Fimmtudagur 7. október

Tónleikar

Við fórum í gærkvöldi á tónleika, eða við héldum að við værum að fara á tónleika, með brass bandi í skólanum mínum. Reyndar stóð á auglýsingunn að þetta væri æfing sem væri opin áhorfendum. Ég hélt því að þetta væri lokaæfing fyrir einhverja tónleika þar sem rennt væri yfir prógrammið. En nei, þetta var ekki alveg þannig. Þetta var bara venjuleg æfing og auk þess er þetta hljómsveit sem er opin öllum sem vilja vera með svo hún er nú kannski ekki á mjög háu kalíberi. En til að gera langa sögu stutta þá var þetta vægast sagt hræðilegt og eftir að hafa setið og hlustað í hálftíma á eitthvað sem getur varla kallast tónlist þá ákváðum við að láta okkur bara hverfa.


Annars er ég núna á fullu að gúffa í mig lýsi, sólhattsdropa og ólífulauf. Virðist vera að fá einhver helv... skít í hálsinn, nefið og hausinn en ég tek á móti sýklunum með öflugum mótaðgerðum og ég skal sigra

- Svanhildur | 20:53
Umræður

mundi:

hahahhahaha..... já þetta var slíkt magnaður konsert

(07.10.04 09:07)

torfi:

var þetta D-sveit tónlistarskólans....


... ég var í henni - og ég var ekki sérlega fær :-|

(07.10.04 14:41)

mundi:

....ég held að eina tenging þessara lúðraþeytara við skóla hafi verið sú að "tónleikarnir" voru í skólahúsnæði.

þetta var meira svona eins og F - sveit áhugasamra.

(07.10.04 14:52)

thordur:

saelir mundi, islendingar utum allt! alveg otrulegt! sendi linu naest thegar ég verd a ferdinni i grenoble

(08.10.04 08:58)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni