is bragðast bara ekki eins vel með kaffinu !

-mundi | 16:36 | Comments (5)

nóvember 3, 2004

pólitík á lóðaríi

engin eldgos hér í grenoble í dag, og allt með rólegasta móti eins og vera ber. þær fréttir berast mér þó hingað með íslenskum fjölmiðlum að sitjandi forseti bandaríkjanna fái trúlegast að sitja þar áfram um sinn. ég er eins og svo margir aðrir evrópubúar ekki hrifinn af þeim trúð, þó svo að dabbi dúskur stígi á stokk og lofi hann. ég veit svosem ekkert um mótframbjóðandann - vildi bara hinn burt.


jæja, - þetta á nú ekki að vera pólitísk síða hérna, njótið dagsins.


- Grenoble - logn - 18°stig -

-mundi | 14:25 | Comments (4)

nóvember 2, 2004

fréttaþörf nútímans

við erum komin til baka úr fjallaferðinni. framlengdum um einn dag. þar var alveg ágætt að vera að vanda þrátt fyrir heldur meiri kulda þar en hér. en þá var lítið annað að gera en að fara úr að ofan og höggva í eldinn.


þegar maður kemur til baka og opnar miðilinn þá kemst maður að því að á landinu eina sanna eru olíuskandalar og eldgos, sáttatillögur og gott ef ekki er verið að segja frá amerískri pólitík. lífið í fjöllunum er heldur einfaldara, þar veit maður það eitt að sólin kemur upp í austri í fyrramálið.

-mundi | 16:52 | Comments (6)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni